Fréttablaðið - 23.12.2003, Síða 1

Fréttablaðið - 23.12.2003, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 26 Leikhús 26 Myndlist 26 Íþróttir 22 Sjónvarp 28 ÞRIÐJUDAGUR FRIÐARGÖNGUR Íslenskir friðarsinnar standa fyrir friðargöngum á Þorláksmessu á þremur stöðum á landinu. Gengið verður frá Hlemmi í Reykjavík klukkan 18 og frá Ísafjarðarkirkju á sama tíma. Þá verður gengið frá Menntaskólanum á Akureyri klukkan 20. DAGURINN Í DAG VEÐRIÐ Í DAG HLÝINDI MEÐ RIGNINGU Leiðinda- vindur með þessu víða og verður svo í mestallan dag. Nú fer að kólna og um miðnætti annað kvöld verður komið frost víða um land með éljum. Sjá síðu 6 23. desember 2003 – 321. tölublað – 3. árgangur jón arnór og ólafur meðal tíu efstu Íþróttamaður ársins: ▲ SÍÐA 22 Bræður munu berjast ● blysför á þorlák Marín Þórsdóttir: ▲ SÍÐUR 24 og 25 Opið hús á Þorláksmessu skötustappa ● jólavín Smakkar hráa skötu í fiskbúðinni matur o.fl. Knútur Árnason: ▲ SÍÐA 26 og 27 ÖRYRKJAR FÁ GREITT Trygginga- stofnun endurgreiddi 3.815 öryrkjum í gær í samræmi við dóm Hæstaréttar frá 16. október. Meðalgreiðslan nam 422 þúsund krónum. Sjá síðu 2 DRÁTTARVEXTIR EKKI FJÁR- MAGNSTEKJUR Arnþór Helgason, framkvæmdastjóri Öryrkjabandalags Ís- lands, segir dráttarvexti sem lögðust á endurgreiðslur samkvæmt öryrkjadómi ekki venjulegar fjármagnstekjur heldur skaða- bætur. Sjá síðu 2 ÞRÍR MILLJARÐAR TIL STOFN- FJÁREIGENDA Kaupþing Búnaðarbanki stefnir að því að kaupa SPRON fyrir níu milljarða. Þar af fara þrír milljarðar til stofn- fjáreigenda. Algeng eign einstaklinga er 20 stofnbréf sem gefa rúmar fjórar milljónir króna. Sjá síðu 4 LÖGREGLUMÁL „Við erum ekki leng- ur einangruð og ætli það sé ekki helsta ástæða þess hversu mikið þessum málum hefur fjölgað. Við höfum svo sem séð þetta áður en ásóknin er óvenju mikil núna,“ segir Smári Sigurðs- son, hjá alþjóða- deild ríkislög- reglustjóra, um þá mörgu erlendu menn sem sækja hingað til lands og hafa verið teknir vegna gruns um að vera með fölsuð skil- ríki og tilraunir til peningaþvætt- is. Á sunnudag voru belgískur ríkisborgari og maður frá Kongó úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Báðir játuðu þeir fyrir dómi að hafa fengið kennitölur hér með framvísun ólöglegra skilríkja sem þeir notuðu til að opna banka- reikninga. Þá eru tveir Afríku- búar í gæsluvarðhaldi grunaðir um að ætla að fremja auðgunar- brot hér á landi. Smári segir að eftir því sem erlendum ríkisborgum fjölgi í landinu aukist alþjóðlegu tengsl- in. Hann segir að alltaf sé svo að meðal okkar sé óheiðarlegt fólk, einnig meðal þeirra sem hafa flutt hingað til lands. „Það er kannski umhugsunar- efni hversu auðvelt er að fá kennitölu hér og opna banka- reikning. Það hefur sjálfsagt eitt- hvað með það að gera að oftast er ekki brugðist við fyrr en eitthvað kemur upp á.“ Þegar mál eru komin til rann- sóknar eru sendar út fyrirspurnir á innra neti Interpol og unnið úr svörum sem koma til baka. „Oft á tíðum eru þessir menn ekki að byrja ferilinn hér á landi og brot þeirra hér bætast einungis inn í ferilsskrá þeirra.“ Hann segir mjög erfitt að stöðva þessi brot. Smári segir yfirvöld á Keflavík- urflugvelli vera vel upplýst og þau nái árangri í sinni vinnu. „Þeir hafa greinilega staðið sig afskaplega vel. Góð samvinna er á milli okkar í alþjóðadeild og þeirra.“ Hann segir mikilsvert að afla upplýsinga frá öðrum lönd- um og vera með augun opin. hrs@frettabladid.is ÞORLÁKSMESSUHEFÐIR Skata verður meira borðuð í dag en annar mat- ur. Vestfirðingar munu vera upp- hafsmenn að skötutátinu en aðrir landsmenn gefa þeim lítt eftir nú á dögum. Á fimmta hundruð manns munu til dæmis borða Þorláks- messuskötuna á veitingastaðnum Þremur Frökkum í dag. Það er ekki nóg með að mikið verði að gera, pantanir fyrir Þorláksmessu að ári hafi þegar borist. Skata verður einnig á borðum á Hótel Sögu. Að sögn Hafsteins Eg- ilssonar er von á þrjú hundruð manns í skötu í dag. „Við erum með skötuna í Súlnasal og þar er orðið fullt,“ segir hann. Hann seg- ir að á boðstólum verði veitingar sem ættu að henta flestum, hvort sem þeir hafi þróað með sér smekk á vel kæstri skötu eða ekki. „Við erum með skötuhlaðborð bæði fyrir byrjendur og lengra komna,“ segir Hafsteinn. sjá einnig bls. 6 Ekki einangrað í undirheimum Smári Sigurðsson, hjá alþjóðadeild ríkislögreglustjóra, segir umhugs- unarefni hversu auðvelt er fyrir fólk frá öðrum löndum að fá kennitölu og opna bankareikning hér á landi. Óvenju mörg mál til rannsóknar. ER HÚN NÓGU KÆST? Úlfar á Þremur Frökkum bregður á leik með skötuna. Erlendir fjársvikamenn: Telja Ísland óplægðan akur LÖGREGLUMÁL „Allt sem heitir banka- og kreditkortasvindl er mjög algengt erlendis,“ segir Jó- hann R. Bene- diktsson, sýslu- maður á Kefla- víkurflugvelli, um aukna ásókn h u g s a n l e g r a fjársvikamanna hingað til lands síðustu vikur. Hann segir meinta glæpa- menn hugsan- lega sækja til Ís- lands því akur- inn sé óplægður hér. „Þeir eru einfaldlega að kanna hvort þeir komist upp með þessi brot hér.“ Aðspurður hvort við séum varnar- laus gagnvart svona glæpum segir Jóhann ekki nýtt að slíkar tilraunir séu gerðar. Hann segir mann hafa verið tekinn á leið úr landi, fyrir einu til tveimur árum, með fjölda kreditkorta, skartgripi og peninga. Sá hafi fengið nokkuð þungan dóm, þó hafi hann ekki opnað banka- reikning eins og fjórir menn sem nú sitja í gæsluvarðhaldi. ■ jólin koma Þorláksmessuskata: Skata verður á veisluborðum 1 dagur til jóla Opið til klukkan 23.00 í kvöld M YN D /G VA JÓHANN R. BENEDIKTSSON Segir fjársvikamenn athuga aðstæður hérlendis.„Ætli það sé ekki það að við erum ekki lengur einangruð. Vopnaeftirlitið í Líbíu: Hefst strax í næstu viku LÍBÍA, AP Mohamed ElBaradei, yfir- maður Alþjóða kjarnorkumála- stofnunarinnar, IAEA, segir að hann muni halda til viðræðna við stjórnvöld í Líbíu ekki seinna en í næstu viku og að vopnaeftirlit muni hefjast strax í kjölfarið. Þetta kom fram aðeins nokkrum klukkustundum eftir að líbísk stjórnvöld undirrituðu yfirlýsingu um að hætta öllum tilraunum við þróun gjöreyðingarvopna og leyfa skilyrðislaust vopnaeftirlit. ElBaradei segist munu stjórna fyrsta leiðangrinum, sem helstu sérfræðingar IAEA taki þátt í. ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.