Fréttablaðið - 17.10.2003, Page 46

Fréttablaðið - 17.10.2003, Page 46
Linda Pétursdóttir hefur gertsamning við bandaríska snyrtivörufyrirtækið Sileca í Chicago um að vera talsmaður og andlit snyrtivörulínu þess næstu tvö árin. Sileca framleiðir meðal annars andlitskrem sem eiga að koma í veg fyrir öldrun húðar- innar og innihalda lífræn kísl: „Ég er mjög ánægð með þenn- an samning enda hafa vörurnar frá Sileca reynst mér vel. Lífið er stutt og við verðum að gera allt sem við getum til að lifa sem lengst,“ segir Linda, sem er 33 ára og virðist ekki deginum eldri. Þakkar hún það að hluta góðum andlitskremum og þá sérstaklega Silica-kreminu með kísl- tvísýringnum (Si02). Dominic Wightman hjá Sileca Inc. í Chicago er ekki síður ánægð en íslenska alheimsfegurðardrottningin, sem nú býr í Kanada þar sem hún er við nám auk þess sem hún stýrir fyrirtækjum sínum hér heima með fjarskiptum: „Linda hefur réttan bakgrunn, er bæði greind og gullfalleg og er verðugur fulltrúi fyrir það sem snyrtivörurnar okkar standa fyrir: Þær koma í veg fyrir öldrun húðarinnar og eru gerðar úr nátt- úrulegum og hreinum efnum sem viðhalda einstakri fegurð. Meginuppistaðan í þeim smyrslum sem koma í veg fyrir öldrun er íslensk kísl eða kísiltvísýringur og tengsl okkar við Ísland eru því afar mikilvæg fyrir útbreiðslu vörumerkisins til framtíðar. Linda er sú manneskja sem mörgum útlendingum dettur fyrst í hug þegar minnst er á Ísland. Snyrtivörurnar okkar selja sig sjálfar þannig að hlutverk Lindu er að vera okkur til hjálpar við að koma þeim skilaboðum áleiðis að með aldrinum minnki meðfædd kísl og að þessar snyrtivörur séu okkur nauðsynlegar ef við viljum að húðin eldist vel.“ Sjálf segir Linda að með aldrinum verði umhirða húðar- innar æ mikilvægari: „Þegar ég var yngri þurfti ég ekki að hugsa svo mikið um útlitið. Það bara var. Með árunum breytist allt, til að mynda útlitið, og ég er ekkert öðruvísi en aðrar konur. Ég vil vera falleg þó fyrst og síðast vilji ég lifa fallegu lífi.“ ■ 46 17. október 2003 FÖSTUDAGUR ■ Leiðrétting Að gefnu tilefni skal tekið fram að jafnvægi ríkir í rekstri Ríkisútvarpsins; starfsmennirnir vinstrisinnaðir og yfirstjórnin hægrisinnuð. ■ Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 1. 2. 3. Adrienne Clarkson. Bandaríkin. Barcelona. Fegurð LINDA PÉTURSDÓTTIR ■ alheimsfegurðardrottning hefur gert tveggja ára samning við Sileca snyrtivöru- fyrirtækið. Linda vill lifa fallegu lífi en segist ekkert vera öðruvísi en aðrar konur; hún vilji líka vera falleg. Við reynum að flokka hundanaeftir stærðum. Þetta er eins og á barnaheimilum þar sem lík börn leika best,“ segir Gunnar Ísdal, sem rekur hundaleikskóla í gamla dýraspítala Watsons í Víðidal við ágætar undirtektir hundaeigenda. Gunnar nýtur engra opinberra styrkja til starfseminnar líkt og venjulegir leikskólar: „Það kostar 600 krónur að hafa hund í gæslu hér í einn dag. Við erum með opið frá 9-18,“ segir hann. Í hundaleikskólanum í Víðidal er pláss fyrir 15 hunda. Í gær voru þar 10 í gæslu og segir Gunnar viðtökur með besta móti en leikskólinn hefur aðeins verið opinn í nokkra daga. Haft er ofan af fyrir hundunum með ýmsu móti enda má þeim ekki leiðast frekar en börnum á öðrum leik- skólum: „Við leikum við hundana og förum með þá í gönguferðir. Þetta er töluverð vinna,“ segir Gunnar og neitar því ekki að yfir- leitt séu miklir fagnaðarfundir þegar eigendurnir koma í dagslok til að ná í dýrin sín: „Sumir skemmta sér hins vegar svo vel hér að þeir vilja helst ekki fara heim á kvöldin. Það eru bestu meðmælin,“ segir hann. ■ Hundaleikskóli í Víðidal GUNNAR OG LEIKSKÓLAHUNDARNIR Sumir vilja ekki fara heim á kvöldin.Hundar GUNNAR ÍSDAL ■ hefur opnað hundaleikskóla í hesthúsabyggðinni í Víðidal. Dagurinn kostar 600 krónur. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Linda vill lifa... LINDA PÉTURSDÓTTIR Í Hrunamannahreppi síðla sumars. Býr í Kanada og stýrir fyrirtækjum sínum á Íslandi með fjarskiptum. Ég er með átta mátunarklefa íbúðinni minni, þar af sex risa- stóra sem rúma vel hjólastóla,“ segir Lilja Hrönn Hauksdóttir, kaupmaður í Cosmo í Kringlunni, og mótmælir þar með stað- hæfingum talsmanna Sjálfsbjargar að aðeins sé einn mátunarklefi sem rúmi fólk í hjólastólum í Kringlunni. Sá sé í Hagkaupum. „Ég hef verið með verslun hér í Kringlunni í 16 ár og alltaf lagt mig eftir því að þjóna fötluðum, sem vissulega eru stór hluti viðskipta- vina minna.“ Sjálfsbjörg veitti Kringlunni sérstök verðlaun fyrir gott aðgengi fyrir fatlaða fyrir nokkrum árum en talsmenn samtakanna telja að síðan þá hafi sigið á ógæfuhliðina. Dæmi um það séu kaffistofa ofan í gryfju á fyrstu hæð og svo ný verslun Byggt og búið sem byggð sé á pöllum. „Það má vera að versl- unareigendur hér ættu að huga betur að fötluðum en ég er með góða samvisku í þessum efnum og hef alltaf haft. Það geta allir séð sem hingað koma og máta föt hjá mér,“ segir Lilja í Cosmo og er stolt af mátunarklefunum sínum. ■ LILJA Í COSMO Sextán ár í Kringlunni og hefur alltaf sinnt fötluðum viðskiptavinum til fulls jafnt á við aðra. Cosmo fyrir fatlaða Mátunarklefar LILJA HRÖNN HAUKSDÓTTIR ■ kaupmaður í Cosmo í Kringlunni er stolt af þeirri aðstöðu sem hún hefur búið fötluðum viðskiptavinu sínum. Það verður fjör í Kolaportinu ámorgun. Þá fá öll börn sem koma í heimsókn pakka, vandlega innpakkaðan og spennandi, frá forráða- mönnum portsins. Allir krakkar yngri en 12 ára fá pakka svo lengi sem birgðir endast. Pakkarnir verða ekki færri en 300 talsins þannig að lengi er von á einum... Handknattleikslið HK íKópavogi brá sér alla leið til Pétursborgar á dögunum til að keppa þar við rússneska liðið Stepan. Tók liðið rússneska flugvél frá Helsinki og hefði betur látið það ógert. Svo mikið skrölti í vélinni í háloftunum að liðsmenn héldu að þeir væru að syngja sitt síðasta – og vélin líka. Það stóð á endum, því þegar vélin loks lenti í Pétursborg drap hún á sér og hefur víst ekki farið í gang síðan... Fréttiraf fólki Hrósið ...fær Ólafur Elíasson myndlistar- maður fyrir að koma Íslandi á landakort listanna í túrbínusaln- um í Tate Modern í London. Hesthús! Nýtt 12 hesta hús í Hafnarfirði til sölu. Hlaða og haughús undir stíum, hitaveita, kaffistofa og gott gerði. Langtímalán. Upplýs. í 898 -3165. Til sýnis í dag, sunnud. 19. okt kl. 16-18, að Sörlaskeiði 17 beint á móti Íshestum við veginn að Kaldárseli, sjá einnig www.centrum.is/~leikir/hesthus

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.