Fréttablaðið - 23.12.2003, Síða 25
DOWIE ÞJÁLFAR PALACE Iain Dowie
verður næsti framkvæmdastjóri 1.
deildarfélags Crystal Palace. „Að
mínu mati er þetta stórt félag sem
á skilið að leika í úrvalsdeildinni,“
sagði Dowie, sem lék með Palace í
átta mánuði árið 1995. „Þetta er
mikið verk og ég er mjög spenntur
fyrir því.“ Crystal Palace er í sjötta
neðsta sæti 1. deildar.
LEICESTER ÁFRÝJAR Leicester hef-
ur ákveðið að áfrýja ákærum
enska knattspyrnusambandsins á
hendur Ben Thatcher og fram-
kvæmdastjóranum Micky Adams.
Thatcher veittist að Freddie Lj-
ungberg, leikmanni Arsenal, en
Adams hellti úr skálum reiði sinn-
ar yfir dómarann í leik gegn
Birmingham.
ARSENAL VILL YAYA Arsenal á í við-
ræðum við belgíska félagið
Beveren um kaup á Yaya Toure,
yngri bróður Kolo Toure sem
Arsenal keypti frá ASEC Abidjan í
febrúar 2002. Það gæti reynst
erfitt fyrir Arsenal að fá atvinnu-
leyfi fyrir Yaya Toure í Bretlandi
vegna þess að hann hefur ekki leik-
ið nægilega marga landsleiki með
Fílabeinsströndinni.
■ Fótbolti
25ÞRIÐJUDAGUR 23. desember 2003
FÓTBOLTI Enskir fjölmiðlar velta nú
fyrir sér viðbrögðum Manchester
United við leikbanni Rio Ferdin-
and, utan vallar sem innan. United
hefur heitið því að hnekkja bann-
inu með öllum ráðum en þarf engu
að síður að búa sig undir það að
leika án Ferdinand í lengri eða
skemmri tíma.
Wes Brown, Mikael Silvestre,
John O’Shea og jafnvel Gary
Neville og Roy Keane gætu leikið
í stöðu Ferdinand en líklegra er að
United kaup varnarmann eftir
áramót, einhvern sem getur leikið
með United í Meistaradeildinni í
vetur.
Argentínski varnarmaðurinn
Nicolas Andres Burdisso er talinn
koma til greina. Hann varð 22 ára
í apríl og hefur leikið með Boca
Juniors frá haustinu 1999. Burd-
isso heillaði Alex Ferguson í vin-
áttuleik United og Boca í ágúst
2002 og var þá talið að United
væri tilbúið að greða fjórar til
fimm milljónir punda fyrir hann.
Burdisso lék með sigurliði
Argentínu á HM U20-liða árið
2001 og lék sinn fyrsta A-lands-
leik af fjórum þegar Argentínu-
menn unnu Hondúra 3-1 í janúar á
þessu ári. ■
FÓTBOLTI Björgólfur Takefusa,
markahæsti leikmaður Íslands-
mótsins í knattspyrnu á síðasta
tímabili, og miðjumaðurinn Ólaf-
ur Stígsson gengu í gær í raðir
Fylkismanna. Björgólfur, sem
átti mjög gott tímabil með Þrótt-
urum í sumar, hafði ekki áhuga á
því að spila með sínum gömlu fé-
lögum í 1. deildinni á næsta ári en
Ólafur, sem er uppalinn Fylkis-
maður, sagði upp samningi sínum
hjá norska úrvalsdeildarliðinu
Molde og gat ekki hugsað sér að
spila með neinu öðru liði en Fylki
fyrst hann kom heim. Ásgeir Ás-
geirsson, formaður meistara-
flokksráðs Fylkis, sagði í samtali
við Fréttablaðið í gær að koma
þessara manna væri mikill feng-
ur fyrir félagið. „Við opnum
pakkana snemma í ár,“ sagði Ás-
geir og bætti við að vonandi væru
menn í Árbænum sannfærðir
núna um að liðið ætlaði sér stóra
hluti á næsta ári. Björgólfur
Takefusa sagði að ákvörðunin um
að yfirgefa Þrótt hefði ekki verið
auðveld en það hefði ekki verið
hægt að hafna slíku tækifæri sem
honum byðist hjá Fylki. „Hér er
allt til alls, stórt félag, barátta um
titla á hverju ári og ég hef trölla-
trú á þjálfara liðsins. Allt þetta
gerði ákvörðunina um hvaða lið
ég ætti að fara í auðvelda þótt
það hafi verið erfitt að fara frá
Þrótti.“ ■
Louis Saha:
United er
draumurinn
FÓTBOLTI „Ég get ekki sagt nei.
Manchester United er draumur
minn og ég vil fara þangað,“ sagði
Louis Saha, leikmaður Fulham, í
viðtali við enska dagblaðið The
Sun. „Það er núna sem Sir Alex
Ferguson þarf sóknarmann. Eftir
sex mánuði verður staðan
breytt.“
Í síðustu viku þvertók Chris
Coleman, framkvæmdstjóri Ful-
ham, fyrir að Saha væri á leið frá
félaginu og sagði að það ætlaði að
bjóða Saha nýjan samning. „Ég
skil stöðu framkvæmdastjórans en
þetta er tækifæri sem ég get ekki
látið framhjá mér fara.“ ■
MIKILL LIÐSSTYRKUR
Björgólfur Takefusa og Ólafur Stígsson skrifuðu í gær undir samning við Fylkismenn.
Fylkismenn fá gífurlegan liðsstyrk:
Björgólfur og Ólafur
í Árbæinn
Manchester United:
Burdisso í stað Rio?
NICOLAS BURDISSO
Staðgengill Rio Ferdinand?