Tíminn - 05.10.1971, Blaðsíða 16
Þriðjudagur 5. október 1971
10 manns ~
í árekstri 'r
OÓ—Reykjavík, mánudag.
Tveir jeppar gereyðilögðust
er þeir óku framan á hvorn
annan á Flóaveginum, rétt
austan við Selfoss s.l. laugar-
dagskvöld. í bílunum voru sam
tals 10 manns. Fengu margir
skrámur, en enginn slasaðist
hættulega, en ökumaður ann-
ars jeppans liggur á sjúkra-
húsi ennþá.
Jeppamir vom á talsverðri
ferð. Ber ökumaður annars
bílsins að hinn hafi vikið illa
og hafi verið erfitt að forða
árekstri. Leikur gmnur á að
ökumaður þess jeppa, sem illa
vék, hafi verið drukkinn.
Samtökin
unnu tvö
sæti á
tsafirði
OÓ—Reykjavík, mánudag.
Bæjarstjómarkosnir.var fóm
fram á ísafirði í gær, sunnu-
dag. Em það fyrstu kosning-
amar sem fram fara eftir að
Eyrarhreppur og ísafjörður
vora sameinuð í eitt sveitar-
félag. í kosningunum fengu
Samtök frjálslyndra og vinstri
manna tvo menn kjörna, en
þeir buðu ekki fram í síðustu
sveitarstjórnakosningum. Vann
listinn sætin af Alþýðuflokki
og Framsóknarflokki.
Úrslit kosninganna urðu þau
að að Alþýðuflokkur fékk 260
atkvæði og einn mann kjörinn.
Framsóknarflokkur 141 atkv.
og einn mann kjörinn. Sjálf-
stæðisflokkur fékk 572 at-
kvæði og fjóra menn kjöma,
Samtök frjálslyndra og vinstri
manna fékk 343 atkvæði og tvo
menn kjörna og Alþýðubanda-
lag 147 atkvæði og einn nnann
kjörinn.
Á kjörskrá vom 1580 en
1499 greiddu atkvæði. Auðir
og ógildir seðlar vom 27.
Þeir, sem nú sitja í bæjar-
stjórn ísafjarðar em: Frá
Sjálfstæðisflokki Högni Þórð
arson, bankafulltrúi Kristján
Jónsson, stýrimaður, Garðar
Einarsson, verzlunarmaður og
Ásgeir Ásgeirsson, apótekari.
Frá samtökum frjálslyndra og
vinstri manna Sverrir Hernes,
prentari og Jón B. Hannibals-
son .skólameistari. Frá Alþýðu
flokki Sigurður Jóhannesson,
bankafulltrúi. Frá Alþýðu-
bandalagi Aage Steinsson, raf
veitustjóri og frá Framsóknar-
flokki Theodór Nordkvist,
bankagjaldkeii.
Þrennskonar aðgerðir til
úrfaróta í fangelsismáium
Sert; ráð fyrir að byggja nýtt fangelsi í Reykjavílc
KJ—Reykjavíkr mánu^ag.
í dag barst Tímanum frétta-
tilkynning frá ríkisstjórninni, þar
OÓ—Reykjavík, mánudag.
Óheppinn ökumaður missti vél-
ina fram úr bílnuim sínum á Hring
brautinni um miðnætti s. 1. Var
bílnum ekið á staur og snarstöðv-
aðist hann þar, en vélin og sitt-
hvað fleira þaut fram úr bílnum
og þegar vélin loks stöövaðist var
sem sagt er frá hvað sé í undir-
búningi til úrbóta á fangelsismál-
um. Kemur þar m.a. fram að í
undirbúningi er að reisa nýtt
hún komin 29 metra framúr bíln
um, sem stóð staðfastur við staur
inn. En ekki var allt búið enn, því
næsti bíll, sem á eftir kom ók á
fullri ferð á vélina, þar sem hún
var á miðri akbrautinni, og
skemmdist sá bíll talsvert.
Bílnum, sem missti vélina, var
fangelsi í Reykjavík fyrir um 50
fanga, og á það að leysa Hegning-
arhúsið við Skólavörðustíg af
hólmi.
ekið vestur Hringbraut. Einhverra
hluta vegna lenti hann svo á
ljósastaur norðan brautarinnar.
Varð áreksturinn svo harkalegur
að vélin skutlaðist úr bílnum.
Ýmislegt fleira úr bílnum kastað
ist framúr honum og lágu hlutirn
Framrald á bls. 14.
Fréttatilkynningin fer hér á
eftir:
„Svo sem kunnugt er hefur
verið mikill skortur á aðstöðu til
þess að fullnægja refsidómum hér
á landi að undanförnu. Hefur
dómsmálaráðuneytið unnið að
lausn þessara mála og era nú
þrjár framkvæmdir í undirbún-
ingi til lausnar þeirra.
f fyrsta lagi var borgarráði
skrifað 1. þ.m., að afstöðnum við-
ræðum ráðuneytisins og borgar-
innar, og það beðið að fallast á,
að fangageymslan í Síðumúla
verði um takmarkaðan tíma (3—
4 ár) hagnýtt sem gæzluvarð-
halds -og afplánunarfangelsi, en
ríkið og Reykjavíkurborg eiga þá
húseign að jöfnu. Má búast við, að
borgarráð taki umsókn þessa til
meðferðar á næstunni.
Framrald á bls. 14.
Tvaer konur
slösuðust
OÓ—Reykjavík mánudag.
Harður árekstur varð í gær-
kvöldi á mótum Sogavegar og
Réttarholtsvegar. Þar var Cor-
tinabíll á leið vestur Sogaveg en
Wolksvagenbíll á leið suður Rétt
arholtsveg. Bílarnir skulln sam-
an og köstuðust síðan til og frá.
Fullorðin kona, sem var í Cor-
tinabílnum slasaðist, rifbrotnaði
hún og hlaut fleiri meiðsl. Kona,
sem ók hinum bílnum hlaut höf-
uðmeiðsli og skaddaðist á hálsi
og fcaki. Vora þær báðar lagðar
inn á Borgarspítalann.
Bíll ók yffir
4 ára dreng
OÓ—Reykjavík, mánudag.
Fjögurra ára drengur lærbrotn-
aði á báðum fótum, er hann varð
fyrir bíl á Gunnarsbraut í gær,
sunnudag.
Slysið varð milli M. 3 og 4.
Vora tveir drengir á sama aldri að
leika sér á gangstéttinni. Vora
þeir með bolta og skoppaði hann
út á götuna og drengirnir hlupu
á eftir honum. Varð annar þeirra
fyrir bfl, sem bar þar að í sömu
svifum. Er talið að bfllinn hafi
ekið yfir báða fætur drengsins.
Bíllinn var á hægri ferð, en
drengirnir hlupu svo skyndilega
út á götuna að slysi varð ekki
forðað. Hinn drengurinn slapp
ómeiddur.
Loftleiðir auka flugflotann:
Keyptu 160 farþega þotu
fyrir 445 milljónir króna
Bíllinn sem missti vélina er sex manna amerískur Dodge, árgerð 1963. Eru skemmdirnar svo miklar á bílnum, að
vafasamt er að borgi sig að gera við hann. Vélin og allt sem í vélarhúsinu var, þaut framúr, er bílnum var ekið
á staur. Myndin er af bílnum og liggur vélin við hliðina til vinstri. (Tímamynd GE)
Bíllinn fór á staur, en
vélin hélt ferðinni áfrum
Á fundi í New York þann 1.
október s.l. staðfesti stjórn Loft-
leiða að festa kaup á þotu af gerð
inni DC-8-55, sem félagið hyggst
nota á flugleiðunum til Norður-
landa og Bandaríkjanna. Jafnf.
verður vélin notuð á flugleið
félagsins til Lundúna og Glasgow,
jafnskjótt og gengið hefur verið
frá samningum við Bretland.
Flugvélin er keypt af dóttur-
félagi Flying Tiger Line fyrir
445 milljón ísl. kr. og greiðist
fjárhæðin með jöfnum afborgun-
um á tæpum sex árum. Ennfrem-
ur fylgir með í kaupunum einn
varahreyfill og varahíutir. Kaupin
era háð leyfi íslenzkra stjórnar-
valda.
Ákveðið er að gagnger endur-
nýjun fari fram á farþegaklefa
þotunnar og hefur verið samið
við bandaríska flugfélagið United
Air Lines um að það taki að sér
þetta verk. Verður það fram-
kvæmt á verkítæðum félagsins í
San Francisco.
Ráðgert er að í þotunni verði
sæti fyrir um 160 farþega og er
flughraði hennar 900 kílómetrar
á klukkustund. Samkvæmt því tek
ur flugferðin milli Kaupmanna-
hafnar og Keflavíkur tvær og
hálfa klukkustund.
Fyrsta flug þotunnar frá Kefla-
vík verður væntanlega til Stokk-
hólms, Kaupmannahafnar og
Oslóar hinn 1. nóvember n.k.
Þingmálafundur í Króksfjarðarnesi
Þingmcnn Framsóknarflokksins í Vestfjarðakjördæmi boða til al-
mcnns þingmálafundar í Króksfjarðarnesi fimmtudaginn 7. okt.
nk., kl. 21.00. — Allir velkomnir.
J Hafnarfjörður
í Vikulegir fundir verða haldnir í vetur, alla mánudaga kl. 17.30
| til 19.00. Bæjarfulltrúi og ncfndarmenn flokksins verða þar til
| viðtals um bæjarmál. Allir vclkomnir á fundi þessa, sem haldnir
| verða að Strandgötu 33. Síminn er 5-18-19. — Framsóknarfélögin.
i.....................................................