Tíminn - 05.10.1971, Side 2
2
TÍMINN
ÞRIÐJUDAGUR 5. október 1971
Hornaf jörður skartaði sínu
fegursta er Skaftafell kom
KJ—Reykjaivík, mánudag.
Það er jafnam mikill viðburður
á stöðum úti á landi, þegar nýtt
vöruflutningaskip, kemur þangað
í fyrsta skipti í heimahöfn, og svo
var einnig á laugardaginn, þeg-
ar Skaftafell, nýjasta skipið i
flota Sambands ísl. samvinnufé-
laga kom til heimahafnar í Horna
firði á laugardaginn, skömmu fyr
ir hádegið. Það er óhætt að segja,
að Homafjörður hafi fagnað
Skaftafelli, því meira en helming
ur íbúanna var á bryggjunni þeg
ar lagzt var upp að, og fólk hafði
fylgzt spennt með, þegar skipið
sigldi inn Hornafjarðarós, og inn
á milli eyjanna.
Strax og skipið hafði verið bund
ið hófst hátíðleg móttöbuathöfn,
sem Óskar Helgason fonmaður
stjómar Kaupfélags Austur-Skaft
fellinga stjómaði. Átta söngmenn
fná Höfn sungu við athöfnina und
ir stjóm Eyjólfs Stefánssonar
og þar á meðal var frumflutt lag
eftir Eyjólf, við texta eftir Aðal
stein Aðalsteinsson fulltrúa í
Höfn. Við móttökuna sagði Óskar
ar Helgason m. a.:
„Skaftafell er komið í heima-
höfn á Hornafirði. f nafni Kaup
félags Austur-Skaftfellinga og
allra sýslubúa býð ég Skaftafell
velkomið og skipshöfn velkomna
með hið fríða skip, og flyt okkar
beztu hamingjuóskir. Ég tjái for
stjóra Sambands ísl. samvinnufé-
laga Erlendi Einarssyni og fram
kvæmdastjóra Skipadeildar Hirti
Hjartar svo og stjórn Sambands
ins þakkir okkar, fyrir að sýna
Austur-Skaftfellingum þann, sóma
að velja Skaftafelli heimahöfn
hér á Homafirði. Við lítum á
‘ þessa ákvörðun, sem viðurkenn-
ingu á þeim störfum sem hér hafa
verið unnin, og er unnið að, í
verzlunar-, atvinnu- og menningar
málum á félagssvæði Kaupfélags
Austur-Skaftfellinga. Á þessu ári
' er skiparekstur samvinnumanna
25 ára og í tilefni þessa merka af-
mælis flyt ég Sambandinu okkar
beztu hamingjuóskir og þakkir.
Við íslendingar fögnum komu
, hvers nýs skips, sem bætist í
. skipastól þjóðarinnar. Við byggj
um eyland og við þurfum öflug
an og vel útbúin sMpaflota. Við
þurfum góð og velútbúin fiski
sMp, flutningasMp og farþega
sMp. Við þurfum að verða sjálf
um okkur nógir á þessum sviðum
sem og á fjölmörgum öðmm. Við
þurfum einnig að vera færir að
taka að okkur verkefni s.s. flutn
inga fyrir aðrar þjóðir og hafa
sum sMpafélög hér á landi tekið
að sér slíka flutninga og þar á
meðal SMpadeild Sambandsins.
Við þökkum þeim skipafélögum,
sem halda uppi siglingum hafna
í milli og landa í milli, og eitt
af þeim er skipadeild sambands
ins, sem nú á 25 ára afmælinu, á
sMpaflota, sem sMpar veglegan
sess í íslenzkri skipaútgerð. Við
óskum að Skaftafellið fari ávallt
heQt úr höfn og komi heilt til
hafnar.
LEIÐRÉTTING
Sagt var í frétt í blaðinu á
sunnudag, að 18 þúsund fjár yrði
slátrað í haust í sláturhúsinu í
ðorgamesi. Þetta er að sjálf-
sögðu ekki rétt. Reiknað er með
að um 60 þúsund fjár verði slátr-
að jþar í haust — EB
Guðs blessun fylgi skipi og
skipshöfn“.
Þá talaði Hjörtur Hjartar, fram
kvæmdastjóri skipadeildar af
brú skipsins og sagði Hjörtur
m.a.:
„Skaftafell er komið til sinnar
heimahafnar.
Ég vil fyrir hönd Sambandsins,
skipstjóra þess og áhafnar, þakka
þær heillaóskir, sem hér hafa ver
ið færðar fram.
Hvers vegna heitir þetta nýja
Sambandsskip — Skaftafell? —
Og hvers vegna hefir því verið
valin heimahöfn hér?
Þessi landshluti er kunnur frá
upphafi byggðar á íslandi. Skafta
fellssýslur geyma andstæður ís-
lands allar innan sinna marka —
Skaftafell liggur við festar fyrir utan Hornafjörð á laugardagsmorguninn, áður en siglt var inn Hornafjarðarós.
Skipstjóri, gestir og heimafólk vlð komu Skaftafells tíl Hornafjarðar á laugardag.
Miklll fjöldi fólks var viðstaddur móttökuathöfnina á bryggjunni á Höfn, (Tímamyndir Kári)
eld og öræfi, ís og auðnir sanda,
jökulvötn og hraunbreiður —
gróðursælar sveitir, fagra dali
fulla af skógi og fell fleiri en ég
veit í nokkru öðru byggðarlagi.
Þegar af þessari ástæðu var eðli
legt, að hingað væri hugsað, þeg
ar þessu nýja Sambandsskipi skyldi
valið nafn og heimahöfn.
En fleira kemur hér tíl.
Bændur þessa byggðarlags hófu
að leysa sameiginleg vandamál
með samstarfi á samvinnugrund-
velli. Hér sem víða annars staðar
gaf sú leið góða raun.
Þróunarsaga þessa héraðs er til
vitnis um það. Hér hafa gerzt og
eru að gerast stórir hlutir. Hvert
framfarasporið er stigið af öðru
til eflingar félagslegu starfi og
efnahagslegri velmegun. Verzlun
er reMn af myndarskap við góð
ar aðstæður. Afurðasölu bænda
búin ný og betri skilyrði. Nýtízku
leg og stór vörugeymsla reist, síld
arverksmiðja byggð, nýtt frysti-
hús senn að rísa af grunni, mynd
arlegir fiskibátar keyptir og sjáv
arútvegur efldur á margan hátt.
Að baki þessu öllu standa dug-
miklir einstaklingar, framsæknir
og framfarasinnaðir og félagssam
stök þeirra — Kaupfélag-Austur-
Skaftfellinga í Höfn í HomafirðL
Samvinnufólkið í landinu hefir
tekið eftir því, sem hér er að ger
ast og því þykir vænt um það og
það óskar ykkur velfamaðar.
Til að undirstrika þær óskir er
nafn þessa nýja —Fells — valið
úr byggðarlagi ykkar og heima-
höfn þess ákveðin hér.
Þetta er lika gert til að undir
strika og minna menn á, að samtök
ykkar eru sterk og þau ná út fyrir
þetta byggðarlag.
Vegna skilnings á mætti sam-
starfs og félagshyggju hefir verið
unnt að lyfta Grettistökum hér:“
Var klukkan um tólf þegar mót-
tökuathöfninni lauk, og Homa
fjörður skartaði sínu fegursta og
mynduðu Homafjarðarfjöllin og
nærliggjandi jöMar, fallegan
ramma um þessa merkisstund í
sögu byggðarlagsins.
Eftir hádegið var svo á annað
hundrað gestum boðið til mót-
töku um borð, og var þar fólk
hvaðanæfa úr Austur-Skaftafells
sýslu. Síðaru m daginn, var almenn
ingi boðið að skoða skipið og þá
sérstaklega ungu kynslóðinni í
Höfn, sem naut þess í ríkum maeli
að koma um borð í sMpið. Það
voru víst nokkrar MacMntosh-
dósir, sem tæmdust við heimsókn
ungu kynslóðarinnar og ánægju-
legt að sjá, hvað hún naut heim
sóknarinnar.
Samið var um smíði Skaftafells
í júní 1969, og það var afhent í
Þýzkalandi í lok september, sam
kvæmt áætlun. Skipið er rúm
1700 tonn að stærð, og sérstaMega
byggt til að geta komizt inn og
út á þröngum höfnum, eins og er
víða hér við land. Vél er af
Deutz gerð, og mikil sjálfvirkni
um borð. í brúnni er mikið stjóm
borð, þaðan sem hægt er að
stjóma vél skpsins, og fylgjast
með ýmsum tækjum þess. Stefn
ið er perulaga, og skipið er búiS
bógskrúfu. Frystikerfi sMpsins er
það öflugt, að það á að geta hald
ið góðu frosti í farmi í 20 stiga
hita. Einnig eru lestar þess þann
ig útbúnar, að hægt er að flytja
í þeim laust kom, en það mun
vera sjaldgæft um frystisMp. Á
sMpinu er 18 manna áhöfn, og
búa allir í eins manns klefum.
Skipstjóri er Barði Jónsson og
yfirvélstjóri er Gunnar Þorsteins
son.
Um kvöldið bauð Kaupfélag
Austur-Skaftfellinga til hófs í
Hótel Höfn, en í móttökunni fyrr
um daginn hafði Ásgrímur Hall-
dórsson afhent sMpstjóranum
fallegt málverk eftir Höskuld
Björnsson.
f hófinu á Hótel Höfn, voru flutt
ar fjölmargar ræður, og töluðu
þar heimamenn, skipsmenn og for-
ráðamenn Sambandsins.