Fréttablaðið - 17.10.2003, Síða 40

Fréttablaðið - 17.10.2003, Síða 40
■ ■ KVIKMYNDIR  Bestu tónlistarmyndbönd heims í Regnboganum: kl. 16, 17.30 og 19.  Bestu tónlistarmyndbönd heims í Regnboganum: kl. 16, 17.30 og 19.  Sjá www.kvikmyndir.is Sambíóin Kringlunni, s. 588 0800 Sambíóin Álfabakka, s. 587 8900 Háskólabíó, s. 530 1919 Laugarásbíó, s. 5532075 Regnboginn, s. 551 9000 Smárabíó, s. 564 0000 Sambíóin Keflavík, s. 421 1170 Sambíóin Akureyri, s. 461 4666 Borgarbíó, Akureyri, s. 462 3500  Bestu tónlistarmyndbönd heims í Regnboganum: kl. 16, 17.30 og 19. ■ ■ TÓNLEIKAR ✓ 17.00 Guðjón Rúdolf verður með tónleika í verslun 12 Tóna við Skólavörðustíg. Hann gaf nýverið út geisladiskinn Minimania sem hefur vakið verðskuldaða athygli.  17.00 Jóhann Jóhannsson leikur ásamt Ethos-strengjakvartettinum og Matthiasi MD Hemstock tónlist af disknum “Englabörn” í Hallgrímskirkju. Á tónleikunum verður einnig flutt ný tónlist af væntanlegum diski Jóhanns sem kemur út snemma á næsta ári. ✓ 19.30 Tónleikar með Kvennakór Reykjavíkur og Páli Óskari verða hald- nir í Austurbæ. Á efnisskrá verður fjöl- breytt tónlist allt frá Hljómasyrpu til Supremes og fleiri. Stjórnandi er Sigrún Þorgeirsdóttir og auk hennar verður þriggja manna hljómsveit. ✓ 22.00 Tónleikar með Kvennakór Reykjavíkur og Páli Óskari verða hald- nir í Austurbæ. Á efnisskrá verður fjöl- breytt tónlist allt frá Hljómasyrpu til Supremes og fleiri. Stjórnandi er Sigrún Þorgeirsdóttir og auk hennar verður þriggja manna hljómsveit. ■ ■ LEIKLIST ✓ 20.00 Leikrit Shakespeares, Ríkarður þriðji, verður frumsýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins.  20.00 Farsinn Öfugu megin uppí verður sýndur á stóra sviði Borgarleikhússins.  20.00 Vinur minn Heimsendir eftir Kristínu Ómarsdóttur í Hafnarfjarðar- leikhúsinu.  20.00 Erling með Stefáni Jónssyni og Jóni Gnarr er sýnt í Freyvangi.  20.00 100 prósent hitt með Helgu Brögu verður frumsýnt í Ými við Skógarhlíð. ■ ■ LISTOPNANIR ✓ Myndlistarsýning Jónu Thors hefst á Mokka og ber heitið “Peep Show”. Sýningin stendur hún til nóvemberloka. Á sýningunni eru klefar á vegg og er fólki boðið að gægjast inn í þá. 40 17. október 2003 FÖSTUDAGUR hvað?hvar?hvenær? 14 15 16 17 18 19 20 OKTÓBER Föstudagur Kórinn átti 10 ára afmæli í vorog af því tilefni höfum við bryddað upp á ýmsu skemmtilegu í ár,“ segir Sigrún Þorgeirsdóttir, stjórnandi Kvennakórs Reykjavík- ur, en kórinn verður með tvenna tónleika á léttu nótunum í kvöld. „Við syngjum lög sem eru flest frá 7. áratugnum. Við syngjum til dæmis syrpu af Hljómalögum og lög með Supremes. Lög eins og Stop in the Name of Love, Please Mr. Postman og Kenndu mér að kyssa rétt munu hljóma í kvöld.“ Sigrún Þorgeirsdóttir hefur stjórnað kórnum um sjö ára bil: „Margrét Pálmadóttir stofnaði kórinn fyrir tíu árum. Í kórnum eru nú ríflega 80 konur og nóg að gera. Kórinn fór í utanlandsferð til Tékklands í fyrra og þar áður til Bandaríkjanna. Svo reynum við líka að ferðast innanlands.“ Kvennakór Reykjavíkur kem- ur fram í Austurbæjarbíói ásamt stórsöngvaranum Páli Óskari og þriggja manna hljómsveit: „Við fengum Pál Óskar til að syngja með okkur því þessi tónlist hent- ar röddinni hans mjög vel. Hann hefur verið að syngja lög eftir Burt Bacharach og hann tekur nokkur lög eftir hann á tónleikun- um í kvöld. Formaður kórsins er Ásdís Hjálmtýsdóttir, stóra systir Páls Óskars, og við reyndum að sjálfsögðu að nýta okkur fjöl- skylduböndin.“ Fyrri kórtónleikarnir hefjast í Austurbæjarbíói klukkan 19.30 og seinni tónleikarnir klukkan 22.00. ■ ■ TÓNLIST Páll Óskar og Kvennakór Reykjavíkur DAVÍÐ ÓLAFSSON Er ekki kominn tími á NóaAlbínóa,“ spyr Davíð Ólafsson bassasöngvari. „Ég er búinn að heyra svo mikið um myndina en þekki engan sem hefur séð hana.“ Hann gæti einnig hugsað sér að hlusta á Guðjón Rúdolf syngja og spila í verslun 12 Tóna við Skóla- vörðustíg. Sömuleiðis líst honum vel á tónleika Kvennakórs Reykjavíkur með Páli Óskari. „Ég var eini karlmaðurinn í 4 vikna ferðalagi Kvennakórs Suðunesja til Kanada árið 1976. Kannski að maður kíki og rifji stemninguna upp. Ætli Palli fíli sig betur með kvennakór en ég?“ Davíð nefnir líka frumsýninguna á Ríkarði þriðja í Þjóðleikhúsinu. „En það er uppselt.“ Myndlistarsýning Jónu Thors á Mokka vekur einnig athygli Davíðs. „Þetta gæti orðið dejavu Þýskalandsáranna minna. „Peep Show“ var heitið á vinsæl- um sjónvarpsþætti sem fyrrum eiginkona Dieter Bohlen, söngv- ari Modern Talking, stjórnaði. Þar opinberaði fræga fólkið í Þýska- landi fantasíur sínar.“ Þá freistar tónlistarhátíðin Iceland Airwaves óperusöngvarans. „Ef það truflar ekki hljómsveitirnar að maður taki eina skák á meðan er ég til í að mæta á Grand Rokk eða í Þjóð- leikhúskjallarann og endurnæra hugann svolítið.“  Val Davíðs Þetta lístmér á! ✓ PÁLL ÓSKAR HJÁLMTÝSSON Kvennakór Reykjavíkur fagnar 10 ára afmæli sínu og verður ásamt Páli Óskari og hljóm- sveit í Austurbæjarbíói í kvöld. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.