Tíminn - 16.11.1971, Blaðsíða 2
K
ÞRIÐJUDAGUR 16. nóvember 1971
TÍMINN
Ritstjóri: Elías Snæland Jónsson
o '
Frá aðalfundi miðstjórnar SUF í Glaumbæ um hclgina. Fundurinn var mjög vel sótur og einkennd
ist og einhug og samstöðu. (Tímamynd — Gunnax)
L
Aðalfundur miðstjómar Sambands ungra fram-
sóknarmanna fagnar myndun ríkisstjórnar vinstri afl-
anna og íýsir yfir fyllsta stuðningi við málefnasamn-
ing þann, sem er grundvöllur stjórnarsamstarfsins.
Aðalfundurinn minnir á samþykkt síðasta mið-
stjómarfundar, þar sem einróma var lögð megin
in áherzla á, að Framsóknarflokkurinn ætti 1) að
mynda varanlega vinstri stjórn á íslandi, og 2) að
vinna að framkvæmd lokaorða stefnuskrár síðasta
flokksþings um „að móta sameiginlegt stjórnmála-
afl allra þeirra, sem aðhyllast hugsjónir jafnaðar,
samvinnu og lýðræðis.
Aðalfundur miðstjórnar fagnar þeim árangri, sem
náðst hefur í báðum þessum málum. Framsóknar-
flokkurinn hefur nú forystu fyrir vinstri stjórn, og
hafnar hafa verið viðræður við aðra flokka um mót-
un sameiginlegs stjórnmálaafls jafnaðar- og sam-
vinnumanna. Jafnframt minnir fundurinn á sam-
þykkt framkvæmdastjómar um viðræður fjögurra
flokka, og samþykkt síðasta miðstjómarfundar SUF
um myndun sameiningarráðs.
Aðalfundur miðstjómar hvetur unga framsóknar-
menn um allt land til að einbeita kröftum sínum
til þess að tryggja langvarandi setu þessarar ríkis-
stjómar og framkvæmd þeirra atriða, sem um getur
í málefnasamningi stjómarflokkanna.
n.
Aðalfundur miðstjómarinnar telur útfærslu fisk-
veiðilögsögunnar fyrir 1. september 1972 stærsta
hagsmunamál þjóðarinnar í dag. Fundurinn þakkar .
Einari Ágústssyni, utanríkisráðherra, fyrir góða
frammistöðu í þessu máli, og leggur áherzlu á nauð-
syn þjóðareiningar um framkvæmd málsins.
m.
Aðalfundur miðstjómarinnar fagnar þeirri áherzlu,
sem rfkisstjómin leggur á að bæta afkomu verka-
fólks, bænda, sjómanna og annarra þeirra, sem búa
við hliðstæð kjör, og telur mikilvægar þær ráðstaf-
anir, sem þegar hafa verið gerðar í þá átt, og boð-
aðar hafa verið.
Aðalfundurinn hvetur samtök vinnumarkaðarins til
þess að finna sem fyrst friðsamlega lausn á þeirri
kjaradeilu, sem nú stendur yfir, og tryggja þannig,
og á annan hátt, að fyrirheit ríkisstjórnarinnar um
„að auka í áföngum kaupmátt launa verkafólks,
bænda og annars láglaunafólks um 20% á næstu
tveimur árum“ nái fram að ganga.
Jafnframt hvetur fundurinn ríkisstjórnina til að
koma sem fyrst á heildarstjórn fjárfestingamála.
Þannig verði markvisst og skipulega unnið að eflingu
undirstöðuatvinnuveganna á grundvelli áætlunargerð-
ar undir forystu ríkisvaldsins.
IV.
Aðalfundur miðstjórnar minnir ó fyrri ályktanir
um, að landsbyggðinni verði sköpuð ja'fnréttisaðstaða
á öllum sviðum þjóðlífsins, og minnir fundurinn í því
sambandi alveg sérstaklega á ástand heilbrigðismála,
mcnntamála, húsnæðismála, samgöngumála og und-
irstrikar kröfuna um jafnaðarverð á rafmagni og um
rafmagn til allra landsmanna. .
V.
Aðalfundurinn minnir á, að samvinnuhreyfingin
hefur búið við skertan hlut þau rúmu 12 ár, sem
fjandsamleg ríkisstjórn sat við völd á íslandi. Fund-
urinn telur nauðsynlegt, að lögð verði mikil áherzla
á eflingu samvinnuhreyfingarinnar og aukna þátt-
töku fólksins í starfsemi samvinnufélaganna, og stefnt
verði að því, að hún verði baráttutæki fjöldans gegn
erlendu og innlendu auðvaldi. Sterk, þróttmikil og lif-
andi samvinnuhreyfing, sem hefur náið samstarf við
verkalýðshreyfinguna, er nauðsynlegur baklijarl
vinstri flokkanna í nmsköpun íslenzks þjóðfélags.
VL
Aðalfundur miðstjómarinnar minnir á einróma
samþykkt síðasta þings SUF í utanríkis- og vamar-
málum, en þar er lögð áherzla á:
að mörkuð verði sjálfstæð íslenzk utanrDdsstefna,
og stefnt verði að aukinni samstöðu á alþjóða-
vettvangi með Norðurlöndum, smárikjnm og
óháðum friðaröflum.
að bandaríska herliðið hverfi úr landi.
að staða íslands innan NATO verði mótuð á grund-
velli sjálfstæðrar utanrikisstefnu, og aðild fs-
lands að NATO verði stöðugt endurmestin með
tilliti til breyttra aðstæðna.
að aðstoð íslendinga við vanþróaðar þjóðir verfS
aukin.
að leitað verði eftir viðskiptasamningum við EBE-
ríkin er tryggi hagsmuni íslands án þess að
sjálfstæði landsins sé skert.
iý\,-
Aðalfundurinn fagnarþví, að vinstri stjórnin hefur
gerzt boðberi sjálfstæðrar íslenzkrar utanríkisstefnu,
og þegar sýnt hana í verki m.a. með afstöðu sinni
til Kínamálsins á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.
Sérstaklega telur miðstjórnin mikilsvert, að rfkis-
stjórnin hefur gert stefnu Framsóknarflokksins í
vamarmálunum að sinni stefnu með því, að í mál-
efnasamningi stjórnarflokkanna er skýrt tekið fram,
að varnarsamningurinn við Bandaríkin „skal tekinn
til endurskoðunar eða uppsagnar í því skyni, að
varnarliðið hverfi frá íslandi í áföngum“, og jafn-
framt sett það stefnumið, að „brottför liðsins eigi
sér stað á kjörtímabilinu“. Lýsir miðstjórnin yfir
eindregnum stuðningi við þá starfshætti, seim utan-
ríkisráðherra hefur mótað í þessum málum.
Fundurinn ítrekar þá skoðun ungra framsóknar-
manna, að áður en herinn fer úr landi verið gerðar
ráðstafanir til að tryggja atvinnuskilyrði þeirra, sem
á vegum hans hafa unnið. Þær ráðstafanir verði fólgn-
ar í gerð ítarlegrar framkvæmdaáætlunar fyrir Suð-
umes og öflun nægilegs fjármagn til að tryggja
framgang hennar.
ALYKTUN ÞINGS SUJ, MIÐ-
STJÓRNAR SUF OG UNGRA
MANNA f FLOKKSSTJÓRN SFV
„Þing SUJ, miðstjóm SUF,
og nngir menn í flokksstjóm
SVF álykta:
Við lýsum eindregnum stuðn
ingi við þær viðræður, sem
nú fara fram um myndun sam-
eiginlegs stjórnmálaafls allra
þeirra, sem aðhyllast hugsjón-
ir lýðræðislegrar jafnaðar- og
samvinnustefnu og hvetjum til
þes« að þeim verði hraðað eft-
ir föngum. Við teljum nauð-
synlegt, að kjarni þeirra á
næstu mánuðum verði ítarleg
könnun á málefnalegri sam-
stöðu og hugsjónagrundvelli.
Um leið og við bendum á,
að árangurs viðræðnanna er
beðið með eftirvæntingu um
allt land viljum við leggja
áherzlu á, að þær verði mikl-
um mun víðtækari en nú er og
nái til sem flestra. í því skyni
munum við beita okkur fyrir
eftirfarandi:
að halda sameiginlega fundi
um allt land
að koma á fót viðræðuhóp-
um um sameingarmálið á
sem flestum stöðum
að efla útgáfustarfsemi sam-
einingarmálinu til kynn-
ingar
að halda á næstunni opna
ráðstefnu um sameining-
armálið, þar sem meðal
annars fari fram umræð-
ur um nánara samstarf
hreyfinga okkar.
Við skorum á alla vinstri
menn að taka nú upp nánara
samstarf innan verkalýðshreyf
ingar, samvi.nnuhreyfingar og
annars staðar, þar sem nauð-
syn er á samstöðu þeirra, sem
aðhyllast hugsjónir jafnaðar og
samvinnu.“
Eystelnn Jónsson flytur ávarp í kvöldverSarboði SUF s. I. laugardagc-
kvöld. (Tímamynd Gunnar)
t