Fréttablaðið - 23.12.2003, Side 18

Fréttablaðið - 23.12.2003, Side 18
matur Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um mat og drykk Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: matur@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is AÐ LOSNA VIÐ SKÖTULYKT Skata er herramannsmatur en það er verra þegar svakaleg fýla liggur yfir heimilinu á aðfangadagsmorgni. Hér fylgja nokkur ráð til að draga úr hættunni á því. • Sjóðið skötuna úti á tröppum eða úti í bílskúr. Dúkið jafnvel upp borð úti í bílskúr eða garðhúsi og borðið þar, því fýlan fylgir um leið og skat- an er borin inn. • Ef enginn er bílskúrinn og rigning úti, reynið þá að loka ykkur vel af inni í eldhúsi. • Sjóðið hangikjöt strax á eftir. Þetta á víst að vera pottþétt ráð. • Ef ykkur langar ekki í hangikjöt má prófa að sjóða epli og kanil saman í potti og láta pottinn svo standa opinn. • Blandið til helminga ediki og vatni og stillið upp í glasi á ofni. • Pakkið ekki inn gjöfum á meðan verið er að sjóða skötuna. Dæmi eru um að fólk hafi dregið illa lyktandi föt upp úr glæsilegum jólapökkum. Þorláksmessustemning: Skötustappa með hvítlauk Kokkarnir á veitingastaðnum Viðtjörnina bjóða gestum upp á skötustöppu í forrétt á jólamatseðl- inum sínum. Á Þorláksmessu fá þeir svo um 300 manns í skötuveislu til sín og segir Ólafur Guðmundsson matreiðslumaður að sumir hafi bók- að strax í fyrra. „Besti tíminn í há- deginu var uppbókaður um miðjan nóvember,“ segir Ólafur, sem sam- þykkti að gefa lesendum uppskrift að skötustöppunni. „Þessi uppskrift er einföld en eins og með margar uppskriftir er erfitt að gefa hana upp nákvæmlega í kílóum og grömmum.“ ■ Skötustappa 1 hluti soðnar kartöflur 1/4 til 1/3 hluti beinlaus soðin kæst skata Hvítlaukur eftir smekk Smjör Kartöflum og skötu er blandað saman í matvinnsluvél ásamt hvítlauk eftir smekk og slatta af smjöri eða olíu. Því meira smjör, þeim mun loftkenndari verður stappan. Látið vélina ganga nokkurn tíma eða þar til maukið er orðið mjög fínt. Borið fram með rúgbrauði. Gott er að drekka pilsner eða bjór með. Íslenskt brennivín eftir smekk. Meðlæti Ólívur Laukur Tómatar Hunang Hvítlaukur Hitið á pönnu með örlitlu hunangi og ef til vill hvítvíni. Setjið örlítið af hvítlauk út í. Berið fram volgt með skötustöppunni. Vín frá Rioja-héraðinu á Spánihafa löngum verið vinsæl á Íslandi. Lagun- illa Crianza er framleitt af fornfrægu vínfyrir- tæki en Lagunilla-vín- garðurinn var stofnaður 1885 af Felipe Lagunilla San Martín. 1995 yfir- tók Arco Bodegas Uni- das reksturinn og hóf þá þegar að endurnýja fyrirtækið. Arco Bodegas á í dag fimm stærstu vínfyrirtæk- in í La Rioja og ræður yfir 3.000 hekturum af vínræktarsvæði. Stórt og öflugt fyrir- tæki sem heldur þó enn í bestu hefðir f j ö l s k y l d u f y r i r - tækisins. Lagunilla Crianza er rúbínrautt að lit, í angan er mildur eikarkeim- ur ásamt góðri vanillu og ferskum ávöxtum. Vín með góða fyllingu og nokkuð langt og gott eftirbragð. Eins og hefðin er í Rioja er vínið geymt í 18 mánuði í eikartunn- um og 12 mánuði í flösku áður en það fer á markað. Hentar sér- lega vel með lamba- kjöti og kálfakjöti í krydduðum sósum. Nýverið voru flöskurnar og flöskumiðarnir hjá Lagunilla end- urnýjaðir og má sjá hinar stæl- legu nýju flöskur í hillum Vínbúða nú síðustu dag- ana fyrir jólin. Í stað hins gamal- kunna gula miða er kominn djúp- rauður og stíl- hreinn miði. Verð í Vínbúð- um 1.090 kr. Knútur Árnason eðlisfræðing-ur er einn þeirra sem halda árlega skötuveislu í desember, en hann bindur sig þó ekki við Þor- láksmessu, heldur býður vinum og ættingjum til veislu síðasta laugardag fyrir jól. Knútur er ættaður úr Þingeyjarsýslum en þar eins og víða annars staðar á landinu var skatan hversdagsmat- ur. „Það var enginn siður að borða skötu fyrir jólin, það var ekki fyrr en ég flutti suður að frændgarður- inn fór að jarma utan í mér. Svo hafa þessir úlfar flætt yfir mig á hverju ári síðan,“ segir Knútur hlæjandi. Knútur býður líka upp á salt- fisk í sinni veislu, því alltaf eru einhverjir sem vilja ekki skötuna. „Ég er að sjálfsögðu með saltfisk handa ættlerunum,“ segir hann. Knútur kallar heldur ekki allt ömmu sína þegar kemur að því að velja skötuna ofan í ættmennin, því hann kaupir enga skötu nema smakka hana hráa fyrst. „Hún verður að vera sterk og bragð- mikil,“ segir Knútur, sem er þokkalega ánægður með skötu þessa árs. „Ég hef þó fengið hana magnaðri. Einu sinni var hún svo sterk að ég gat flett hornhimn- unni innan úr munnholinu með tungunni. Það hreinlega leystist upp í manni slímhúðin,“ segir Knútur, sem býður ekki upp á vestfirskan hnoðmör með herleg- heitunum heldur bara hamsatólg og hangiflot. Að ógleymdum nýj- um íslenskum kartöflum og rammíslensku brennivíni. ■ Undanfarin ár hafa ástralskirvínframleiðendur unnið markvisst að uppbyggingu vín- framleiðslu í landinu. Þeir hafa verið óhræddir að fara nýjar leiðir í þeim efnun og unnið til margra verðlauna á alþjóðavettvangi. Áströlsk vín hafa verið fáanleg hér á landi í nokkur ár og hefur úrvalið aukist jafnt og þétt, nú síðast með til- komu Yellow Tail. Fram- l e i ð a n d i n n Casella er f j ö l s k y l d u - fyrirtæki með langa sögu og er sjötta kynslóðin við s t j ó r n v ö l fyrirtækisins í dag, bræðurnir John, Joe og Marcello Casella. Enginn annar vínframleiðandi í Ástralíu hefur náð eins góðum árangri á jafn skömmum tíma og Yellow Tail. Í dag er Yellow Tail þriðja mest selda innflutta vínið í Bandaríkjunum með yfir 5 milljónir kassa selda á síðasta ári. Casella Estate var nýlega valið vínútflytjandi ársins í Nýja Suður-Wales í Ástralíu. Helstu vín Casella eru: Yellow Tail Shiraz, Yellow Tail Merlot, Yellow Tail Cabernet og Yellow Tail Chardonnay. Vínin fást í Vín- búðinni í Kringlunni og Heiðrúnu og kosta öll 1.320 kr. Yellow Tail Shiraz: Nokkuð bragðmikið vín, mjúkt og berjaríkt með sætum eikarkeim. Gott jafnvægi. Yellow Tail Chardonnay: Ferkst og létt vín með angan af ferskju og melónu og léttum eikarkeim. Fínlegt vín. Vínið hlaut gullverðlaun á Ryoal Mel- bourne Wine Show í ár sem besta hvítvínið. Yellow Tail Merlot: Fekar mjúkt vín með góðu jafnvægi. Vínið er með góðan ávöxt. Yellow Tail Cabernet: Kraft- mikið og bragðmikið vín með góðum þroska og klassískum cabernet-einkennum. Gott jafnvægi er á milli sýru og tann- ína. ■ KNÚTUR ÁRNASON Smakkar skötuna hráa hjá fisksalanum áður en hann kaupir hana. Mögnuð skata: Leysti upp horn- himnu í munnholi Lagunilla í spari- fötin um jólin! Yellow Tail á sigurför

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.