Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.12.2003, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 23.12.2003, Qupperneq 6
6 23. desember 2003 ÞRIÐJUDAGUR GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 71,98 -0,72% Sterlingspund 126,93 -0,92% Dönsk króna 12,03 -0,49% Evra 89,53 -0,47% Gengisvísitala krónu 123,97 -0,10% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 306 Velta 16.073 milljónir ICEX-15 2.110 2,45% Mestu viðskiptin Kaupþing Búnaðarb. hf. 9.608.605.041 Pharmaco hf. 1.767.447.339 Íslandsbanki hf. 124.524.536 Mesta hækkun Þormóður rammi-Sæberg hf. 13,04% Pharmaco hf. 8,55% Flugleiðir hf. 4,17% Mesta lækkun Líf hf. -8,89% Össur hf. -3,59% Vinnslustöðin hf. -2,86% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ* 10.287,9 0,1% Nasdaq* 1.944,9 -0,3% FTSE 4.424,0 0,3% DAX 3.876,9 -0,6% NK50 1.315,5 -0,0% S&P* 1.088,0 -0,1% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 Veistusvarið? 1Fylgsni hvaða hryðjuverkasamtakafann ítalska lögreglan í Róm? 2Hvar voru upptök elds sem kviknaði ábóndabæ í Borgarnesi um helgina? 3Hvað heitir nýliðinn í NBA-deildinnisem skoraði 68 stig í tveimur leikjum um helgina? Svörin eru á bls. 30 VIÐSKIPTI „Ég held að þetta sé ekki flensa sem tekur bara einn á heimil- inu. Þetta er ekki einangrað fyrir- brigði,“ segir Helgi Laxdal, stjórn- armaður í Sparisjóði vélstjóra, um viljayfirlýsingu SPRON og Kaup- þings Búnaðarbanka. Hann segir að sparisjóðirnir hljóti hver um sig að skoða þá leið sem SPRON fór, verði af þeim viðskiptum. Bjarni Ármannsson, bankastjóri Íslandsbanka, segir að ef þessi gjörningur verði samþykktur sé lík- legt að aðrir sparisjóðir muni kanna þessa aðferðafræði. „Ég lít þessa þróun jákvæðum augum.“ Talið er að viðskiptabankarnir þrír muni sýna stærri sparisjóð- unum áhuga. Guðmundi Steinari Björgmundssyni, stjórnarfor- manni Sparisjóðs Vestfjarða, líst ekki á þessa þróun út frá þeim hugsjónum sem sparisjóðirnir hafi starfað eftir. „Ég sé rosalega eftir SPRON úr samstarfi spari- sjóðanna,“ segir Guðmundur. „Það virðast ekki mega vera til fjármunir eða afl til að gera hluti í þessu þjóðfélagi nema það sé hægt að braska með það.“ ■ Skata og kanínufóð- ur fara ekki saman Halldór Helgason er sérfræðingur í að kæsa skötu. Hann framleiðir 600 kíló á ári og segir vinsældir skötunnar stöðugt vaxandi. ÞORLÁKSMESSA „Við framleiðum um 600 kíló á ári. Skatan fer víða um land og það eykst stöðugt eftir- spurnin,“ segir Halldór Helgason, sem um árabil hefur framleitt skötu fyrir Kiwanisklúbbinn Þor- finn. Ágóðinn af skötunni fer síðan til góðgerðarmála. Halldór kæsir tindabikkju sem hann fær af línubátum á Vestfjörð- um. Hann segir að skatan frá Þor- finni hafi hlotið mikið lof og þeir sem einu sinni kaupi komi gjarnan aftur árið eftir til að fá meira. „Við þurfum ekki að kvarta undan sölunni. Flestir vilja fá hana í hæsta styrkleikaflokki. Við höf- um boðið upp á fleiri en einn styrkleikaflokk en reyndin er sú að flestir vilja þetta lostæti sem sterkast. Skatan er stöðugt að vinna á og það er gaman að sjá hve duglegt unga fólkið er að tileinka sér þennan þjóðlega sið,“ segir hann. Halldór segist sjálfur vera mik- ill skötufíkill. Hann lætur sér ekki nægja að borða hana aðeins á Þor- láksmessu. „Ég borða hana minnst einu sinni í mánuði og finnst hún alltaf jafn góð. Ég hef til dæmis oftast með mér skötu í sumarbústaðinn. En ég verð að viðurkenna að mér hefur ekki tekist að venja mín eig- in börn á skötuna. Þau er öll komin á legg og ég er enn að reyna að koma þeim á bragðið,“ segir hann. Aðspurður um verkunaraðferð- ina vill hann ekki upplýsa það enda sé uppskriftin hernaðar- leyndarmál Kiwanisklúbbsins Þor- finns. „En ég get þó upplýst að við mígum ekki á skötuna. Það er bara þjóðsaga að hún sé verkuð þannig,“ segir Halldór. Hann segir það vera hefðbund- ið að bera skötuna fram með kart- öflum og hnoðmör. „Menn hafa reynt ýmislegt ann- að með skötunni svo sem græn- meti. En skata og kanínufóður fara engan veginn saman og menn enda jafnan á gömlu uppskriftinni þar sem hnoðmör, skata og kartöflur sameinast í þessum himneska rétti,“ segir Halldór. rt@frettabladid.is Uppbyggingin í Írak: Rússar til í niðurfellingu RÚSSLAND Vladimír Pútín Rúss- landsforseti hefur tilkynnt að Rússar séu tilbúnir til þess að fella niður 65 prósent af 8 millj- arða dollara skuld Íraka í skipt- um fyrir þátttöku rússneskra fyrirtækja í uppbyggingunni í Írak. Abdul Aziz al-Hakim, leiðtogi íraska framkvæmdaráðsins, sem var á ferð í Moskvu í gær ásamt íraskri samninganefnd, sagði að samkomulag hefði náðst og að Írak yrði opið öllum rússneskum fyrirtækjum. ■ Afkomuviðvörun Össurar: Tap síðustu mánuði KAUPHÖLLIN Í afkomuviðvörun frá Össuri hf. kemur fram að fyrir- tækið áætli að einnar til tveggja milljóna dollara tap verði á fjórða ársfjórðungi þessa árs. Ástæðurn- ar eru málaferli Össurar í Banda- ríkjunum, kostnaður við yfirtöku Generation II og skipulagsbreyt- ingar hjá dótturfélagi Össurar í Bandaríkjunum. Jón Sigurðsson, forstjóri Össur- ar, segir að flestar ástæður til- kynningarinnar hafi komið fram. „Við töldum hins vegar rétt að láta þær allar koma fram á einum stað.“ Gert er ráð fyrir að hagnað- ur ársins verði 3,6 til 4,6 milljónir dollara. ■ HELGI LAXDAL Segir viljayfirlýsingu Kaupþings Búnaðar- banka og SPRON ekki einangrað fyrir- bæri, og Sparisjóð vélstjóra hljóta eins og aðra sparisjóði að skoða sína stöðu í ljósi síðustu atburða.FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T SKÖTUKARLAR Halldór Helgason og Magnús Arnórsson hnusa af skötunni sem Þorfinnur sendir um allt land. Vestfirðingarnir voru sammála um að skatan væri í hæsta gæðaflokki. M YN D S ÍM O N Ö R N SPRON og Kaupþing Búnaðarbanki: Ekki einangrað fyrirbæri Færð um jólin: Útlit fyrir þunga færð FERÐAVEÐUR Veðurstofan og Vega- gerðin búast við því að vegir geti orðið þungfærir í dag sökum hlýn- andi veðurs sem hefur í för með sér slyddu og hálku. „Ég er pínu uggandi um [dag- inn í dag] með færðina. Það er víða snjór núna og svo fer að rigna í nótt og á morgun verður þetta eflaust frekar óspennandi færi,“ segir Kristín Hermanns- dóttir hjá Veðurstofunni. Einar Pálsson, hjá Vegagerð- inni, minnir á þjónustusíma Vega- gerðarinnar, 1777. Þar fást nýj- ustu upplýsingar um færð. ■ PÚTÍN OG AL-HAKIM Pútín segir Rússa tilbúna til þess að fella niður 65 prósent af skuldum Íraka. Tveir Afríkumenn: Varðhald framlengt GÆSLUVARÐHALD Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli fór fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir tveimur Afríkumönnum í gær. Mennirnir komu hingað til lands 8. desember og voru teknir með fölsuð vegbréf. Farið var fram á gæsluvarð- hald til 12. janúar. Mennirnir höf- uð komið til landsins nokkrum vikum áður. Í fyrri ferðinni út- veguðu þeir sér kennitölur og opnuðu bankareikninga, hugsan- lega til að búa í haginn fyrir það sem koma skyldi. Fyrir dómi í gær ákváðu þeir að una kröfu sýslumannsins. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.