Fréttablaðið - 16.02.2004, Blaðsíða 19
19MÁNUDAGUR 16. febrúar 2004
Toppurinn á tilverunni var aðgerast fræðimaður,“ segir
Jóna Fanney Friðriksdóttir, sem
nú er bæjarstjóri á Blönduósi.
Hún útskrifaðist fyrir rúmum tíu
árum með magisterpróf í fjöl-
miðlafræði frá háskóla í Berlín,
með félagsfræði og stjórnmála-
fræði sem aukagreinar, en hefur
síðan starfað við flest annað en
fræðimennsku í sínu fagi.
„Námið í Berlín var mjög
fræðilegt. Ég sökkti mér niður í
alla þessa fræðimenn og lá bók-
staflega í fræðibókunum frá
morgni til kvölds, en þegar maður
kemur úr slíku námi veit maður
ekki alveg hvað maður á að gera
við sig. Mér fannst ég kunna skil á
flestu en kunni samt ekki neitt.“
Nýverið gaf hún sér svolítinn
tíma frá önnum bæjarstjórans til
að ræða við nemendur í félagsvís-
indum við Háskólann á Akureyri
um þann veruleika sem við tekur
í atvinnulífinu að loknu ströngu
fræðilegu námi í háskóla.
„Yfirskriftin á þessu erindi
mínu var „Kenning og raunveru-
leiki“, en hefði alveg eins getað
verið „fræðimennskan og lífið“
eða „félagsvísindi og tenging
þeirra við lífið almennt“,“ segir
Jóna Fanney.
„Ég var tvítug þegar ég kom til
Vestur-Berlínar, kem þangað með
sítt að aftan í Benettonpeysunni
minni, nýskriðin út úr mennta-
skóla og frekar vernduðu um-
hverfi. Markmiðið var að sækja
fróðleik í þessa sérkennilegu
borg.“
Þótt fræðiþekkingin sem þar
fékkst tengist ekki beint starfi
bæjarstjórans, þar sem þarf að
takast á við allt frá starfsmanna-
málum og fjárhagsáætlun til
æskulýðsmála og aðalskipulags,
þá segist Jóna engu að síður sann-
færð um að námið hafi komið sér
að góðu gagni í þeirri glímu.
„Það sem við verðum að tilein-
ka okkur í vinnubrögðum ef við
ætlum að ná árangri í námi verð-
ur okkur tamt og kemur okkur að
gagni síðar meir. Þetta ferli, sem
fer í gang þegar fólk sækir sér
menntun, fylgir okkur í gegnum
lífið hvað svo sem við tökum okk-
ur fyrir hendur.“ ■
Lífið eftir námsárin
TOPPURINN Á TILVERUNNI VAR AÐ
GERAST FRÆÐIMAÐUR
Jóna Fanney Friðriksdóttir, bæjarstjóri á
Blönduósi, hefur verið að velta því fyrir sér
hve erfitt getur verið að tengja kenningar
og hugsjónir námsáranna við raunveru-
leika atvinnulífsins.
Nám
KENNING OG VERULEIKI
■ Bæjarstjórinn á Blönduósi er með
prófgráðu frá Berlín. Hún flutti nýverið
fyrirlestur við Háskólann á Akureyri um
muninn á kenningum námsáranna og
veruleika atvinnulífsins.
LINDA PÉTURSDÓTTIR
„Hamingjan er aukageta þess að lifa réttu líf-
erni,“ segir Linda á nýju heimasíðunni sinni.
Ný og betri
linda.is
Linda Pétursdóttir, fyrrum al-heimsfegurðardrottning, opn-
aði nýja heimasíðu í síðustu viku.
Þar birtir hún pistla, hugleiðingar
um fegurð, hamingju, heilsu og
fleira. Þá er sérstakt spjallsvæði á
síðunni sem gæti orðið ágætur
vettvangur fyrir skoðanaskipti
aðdáenda Lindu um það sem henni
er efst í huga hverju sinni.
Linda er vitaskuld heimsfræg
á Íslandi en líklega virðist hróður
hennar vera að aukast í Kanada,
þar sem hún býr um þessar mund-
ir, en á heimasíðunni segir hún frá
því að henni hafi nýlega borist
bréf frá íslenskri konu en það sé
með mestu ólíkindum að það hafi
komist alla leið þar sem utan-
áskriftin hafi einfaldlega verið:
„Linda Pétursdóttir, Eagle Island,
Vancouver, USA.“ Ekki beinlínis
nákvæmt en dugði samt. ■
Foreldrar
hafna Mínus
Stjórn SAMFOK, sambands for-eldrafélaga og foreldraráða í
grunnskólum Reykjavíkur, bland-
aði sér í stóra Mínusmálið í vik-
unni þegar það
lýsti yfir „ein-
dregnum stuðn-
ingi við þá
ákvörðun Sam-
fés að hafna
samstarfi við
hljómsveitina
Mínus“. Í yfir-
lýsingu frá
SAMFOK er
bent á að meiri-
hluti unglinga í
félagsmiðstöðvum landsins sé á
aldrinum 13–15 ára og foreldrar
fagni því að Samfés, „sem gegna
mikilvægu uppeldislegu hlutverki,
taki ákveðna afstöðu gegn neyslu
fíkniefna. Það er ekki vilji foreldra
að hljómsveit sem opinberlega
hefur lýst yfir stuðningi við neyslu
fíkniefna sé hampað og hún ráðin
til að skemmta unglingum í félags-
miðstöðvum landsins.“ Þá vitnar
Samfés í gamalt orðatiltæki sem
„segir eitthvað á þessa leið: „Það
þarf heilt þorp til að ala upp barn“.
Við þurfum öll að líta í eigin barm
og axla þá samfélagslegu ábyrgð
sem uppeldi barna er. Við eigum að
hafa skoðun á því hvað eru góðar
fyrirmyndir og hvað ekki. Við ber-
um ábyrgð á börnum okkar a.m.k.
til 18 ára aldurs.“ ■
MÍNUS
Samband foreldra-
félaga fagnar því að
SAMFÉS hafi úthýst
rokksveitinni Mínus.