Fréttablaðið - 23.12.2003, Blaðsíða 23
ÞRIÐJUDAGUR 23. desember 2003
hvað?hvar?hvenær?
20 21 22 23 24 25 26
DESEMBER
Þriðjudagur
Gullbolti France Football:
Nedved
bestur
FÓTBOLTI Pavel Nedved fær gull-
bota fótboltatímaritsins France
Football í ár. Nedved hlaut 190
stig í kjörinu, sem íþróttafrétta-
menn frá 52 Evrópulöndum taka
þátt í. Thierry Henry varð annar
með 128 stig og Paolo Maldini
þriðji með 123 stig.
Nedved lék mjög vel með
Juventus og tékkneska landslið-
inu í ár. Hann átti stóran þátt í því
að Juventus komst í úrslit Meist-
aradeildarinnar og að Tékkar
sigruðu með sannfærandi hætti í
sínum riðli í undankeppni Evrópu-
meistarakeppninnar.
Enginn leikmaður frá Tékk-
landi eða Slóvakíu (áður
Tékkóslóvakíu) hefur fengið gull-
boltann síðan Josef Masopust var
kosinn leikmaður ársins 1962. ■
SJÓNVARP
15.05 Trans World Sport (Íþróttir
um allan heim) á Stöð 2.
18.00 Gillette-sportpakkinn á Sýn.
18.30 Supercross á Sýn. Nýjustu
fréttir frá heimsmeistaramótinu í
Supercrossi.
19.30 Trans World Sport (Íþróttir
um allan heim) á Sýn.
20.30 History of Football (Knatt-
spyrnusagan) á Sýn. Í þessum þætti er
fjallað um yfirburði Brasilíumanna en
engin þjóð hefur sigrað jafn oft á HM.
21.30 Heimsbikarinn á skíðum á
Sýn. Nýjustu fréttir af framgöngu skíða-
manna á heimsbikarmótum.
23.30 NFL-tilþrif á Sýn. Svip-
myndir úr leikjum helgarinnar í amer-
íska fótboltanum.
Intersport-deildin í körfu:
Hodgson tek-
ur við Þór Þ.
KÖRFUBOLTI Bandaríkjamaðurinn
Robert Hodgson mun stýra Þór
frá Þorlákshöfn það sem eftir lifir
þessa tímabils í Intersport-deild-
inni í körfuknattleik. Hodgson,
sem mun einnig leika með liðinu,
tekur við af Billy Dreher, sem
sagði upp störfum fyrir skömmu.
Kristinn Kristinsson, formaður
körfuknattleiksdeildar Þórs, stað-
festi þetta í samtali við Frétta-
blaðið í gær og sagði jafnframt að
hann vonaðist til að félagið næði
að klára samning við bakvörðinn
Nate Brown á næstu dögum en
pappírsvinna vegna hans væri
flókin. ■