Fréttablaðið - 23.12.2003, Side 10
23. desember 2003 ÞRIÐJUDAGUR
Spænska lottóið:
Þeim stóra
fagnað
MADRÍD, AP Jólin á Spáni hófust í
gærmorgun með hefðbundnum
hætti. Sjónvarpað var beint frá
drættinum um „þann stóra“, lottó-
vinninginn þar sem fyrsti vinning-
ur er að andvirði 34 milljarða króna
en skiptist á milli 1.900 miða sem
hafa sumir verið keyptir af einstak-
lingum og aðrir af fjölda fólks.
Útdrátturinn í spænska jóla-
lottóinu er nokkuð flóknari og tíma-
frekari en hérlendis. Í þrjá klukku-
tíma skiptust skólabörn á um að
draga út tölur og syngja þær fyrir
sjónvarpsáhorfendur. Ekki er nóg
með að tölurnar séu dregnar út
heldur líka vinningarnir sem fást
fyrir þær.
Vinningarnir eru misjafnlega
háir, þeir lægstu andvirði 8.953
króna en þeir stærstu tæpar 18
milljónir. ■
BIÐIN SENN Á ENDA
Aðfangadagur er á morgun og þar með er biðin eftir jólunum á enda. Kjötkrókur hefur augljóslega glatt þennan unga pilt, sem leynir
ekki hrifningu sinni.
Verksmiðjan
á teikniborðinu
Framkvæmdir við byggingu glúkósamínverksmiðju hefjast á Húsavík
næsta vor. Ætlunin er að framleiða glúkósamíntöflur, en lyfið styrkir
brjósk og bandvefi líkamans. 20 manns fá vinnu við framleiðsluna.
LYFJAIÐNAÐUR „Við stefnum að því
að reka niður skóflu í maí á
næsta ári og
þar með hefjast
framkvæmdir
við fyrsta
áfanga verk-
smiðjunnar af
þ r e m u r .
L á n s l o f o r ð i n
liggja að mestu
fyrir vegna
fyrsta áfanga
og framleiðsla í
þessum fyrsta
áfanga ætti að
geta hafist í
byrjun árs
2005,“ sagði
Tryggvi Finnsson, fram-
kvæmdastjóri Atvinnuþróunar-
félags Þingeyinga.
Félagið hefur um nokkurt
skeið unnið að stofnun fyrirtæk-
is á Húsavík, í samstarfi við
norska aðila, sem mun framleiða
lyfið glúkósamín. Glúkósamín er
skilgreint sem fæðubótarefni á
Íslandi en er skráð lyf í 28 lönd-
um. Lyfið styrkir brjósk og
bandvefi líkamans.
Bæjaryfirvöld á Húsavík
hafa úthlutað fyrirtækinu rúm-
lega 5.000 fermetra lóð á hafnar-
bakkanum undir hráefnisvinslu
og lyfjaframleiðslu. Samkvæmt
áætlunum fyrirtækisins er gert
ráð fyrir að verksmiðjan verði
að fullu uppbyggð 2007 og verða
starfsmenn allt að 20.
Glúkósamín er unnið úr kítíni,
sem aftur er unnið úr rækjuskel.
Hráefni verksmiðjunnar kemur
frá nýstofnuðu rækjuvinnslufyr-
irtæki á Húsavík, Íshafi hf., en
með stofnun Íshafs hf. og efl-
ingu rækjuiðnaðarins á Húsavík
styrkist glúkósamínverkefnið
verulega. Það mun þó ekki duga
til og er ætlunin að flytja inn
hráefni.
Við framleiðsluna á Húsavík
verður notuð ný aðferð sem
norski efnafræðingurinn Öyvind
Brekke hefir fundið upp og hef-
ur einkaleyfi á. Aðferð hans
krefst 120 til 130 gráðu heits
VINNINGNUM FAGNAÐ
Meðal þeirra sem unnu þann stóra var hópur fólks í Valencia. Hér fagnar fólkið með
manninum sem seldi því miðann.
„Erlendu
fjárfestarnir
vilja gjarnan
fá innlendan
kjölfestufjár-
festi með í
verkefnið og
við erum að
leita að þeim
fjárfesti hér.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M