Fréttablaðið - 23.12.2003, Page 30
Ég er nú bara að sinna skyldummínum sem formaður í þessu
áhugamannafélagi. Þar leggja all-
ir sitt af mörkum til þess að þetta
takist,“ segir Björn Bjarnason,
dómsmálaráðherra og formaður í
áhugamannafélaginu Aflanum,
sem farið hefur mikinn í kynn-
ingu á myndbandinu Lífsorka - qi
gong með Gunnari Eyjólfssyni.
Aflinn, félag iðkenda qi gong á
Íslandi, gefur myndbandið út,
sem er um 45 mínútna langt með
fornum kínverskum lífsorku-
æfingum. Félagið Aflinn var
stofnað 1. júní 2001 og var Björn
kosinn formaður á stofnfundin-
um. Gunnar var þar jafnframt
gerður að heiðursforseta.
„Fólk sem iðkar qi gong gengur
til móts við lífsorkuna. Það nýtir
hana betur auk þess sem leikfim-
in gefur líkamlegt og andlegt
þrek,“ segir Björn, sem iðkar æf-
ingarnar þrisvar í viku að jafnaði.
„Það eina sem þarf að gera er að
fara úr skónum, taka af sér slifsið,
gleraugun og úrið og hefja æfing-
ar.“
Björn segir áhugann á æfing-
unum hafa verið það mikinn að
ákveðið hafi verið að ráðast í gerð
myndbandsins. „Það voru svo
margir sem vildu læra æfingarn-
ar,“ segir Björn Bjarnason, dóms-
málaráðherra og leikfimisgúru. ■
Hrósið 30 23. desember 2003 ÞRIÐJUDAGUR
Jújú, að sjálfsögðu tókst mér aðklúðra þessu með því að nota
ekki valmöguleikana,“ segir Snæ-
björn Guðmundsson, nemandi í
Menntaskólanum í Reykjavík,
sem á sunnudag vann 50 þúsund
krónur í spurningaþættinum
Villtu vinna milljón? á Stöð 2.
Snæbjörn sagðist ekki hafa haft
græna glóru um hver höfundur
bókanna um Pappírs-Pésa er,
sagði Guðrún Helgadóttir en rétt
svar er Herdís Egilsdóttir.
Tvö síðustu ár hefur Snæbjörn
verið í sigurliði MR í Gettu betur,
spurningakeppni framhaldsskól-
anna. Það kom því mörgum á
óvart að Snæbjörn skyldi ekki ná
lengra en að sjöttu spurningu í
Villtu vinna milljón. „Jah, ég var
augljóslega bara einn í Villtu
vinna milljón og svo má heldur
ekki klikka á einni einustu spurn-
ingu því þá er maður úr leik,“
sagði Snæbjörn aðspurður um
muninn á spurningaleikjunum
tveimur.
Snæbjörn er þó ekki heillum
horfinn því hann verður í liði MR
sem hefur unnið titilinn í Gettu
betur ellefu ár í röð. ■
Spurningaleikur
SNÆBJÖRN GUÐMUNDSSON
■ nemanda í Menntaskólanum í
Reykjavík gekk ekki sem skyldi í Viltu
vinna milljón? Mætir þó aftur til leiks í
Gettu betur.
Leikfimi
■ Út er komið kennslumyndband með
fornum kínverskum lífsorkuæfingum.
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hef-
ur farið mikinn í kynningu á því.
Fær jólasveinninn fyrir að
þrauka enn ein jólin.
Klikkaði á Pappírs-Pésa
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Rauðu herdeildarinnar.
Í hænsnaskít.
Lebron James hjá Cleveland
Cavaliers.
1
5 6
7 8
13 14
16 17
15
18
2 3
11
9
1210
4
Þjóðfélagsrýnirinn beinskeyttiMichael Moore sendir George
W. Bush og félögum tóninn í
hinni hressilegu bók
sinni Heimskir hvítir
karlar sem hefur
rokselst úti um allan
heim undanfarin
misseri. Bókin kom
út í íslenskri þýð-
ingu hjá Forlaginu í haust og les-
endur hafa tekið henni tveim
höndum og hún er með öllu upp-
seld hjá útgefandanum. Hún er
uppseld í verslunum Hagkaupa
og Bónuss og þeir sem vilja
tryggja sér eintak fyrir jól þurfa
að hafa allar klær úti þar sem
endurprentun er ekki væntanleg
fyrr en í byrjun ársins 2004.
Lárétt: 1 málmur, 5 værukær, 6 átt, 7
skóli, 8 goð, 9 flösku, 10 í röð, 12 dý, 13
hátíð, 15 tveir eins, 16 lengra frá, 18
sláni.
Lóðrétt: 1 kvendýr, 2 hrædd, 3 bardagi,
4 föggur, 6 ekki gömul, 8 seinka, 11
fundur, 14 samneyti, 17 sólguð.
Lausn:
Fréttiraf fólki
KÍNVERSK LEIKFIMI
Gunnar Eyjólfsson leiðbeinir meðlimum í áhugamannafélaginu Aflanum. Meðal félaga eru Björn Bjarnason formaður og Sveinn
Einarsson.
Dómsmálaráðherra
kynnir kínverska leikfimiLárétt: 1úran,5löt,6na,7fg,8týr, 9
pela,10nm,12fen,13jól,15gg,16
utar, 18gaur.
Lóðrétt: 1úlfynjur, 2rög,3at,4farang-
ur, 6nýleg,8tef, 11mót,14, lag, 17ra.
SNÆBJÖRN GUÐMUNDSSON
Spurningagúru úr MR. Klikkaði á Pappírs-Pésa en mætir aftur til leiks í Gettu betur.