Fréttablaðið - 16.02.2004, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 16.02.2004, Blaðsíða 13
■ Asía 13MÁNUDAGUR 16. febrúar 2004 ÞÖGUL MÓTMÆLI Fjöldi Íraka safnaðist við gaddavírsgirðingu sem umlykur fangelsið Abu Ghraib, tæp- lega 20 kílómetra vestur af Bagdad. Heimamenn krefjast þess að Bandaríkja- menn láti lausa alla fanga sem teknir voru í Íraksstríðinu. Háskólinn á Akureyri: Stúdentar vilja ekki skólagjöld HÁSKÓLAR Forystumenn stúdenta við Háskólann á Akureyri afhentu Steingrími Sigurgeirssyni, aðstoð- armanni menntamálaráðherra, und- irskriftalista þar sem skólagjöldum var hafnað sem tekjuöflunarleið fyrir Háskólann á Akureyri á laug- ardag. Að sögn Halls Gunnarssonar, formanns Félags stúdenta við Há- skólann á Akureyri, var óskað eftir því að menntamálaráðherra veitti listunum viðtöku en hún var stödd á Akureyri um helgina. Hún bar hins vegar við önnum og því voru aðstoð- armanni hennar fengnir undir- skriftalistarnir. Hallur segir að athöfnin hafi tekið tvær mínútur. Um 350 stúdentar skrifuðu undir yfirlýsinguna sem bar yfirskriftina „Skólagjöld eru ekki möguleiki“. Í yfirlýsingunni segir að skóla- gjöld séu óvægin leið til tekjuöflun- ar í ríki sem skilgreini sig sem vel- ferðarþjóðfélag. „Jafn réttur allra til menntunar er grundvallaratriði og í menntun liggur framtíð lands- ins í harðnandi samkeppni nútíma- samfélagsins,“ segir í yfirlýsing- unni. ■ HERMENN ÓKU YFIR JARÐ- SPRENGJU Bandarískur hermað- ur lést og níu særðust þegar her- jeppa var ekið yfir jarðsprengju í austanverðu Afganistan. Ekki liggur fyrir hvort sprengjan var ætluð hermönnunum eða hvort um var að ræða leifar frá gamalli tíð. Fjórir afganskir hjálpar- starfsmenn voru skotnir til bana í vestanverðu Afganistan. ÓEIRÐIR Í BANGLADESS Þúsundir manna söfnuðust saman á götum Dhaka í Bangladess til að mót- mæla handtöku stjórnarandstæð- inga. Að minnsta kosti fimmtíu manns slösuðust þegar óeirðalög- reglan réðst gegn mannfjöldan- um með barefli á lofti. Þrjátíu mótmælendur voru handteknir. SAUTJÁN LÉTUST Í JARÐSKJÁLFTA Að minnsta kost sautján manns fórust og 150 heimili eyðilögðust þegar tveir snarpir jarðskjálftar skóku afskekkt fjallahéruð í norðurhluta Pakistan. Um þrjátíu manns slösuðust. Skjálftans varð vart í höfuðborginni Islamabad. DOMINIQUE DE VILLEPIN Vill fjölþjóðaráðstefnu um framtíð Íraks í júní. Frönsk stjórnvöld: Enginn einn tryggir frið NÝJA DELÍ, AP Frakkar vilja efna til fjölþjóðaráðstefnu til að fjalla um framtíð Íraks. Dominique de Villepin, utanrík- isráðherra Frakklands, sem staddur er í opinberri heimsókn í Indlandi, sagði í gær að ekkert land gæti komið á friði í Írak upp á sitt einsdæmi. Hann sagðist hafa reynt að vinna því fylgi að ráðstefna yrði haldin þar sem Írakar, Tyrkir og öll arabaríki kæmu saman og fjölluðu um hvernig tryggja mætti frið í Írak og friðsamlega sambúð lands- ins við nágranna sína. ■ TEKUR VIÐ UNDIRSKRIFTALISTUM Steingrímur Sigurgeirsson tók við undir- skriftum gegn skólagjöldum úr hendi Halls Gunnarsson, formanns Félags stúdenta við Háskólann á Akureyri.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.