Fréttablaðið - 17.10.2003, Qupperneq 37
37FÖSTUDAGUR 17. október 2003
LAUGAVEGI 178 • SMÁRALIND • KRINGLUNNI • SÍMI 570 7500www.hanspetersen.is
24.800kr.• 3,2 milljón pixlar• 5X stafrænn aðdráttur
• Video: 3 sek. upptaka
• 16 & 32 MB minniskort fylgja
PowerShot A300
ARSENE WENGER
Framkvæmdastjórinn er ósáttur við
ákvörðun stjórnar Arsenal.
Enska knattspyrnan:
Wenger
ósáttur
FÓTBOLTI Arsene Wenger er ósáttur
við ákvörðun stjórnar Arsenal um
að viðurkenna sekt leikmanna
félagsins í átökunum sem urðu eftir
leik Manchester United og Arsenal.
Wenger hafði lýst því yfir að
hann ætlaði að berjast gegn öllum
ákærum sem bornar voru á leik-
menn hans í kjölfar leiksins á Old
Trafford. Martin Keown, Bisan
Lauren, Patrick Vieira, Ashley Cole
og Ray Parlour eru allir á saka-
mannabekk enska knattspyrnusam-
bandsins en ákæra á hendur Jens
Lehmann var dregin til baka. ■
Everton:
Ekkert tilboð
í Rooney
FÓTBOLTI „Wayne er ánægður hjá
Everton og er bundinn félaginu
með samningi til þriggja ára,“ sagði
Ian Monk, talsmaður umboðsskrif-
stofunnar ProActive Sports Mana-
gement. Monk segir að það sé eng-
inn fótur fyrir frétt The Sun um að
Chelsea hafi boðið Everton 35 millj-
ónir punda fyrir Wayne Rooney.
Everton hefur einnig svarað
frétt The Sun. „Við höfum hvorki
heyrt frá Chelsea né nokkru öðru
félagi vegna Wayne Rooney og
myndum ekki fagna neinu slíku
erindi,“ sagði Ian Ross, fjölmiðla-
fulltrúi félagsins, við fréttavef
BBC. ■
Ruud Gullit þjálfar U-19
lið Hollendinga:
Frumraun
gegn Íslandi
FÓTBOLTI Síðdegis í dag stjórnar
Ruud Gullit hollensku landsliði í
fyrsta sinn. Sviðið verður
Dinamo-leikvangurinn í Kisínev,
höfuðborg Moldavíu, tilefnið
Evrópukeppni U-19 landsliða og
mótherjinn verður Ísland.
Ruud Gullit hóf feril sinn hjá
Haarlem í Hollandi árið 1981 en
lék síðar með Feyenoord, PSV, AC
Milan, Sampdoria og Chelsea.
Árið 1996 varð hann fram-
kvæmdastjóri Chelsea en var
rekinn þaðan í febrúar 1998.
Seinna um sumarið 1998 tók hann
við þjálfun Newcastle en missti
starfið ári síðar. Gullit hefur
ekkert fengist við þjálfun síðan
1999 en tekur upp þráðinn í dag
með U-19 liði Hollendinga í leik
gegn Íslendingum. ■