Fréttablaðið - 16.02.2004, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 16.02.2004, Blaðsíða 23
23MÁNUDAGUR 16. febrúar 2004 FÓTBOLTI Túnis vann Afríkukeppn- ina í fótbolta í fyrsta sinn með sigri á Marokkó 2-1. Santos kom Túnis yfir strax á fimmtu mínútu en Youssaef Mokhtari jafnaði metin fyrir Marokkó undir lok fyrri hálfleiks. Zied Jaziri skoraði síðan sigurmarkið fyrir Túnis á 52. mínútu. Roger Lemerre, þjálfari Túnis og fyrrum þjálfari franska lands- liðsins, er þar með eini þjálfarinn sem hefur unnið titla með lands- liðum í tveimur heimsálfum. Hann stýrði Frökkum til sigurs í Evrópukeppninni árið 2000 og var aðstoðarþjálfari þegar liðið vann heimsmeistarakeppnina 1998. „Mig langar að þakka öllum leik- mönnunum,“ sagði Lemerre him- inlifandi eftir sigurinn. „Þeir báru virðingu fyrir mér frá upphafi og núna hafa þeir skráð nöfn sín í sögubækurnar.“ Túnis lenti í öðru sæti í Afr- íkukeppninni 1965 og 1996. Þetta var aftur á móti fyrsti úrslita- leikur Marokkó í 28 ár en þá vann þjóðin keppnina. Þess má geta að Jay-Jay Okockha, leikmaður Bolton og nígeríska landsliðsins, var kjörinn leikmaður keppninn- ar. Nígería endaði í þriðja sæti keppninnar. ■ Ítölsk þjóðhetja fallin í valinn Ítalski hjólreiðakappinn Marco Pantani fannst látinn á hótelherbergi í Rimini á Ítalíu á laugardagskvöld. Grunur leikur á að um sjálfsvíg hafi verið að ræða. HJÓLREIÐAR Tíu lyfjaglös með ró- andi töflum fundust á hótelher- bergi Pantini og höfðu nokkur þeirra verið opnuð. Krufning í dag mun leiða í ljós dánarorsök. Tíðindin af láti Pantini voru ítölsku þjóðinni reiðarslag enda var hann afar vinsæll í heima- landi sínu. „Hetjan sem vildi sigra sjálfan sig,“ sagði í blaðinu La Repubblica. Þar var jafnframt tal- að um „meistarann sem sagði: „Þó ég vinni allt líður mér samt eins og ég sé aleinn“. Pantani, sem fékk viðurnefnið „sjóræninginn“ vegna höfuðklúts sem hann hjólaði jafnan með og eyrnarlokks sem hann bar, var 34 ára. Hann vann hjólreiðamótið Tour de France árið 1998, fyrstur Ítala í 33 ár. Sama ár vann hann Giro d’Italia-mótið. Áður hafði hann lent í þriðja sæti í Tour de France 1994 og 1997. Ferill Pant- ani beið hnekki 1999 þegar tekin var af honum blóðprufa sem gaf til kynna að hann hefði notað ólög- leg lyf. Hann var í kjölfarið rek- inn úr Giro d’Italia-mótinu. Pant- ani átti miklum erfiðleikum eftir það og gekk erfiðlega að sanna sakleysi sitt. Árið 2001 fannst insúlínsprauta á hótelherbergi hans. Hann hélt því fram að henni hefði verið komið þar fyrir. Pant- ini fékk átta mánaða keppnisbann en vann áfrýjunarmál fyrir dóm- stólum. Síðasta sumar skráði hann sig síðan á heilsuhæli vegna þung- lyndis og lyfjamisnotkunar. Ítalski hjólreiðakappinn Felice Gimondi, sem þjálfaði Pantini um tveggja ára skeið, var skelfingu lostinn vegna dauða félaga síns. „Marco hefur goldið allt sem hann hefur gert dýru verði. Um árabil var hann í hringiðu fjölmiðla eftir að hafa verið sá besti í heiminum. Eftir það dró hann sig í skelina. Hann var aleinn“. ■ FORMÚLA 1 „Ég held að Juan hafi ekki verið ánægður með að vera snupraður,“ sagði Patrick Head, tæknistjóri Williams-liðsins. „Ég veit að hann ákvað að semja við McLaren nokkrum dögum eftir atvikið.“ Atvikið sem um ræðir átti sér stað í franska kappakstrinum í Magny-Cours. Montoya taldi að Ralf Schumacher hefði fengið for- gang umfram sig á viðgerðarsvæð- inu og hélt tíu mínútna reiðilestur yfir starfsliði Williams í talstöðinni. Kólumbíumaðurinn fékk ofanígjöf frá yfirmönnum sínum fyrir fram- komuna þremur dögum síðar. Head sagði að Montoya hefði haldið að Ralf Schumacher hefði verið kallaður inn á viðgerðar- svæðið einum hring of snemma. „Okkur fannst það óviðeigandi þegar hann jós skömmum yfir lið- ið sem hafði unnið baki brotnu við að gera við bílinn,“ sagði Head. „Við gátum ekki sætt okkur við að hann sakaði næstum alla, háa sem lága, um að vera ekki starfi sínu vaxnir. Juan er ör maður og vegna þess tekur hann stundum ákvarð- anir af hvatvísi,“ sagði Patrick Head. ■ Klinsmann aftur í boltann: Ráðgjafi hjá Galaxy FÓTBOLTI Þjóðverjinn Jurgen Klins- mann hefur verið ráðinn sem tæknilegur ráðgjafi hjá Los Angeles Galaxy í bandarísku úrvalsdeildinni. Klinsmann, sem varð heimsmeist- ari árið 1990, lagði skóna á hilluna 1998 og fluttist til Kaliforníu í Bandaríkjunum. Hann æfði með Galaxy á sínum tíma og hjálpaði liðinu meðal annars að ganga frá samningi við austurríska knatt- spyrnumanninn Andreas Herzog. „Ég er mjög spenntur fyrir því að vinna meira með þjálfara- liðinu,“ sagði Klinsmann. „Mark- mið mitt er að hjálpa mönnum að bæta sig.“ ■ ÓDÝRT HÖFÐABAKKI 9 112 REYKJAVÍK SÍMI: 544 5330 FAX: 544 5335 en gott Við bjóðum 14 34 / T A K T ÍK n r. 4 0 C Stærð: D: 50 cm B: 30/40 cm H: 180 cm Stál- skápar fyrir vinnustaði kr. 7.719,- Verð frá Stálskápar (Fyrsti skápur kr. 8.840,-) Sven-Goran Eriksson: Bíður með samning FÓTBOLTI Ekki er talið að Sven-Gor- an Eriksson, landsliðsþjálfari Eng- lands, framlengi þjálfarasamning sinn fyrr en eftir Evrópukeppnina í sumar. Enska knattspyrnusam- bandið hefur þegar boðið honum nýjan samning til ársins 2008. Eriksson virðist ekkert liggja á að semja á ný. „Við höfum aðeins rætt þetta mál einu sinni, en það er gott að vera í þessari aðstöðu,“ sagði hann. Miklar vangaveltur hafa staðið yfir varðandi framtíð Erikssons. Hefur hann meðal annars verið orðaður við Chelsea. Núverandi samningur hans við landsliðið rennur út eftir tvö ár. ■ FÖGNUÐUR Khaled Azeiz og Hatem Trabelsi, leikmenn Túnis, fagna sigrinum í Afríkukeppninni. Keppnin var haldin í Túnis og eins og sjá má voru heimamenn í skýjunum yfir sigrinum. Afríkukeppnin í fótbolta: Túnis meistari í fyrsta sinn JUAN PABLO MONTOYA Yfirmenn Williams-liðsins snupruðu Montoya og hann ákvað að fara. Juan Pablo Montoya: Líkaði ekki ofanígjöfin PANTANI Ítalinn Marco Pantani í gula jakkanum sem hann vann í Tour de France 1998. Hann hjólaði jafnan með höfuðklút og skartaði fínum eyrnalokk. Í HRINGIÐU FJÖLMIÐLA Pantani umkringdum blaðamönnum eftir að hann var rekinn úr Giro d’Italia hjólreiðamótinu árið 1999.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.