Fréttablaðið - 23.12.2003, Side 13

Fréttablaðið - 23.12.2003, Side 13
13ÞRIÐJUDAGUR 23. desember 2003 Um lausamennsku Verkefnatengdar greiðslur tilfólks, sem vinnur tímabund- ið eða takmarkað að dagskrár- gerð eða öðrum verkefnum fyr- ir Ríkisútvarpið, eiga sér ára- tugalanga sögu. Á árum áður var fjölmargt fólk úr ýmsum geirum atvinnulífsins í lausa- mennsku við dagskrárgerð hjá RÚV. Fyrir þetta komu svokall- aðar „dagskrárgreiðslur“ og fengu sumir starfsmenn RÚV þær einnig fyrir einstök verk- efni. Hingað til hafa verktaka- greiðslur RÚV verið látnar óátaldar af hálfu skattayfir- valda. Stefna þeirra hefur breytzt nýverið og er nú gerð krafa um annað og fastara form á vinnusamningum. Málin hafa því verið tekin til skoðunar af hálfu RÚV en jafnframt verður af okkar hálfu lögð áherzla á þau sjónarmið, sem að baki þessu fyrirkomulagi hafa legið um langan aldur. Ríkisútvarpið hefur jafnan orðið að laga dagskrá sína að þeim fjárhagslegu skilyrðum sem því eru búin fyrir eitt ár í senn. Og þau geta verið afar mis- jöfn frá einu ári til annars. Þess vegna þarf oft að bregðast skjótt við og breyta áferð dagskrárinn- ar með litlum fyrirvara. Það eru dagskrárstjórar Rásar 1 og 2 og Sjónvarpsins sem taka ákvarðan- ir um aðkeypta vinnu dagskrár- gerðarfólks innan marka þeirrar fjárhagsáætlunar sem deildum eru settar í upphafi árs og fram- kvæmdastjórar Sjónvarps og Út- varps hafa eftirlit með að starfað sé eftir. Stundum hafa dagskrár- stjórar svigrúm til að breyta áherzlum og koma þá með nýj- ungar inn í dagskrána sam- kvæmt vetrar- eða sumardag- skrá. Yfirleitt er þáttum þó fækkað yfir sumarið, þannig að ekki er þörf fyrir dagskrárvinnu í jafnríkum mæli og yfir vetrar- mánuðina. Síðan er það háð mati dagskrárstjóranna á viðkomandi dagskrárefni hvort þeir telja ástæðu til að kaupa það áfram eða ekki. Því er heldur ekkert að leyna að í ýmsum tilvikum hefur hreinlega ekki samizt. Vegna þessa síbreytileika í dagskrárframboði og við hin mismunandi fjárhagslegu skil- yrði RÚV frá einu ári til annars væri það fráleitt að ráða alla sem að dagskránni koma í smáu sem stóru sem ríkisstarfsmenn. Á árum áður voru uppi hug- myndir um að RÚV réði til sín fastan hóp leikara sem ríkis- starfsmenn. Það hefði orðið anzi fyrirsjáanleg hlutverkaskipan í útvarpsleikritum og leiknu efni hjá Sjónvarpinu ef slíkar hug- myndir hefðu náð fram að ganga. Flestir þessir aðilar telja verktakasamninga eðlilega enda vilja þeir starfa sem listamenn og skemmtikraftar á öðrum vett- vangi líka. Sama er að segja um hljóðfæraleikara, þýðendur sjónvarpsefnis, sölumenn í tíma- bundnum verkefnum og dag- skrárgerðarfólk, sem gjarnan stundar önnur störf meðfram. Það er því fráleitt að halda því fram að verktakasamningar RÚV helgist af því að stofnunin sé gagngert að svindla á skattin- um eða hlunnfara þá einstak- linga sem hlut eiga að máli, eins og mér sýnist vera látið í veðri vaka í nýlegri fjölmiðlaumfjöll- un um þessi mál. Í umræddum tilvikum getur stofnunin ekki komið á varanlegu ráðningar- sambandi, og á ekki að gera það að mínum dómi, af þeim ástæð- um sem raktar hafa verið hér að ofan. ■ Jú, víst Ingimundur Kjarval býsnast yfirlélegum vísindum og barnalegum dómsdagskenningum þegar kemur að umfjöllun um gróðurhúsaloftteg- undir og hlýnun loftslags. Það er gott að tortryggja vísindi enda grunngildi í þeim að bera fram traustar mæli- niðurstöður, draga varkárar ályktan- ir, deila og rökfæra í samhengi og gera greinarmun á staðreyndum, til- gátum, kenningum og spám (sem allt er þó gilt ef vel er gert). Ingimundur flaskar á því að halda að lítið af einhverju sé ekki nóg. Flest þekkjum við óson sem ver okkur fyrir útfjólubláum geislum og er öllu lífi nauðsynlegt. Magn þess í háloftunum er svo lítið að væri því öllu þjappað í vökva næði hann að þekja jörðina með 3 millímetra lagi. Þetta litla má ekki minnka mikið ef illa á að fara. Og lítið af einhverju, sem eykst þó, getur líka valdið vand- ræðum. Það á við þetta litla sem er af koltvíoxíði í lofthjúpnum (reyndar svolítið meira en ósonið). Sem betur fer er efnið til staðar. Annars væri meðalhitastig jarðar 19 stiga frost. Á Venusi (þar sem aðalefni lofthjúps- ins er þetta efni) nær hitinn yfir 400 stig. Getum haft áhrif Ingimundur skilur ekki hve al- varlegt það er þegar magn einnar gróðurhúsalofttegundar eykst úr 270-280 milljónustuhlutum í loftinu upp í 360-380 á tiltölulega skömm- um tíma. Mælingarnar eru óyggj- andi. Nokkurra tuga aukning millj- ónustuhluta ýtir upp hitastiginu svo nemur broti úr gráðu. Þannig vinn- ur náttúran. Magn annarra gróður- húsalofftegunda eykst líka nokkuð hratt, t.d. metans sem kemur m.a. úr húsdýrarækt. Þá hækkar meðal- hitastigið enn hraðar. Gróður bind- ur koltvíoxíð og breytir í súrefni en gróðurþekja jarðar hefur minnkað undanfarin árþúsund og gróður- samsetning einnig; akrar koma í stað skóga en korn og gras bindur miklu minna af koltvíoxíði en há- vaxin tré. Efnið binst líka í hafinu, í breytilegu magni. Ingimundur veit væntanlega að meðalhitastig á jörðinni í heild hækkar núna, það hækkar í sjó, það losnar um metan í túndrum, ísþekja minnkar, ferskvatn eykst á mynd- unarstöðum hafstrauma. Margt fleira gerist sem ekki er um deilt. Að hluta til verður þessi þróun án okkar íhlutunar, það sýnir jarð- sagan. En að öðrum hluta til er hún okkar verk og eru meginástæður tvær: Stórfelld losun lofttegunda sem ella lægju bundnar í jarðlögum og hömlulausar gróðurnytjar. Lík- lega hefur mannleg virkni komið í veg fyrir umtalsverða kólnun í nokkurn tíma (jafnvel árþúsund) en nú er hlýnun farin að verða vanda- mál. Ekki er hægt að vega mann- gerða þáttinn í hlýnuninni og þann náttúrulega með nokkurri ná- kvæmni – aðeins nálgast þann fyrr- nefnda með líkindum miðað við það sem vitað er um virkni okkar. En hann er þarna og á manngerða þátt- inn getum við haft áhrif með því að breyta lífsmynstri og orkumálum, ekki á hinn. Samsæriskenningar eiga ekki við Ingimundur nennir að gera grín að spálíkönum um veðurfarsþróun sem enn eru fremur grófar nálganir við raunveruleikann. Hann skilur ekki að þau eru einu tækin sem við höfum til að gera okkur grein fyrir við hverju má búast. Og um er að ræða spár, ekki skipanir. Öll eru lík- önin þannig að breytt forsenda (eða -ur) gefur nýja niðurstöðu. Reynt er að fjölga forsendum jafnt og þétt og gera þær áreiðanlegri um leið og reikniþáttum líkansins er líka fjölg- að. Þannig vinna vísindin – rétt eins og þegar spáð er um mannfjölda á Íslandi, nýgengi tiltekins krabba- meins, um verðbólgu o.s.frv. Eins til þriggja stiga hækkun meðalhita- stigs hefur viðtækar afleiðingar á norðurslóðum; sumar góðar og aðr- ar slæmar. Við getum því miður ekki valið þær góðu úr. Við getum heldur ekki treyst á að náttúruleg kólnun bjargi okkur frá – segjum 100 cm sjávarborðshækkun á 50-100 árum (hún er nú 30-35 cm á öld). Heppni er ágæt en meðvitað bjarg- ræði er betra. Kæruleysi er hall- ærislegt. Samsæriskenningar eða hofmóðugheit eiga ekki við. Von um „að hlýnunin verði bara hæfilega lítil“ eða „bara góð“ dugir skammt. Loftslags- og veðurfarsbreyting- ar eru afdrifaríkustu, fyrirsjáan- legu þættirnir í mannlífi hnattarins á næstu öld, ásamt með ófriði og umhverfisvandræðum (t.d. skorti á hreinu vatni og heilbrigðu umhverfi í þéttbýlustu stórborgum). Slíkt hef- ur ekkert með dómsdag að gera eða vond vísindi, heldur þá staðreynd að við stjórnum hvorki náttúrunni né mannkyninu en hvoru tveggja hefur áhrif á hitt. En það er mann- legt að bregðast við umhverfisógn með skynsamlegum spám, tillögum um aðgerðir og upplýsingum til fólks. Ef Ingimundur Kjarval held- ur að milljónustuhlutar af koltví- oxíði og áhrif þeirra séu grín, gabb eða uppspuni fólks í atvinnuleit er úr vöndu að ráða. ■ Andsvar ARI TRAUSTI GUÐMUNDSSON ■ jarðeðlisfræðingur og ráðgjafi hjá Línuhönnun svarar gagnrýnendum lofts- lagsskýrenda. Andsvar MARKÚS ÖRN ANTONSSON ■ útvarpsstjóri svarar gagnrýni á verktakasamninga RÚV.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.