Fréttablaðið - 23.12.2003, Síða 17
17ÞRIÐJUDAGUR 23. desember 2003
Blysför á Þorláksmessu:
Minnir okkur á
kærleika, ljós og frið
Blysför verður niður Laugaveg-inn á Þorláksmessu að venju á
vegum íslenskra friðarhreyfinga.
Þetta er 24. árið sem slík ganga er
farin og líta margir á hana sem
ómissandi hluta jólaundirbúnings-
ins. „Siðurinn er fallegur og minn-
ir okkur á það sem jólin snúast
um, kærleika, ljós og frið,“ segir
Þorgerður Ingólfsdóttir söng-
stjóri, sem með Kór Menntaskól-
ans í Hamrahlíð og Hamrahlíðar-
kórnum leiðir söng í göngunni. Að
venju munu friðarhreyfingar
selja kyndla á Hlemmi og á leið-
inni. Safnast verður saman
kl.17:30 á Hlemmi og lagt af stað
klukkan 18. Jóhanna Kristjóns-
dóttir blaðamaður flytur ávarp
samstarfshóps friðarhreyfinga og
fundarstjóri verður séra Toshiki
Toma. Þorgerður hvetur sem
flesta til að taka þátt og mæta tím-
anlega. Lokaorðin eru frá henni.
„Þessi stund vekur kenndir um
það góða sem jólin gefa okkur og
söngurinn myndar fallegan sam-
hljóm milli manna.“ ■
Þorláksmessan mín:
Opið hús fyrir vini og vandamenn
Marín Þórsdóttir er nýflutt ílitla og notalega íbúð við
Laugaveginn og þar ætlar hún
að vera með opið hús fyrir vini
og vandamenn í kvöld. „Það geta
allir droppað inn eftir klukkan
níu þegar fólk er búið að versla,
þá þarf ekki að borga fyrir dýrt
kaffi á kaffihúsi heldur geta
vinirnir og fjölskyldan komið og
fengið sér smákökur og eitthvað
með því. Ég vonast til að fólk
geti átt góðar stundir saman og
haft það notalegt rétt áður en
það fer heim í bólið.“
Marín er búin að vera mjög
dugleg að baka fyrir þessi jól og
það hefur verið líf og fjör í eld-
húsinu. „Þegar maður er kominn
í nýtt eldhús þá fær maður
nokkurs konar húsmæðrakast
og bakar alla aðventuna,“ segir
hún og hlær. „Ég hitti til dæmis
góða vinkonu mína snemma í
desember og við bökuðum
súkkulaðibitakökur og hnetu-
smjörskökur.“ Smákökurnar
ljúffengu kláruðust fljótt. „Það
var brugðið á það ráð um helg-
ina að baka meira. Ég bakaði
líka sörur með mömmu fyrr í
mánuðinum og skar út laufa-
brauð en var svo óheppin að
missa það allt í gólfið þannig að
ég býð bara upp á laufa-
brauðsmola í kvöld,“ segir hún
hlæjandi. Marín er hvergi nærri
hætt í jólabakstrinum. „Ég fann
uppskrift af marensísköku í
Gestgjafanum sem ég ætla að
skella í á eftir.“
Boðið verður upp á malt og
appelsín með kræsingunum í
kvöld. „Kannski fjárfesti ég í
rauðvínskassa, mér finnst eitt-
hvað jólalegt við það, við sjáum
til,“ segir Marín, sem býst við
margmenni í kvöld. „Ef marka
má veðrið um síðustu helgi þá er
ég nokkuð viss um að það verði
fullt út úr dyrum vegna þess að
það var svo kalt.“ Hún segist
lofa að vera búin að kaupa jóla-
tré og skreyta það fyrir kvöldið
þannig að það verður ljómandi
góð og skemmtileg hátíðar-
stemning í litlu íbúðinni á
Laugaveginum í kvöld. ■
FRIÐARGANGA
Yngri og eldri ganga með ljós gegnum borgina.
MARÍN ÞÓRSDÓTTIR
Hún er búin að vera í nokkurs konar hús-
mæðrakasti í allan desember. Í kvöld
býður hún vinum sínum og fjölskyldu að
slaka á heima hjá sér og fá sér kökur og
með því.
JÓL Í FRANKFURT
Það er mikið um að vera á jólamarkaðin-
um í miðborg Frankfurt í Þýskalandi.