Tíminn - 05.10.1971, Síða 14
14
TÍMINN
ÞRIÐJUDAGUR 5. október 1971
Skemmdarverk
unnín í Eyjum
OÓ—Reykjavík, mánudag.
Talsverð skemmdarverk voru
unnin í Vestmannaeyjum aðfara
nótt sunnudags s. 1. Að afloknum
dansleik hópaðist fólk út á göt
urnar í góða veðrinu og bar mikið
á ölvun. Voru rifin upp grindverk
á gangbrautuim svo og umferðar
merki. Þá var ráðizt á vinnupalla
sem voru við símstöðvarhúsið og
þeir rifnir niður.
Ekki bar mikið á slagsmálum
og menn létu sér yfirleitt nægja
að ráðast á fyrrgreind mannvirki
og rífa niður.
Fjölskyldu minni og vinum, sem með gjöfum, skeyt-
um og á annan hátt glöddu mig á 75 ára afmæli mínu
28. sept. s.l. vil ég þakka. Ennfremur sérstakar þakkir
til forstjóra Olíufélagsins h.f., Vilhjálms Jónssonar og
Jóhanns G. Stefánssonar svo og til starfsfélaga minna
fyrir þær höfSinglegu gjafir mér til handa.
GuS blessi ykkur öll.
Erlendur Jónsson,
Miðtúni 16.
Guðrún Guðmundsdótfir,
Smiðjustíg 13,
lézt 2. október.
Inga Valborg Einarsdóttir
Björk E. Brekkan
Auðunn Einarsson
Gunnhildur Eiríksdóttir
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Kristín Hintze F. Jónsdóttir
andaðist laugardaginn 2. október á Komunehospitalet, Kaupmanna-
höfn.
Elna og Palle Haundrup
Hanne og Halldór Sigurðsson
og barnabörn.
Minn ástkæri eiginmaður,
Oddfreyr Ásberg Níelsson,
Litla-Landi, Ölfusi,
sem lézt 29. september, verður jarðsunginn frá Hjallakirkju mið-
vikudaginn 6. október, kl. 2.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Halldóra Bára Halldórsdóttir
Móðir mín,
Guðbjörg Ólafía Magnúsdóttir,
Bugðulæk 2, Reykjavík,
lézt að Hrafnistu mánudaginn 4. október 1971.
Magný G. Bárðardóttir
Faðir okkar,
Jóhann Pálsson
frá Hofi, Öræfum,
lézt á Ellihcimilinu Grund 4. október.
Börn hins látna.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur vináttu og samúð
við andlát og jarðarför konu minnar, móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
Benediktu Benediktsdóttur,
Álftröð 1.
Ellert 'Haildórsson,
börn, tengdasonur og barnabörn.
Þökkúm auðsýnda samúð við andlát og jarðarför föður okkar, tengda-
föður og afa,
Höskuldar Magnússonar
frá Hafnarnesi, Fáskrúðsfirði.
Synir, tengdadæfur og barnabörn.
Hjartans þakkir tii allra, er sýnt hafa okkur samúð og vinarhug við
fráfaJi
Guðmundar Jóhanns Garibaldasonar.
Sérstakar þakkir skulu færðar læknum og hjúkrunarfólki Landa-
kofsspitala, fyrir hjúkrun og umönnun honum veitta.
Þór Jóhannsson Elín R. Eyfells
Jónína Jóhannsdóttir Sigurþór Þorgilsson
Margeir P. Jóhannsson Liliy Samúelsdóttir
Vélin hélt áfram
Framhald af bls. 16.
ir eins og hráviði út um akbraut
ina.
Lenti vinstri hlið bílsins á staurri
um. Framhjólin lögðust niður og
vélin fór á fullri ferð fram úr
bílnum. Losnuðu allar festingar
og gírkassinn kubbaðist í tvennt,
og þurrkaðist allt úr vélarhúsinu.
Þegar áreksturinn var afstaðinn
kom piltur á Moskovitsbíl eftir göt
unni. Segist hann hafa séð bíl
inn við staurinn og hélt hann að
bíllinn hafi lent í árekstri og verið
ýtt þama út af til að rýma ak-
brautina, og ók áfram og átti sér
einskis ills von þangað til bíll
hans snarstöðvaðist á vélinni, sem
piltur sá ekki fyrr en hann fór
að gæta að, á hvað hann hefði
eiginlega ekið. Skemmdist bíllinn
allmikið. Staurinn stóð af sér
höggið en er mikið skaddaður.
Ökumaður bílsins, sem missti
vélina, var einn í bílnum. Hann
segist ekki gera sér grein fyrir
hvernig stóð á því að hann ók
á staurinn. Var ökumaðurinn flutt
ur á slysavarðstofuna. Fékk hann
höfuðmeiðsli og meiddist í baki.
Fangelsismál
^ramhaid aí bls 16.
f öðru lagi hafa farið fram við-
ræður milli dómsmálaráðuneytis-
ins og Reykjavíkurborgar um út-
hlutun lóðar, þar sem byggt verði
gæzluvarðhaldsfangelsi til fram-
búðarnotkunar, en það mundi
koma í stað hegningarhússins við
Skólavörðustíg og fangelsis í
Síðumúla. Er gert ráð fyrir, að í
hinu nýja húsnæði megi vista um
50 fanga.
f þriðja lagi er viðbygging við
vinnuhælið á Litla-Hrauni á loka-
stigi,- cn þegar hún er fullgerð
eykst fangarýmið þar úr 29 í 52.
Verður hið nýja húsnæði tekið í
notkun á komandi vetri.
Ennfremur er áfram unnið að
áætlanagerð um byggingu ríkis-
fangelsis í landi ríkisins að Úlf-
arsá í Mosfellssveit, en gert er
ráð fyrir ,að framkvæmdir þess
verkefnis hefjist að loknum þeim
þremur verkefnum ,sem áður er
getið.
Reykjavílc, 4. október 1971.
Forsætisráðuneytið.
Eindreginn stuðningur
Framhald af bls. 1.
eða fyrirskipunum frá Alþjóða
dómstólsins og Sameinuðu þjóð-
unum. — Öll lýðræðissinnuð ríki
verða að gera allt, serni í valdi
þeirra stendur til að fá S-Afríku-
stjórn til að breyta um stefnu og
leysa tíunda hvern Afríkunegra
undan þrælahaldi.
Moktar ould Daddah, sagði, að
sendinefndin hefði fullvissað ís-
lenzku ríkisstjórnina um fullan
stuðning aðildarríkja Einingar-
samtaka Afríkuríkja — en þau
eru 41 — í landhelgismálinu,
enda væri það svo, að strandríki
Afríku ættu mikilla hagsmuna að
gæta útaf hinum verðmætu fiski
miðum sínum. Ágangur erlendra
veiðiskipa ykist stöðugt úti fyrir
FOSTUR
Vilja ekki einhver góð
hjón taka 4 ára dreng í
fóstur í vetur, helzt í sveit.
Góð meðgjöf.
Tilboð merkt: 1206“ legg-
ist inn á afgreiðslu blaðs-
ins.
ströndum Afríku og vissu þeir
því mæta vel hversu alvarlegt
mál þetta væri.
Að lokum sagði forsetinn, að
hann og aðrir meðlimir sendi-
nefndarinnar væru mjög ánægðir
með viðdvölina hér á íslandi,
þessi heimsókn ætti eflaust eftir
að auka skilning á milli fslands
og Afríkuríkja og vonandi yrðu
teknar upp frekari samskipti milli
þessara landa.
Sendinefndin hélt í morgun
áleiðis til Svíþjóðar, en þegar
heimsókninni þangað líkur, mun
hún halda til Noregs og Danmerk
ur.
Við brottför sína frá íslandi í
morgun sendi Moktar ould Dadd-
ah, eftirfarandi skeyti til Ólafs
Jóhannessonar, forsætisráðherra.
„Við brottför mína frá Reykja
vík er mér sérstök ánægja að
færa yður og hinni hugrökku og
gestrisnu íslenzku þjóð einlægar
þakkir fyrir hinar hlýju móttök
ur, sem sendinefnd mín fékk á
íslandi.
Ég vil nota tækifærið til þess
að taka enn á ný fram, hversu
mikils ég met hinar jákvæðu nið
urstöður af viðræðum okkar, sem
miða að auknum _ vinsamlegum
samskiptum milli íslands og ríkja
Afríku í þágu gagnkvæmra hags
muna þjóða okkar og fyrir auknu
réttlæti og friði í heiminuim.
Moktar ould Daddah,
forseti Mauritaníu og formaður
Einingarsamtaka Afríkuríkja.“
íþróttir
Framhald af bls. 12
loga hjá ísfirðingum og þeir sóttu
nær stanzslaust það sem eftir var.
Áttu þeir nokkur góð tækifæri,
en Akureyringum tókst að verjast
þau, með höfði, fótum og hönd-
um.
í bæði liðin vantaði nokkra af
leikmönnunum frá í sumar. Miss-
ir ísfirðinga var þó tilfinnan-
legri því þá vantaði 5 menn, sem
ailir eru farnir burt til náms, en
ef þeir hefðu verið með væru það
örugglega ísfirðingar, en ekki Ak-
ureyringar, sem komnir væru í
8-liða úrslit í Bikarkeppninni.
— klp.
Færeyjar
Framhald af bls. 1.
kosningum í Færeyjum, fær
Zacharias Wang kannski tæki-
færi, því það eru aðallega
stuðningsmenn hans og Þjóð-
veldisflokksins, sem setið hafa
heima. Þeir gera það kannski
líka núna, en Wang býður sig
fram utan flokka í þetta sinn-
ið, því Þjóðveldisflokkurinn
tekur ekki þátt í kosningunum.
Áhugi manna og athygli bein
ist mjög að Wang þessa síð-
ustu daga fyrir kosningarnar.
Það er sagt verk hans, að ann
ar grænlenzki fulltrúinn,
Moses Olsen, hefur ekki tekið
afstöðu, en almennt var talið,
að hann myndi styðja Krag
eins og hinn fulltrúinn, Hert-
ling.
Á kosningafundi í Þórshöfn
fyrir skömmu, sagði Wang, að
allir vissu, að ef Nielsen næði
kjöri, myndi hann ganga í
danska jafnaðarmannaflokkinn
og styðja Krag. Þá kallaði
fundarmaður utan úr sal:
— Og þú ferð í grænlenzka
flokkinn með Moses Olsen.
Wang svaraði: — Stefna 01-
sens er allt fyrir Grænland,
en mín stefna er allt fyrir
Færeyjar. Það eigum við sam-
eiginlegt.
Gert er ráð fyrir, að úrslit
færeysku kosninganna liggi
fyrir um miðnætti annað
kvöld.
íþróttir
Framhald af bls. 13
um voru Framarar með boltann
og var þá leikið „maður á mann“.
Ingólfur Óskarsson fékk knöttinn
og tók sýnilega of mörg skref,
en í stað þess að dæma KR-ing
um boltann, dæmdu dómararnir
vítakast á KR (????), sem Pálmi
skoraði úr og voru þar með bæði
stigin komin örugglega í hendur
Fram. Ekki voru það sanngjörn
úrslit, því ekki voru KR-ingamir
lélegri en Framararnir í þessum
leik.
Á víðavangi
Fr'imhald af bls. 3.
ísland óviðeigandi og undirstrik
að það greinilega, að hann
teidi, að aðild fsl. að Nato og
varnarsamningurinn við Banda
ríkin væru tvö aðskilin máL
Margir erlendir þingmenn létu
þá skoðun í ljósi við Bjama
Guðbjörnsson, formann íslenzku
sendinefndarinnar á þingmanna
fundinum, að þeir teldu um-
mæli Herr Blumenfelds óviðeig
andi.
En þótt jafnvel erlendir þing
menn finni hjá sér hvöt til
að taka upp varnir fyrir fs-
land, þegar talað er með vill
andi og ósmekklegum hætti um
stefnu hinnar nýju íslenzku
ríkisstjórnar á íslandi, finnur
Mbl. aðeins hjá sér hvöt til að
taka undir við hin ósmekklegu
ummæl og telja þau hin „eðli
Iegustu‘-. Það er með þessum
hætti, sem „þjóðhollusta"
Mbl. kemur skýrast í ljós.
— TK.
Þriðjudagsgrein
Framhald af bls. 9.
sem nú starfar, og að hipn
nýi byggðajafnvægissjóður fái
viðbótarfjármagn, sem að svo
stöddu er ekki tiltekið, hve
mikið verði. En það skiptir
auðvitað miklu, hvert þetta við
bótarfjármagn verður, og að
hin sérstaka starfsemi til að
stuðla að viðhaldi og eflingu
landsbyggðar verði sem sjálf-
stæðust í reynd og þjóni raun-
verulega tilgangi sfnum. Sú
skipulagða aukning fiskiflot-
ans, sem stefnuyfirlýsingin
gerir ráð fyrir, er einnig lík-
leg til að geta stuðlað mjög
að eflingu landsbyggðar. Gert
er ráð fyrir nýrri skiptingu
verkefna ríkis og sveitarfélaga,
þannig að hlutur einstakra
landshluta verði meiri en hann
er, og að ríkisstofnunum verði
ætlaður staður utan höfuðborg
arinnar í meiri mæli en verið
hefir.
Það er ekki auðvelt að
stöðva þann straum fólks og
fjármagns, sem sums staðar er
búinn, og víða komin langt á
leið með að eyða framtíðar-
vonum lífvænlegra byggðar-
laga og stefnt hefir að því
með vaxandi hraða, að gera
ísland að borgrfki. Það er
vorkunnarmál, þó að ýmsir
þjóðfulltrúar og stjórnendur
hafi freistazt til að gera sér
hægt um hönd og láta hin
blindu lögmál ráða. En það
er í margra augum, eins og
sakir standa sjálfsagt hlutverk
og skylda róttækra manna og
félagshyggjumanna í lands-
stjórn að beita sér fyrir því að
stigið verði skref, sem um
munar, í þá átt, að stöðva
borgríkisþróunina og stuðla að
því eftir megni, að ísland verði
á komandi tímum byggt land.
Til þess ættu þeir að geta not-
ið eindrcgins stuðnings hínna
ungu, sem erfa landið.
G.G.