Fréttablaðið - 23.12.2003, Qupperneq 26
■ ■ TÓNLEIKAR
20.30 Tenórarnir Kolbeinn Ketils-
son, Þorgeir J. Andrésson og Snorri
Wium og sópransöngkonurnar Valgerð-
ur Guðnadóttir, Hulda Björk Garðars-
dóttir og Alda Ingibergsdóttir syngja
valin jólalög og þekktar aríur af svölum
Kaffi Sólon.
22.00 Hljómsveitin Úlpa ætlar að
rokka inn jólin á Bar 11. Aðgangur
ókeypis.
22.00 Megas og Súkkat verða
með Megasukk á Hótel Borg.
Bubbi Morthens verður með sína
árlegu Þorláksmessutónleika á NASA við
Austurvöll.
■ ■ LEIKLIST
14.00 Fimbulvetur sýnir Ójólaleik-
ritið í menningarhúsinu Aðalstræti 10.
16.00 Fimbulvetur sýnir Ójólaleik-
ritið í menningarhúsinu Aðalstræti 10.
18.00 Fimbulvetur sýnir Ójólaleik-
ritið í menningarhúsinu Aðalstræti 10.
■ ■ SKEMMTANIR
Groovebandið Multifonics með
Bigga Nielsen úr Landi og Sonum spilar
á Pravda.
Óskar Einarsson trúbador spilar og
syngur á skemmtistaðnum de Boom-
kikker við Hafnarstræti.
■ ■ SAMKOMUR
17.30 Íslenskar friðarhreyfingar
standa að blysför niður Laugaveginn á
Þorláksmessu. Safnast verður saman
klukkan 17.30 á Hlemmi og lagt af stað
klukkan 18. Jóhanna Kristjónsdóttir
blaðamaður flytur ávarp Samstarfshóps
friðarhreyfinga, fundarstjóri verður séra
Toshiki Toma. Kór Menntaskólans við
Hamrahlíð og Hamrahlíðarkórinn taka
þátt í göngunni. Stjórnandi kóranna er
Þorgerður Ingólfsdóttir.
20.00 Blysför gegn stríði hefst við
Menntaskólann á Akureyri við Eyrar-
landsveg. Gengið verður niður á Ráð-
hústorg.
Jólamarkaður er í galleríi Kling og
Bang að Laugavegi 23. Þær kennir ým-
issa grasa.
Jólamarkaður Sirkus við Laugaveg
og Klapparstíg milli 15 og 22. Alls konar
sniðugt grúví dót.
■ ■ SÍÐUSTU FORVÖÐ
Benedikt S. Lafleur opnar í dag inn-
setningu sína „Hvíti Indjáninn“ í Húsi
málaranna við Eiðistorg. Í dag lýkur
jafnframt sýningum Benedikts og Þórs
Magnúsar Kapor, sem eru á sama stað.
Opið 14-23.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð-
ar en sólarhring fyrir birtingu.
26 23. desember 2003 ÞRIÐJUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
20 21 22 23 24 25 26
DESEMBER
Þriðjudagur Síðastliðin tuttugu ár hefur þaðverið fastur liður hjá mörgum
unnendum Bubba Morthens að
bregða sér á tónleika með honum
á Þorláksmessu. Lengst af voru
þessir tónleikar á Hótel Borg, en
síðustu ár hefur hann verið á
NASA. Svo verður einnig í ár.
„Þetta eru tuttugustu Þorláks-
messutónleikarnir,“ segir Bubbi,
sem verður eins og venjulega einn
á ferð með gítarinn sinn.
Hann segist ætla að spila sitt
lítið af hverju, bæði gamalt efni
og nýtt. Lagasafnið er stórt því
hann hefur sent frá sér á fimmta
hundrað lög, og hefur því úr nógu
að velja. Sum þeirra eru fyrir
löngu orðin klassísk.
„Þarna innan um eru lög sem
kynslóð eftir kynslóð virðist sam-
þykkja og biðja um. Þau lög eru
alltaf með á þessum tónleikum,“
segir Bubbi.
„Ég flyt líka lög af nýju plöt-
unni auðvitað, það má ekki gleym-
ast. Og svo reyni ég nú alltaf að
bæta inn einhverjum lögum sem
ég hef ekki spilað mjög lengi,
þannig að þau koma í rauninni inn
alveg sem ný.“
Hann segist vera mjög sáttur
við hvernig elstu lögin hafa stað-
ist tímans tönn.
„Auðvitað er alltaf eitthvað af
þeim sem á ekki inni hverju sinni,
en yfirhöfuð finnst mér þau virka
mjög vel.“
Á undan Bubba stígur á svið
Jakob Viðar Guðmundsson, sem
sigraði í trúbadorkeppni Rásar 2 í
sumar. Þeir Bubbi eru jafn gamlir
og ólust upp á sömu slóðum í
Vogahverfinu.
Allir miðar á forsölu eru löngu
uppseldir, en eitthvað verður
samt selt af miðum við dyrnar. ■
■ TÓNLEIKAR
Bubbi kemur með jólin
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 287. TBL. – 93. ÁRG. – [ ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2003 ] VERÐ KR. 250
Bubbi segir HannesHólmstein ekki hafa nein áhrif á Bylgjunni Bls. 27.
Linda Pé vill lítið barn meðsínum billjóner Bls. 20
Börn Ingvars E.Sigurðssonar leikara,
þau Snæfríður og
Áslákur, leika á móti
pabba gamla í kvik-
myndinni Kaldaljós sem verður frumsýnd 1. janúar. Ingvar er að
vonum stoltur af börnunum og er ekkertað leika um jólin svoþetta verða sannkölluðfjölskyldujól hjá þessum
ástsæla leikara.
Gleðileg jól
EINAR KARL HARALDSSON
Að ganga inn í góða bók gefurnáttúrlega stundarfrið, og ég
er afskaplega hraðlæs og les mik-
ið,“ segir Einar Karl Haraldsson,
almannatengill og varaþingmað-
ur, „en þá er maður reyndar ekki
alltaf einn. Stundum les ég bók
með einu auganu og horfi á sjón-
varpið með hinu. En ég hef líka
gert dálítið af því í gegnum tíðina
að hlaupa eða ganga í Öskjuhlíð-
inni og þar er maður einn með
sjálfum sér. Reynsla mín er sú að
ef maður hefur hlaupið í tíu mín-
útur eða gengið í tuttugu mínutur
þá losnar um allar hugarflækjur
og hugmyndirnar streyma fram,
og allt gengur upp sem hefur ver-
ið að bögglast fyrir manni. Þannig
að þetta er afskaplega mikil upp-
lyfting fyrir sál og líkama.“
Stundinmín
BUBBI MORTHENS
Syngur og spilar á gítarinn fyrir gesti á NASA í kvöld.