Fréttablaðið - 16.02.2004, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 16.02.2004, Blaðsíða 2
2 16. febrúar 2004 MÁNUDAGUR „Alveg örugglega – þetta verður norðlensk reisn.“ Sigurður Hjartarson er stofnandi og eigandi Hins íslenska reðasafns. Á næstu vikum flytur hann norður til Húsavíkur þar sem safninu verður kom- ið fyrir í stærra og betra húsnæði en verið hefur. Spurningdagsins Sigurður, verður meiri reisn yfir reða- safninu fyrir norðan? 375 þingmálum Jóhönnu hafnað Stjórnarandstaðan hefur lagt fram hundruð frumvarpa á undanförnum þingum. Örfá hafa orðið að lögum. Jóhanna Sigurðardóttir hefur verið iðin við kolann. Flutt 410 þingmál á 18 árum en aðeins 35 orðið að lögum. ALÞINGI „Ég missi aldrei móðinn þótt fá af þeim málum sem ég hef flutt sem þingmaður nái í gegn og verði að lögum. Það er af nógu að taka. Það er mikið óréttlæti í þjóð- félaginu sem knýr mig og aðra þingmenn áfram. Þingmannamál fá mjög litla umfjöllun í nefndum þingsins. Þau eru send til umsagn- ar og oftar en ekki sofna þau í nefnd. En það eru alltaf örfá sem komast í gegn, þá aðallega þings- ályktunartillögur,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir, Samfylkingunni. Þingmenn stjórnarandstöðunn- ar hafa flutt samtals 611 frum- vörp á síðastliðnum þremur þing- um, en nánast er hægt að telja á fingrum annarrar handar hversu mörg þeirra náðu í gegn og urðu að lögum. Samkvæmt upplýsing- um frá Alþingi hefur Samfylking- in flutt 284 frumvörp á síðustu þremur þingum, Vinstri grænir 237 og Frjálslyndi flokkurinn 90. Á yfirstandandi þingi hefur Sam- fylkingin lagt fram 86 lagafrum- vörp, Vinstri grænir 87 og Frjáls- lyndir hafa flutt 46 mál. Stjórnar- andstöðuflokkarnir hafa flutt samtals 115 tillögur til þingsálykt- unar á yfirstandandi þingi. Þegar skoðað er hverjir hafa verið flutn- ingsmenn frumvarpa stjórnar- andstöðunnar undanfarin ár kem- ur nafn Jóhönnu Sigurðardóttur oftar en ekki fyrir. Hún hefur set- ið á þingi í 25 ár, þar af átta ár sem ráðherra. Þau átján ár sem hún hefur gegnt þingmannsstörfum segist hún hafa flutt að meðaltali á hverju þingi í kringum 25 frum- vörp, þingsályktunartillögur og fyrirspurnir. Það þýðir að hún hefur lagt fram um 410 þingmál, en þegar grannt er skoðað kemur í ljós að einungis 35 af þeim hafa orðið að lögum. – Er þinn tími kominn, Jó- hanna? „Árangurinn verður ekki mældur eftir málafjölda,“ segir Jóhanna. Jóhanna hefur lagt fram óvenju mörg mál á yfirstandandi þingi, eða á milli 50 og 60, en ekkert þeirra hefur orðið að lögum. Árið 2001 og 2002 náðu fjögur af tugum mála hennar í gegn. Jóhanna hefur ekki áhyggjur af þessu. „Þótt fá mál stjórnarandstöðunn- ar séu samþykkt þá er ljóst að mörg þeirra verða til þess að vekja athygli á tilteknum málum. Þau hreyfa við þeim og koma umræðu af stað. Þau verða líka til þess að ýta við ráðherr- um og framkvæmdavaldinu í ýms- um málaflokkum þannig að oft verða stjórnarfrumvörp til úr því í kjölfarið,“ segir Jóhanna. bryndis@frettabladid.is SPILAFÍKN „Ég hef ekki trú á því að fólk vilji horfa upp á komandi kynslóð inn í sjoppum fyrir fram- an spilakassa,“ segir Júlíus Júlí- usson, formaður Samtaka áhuga- fólks um spilafíkn. Samtökin hyggjast beita sér fyrir því að reglugerð verði komið á sem banni spilakassa nema í afmörk- uðu húsnæði. Júlíus segir slíka reglugerð hafa verið setta árið 1994 yfir spilakassa á vegum Há- skóla Íslands en hana sé ekki að finna yfir spilakassa á vegum Rauða krossins. „Nái þessi reglugerð fram að ganga verða kassarnir fjarlægðir úr öllum sjoppum. Aðgengi ung- linga að kössunum er of auðvelt. Rauði krossinn talar um fjarstýr- ingar sem afgreiðslufólk á að hafa undir höndum til að slökkva á kössunum. Við höfum farið í fjölda verslana og ekki fundið einn af- greiðslumann sem hefur þessa fjarstýringu undir höndum.“ Júlíus hrósar framgöngu Björns Bjarnasonar dómsmálaráð- herra og segir hann hafa sýnt sam- tökunum mikinn áhuga. Samtökin hafi þegar hlotið styrk frá ráðu- neytinu og búið sé að gefa vilyrði fyrir styrkjum frá félagsmála- og heilbrigðisráðuneytinu. „Ég er bjartsýnn á að aðgengi verði hert. Spilafíkn er mun alvarlegri en fólk gerir sér grein fyrir og ungling- arnir okkar eru í hættu.“ ■ Ég tapaði 800.000 þúsund á ein-um degi og á fimm árum tapaði ég fimmtán milljónum króna,“ seg- ir Ahmed Effbiani spilafíkill. Ahmed flutti hingað til lands ásamt íslenskri eiginkonu sinni sumarið 1999. „Þetta byrjaði á mjög saklausan hátt. Ég vandi stundum komur mínar á kaffihús við Grensásveg og átti til að stinga pening í spilakassana þar. Á mjög skömmum tíma fór ég að eyða meira. Einn daginn áttaði ég mig á að ég hafði eytt 50.000 krónum. Ahmed vann á þessum tíma sem múrari og segist hafa notað hvert tækifæri til að spila í köss- um. Hann faldi eyðsluna fyrir eig- inkonu sinni en fljótlega fór allt úr böndunum. Árið 2000 fór hann í meðferð á Vogi. Hann skildi lítið hvað fór fram og ákvað að hætta. Sama dag féll hann og eyddi þá átta hundruð þúsund krónum. Eig- inkona Ahmed þoldi ekki álagið og brotnaði niður. Stuttu síðar skild- um þau. Ahmed segir að líðanin hafi verið hræðileg. „Ég bjó í her- bergiskytru í Hafnarfirði og varð mjög þunglyndur. Ég ákvað að reyna meðferð aftur í desember á síðasta ári og í þetta sinn tókst hún.“ Hann segir það mikinn létti að þurfa ekki lengur að ljúga að sínum nánustu og fela skömmina sem sé einn fylgifiskur spilafíkn- ar. „Ég er byrjaður að borga niður lánin sem ég tók á tíma spilafíkn- innar og sambandið við börnin mín hefur styrkst. Ég er bjart- sýnn á framhaldið.“ ■ HÖFUÐSTÖÐVAR AL HURRA Höfuðstöðvar nýju sjónvarpsstöðvarinnar eru í Springfield í Virginíu. Ný sjónvarpsstöð: Bandaríkin flytja aröb- um fréttir BANDARÍKIN Bandarísk stjórnvöld hafa sett á laggirnar arabíska sjónvarpsstöð sem nær til 22 ríkja í Miðausturlöndum. Stöðin heitir Al Hurra sem er arabíska og þýð- ir Hinn frjálsi. Á Al Hurra verða sýndar frétt- ir og heimildarþættir fjórtán klukkustundir á sólarhring. Það fyrsta sem stöðin sendi frá sér var viðtal við George W. Bush Bandaríkjaforseta. Aðalbækistöðvar Al Hurra eru í Springfield í Virginíu en stöðin verður með útibú á nokkrum stöð- um í Miðausturlöndum, meðal annars í Bagdad. Flestir starfs- menn Al Hurra eru af arabískum uppruna. ■ VIÐ SKÓGAFOSS Erna Hauksdóttir segir ferðamenn fyrst og fremst koma til landsins til að njóta íslenskrar náttúru. Ferðamönnum fjölgar um 10% milli ára: Ísland er í tísku FERÐAMÁL Erlendum ferðamönn- um fjölgaði mikið á milli áranna 2002 og 2003 eða um 13%. Gisti- nóttum á hótelum fjölgaði um 10% á sama tímabili. Erna Hauks- dóttir, framkvæmdastjóri Sam- taka ferðaþjónustunnar, segist ánægð með niðurstöðuna. „Aukningin hér er miklu meiri en þekkist víðast í löndunum í kringum okkur,“ segir Erna. „Mörg lönd eru enn að ná sér eft- ir 11. september og sumstaðar er enn samdráttur. Við getum því vel við unað. Ísland er líka í tísku og hefur verið það lengi. Fólk kemur hingað til að njóta íslenskrar nátt- úrufegurðar,“ segir Erna. „Ég er bjartsýn á að þetta ár verði líka gott. Það er mikil aukn- ing í sætaframboði hjá flugfélög- unum til dæmis verður 20% sæta- aukning frá Þýskalandi í sumar. Þá hafa Flugleiðir fjölgað áfanga- stöðum og Iceland Express hyggst fjölga ferðum.“ ■ SPILAKASSAR Samtök áhugafólks um spilafíkn er með aðstöðu í Dugguvogi. Talsmaður þeirra segir að hópur fólks innan samtakanna sé reiðubúið að leiða þá sem þurfi hjálp áfram til að vinna bug á fíkninni. SPILAÐ Í SPILAKÖSSUM „Ég vil miðla af reynslu minni sem spilafíkill. Í hvert sinn sem ég sé unglinga í spila- kössum tala ég við þá. Stundum hef ég jafnvel gengið svo langt að kippa kössunum úr sambandi. Ég hvet foreldra að fylgjast vel með börnunum sínum og alla þá sem eiga við spilafíkn að etja að leita sér hjálpar,“ segir Ahmed Effbiani. JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR Þingmaður Samfylkingarinnar segist ekki missa móðinn þótt aðeins lítið brot af þingmálum stjórnarandstöðunnar verði að lögum. Samtals hafa Samfylkingin, Vinstri grænir og Frjálslyndi flokkurinn lagt fram 611 frumvörp á síðustu þremur þingum, en örfá hafa orðið að lögum. Samtök áhugafólks um spilafíkn: Vilja takmarka að- gengi að spilakössum FRUMVÖRP Á YFIRSTANDANDI ÞINGI Samfylkingin 86 Vinstri grænir 87 Frjálslyndir 46 ÞINGSÁLYKTUNARTILLÖGUR Á YFIRSTANDANDI ÞINGI Samfylkingin 56 Vinstri grænir 35 Frjálslyndir 24 Spilafíkill missti eiginkonuna og tapaði aleigunni: Eyddi 15 milljónum á fimm árum

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.