Fréttablaðið - 16.02.2004, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 16.02.2004, Blaðsíða 30
Úlfur Karlsson, 15 ára nemandifrá Álftanesi, er að stíga sín fyrstu skref í kvikmyndabransan- um. Stuttmyndin hans Pirovat var valin til að keppa á New York International Independent Film and Video hátíðinni. Umsóknir skiptu þúsundum en um 120 myndir voru valdar og munu keppa í flokki stuttmynda í 14 flokkum. Þetta er ein aðalhátíð óháðra kvikmyndagerðarmanna, þar sem ekki er óalgengt að yngri þátttakendur séu uppgötvaðir þó svo einungis örfáir þeirra séu unglingar líkt og Úlfur. Myndin sem dómendur heill- uðust af er svart-hvít ævintýra- mynd, svolítið draumkennd og ljóðræn þar sem litum er bætt við til að undirstrika það sem hann vill segja. „Hún fjallar um skip- brotsmenn frá Rússlandi sem koma óvart til Íslands og setjast að í húsi. Þeir þurfa að fiska sér til matar en þegar þeir koma að ánni hitta þeir skrímsli sem þeir verða að komast í burtu frá. Þá hitta þeir bæjarbúa og önd og öndin drepur skrímslið,“ segir Úlfur um myndina sína, eins og söguþráðurinn sé ekkert nema sjálfsagður. „Öndina fann ég bara á staðnum.“ Hann segir það ekki hafa verið neitt mál heldur að finna leikara í myndina. „Það eru fimm leikarar, sem eru bara strákar sem voru með mér í stutt- myndaklúbbnum í Garðaskóla.“ „Ég átti alls ekki von á að kom- ast að á þessa hátíð,“ segir Úlfur. „Ég sótti um í gegnum Netið, bara til gamans. Svo samþykktu þeir hugmyndina og þegar þeir voru búnir að sjá myndina var ég kom- inn í úrslit. Þessi keppni er í Mad- ison Square Garden í New York, en ef mér gengur vel gæti ég far- ið til Los Angeles, Cannes eða Mílan. Ég á samt ekki von á því að komast áfram. Í New York sýni ég myndina í bíói og svo verð ég með veggspjald og reyni að kynna myndina.“ Catherine Zeta-Jones mun afhenda verðlaunin í keppn- inni, en Úlfur hefur meiri áhuga á að hitta aðra unga kvikmynda- gerðarmenn alls staðar að úr heiminum. ■ Hrósið 30 16. febrúar 2004 MÁNUDAGUR Hrukkuaðgerð án skurðaðgerð-ar fer þannig fram að fjöl- sykrusýru í formi hreins krist- algels er sprautað inn í húðina með lítilli nál. Þannig er fyllt út í holdið þannig að hrukkur og fell- ingar mýkjast. Þar sem einungis er notast við sprautumeðferð þarf ekki að koma til skurðaðgerðar til að fjarlægja hrukkur eins og við venjulega andlitslyftingu, því eru engin ör eða önnur merki sem fylgja slíkri meðferð. Ekki er nauðsynlegt að notast við deyfingu, nema þess sé sér- staklega óskað og meðferðin sjálf tekur einungis um hálfa klukku- stund. Til að fylgja fyrstu með- ferðinni eftir er oft kosið að fara í eftirmeðferð eftir hálft eða eitt ár þar sem minna magni af gelinu er sprautað inn í húðina. Afrakst- ur fyrstu meðferðar á að vera sýnilegur í allt að eitt ár. Hliðar- verkanir af þessari hrukkuaðgerð geta verið bólgur í andliti, húðin getur verið viðkvæm um tíma og rauðir flekkir geta myndast. Það er þó reiknað með að slíkar hlið- arverkanir hverfi eftir örfáa daga. Nauðsynlegt er að hæfir aðilar sjái um meðferðina og mælt er með að slíkt sé einungis gert af læknum, hjúkrunar- fræðingum eða tannlæknum. ■ Imbakassinn ...fær ríkissjónvarpið fyrir það virðingarverða framtak að bjóða áhorfendum upp á fimm Hitchcock myndir um helgina. ■ Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 1. 2. 3. Húsavík. Inger L. Jónsdóttir. Kraftwerk. í dag Meðferð líksins í Neskaupstað eins og í Hollywoodmynd Fyrsti vinnings- hafinn berst fyrir lífinu Glaumgosinn Harry... Sendur til Afríku Lárétt: 1 sum, 6 fljótið, 7 fljót á Ítalíu, 8 númer, 9 hrópa, 10 dýr af hjartaætt (þf), 12 skýra frá, 14 knæpa, 15 píla, 16 tveir eins, 17 arinn, 18 lunderni. Lóðrétt: 1 nálægi, 2 fræg kona, 3 íþrótta- félag, 4 ósigur, 5 fara á veiðar, 9 gubbað, 11 taflmann, 13 óska, 14 gat fyrir skóreim, 17 gat. Lausn: Lárétt: 1nokkur, 6ána,7pó,8no, 9æpa,10elg,12tjá,14krá,15ör, 16óó,17ofn,18skap. Lóðrétt: 1náni,2ono,3ka,4uppgjöf, 5róa,9ælt,11hrók,13árna,14kós, 17op. Með ljóðræna stutt- mynd í farteskinu Nú, og varðandi veðrið á morgun... lít ég út eins og ein- hver spákelling? Þið getið bara aul- ast til að horfa út um gluggann í stað- inn fyrir að ætlast til þess að ég geri allt fyrir ykkur, letiblóð! RÍKEY Í fegrunaraðgerð í Ísland í dag á Stöð 2. ■ Hvað er... Hrukkumeðferð án skurðaðgerðar? ÚLFUR KARLSSON Fer til New York í maí til að taka þátt í alþjóðlegri stuttmyndakeppni fyrir áhugamenn. Catherina Zeta-Jones mun afhenda verðlaunin en Úlfur hefur meiri áhuga á öðrum áhugamönnum sem eru á svipaðri línu og hann. Stuttmyndagerð ÚLFUR KARLSSON ■ sótti um, bara til gamans, en heillaði dómara með ljóðrænni ævintýramynd. 1 6 7 8 9 14 16 17 15 18 2 3 4 1311 10 12 5 FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.