Fréttablaðið - 23.12.2003, Síða 8
8 23. desember 2003 ÞRIÐJUDAGUR
■ Evrópa
Markviss stjórn
„Upphlaup stjórnarandstöðunnar
vegna einstakra mála skilja lítið
eftir sig og það sem stendur upp
úr er að ríkisstjóinn tók til við að
framfylgja áherslumálum sínum
úr kosningabaráttu og stefnuyfir-
lýsingu markvissum og öruggum
skrefum.“
Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, í Morgunblaðinu 22. desember.
.Svikin loforð
„Engar nýjar hugmyndir hafa
komið fram og kosningaloforða-
bankinn er troðfullur af sviknum
kosningaloforðum sem ekki örlar
á að eigi að standa við.“
Björgvin G. Sigðursson, þingmaður Samfylking-
arinnar, í Morgunblaðinu 22. desember.
Krefjumst fangelsisvistar
„Almenningur á að krefjast fang-
elsisvistar á þeim mönnum sem
upphefja sig í stórkostlegum for-
stjóralaunum byggðum á stolnum
hagnaði.“
Kristinn Snæland leigubílstjóri í Fréttablaðinu
22. desember.
Orðrétt
Félög verslunarfólks:
Kvarta undan
jólalögunum
PRAG, AP „Það er ekki gott fyrir
heilsuna að hlusta á þetta átta
tíma á dag, það er alveg ljóst,“
sagði Alexandr Leiner, formaður
samtaka verslunarfólks í Tékk-
landi. Samtökin krefjast þess að
búðareigendur hætti stanslausu
spili jólalaga eða greiði starfs-
mönnum sínum bætur fyrir þann
tilfinningalega skaða sem spilun-
in getur haft í för með sér. Búðar-
eigendur hafa engu svarað.
Leiner segir sumar búðir spila
sömu lögin allan daginn og stilla
tónlistina hátt í þokkabót. Þetta sé
hvorki gott fyrir starfsmenn né
viðskiptavini.
Verkalýðsfélög í Austurríki
hafa einnig kvartað undan jóla-
lagaspilun. ■
Íslendingar upplýsa um
norska umhverfissóða
Norskur útgerðarmaður þrætir fyrir að nota Barentshaf sem ruslakistu þrátt fyrir
að myndir sýni annað. Segir ásakanir Íslendings vera með ólíkindum.
Fleiri Íslendingar lýsa umhverfissóðaskap norskra útgerða.
SJÁVARÚTVEGSMÁL „Ég vísa þessum
ásökunum algerlega á bug því
þetta á ekki við rök að styðjast. Ég
tel að persónulegar ástæður séu
að baki því að Kristvin Már fer
með svona vitleysu í fjölmiðla,“
segir Dag Arne Gjösund, útgerð-
armaður togar-
ans Rosund frá
Á l a s u n d i .
F r é t t a b l a ð i ð
birti myndir frá
því þegar áhöfn
Rosund hífði
ónýt veiðarfæri
í hafið síðasta
sumar. Kristvin
Már Þórsson, þáverandi bátsmað-
ur á Rosund, tók myndirnar og
lýsti því jafnframt að útgerðin
hefði látið taka drasl úr landi til
að fleygja í hafið vegna þess hve
dýrt það væri að eyða því í landi.
Fleiri íslenskir sjómenn á norsk-
um togurum hafa staðfest við
Fréttablaðið að þessu sé svona
háttað. Þannig sé það viðtekin
venja að henda drasli svo sem
veiðarfærum og vírum í hafið aft-
ur í stað þess að eyða því í landi
svo sem er regla á Íslandi þar sem
skip koma undantekningalítið
með drasl að landi.
Dag útgerðarmaður vildi ekk-
ert tjá sig um myndirnar sem
teknar voru um borð í skipi hans í
sumar þar sem verið var að hífa
gömul veiðarfæri í hafið. Hann
sagðist ekki hafa neinar forsend-
ur til að tjá sig um það sem þar
kemur fram.
„Umgengnin er slæm. Af-
gangsnetum, vírum og bobbing-
um var fleygt í hafið. Þeir eru að
spara sér einhvern kostnað með
þessu. Ég hef aldrei séð svona lag-
að gerast á íslenskum skipum,“
segir Ingimundur Elísson, stýri-
maður og fyrrverandi skipverji á
frystitogaranum Ottó Wathne sem
gerður er út frá Álasundi. Ingi-
mundur var í mánuð á skipinu og
segir að sér hafi blöskrað um-
gengni Norðmannanna um fiski-
miðin.
Hann segist hafa stundað sjó á
Íslandsmiðum frá árinu 1970. Á
öllum skipum hafi verið sú regla
að pakka saman draslinu og hífa í
land til eyðingar.
„Á fiskislóðinni vorum við sí-
fellt að fá aftur upp gömul veiðar-
færi sem var fleygt aftur. Norð-
menn verða að breyta umgengis-
venjum sínum,“ segir Ingimund-
ur.
Dag útgerðarmaður segir að
því fari fjarri að drasl sé sett um
borð í skipið til að fleygja því á
fiskislóð.
„Við erum sjómenn og byggj-
um afkomu okkar af hafinu og við
hegðum okkur ekki með þeim
hætti sem hefur verið lýst. Það
eru bæði Norðmenn, Rússar og Ís-
lendingar sem eru á veiða á svip-
uðum slóðum og það er vitaskuld
mikið að finna af drasli og göml-
um fiski, en ásakanirnar af hálfu
Íslendingsins eru með ólíkind-
um,“ segir Dag Gjösund.
rt@frettabladid.is
bryndis@frettabladid.is
Tölvuþrjótur:
Sýknaður
öðru sinni
OSLÓ, AP Hinn tvítugi Jon Lech Jo-
hansen lauk árinu með svipuðum
hætti og hann hóf það, með því að
vera sýknaður af ákærum um gagna-
stuld.
Johansen var kærður eftir að hon-
um tókst að brjóta upp öryggisþætti
DVD-diska, sem eiga að koma í veg
fyrir afritun, og birti þá á Netinu.
Ákærendur kröfðust þess að Johan-
sen fengi 90 daga skilorðsbundinn
fangelsisdóm, sætti sektum og því að
tölvubúnaður hans yrði upptækur.
Þeim varð ekki að ósk sinni frekar en
verjanda hans, sem vildi að málinu
yrði vísað frá. Viðbúið er að því verði
áfrýjað til hæstaréttar Noregs. ■
VARNARVEGGIR TIL VANDRÆÐA
Sameinuðu þjóðirnar fylgjast með fram-
kvæmdum Ísraela úr gervihnetti.
Varnarveggir Ísraela:
Fylgst með
úr geimn-
um
ÍSRAEL Sameinuðu þjóðirnar hafa
undanfarið fylgst náið með fram-
kvæmdum Ísraela við byggingu
varnargirðinga á Vesturbakkanum
og nota til þess gervihnattamynda-
vélar sem beint er að svæðinu úr
700 kílómetra fjarlægð. Að sögn
Alain Retiere, starfsmanns SÞ sem
stjórnar verkefninu, er tilgangur-
inn með upptökunum að safna land-
fræðilegum gögnum.
„Við sjáum það greinilega á
gervihnattamyndunum hvað
varnargarðarnir valda Palestínu-
mönnum miklum vandræðum og
skaða,“ sagði Retiere. ■
Reykjaneshryggur:
Stórir
skjálftar
JARÐSKJÁLFTI Jarðskjálfti sem
mældist 4 á Richter varð klukkan
1:51 í fyrrinótt á Reykjaneshrygg.
Upptök skjálftans voru 70 til 80
kílómetra suðvestur af Reykja-
nesi, skammt suður af Eldeyjar-
boða. Samkvæmt upplýsingum
Veðurstofu Íslands varð skjálfti
af stærðinni 3,5 á Richter á sömu
slóðum 7 mínútum síðar. Nokkrir
minni skjálftar fylgdu í kjölfarið.
Skjálftar af þessari stærð verða á
þessum slóðum á nokkurra ára
fresti. ■
UMHVERFISSÓÐAR
Þessa mynd tók íslenskur bátsmaður um borð í togaranum Rosund þegar verið var að henda ónýtri botnvörpu í hafið. Útgerðarmaðurinn
þrætir og segir persónulegar ástæður vera fyrir uppljóstrunum.
KRISTVIN MÁR ÞÓRSSON
Blöskrar umgengni Norðmanna um eigin
fiskimið.
INNFLYTJENDUR FARAST Sjö lík
ólöglegra innflytjenda sem freist-
uðu þess að komast til Vestur-
Evrópu höfðu fundist í gær eftir
að bátur sem fólkið var í sökk
norður af grísku eynni Ródos.
Eini maðurinn sem hafði fundist
á lífi sagði að um 70 manns hefðu
verið um borð í bátnum, sem
sökk á laugardag.
LEITA EITUREFNA Á HAFI Skip og
flugvélar hollensku landhelgis-
gæslunnar leituðu í gær þriggja
gáma sem tók út af flutningaskipi
þegar öldur náðu sjö metra hæð á
Ermarsundi á laugardag. Í tunn-
unum voru 630 tunnur af skor-
dýraeitri sem menn óttuðust að
kynni að valda skaða ef efnið
læki úr tunnunum.
Morðið á Zoran Djindjic:
Morðinginn
fyrir rétt
SERBÍA, AP Réttarhöld hófust í
Belgrad í Serbíu í gær yfir fimmt-
án manns sem sakaðir eru um að-
ild að morðinu á Zoran Djindjic,
fyrrum forsætisráðherra Serbíu,
en hann var skotinn til bana fyrir
utan forsætisráðuneytið í Belgrad
þann 12. mars á þessu ári.
Á meðal þeirra ákærðu er
Zvazdan Jovanovic, fyrrum
aðstoðaryfirforingi öryggissveita
júgóslavnesku lögreglunnar í for-
setatíð Slobodans Milosevics, en
hann er sakaður um að hafa skot-
ið Djindjic.
Milorad Lukovic, fyrrum
yfirmaður öryggislögreglunnar,
sem enn fer huldu höfði, er
grunaður um að hafa skipulagt
morðið. ■
Heimsferðir stækka:
Hafa eignast
92% í Terra
Nova
FERÐAMÁL Heimsferðir hafa keypt
92% hlut í ferðaskrifstofunni
Terra Nova-Sól. Að sögn Andra
Más Ingólfssonar, forstjóra
Heimsferða, verður áfram boðið
upp á ferðir í gegnum flugfélagið
LTU til Þýskalands næsta sumar.
Hann telur að með þessum
kaupum aukist umsvif fyrirtækis-
ins um þriðjung. Hann segir að
þessi viðbót við rekstur Heims-
ferða sé mjög góð. „Áfangastaðir
Terra Nova voru aðrir en þeir sem
Heimsferðir hafa boðið. Það nást
ýmsir möguleikar eins og samnýt-
ing á leiguflugi og mjög mikil hag-
ræðing í rekstri þannig að það er
ákaflega bjart útlit fyrir fyrir-
tækið á næsta ári,“ segir hann. ■
Í JÓLABÚÐ
Tékkneskir búðastarfsmenn kvarta undan
jólalögunum. Óvíst er hvort það gengi í
svona verslun.
ZORAN DJINDJIC
Fyrrum aðstoðaryfirforingi öryggissveita
júgóslavnesku lögreglunnar í forsetatíð
Slobodans Milosevics er ákærður fyrir
morðið á Djindjic.
„Afgangs-
netum, vírum
og bobbing-
um var fleygt
í hafið.