Fréttablaðið - 17.10.2003, Qupperneq 38
38 17. október 2003 FÖSTUDAGUR
MEISTARAMÓT MADRÍDAR
Chilemaðurinn Nicolas Massu býst til að
senda boltann til Bandaríkjamannsins
Andy Roddick á Meistaramóti Madrídar.
Tennis
FÓTBOLTI Paul Gascoigne, fyrrum
landsliðsmaður Englands í knatt-
spyrnu, æfir nú með enska úrvals-
deildarliðinu Wolves í von um að
koma sér í gott form að nýju.
Hinn 36 ára gamli knattspyrnu-
kappi segist hafa farið þess á leit
við Dave Jones, knattspyrnu-
stjóra Úlfanna, að hann hjálpaði
sér að ná fyrri styrk á ný.
„Hann vildi koma sér í form og
er að leita að félagi. Ég sagði hon-
um að við myndum glaðir hjálpa
honum,“ sagði Jones.
Gazza, eins og hann er oftast
kallaður, lék síðast með kínverska
annarrar deildar liðinu Gansu Ti-
anma fyrir sex mánuðum og var
talið líklegt að hann væri aftur á
leið til Austurlanda. Hann hefur
hins vegar átt erfitt uppdráttar
upp á síðkastið en mætti til æf-
inga hjá Úlfunum í gær. Hann er
staðráðinn í að taka skóna fram að
nýju og hefur meðal annars verið
orðaður við þriðju deildar lið
Darlington.
Tveir íslenskir landsliðsmenn
leika með Úlfunum, þeir Ívar
Ingimarsson og Jóhannes Karl
Guðjónsson. ■
Þokkalegir
möguleikar
HANDBOLTI „Við erum í ágætri
stöðu eftir fyrri leikinn. Við eig-
um þokkalega mökuleika á að
komast áfram, en það er mikil
vinna eftir,“ sagði Árni Stefáns-
son, þjálfari HK.
HK leikur á morgun við rúss-
neska félagið Stepan í Evrópu-
keppni bikarhafa en Rússarnir
unnu fyrri leikinn ytra 23-22.
Leikið verður í íþróttahúsinu í
Digranesi og hefst viðureignin
klukkan 16.30.
Stepan, sem er frá St. Péturs-
borg, er eingöngu skipað rúss-
neskum leikmönnum. „Styrkleiki
þeirra felst í góðri vörn og góðri
markvörslu,“ sagði Árni Stefáns-
son en markvörðrinn Pavel
Shukasian og leikstjórnandinn
Sergei Ziza eru sterkustu leik-
menn félagsins.
Shukasian, sem verður 42 ára í
janúar, lék með rússneska (áður
sovéska) landsliðinu í fimmtán ár
og stærstan hluta ferils síns með
CSKA Moskvu. Ziza lék með KA
veturinn 1996-97 og varð Íslands-
meistari með Akureyringunum
um vorið. Aðstoðarþjálfari KA þá
var Árni Jakob Stefánsson, sem
nú er þjálfari HK.
„Við lékum góða vörn í fyrri
leiknum og þeir náðu aldrei skot-
um í gegnum vörnina okkar,“
sagði Árni. „Við verðum að leika
skynsamlega og reyna að brjótast
í gegnum vörnina í stað þess að
reyna langskot.“
Árni sagðist ekki hafa vitað
mikið um Rússana fyrir leikinn
ytra en hann hafi fengið tvær
vídeóspólur með leikjum liðsins
auk þess sem Alfreð Gíslason
hjálpaði með upplýsingar. Á móti
kemur að Rússarnir vissu ekkert
um HK. Það staðfesti Sergei Ziza
við Árna eftir leikinn.
Bregenz HB, austurríska fé-
lagið sem Dagur Sigurðsson þjálf-
ar, leikur gegn pólsku félagi í
þessari keppni og á möguleika á
að komast áfram. Árni telur ekki
tímabært að spá í önnur félög í
keppninni. „Þetta er allt í okkar
höndum. Ef við leggjum okkur
fram getum við komist áfram. Þá
fyrst förum við að spá í hugsan-
lega mótherja,“ sagði Árni. ■
Góðgerðarmál:
Stór knapi
GÓÐGERÐARMÁL Manute Bol, fer-
tugur Súdani, verður stærsti
knapi sögunnar á laugardag, finn-
ist nógu stór hestur. Bol er 2,27
metrar á hæð og lék um ellefu ára
skeið með Washington Bullets,
Philadelphia 76ers, Golden State
Warriors og Miami Heat í NBA-
deildinni.
Kappreiðarnar fara fram á
Hoosier Park-brautinni í Indiana-
polis en tilgangurinn er fjársöfn-
un til styrktar börnum í Súdan
sem hafa orðið fórnarlömb borg-
arastyrjaldarinnar þar í landi. Bol
hefur í sama tilgangi keppt í ís-
hokkí með félagi í Indianapolis og
í hnefaleikum við ruðningskapp-
ann William „Ísskáp“ Perry. ■
MATEJA KEZMAN
Hann hefur farið mikinn í liði PSV
Eindhoven og skoraði 35 mörk á síðasta
tímabili.
Meintur mannræningi:
Hugðist
ræna
Kezman
FÓTBOLTI Lögreglan í Eindhoven
handtók fyrir skömmu mann sem
hafði lagt á ráðin um að ræna
Mateja Kezman, framherja PSV
Eindhoven. Lögreglan handtók 59
ára gamlan mann frá borginni
Arnhem en þurfti síðar að sleppa
honum vegna ónógra sannana.
Guus Hiddink, þjálfari PSV,
segir Kezman enn mæta á æfing-
ar þrátt fyrir atburðinn.
„Hann varð æstur og reiður
þegar hann frétti af málinu. Hann
hefur samt reynt að lifa sínu
venjulega lífi,“ sagði Hiddink.
Kezman, sem er Serbi, átti
stóran þátt í því að PSV fangaði
hollenska meistaratitilinn á síð-
asta ári. Hann varð markahæstur
í deildinni með 35 mörk.
PSV á leik gegn erkifjendunum
í Ajax þann 26. október en liðin
eiga í harðri baráttu á toppi hol-
lensku deildarinnar. ■
* Gildir í október.
OKTÓBERFEST
0,5 l Holsten á kr.350*
■ ■ LEIKIR
19.15 Þór og Valur keppa í Höll-
inni á Akureyri í norðurriðli RE/MAX-
deildar karla í handbolta.
19.15 Grindavík leikur við Reyni í
Grindavík í Hópbílabikar karla í körfu-
bolta.
19.15 Keflavík mætir Ármanni í
Keflavík í Hópbílabikar karla í körfubolta.
20.00 Fram keppir við Aftureld-
ingu í Framhúsinu í norðurriðli RE/MAX-
deildar karla í handbolta.
■ ■ SJÓNVARP
18.00 Olíssport á Sýn. Fjallað er
um helstu íþróttaviðburði heima og er-
lendis.
18.30 Trans World Sport (Íþróttir
um allan heim) á Sýn.
19.30 Football Week UK (Vikan í
enska boltanum) á Sýn.
20.00 Gillette-sportpakkinn á Sýn.
20.30 Alltaf í boltanum á Sýn.
21.00 UEFA Champions League.
Fréttaþáttur um Meistaradeild Evrópu á
Sýn.
21.30 Fastrax 2002 (Vélasport) á
Sýn. Hraðskreiður þáttur þar sem öku-
tæki af öllum stærðum og gerðum
koma við sögu.
22.00 Mótorsport 2003 á Sýn. Ítar-
leg umfjöllun um íslenskar akstursíþróttir.
Paul Gascoigne:
Æfir með
Úlfunum
PAUL GASCOIGNE
Gazza hefur leikið með Newcastle, Totten-
ham, Lazio, Rangers, Middlesbrough og
Everton og var um tíma einn besti miðvall-
arleikmaður heims.
HK leikur á morgun við rússneska félagið Stepan í Evrópukeppni
bikarhafa. Árni Stefánsson, þjálfari HK, segir liðið í ágætri stöðu eftir
fyrri leikinn ytra.
HK
Árni Stefánsson, þjálfari HK fagnar sigri félagsins í SS-bikarkeppninni síðasta vetur.
hvað?hvar?hvenær?
14 15 16 17 18 19 20
OKTÓBER
Föstudagur