Tíminn - 16.11.1971, Side 8
20
TIMINN
ÞRIÐJUDAGUR 16. nóvember 1971
HALL CAINE:
GLATAÐI SONURINN
122
kæoni til Þingvalla í rökkrinu og
hitti móður sína, Magnús og dótt-
ur sína. Hann ætlaði að segja:
„Þekkirðu mig ekki, móðir
mín, ég er Óskar, kominn til að
bæta fyrir allt“.
Daginn eftir, þegar uppboðinu
var lokið og sýslumaðurinn far-
inn og allir grétu af gleði, þá ætl-
aði hann að taka dóttur sína á
hné sér og horfa í augu hennar,
sem voru eins og augu Þóru, and-
lit hennar var svo líkt honum, að
honum mundi finnast hann vera
að horfa á sjálfan sig í spcgli, þá
ætlaði hann að segja: „Elskan
mín, nú átt þú að koma með mér,
allt sem þú hefur farið á mis við
sem bam, skal ég nú bæta þér“.
Það var einso g hestasveinninn
smitaðist af glaðværð samferða-
manns sins, hann tók að syngja.
Þetta var hávaxinn piltur, átján
ára gamall, sem hlaut að vera lík-
ur móður sinni, því hann skipti
Jitum eins og ung stúlka. Þeir
voru komnir fram hjá laugunum
og yfir Elliðaárnar og sóttu nú á
brattann. Þá áðu þeir og hertu á
gjörðnnum, allt í einu dagði
drengurrnn hræðslulega:
— Heyrðuð þér þetta, herra?
— Hvað?
— í tindinum, — sagði piltur-
inn og benti á fjallshnjúk á fjall-
garðinum til hægri, yfir tindinum
grúfði sig kolsvart ský eins og
ófreskja í lögun.
— Hvað með þáð, drengur
minn?
— Vindurinn og tindurinn eru
vinir, sem ræðast við á undan
óveðri, fólk verður ætíð hrætt.
þegar þaö heyrig til þeirra.
— Við skulum þá halda áfram,
— sagði Kristján Kristjánsson.
Eftir hálftíma voru þeir komnir
upp að Rauðhólum, fram hjá
Rauðavatni. Skýið yfir fjallinu
hafði tætzt í sundur, þeir heyrðu
eins og þrumuhljóð.
' — Ættum við ekki að biðjast
gistingar í Miðdal? — spurði
drengurinn. En manninum varð
hugsað til ættingja sinna og upp-
boðsins, hann ákvað að halda
áfram. Þeir voru komnir upp á
heiðarbrún, þegar byrjaði að
snjóa. í upphafi var þetta logn-
drífa, þótt mikið far væri á skýj-
unurn og dynur í lofti. Kristján
Kristjánsson minntist nú orða ráð
herrans, að fátt væri verra en
lenda í hríða á Mosfellsheiði, and-
artak hvarflaði að honum hvort
ekki væri rétt að snúa við og biðj-
ast gistingar í Miðdal, en svo
datt honum í hug, að hin illu öfl
væru enn að verki til að hindra
hann í að bæta fyrir brot sín,
hann ákvað því að halda áfram á
hverju sem gengi. Ilann spurði
drenginn, hvort hann væri hrædd-
ur, pilturinn sagði:
— Ekki þeint hræddur, nei.
— Við skulum þá slá í. — Þeg-
ar upp á heiðina kom, var allt
ein snjóbreiða utan hnjúkar í
íjallahringnum. Þeir hefðu ekki
séð veginn, ef vörðurnar hefðu
ekki verið. Þær voru eins og varð-
menn með hvíta kolla lallandi
hver á'eftir öðrum eftir enda-
lausri auðnjnni. Einmanaleik-
inn var yfirþyrmandi, það var
eins og einhver hvíslaði að hon-
um að snúa við, en hugsunin um
sína nánustu og uppboöið aftraði
honum. Hann keyröi hestinn
áfram, snjórinn var stöðugt að
aukast. Brátt höfðu þeir vindinn
beint í fángið, snjóflygsurnar voru
eins og járnnálar, sem þeim
fannst ganga viðstöðulaust inn í
hörundið, svo snöggkólnaði, klak-
inn hlóðst framan í þá, þéir urðu
oft að nema staðar til að brjóta
af sér ísinn.
Myrkrið skall á, hríðin jókst og
enn hvessti. Skafrenningurinn
hvirflaðist um heiðina, svo þeir
sáu ekki hvor annan. Þeir urðu
að kallast á til að týna ekki hvor
öðrum. Ferðamennirnir voru nú í
helgreipum hríðarinnar, það var
því orðið of seint að snúa við,
stormurinn æddi yfir og allt um
kring, snjórinn lamdi þá og særði,
hvergi var skjól, ekkert nema
auðn og myrkur. Kristján Kristj-
ánsson vorkenndi drengnum. Sjálf
um jókst honum þróttur í réttu
hlutfalli við veðurofsann, honum
fannst hann vei'a að heyja ein-
vígi við náttúruöflin, að ferðalok-
um mundi hánn líka hitta fjöl-
skyldu sína, ef hann næði í áfanga
stað í tæka tíð, tækist honum að
veita þeim hjálp. Þetta var kapp-
hlaup upp á líf og dauða í þágu
þeirra, sem hann unni mest, hann
var staðráðinn í að sigra hin misk-
unarlausu náttúruöfl, hann skyldi
komast heim í tæka tíð.
Hestarnir gáfust fyrst upp,
Kristján Kristjánsson reið full-
orðinni hryssu en drengurinn ný-
tömdum fola, sem gafst upp og
sneri sér undan veðrirfu. Dreng-
urinn fór af baki og teymdi fol-
ann um stund, svo rann skepnan
á hliðina, það gekk illa að reisa
hann upp aftur.
— Hann er bara fjögurra vetra,
— kjökraði pilturinn og lét svip-
una dynja á skepnunni. Svo fór
drengurinn að linast, hann var
búinn að týna öðrum belgvettl-
ingnum, bera höndin varð brátt
máttlaus, föt lians, voru orðin
gáddfreðin, hann gat varla gengið
né talað, brátt kallaði hann veikri
röddu:
—Komið og sækið mig, herra,
ég kemst ekki lengra.
Stuttu síðar var pilturinn kom-
inn með óráð, hann reyndi að af-
klæða sig, eins og hann ætlaði að
fara að sofa. Kristján Kristjáns-
son leið sálarkvalir vegna þeirra
hörmunga, sem pilturiþn mátti
þola, hann setti hann fyrir fram-
an sig og reyndi að hugga hann.
hann sagði/
— Vertu hughraustur, sæluhús
ið hlýtur að vera hérna skammt
er þriðjudagurinn
16. nóvember
Árdegisháflæði í Rvík kl. 05.17
Tongi í hásuðri kl. 11.56
HEILSU GÆZLA
Slysavarðgtofan i Borgarspftatan-
imi n opln allnn sðlarhrlngtan.
8íml 8121*.
SlSkbvOnro og sJftkrablfrelWr fyr
tr Keykjavfk og Képavog stm)
11100.
gjftkrahlfrelO I Hafnarflrð) «tol
81880.
Tanntoknavakt or l HoÐsuvemdar
stððtanl, þar sem Slysavaiðstoi
an var, og er opta laugardaga or
smmndaga kl. 8—0 o. h. — Staú
22411.
Apfttek HafnarfJarOar « oplð all“
vtrko dag tri fcL 0—7. 4 laogar
d0gmn ki 0—2 og á smuradög
um og Oðrnm helgldðgum er op-
tð fri fcl 2—4
Nætur* og helgidagavarala læfcna
Neyðarvakti
M&nudaga — föstudaga 08.00 —
17.00 etagöngu i neyðartilfellun)
sfmi 11810.
Kvöld-, nætnr- og helgarvakt
Mánudaga — fimmtudaga 17.00
— 08.00 frá ’-L 17.00 föstudag til
fcL 08.00 mánudag. Sími 21230
Ataennar upplýsingar om læknis-
þjónnstn 1 Reykjavfk crn gefnar I
sima 18888.
Lækntagastofar ern lokaðar ð
tangardögnm, oema stofur á Klapp-
arstíg 27 frá kl. 9—11 f.h. Simi
11360 og 11680.
Um vitjanabeiðnir vísast til
helgidagavaktar. Sími 21230.
Ónæmisaðgerðir gegn mænusótt
fyrir fullorðna fara fram ) Heilsu
verndarstöð Reykjavikur á mánu-
dögum frá kl. 17 — 18.
Kvöld- og hclgarvörzlu Apóteka
í Reykjavík vikuna 13. — 19. nóv.
annast Laugavegs Apótek og Holts
Apótek.
Nætnrvörzlu í Keflvaík 16. 11.
annast Ambjöm Ólafsson-
ÁRNAÐ HEILLA
Silfurbrúðkaup:
Þriðjudaginn 16. nóvember 1971
halda Hallgerð og Jón Sivertsen,
Færeyjum silfurbrú'ðknup. Adr.
Hotel Föroyar, Thorshafn, Færeyj
um.
er væntanlegt til Hornafjarðar á —,
iriorgun. Dísarfell fer í dag frá ^ELAGSLÍF
Reykjavík til Norðurlandshafna.
Litlafell er í olíuflutningum á
Faxaflóa. Helgafell er í Reykja
vík. Stapafell er væntanlegt til
Reykjavíkur á morgun. Mælifell
fór 13. þ.m. frá Bordeaux til
Póllands. Skaftafell er á Horna-
firði.
Félagsstarf eldri borgara í
Tónabæ:
Á morgun verður opið hús frá
kl. 1,30—5.30 e. h. Meðal annars
verður umferðaþáttur og endur
skinsmerki afhent á staðanum.
SIGLINGAR
Skipadeild SIS:
Arnarfell fór í gær frá Rotterdam
til Hull og Reykjavikur. Jökuifell
Ríkisskip:
Hekla er á Norðurlandshöfnum á
vesturleið. Esja er á Akureyri.
Herjólfur fer frá Vestmannaeyj
um kl. 21.00 í kvöld til Reykja
víkur.
FLU GÁÆTLANIR
toftleiðir h. f.
Snorri Þorfinnsson kemur frá
NY. kl. 07.00. Fer til Luxemborg
ar kl. 07.45. Er væntanlegur til
baka frá Luxemborg kl. 16.45. Fer
til NY kl. 17,30.
Leifur Eiríksson fer til Óslóar
og Kaupmannahafnar kl. 08.00.
Er væntanlegur til baka kl. 16,
50.
Mæðrafélagskonur:
munið vinnufundinn í kvöld að
Hverfisgötu 21 kl. 20.30 konur
í bazarnefnd eru sérstaklega beðn
ar að mæta. Stjónnin-
Kvenréttindafélag íslands:
heldur fund miðvikudaginn 17.
nóv. næstkomandi kl. 20.30 að
Hallveigarstöðum. Ungar félags-
konur sjá um fundinn og segja
frá viðfangsefnum sínum.
öháði söfnuðurinn:
Næstkomandi fimmtudagskvöld
kl. 20.30 gengst kvenfélag og
bræörafélag safnaðarins fyrir
félagsvist í Kirkjubæ. Góð verð
laun, kaffiveitingar. Takið með
ykkur gesti.
í tvímenningskeppni í Osló ný-
lega sigruðu Birger Nyströen og
Harald Evang með yfirburðum og
hér er spil frá keppninni. Ny-
ströen spilaði 3 gr. á spil V og
fékk út Hj.
Vestur Austur
A ÁG6 A K9753
V ÁK T 1062
D97 ft K1053
* ÁD762 * 10
Lítið úr blindum og Nyströen
tók 9 S með K. Hann segir: „Ég
hafði nú mesta löngun til að
taka á Sp-Ás og svíma síðan G
í von um 10 tvíspil í S. En T
gaf einnig vissa möguleika svo
ég spilaði T-D fyrst. S tók á Ás
og spilaði Hj-D. Tekið á K og
lítill T og þegar N sýndi eyðu var
tekið á K blinds. Þá Sp. og S var
svo vingjarnlegur að koma með
D og síðan fylgdu 5 Sp-slagir. N
kastaði L og Hj. Þá var Hj-10
spilað. N fékk á G og gat tekið á
8, en varð síðan að spila L upp
í ÁD. 10 slagir og 31-9 fýrir spil
ið því spil N-S voru
Norður Suður
A 10842 A D
T G8754 H D93
* 8 ÁG642
* K94 * G853
A skákmóti í Gori í ár kom
þessi staða upp í skák Platonov,
sem hefur hvítt og á leik, og
Stein.
ABCDEFGH
27. Ra4! — BxR 28. Bxe6ý — Kh8
29. BxH - BxH - 30. HxB - Dxb2 31.
Dc4 - b6 32. d7 - Hd8 33. Hd6 - Rb7
34. Dc7 - Db5 35. Be4
— Db4 36. He6 og Stein gafet
upp.
Kvenfélag Breiðholts:
Fundur 17. nóv. kl. 20.30 í Breið
holtsskóla, Vignir Andersson
fleira. Lærið að hvílast í önnum
dagsins. Fjölmennið og takið með
ykkur gesti. Stjórnin.
luiiitiiimmimi,„•mti iiiiH,iimimiitniiiin,iiiiiiiiiiMiiHiinii,iiinininiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiii,imi,itimiiii,miiiifiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiititiii,,11111111111,ii,iii,timiitiiniiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiititniitiimtiniiin
AVfííT/?S,
W ' 1 Af/P sfa GOiHG
We-SOREMT [ TOPUSi/Af/
PAyPJPTOM \ lUCPySTPPAK
THATJVPILS \ pyTPy/HGAfy
PAPGOE7AGE' 1 /PWPAT
p/eus'papgo
etase pobbed/
/vojvyoause
Mo//£yjv£U.s
papgo m/WAgep
G/ypyoí/AEP
l OOPPOP S70U/V
CAS/7P7M
MAPP/
Ef ég hef á réttu að standa cru ræn
ingjarnir ekki langt undan, og cinn
þcirra cr scnuilcga fariun itl þess að
drcifa ránsfengnum yfir spilaborðið. —
Við fengum sannarlega nóg af pening-
uni í þelta sinn. — Já, nú ælla ég
að vita, hvernig mér gcngur í spilun-
um. — Tonto, hvað er svona mikilvægt,
scm þú hcfur að segja mér, að þú dreg
ur mig upp frá spilaborðinu. — Það
er búið að ræna vagninn, svo nú skaltn
nota peniugana, sem bankastjórinn lét
þig fá, og reyndu að finua mcrktu pen-
ingana.
aiiiiiniiiiNiiuiiiiiiuiiiiiiiiiiiuiiiRHiiiiitiiiitiniitttiiuiiiiiiitiiiiiiiiiMUumiiiiiitiifiiimiiiiiuiiiiiumiuuiiiuuauiummuiiniittnu
uuiutmuiuiiiirmujimitunnsiuiuuiuiuuiiiuiiuiuiuiiiiiifuf