Tíminn - 05.10.1971, Síða 3
ÞRIÐJUDAGUR 5. október 1971
TÍMINN
...I
GEFJUN AKUREYRI
dralorí
Loftleiðahótel
OÓ—Rcykjavík, mánudag.
ÞaS leynast víSa hættur í um-
ferðinni. Aðfararnótt sunnudags
valt jeppi á planinu framan við
Loftleiðarhótelið. Jeppanum var
ekið af bílastæði og út á braut-
ina, meðfram hótelinu. Þar var
leigubíll á ferð á leið frá hótelinu
og lenti jeppinn á vinstri hlið
leigubílsins, kræktist þar ein-
hvern veginn fastur og dróst
með bílnum einhvern spöl og
valt á hliðina.
Farþegi, sem var í leigubílnum
skaddaðist í baki við áreksturinn.
Hvorugur bílanna var á mikilli
ferð, enda lítil umsvif að aka
hratt, þar sem áreksturinn og
bílveltan urðu.
Hvað sagði ég
ekki! Þú færð
vinning
//
ÞÓ—Reykjavík, mánudag.
Dregið var í happdrætti Dvalar
hemilis aldraðra sjómanna í dag,
og meðal vinninga var einbýlishús
við Brúarflöt í Garðahreppi. Vinn
ingurinn kom á miða nr. 42934 og
var það 12 ára gömul dóttir Bald-
vins Jónssonar framkvæmdastjóra
DAS, sem dró vinninginn. Þegar
farið var að kanna hver það væri
sem ætti vinninginn kom í Ijós
að það var Helgi Angantýsson,
Staðarbakka 10.
í kvöld afhentu þeir Baldvin
Jónsson, framkvæmdastjóri happ
drættisins og Pétur Sigurðsson,
form. sjómannadagsráðs, Helga
og fjölskyldu hans vinninginn.
Þegar Baldvin og Pétur voru bún
ir að afhenda þeim hjónum, Helga
Angantýssyni og Ásdísi Hallgríms
dóttur, vinninginn, náðum við að-
eins tali af þeim. Helgi sagði, að
þau væru ekki búin að jafna sig
á þessu ennþá, og hefðu þau vart
ætlað að trúa því, þegar hringt var
heim til þeirra í dag, og þeim til-
kynnt um vinninginn. Þetta væri
hálf óraunverulegt ennþá. Annars
sagði Helgi, að þau væru búin að
spila £ happdrætti DAS frá stofn-
un þess 1954 og aldrei fengið vinn-
ing fyrr en nú, og í raun hefði Það
verið sama í hvaða happdrætti þau
hefðu spilað, þau hefðu aldrei feng-
ið vinning.
Helgi sagði, að þau hefðu átt 4
miða í DAS þangað til í vor, en þá
fannst þeim orðið svo dýrt að spila
í happdrætti, að þau slepptu tveim
miðum, en svo hefði stóiri vinningur
inn komið á annan miðann, sem
þau héldu eftir.
Ásdís Hallgrímsdóttir, kona
Helga, sagði: „Þetta er eins og
draumur. Ég veit ekki, hvemig ég
á að vera. — Nú segja allir, að
það hefði verið betra ef einhver
annar hefði fengið vinninginn,
því við fluttum í eigið húsnæði í
fyrra, en það er nú reyndar allt
vafið skuldum ennþá.
Þá sagði Ásdís okkur, að
mömmu sína hefði verið búið að
dreyma fyrir vinningnum. Móðir
hennar hafði dreymt að pahbi Ás-
dísar hefði verið búinn að tæma
heila verzlun og var hann að aka
öllu heim til hennar. Mamma henn
ar hafði sagt Ásdísi drauminn og
sagt við hana að nú mundi hún fá
vinning. Svo þegar Ásdís hringdi
til móður sinnar í dag og sagði
henni hvað þau hefðu fengið, þá
sagði móðir hennar: Hvað sagði
ég ekki, þú fékkst vinning!
Þau hjón, Ásdís og Helgi, eiga
þrjá syni.
Jeppi valt viö
.. .....'.....-t: Mi iwmiyi n riniii n m
Baldvin E. Jónsson afhendir Helga Angantýssyni lykilinn að DAS-húsinu. Við hlið Heiga er kona hans, Ásdís
Hallgrímsdóttir og tveir synir þeirra, Hallgrímur og Bragi. Stúlkan við hlið Baldvins er 12 ára dóttir hans, Slg-
rún, en það var hún, sem dró út vlnninginn. (Tímamynd GE)
... og góð flík er á
næsta leiti
3
AVIDA
wm
Undirlægjuháttur
Mbl.
Það bregzt ekki, að í hvert
skipti, sem erlendir menn tala
illa um hina nýju ríkisstjóm
á íslandi, skal Morgunblaðið
taka undir málflutning hinna
erlendu manna og gera að sín-
um skoðunum. Undirlægjuhátt
ur gagnvart útlendingum er
höfuðeinkenni málflutnings
Mbl. Þannig segir Mbl. í leið-
ara á sunnudag að ósmekkleg
og villandi ummæli vestur-
þýzka þingmannsins Blumen-
felds á fundl Þingmannasam-
bands Natóríkjanna hafi verið
„í hæsta máta eðlileg og skilj
anleg viðbrögð erlendra stjóm
málamanna við þeirri stefnu-
breytingu, sem orðið hefur í
öryggismálum þjóðarinnar síð-
asta misserið, og á rætur sínar
að rekja til, að hér hefiir setzt
að völdum ríkisstjóra með að-
ild kommúnista/-
Blumenfeld laglR fram
skýrslu í stjómmálanefnd þing
mannafundarins, þar sem verið
var að gefa í skyn, að fdand
ætlaði að segja sig úr Nato, eða
kannski fremur, að endurskoð
tni varaarsamningsins við
Bandaríkin með brottflutning
liðsins fyrir augum, jafngilti
„óverulegri þátttöku“. í þessu
sambandi minnti þessi vestur-
þýzki þingmaður á stöðu Finn
lands gagnvart Sovétríkjunum
°S taldi hana sanna að smá-
þjóðir á Vesturlöndum geti
ekki leyst vandamál sín með
Því að standa utan við Atlants
hafsbandalagið. Sagði þessi
ágæti Herr Blumenfeld, að
Finnar væra í þann veginn að
ganga inn f Comecon, Efna
hagsbandalag Austur-Evrópu-
ríkja.
//í hæsta máta eðftleg
og skiljanleg"?
í fyrsta lagi verða þessi um-
mæli þýzka þingmannsins að
teljast villandi og ósmekkleg
vegna þess, að það er skýíaus
yfirlýsing íslenzku rikisstjómar
innar, að ísland muni halda
áfram aðild að Nató. BoUalegg
ingar um úrsögn íslands þvert
ofan í þá yfiriýsingu má því
beinlínis teljast móðgun við ís-
lenzku sendinefndina hjá þing
mannasambandinu.
. í öðru lagi var það vissulega
viUandi að hafa viðkvæm vanda
mál Finna í viðskipta- og utan-
ríkismálum í flimtingum með
þessum hætt.
í. fjórða lagi var íslenzka
ríkisstjórnin ekki ein um það,
að telja þessi ummæli Herr
Blumenfelds óviðeigandi.
Norskum þingmanni
ofbauð
Er Herr Blumenfeld hafði
gert grein fyrir skýrslu sinni
í stjórnmálaefndinni og þar á
meðal kaflanum um ísland og
stefnu __ hinnar nýju rikisstjórn
ar á íslandi, sem bætt hafði
verið inn í skýrsluna á síðustu
stundu og enginn hafði séð áð-
ur, hvað þá að kaflinn hafi ver
ið borinn undir íslenzku fuU-
trúana áður, tók norski þing-
maðurinn Oftedal til máls.Taldi
hann ummæli Blumenfelds um
Framrald á bls. 14.