Fréttablaðið - 16.02.2004, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 16.02.2004, Blaðsíða 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar ÞRÁINS BERTELSSONAR Nútíma lamb- húshettur Ef nokkur maður ætti að drífasig til lýtalæknis, og það í hvel- li, þá væri það ég. Árum saman hef ég verið gangandi lýti á umhverf- inu með eyru sem eru of stór fyrir höfuðið, eða öfugt, og svo marga út- litsgalla að of langt yrði upp að telja í stuttri blaðagrein. SJÓNMENGUN er orðið sem mér kemur fyrst í hug þegar ég lít í spegilinn á morgnana. Því miður verður mengunin meiri og meiri eftir því sem árin líða. Ef snúa ætti þessari þróun við væri það verkefni sem mundi nægja mörgum sjón- varpsstöðvum í heila vetrardagskrá og skapa atvinnu fyrir teymi lýta- lækna og sprautugengi hjúkrunar- fræðinga. Fyrir utan eyrnaminnkun eða höfuðstækkun þyrfti ég á alls- herjarandlitslyftingu að halda, fitu- sogi, hárígræðslu, tannréttingu og ýmsu fleira. SPURNINGIN er náttúrlega hver á að borga brúsann? Og þá detta manni vitanlega fyrst í hug sjón- varpsstöðvar eins og Stöð 2 eða Omega: Stöð 2 vegna þess að það væri æsispennandi sjónvarpsefni að sjá mig breytast í ómótstæðilegt ungmenni – eiginlega eins og að sýna Frankenstein aftur á bak, og Omega vegna þess að þetta væri gustukaverk í kristilegum anda. ÞAÐ er sem betur fer löngu orðið úrelt að fólk sé skyldugt til að sætta sig við það útlit sem því er úthlutað við fæðingu, enda væri það ósanngjarnt og ólýðræðislegt, því að sumir eru heppnari en aðrir í genahappdrættinu. Sömuleiðis er úrelt að sætta sig við að eldast. Hrörnun og dauði hafa alltof lengi vaðið uppi í þjóðfélaginu óáreitt. Og sem betur fer er þróunin í lýta- lækningum svo hröð að eftir örfá ár getur hver og einn ráðið útliti sínu sjálfur. Þá getur maður átt mismun- andi andlit til að setja upp eins og lambhúshettur; andlit fyrir öll tæki- færi, ung eða gömul, allt eftir því hvort maður er að fara á diskótek eða í Dómkirkjuna. Frægir hönnuð- ir munu hanna þessi andlit og þá fer það eftir efnahag hvort maður gengur með andlit frá Dior, Prada eða Boss og enginn mun framar þurfa að búa við þá nauð að þurfa að sýna sitt rétta andlit.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.