Fréttablaðið - 16.02.2004, Page 4
4 16. febrúar 2004 MÁNUDAGUR
Er hagnaður bankanna of mikill?
Spurning dagsins í dag:
Á að takmarka aðgang að spilakössum?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
15%
85%
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
VIÐSKIPTI Á aðalfundi Landsbanka Ís-
lands var samþykkt tillaga stjórnar
um að greiða 10 prósenta arð og
sagði Björgólfur Guðmundsson,
stjórnarformaður bankans, að arð-
greiðslurnar væru minnihluti af
hagnaði en stefnt væri að sökum
þess að ákvörðun hefði verið tekin
um að styrkja eigið fé félagsins
vegna mikils vaxtar á síðasta ári.
Landsbankinn skilaði tæplega
þriggja milljarða króna hagnaði eft-
ir skatta en það er tæplega 50
prósentum meira en á árinu 2002.
Arðsemi eigin fjár var 20,9 prósent
(fyrir skatta) en var 17% próesent
árið áður.
Björgólfur sagði að á fyrsta
starfsári eftir einkavæðingu hefði
Landsbankinn fylgt þeirri stefnu
sem boðuð var á síðasta aðalfundi;
að leika sóknarbolta. Þetta hefði
skilað sér í því að eignir bankans
jukust að verðmæti um 61 prósent
og markaðsverðmæti bankans
hækkað um 75 prósent. Og áfram er
boðaður „sóknarbolti“ í starfi bank-
ans. „Uppgjör ársins er liðin tíð.
Framtíðin skiptir máli. Á þessari
stundu segi ég aðeins að breyting-
arnar eru rétt að byrja. Landsbank-
inn mun á þessu ári halda ótrauður á
sömu braut. Við væntum stuðnings
ykkar [hluthafa] til frekari sóknar,“
sagði Björgólfur.
Á aðalfundinum á laugardag var
samþykkt tillaga um skipan stjórnar
félagsins og er hún óbreytt frá síð-
asta aðalfundi. Í henni sitja ásamt
Björgólfi, Andri Sveinsson, Einar
Benediktsson, Kjartan Gunnarsson
og Þorgeir Baldursson. ■
Handtökutilskipun
gefin út á fjóra menn
Lögreglan leitar tveggja Íslendinga og tveggja Litháa í tengslum við líkfundinn í Neskaupstað.
Samanburður á fingraförum hins látna við skrár lögregluyfirvalda annarra ríkja hafði ekki borið
árangur í gærkvöldi.
LÖGREGLUMÁL Lögreglan hefur gef-
ið út handtökutilskipun á tvo Ís-
lendinga og tvo Litháa í tengslum
við líkfundinn í Neskaupstað í vik-
unni sem leið. Rannsóknin var í
gærkvöld sögð á afar viðkvæmu
stigi.
Engin viðbrögð höfðu í gær-
kvöld borist lögreglunni erlendis
frá, eftir að alþjóðadeild ríkislög-
reglustjóra dreifði fingraförum
af líki mannsins á net alþjóðalög-
reglunnar Interpol. Með fylgdi
beiðni þess efnis, að lögregluyfir-
völd annarra ríkja beri fingraför-
in saman við fingrafarabanka sína
til að kanna hvort hægt sé að bera
kennsl á líkið.
Lögreglumennirnir, sem hafa
rannsóknina með höndum, hafa
að undanförnu spurt eftir grun-
samlegum mannaferðum á öll-
um gististöðum á Neskaupstað,
Egilsstöðum og víðar. Í fyrradag
ræddu þeir meðal annars við
umsjónarmann sumarbústaða-
hverfisins á Einarsstöðum við
Egilsstaði. Þá hefur lögreglan
ekki aðeins mannaferðir um
Keflavíkurflugvöll til rannsókn-
ar, heldur einnig allar þær hafn-
ir sem erlend skip hafa komið á
tilteknu tímabili. Ennfremur
hefur rannsóknin beinst að bíla-
leigum á svæðinu.
Lögreglan hefur enn ekki úti-
lokað að hinn látni sé Íslendingur.
Skipverjar á norska loðnuskipinu
Senior hafa verið hreinsaðir af
öllum grun eftir að þeir voru yfir-
heyrðir í Bodö, en skipið hafði
haft viðkomu í Neskaupstað 6.–8.
febrúar.
Fjölmennt lið lögreglumanna
ríkislögreglustjóraembættisins,
lögregluembættisins á Seyðisfirði
og tæknideildar lögreglunnar í
Reykjavík vinnur áfram að rann-
sókn málsins. Lögreglan hefur
óskað eftir því að allir þeir öku-
menn sem voru á ferð um Fagra-
dal og Oddskarð eftir miðnætti
aðfaranætur mánudagsins 9.,
þriðjudagsins 10. og miðvikudags-
ins 11. febrúar síðastliðna hafi
samband við lögreglu. Hún er nú
að fara yfir myndir úr eftirlits-
myndavélum vegagerðarinnar af
þeim bílum sem fóru þá leiðina á
tímabilinu. ■
STJÓRNARFORMAÐUR OG BANKASTJÓRAR
Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson, bankastjórar Landsbankans,
ásamt Björgólfi Guðmundssyni stjórnarformanni.
LÖGREGLUMÁL „Fíkniefnaheimur-
inn á Austurlandi er smækkuð
mynd af fíkniefnaheiminum
syðra,“ segir Steinar Gunnarsson,
varðstjóri lögreglunnar í Nes-
kaupstað.
Hann telur líka að aukin harka
í fíkniefnaheiminum eigi jafn vel
við eystra og syðra. Steinar telur
að neyslumynstur hafi breyst og
aukning sé í notkun sterkari efna.
Hann nefnir þar e-töfluna, en
neysla á henni hafi verið sérstak-
lega áberandi.
Vikublaðið Austurglugginn
hefur gert samantekt á þróun
glæpatíðni á Austurlandi. Þar
kemur fram að glæpum á Austur-
landi fer fjölgandi. Um er að ræða
töluverða aukningu í nokkrum af-
brotaflokkum frá árinu 2002.
Þetta eru upplýsingar sem byggð-
ar eru á upplýsingum fyrir síðasta
ár frá sýslumannsembættinu á
Seyðisfirði en tölur frá embætt-
inu á Eskifirði liggja ekki fyrir.
Fíkniefnabrotum, ölvun-
arakstri og líkamsárásum hefur
fjölgað. Ekki er þó talið að aukin
neysla fíkniefna sé orsök þess-
arar fjölgunar afbrota, heldur sé
farið að sinna þessum málaflokk-
um betur en áður. ■
Varðstjóri lögreglunnar á Neskaupstað:
Aukin harka í fíkniefnaheiminum
Heyrnartæki:
Um 700
manns bíða
HEILBRIGÐISMÁL Um það bil 700 ein-
staklingar bíða nú eftir heyrnar-
tækjum, samkvæmt svari Jóns
Kristjánssonar heilbrigðisráð-
herra við fyrir-
spurn Jóhönnu
Sigurðardóttur al-
þingismanns. Af
þessum 700 eru
um 630 á biðlista
hjá heyrnar- og
talmeinastöð. Um
70 bíða hjá Heyrn-
artækni ehf.
Í svari ráð-
herra kom fram
að biðlistinn eftir heyrnartækjum
hefur styst verulega á einu ári, en
í upphafi þess biðu 1.100 manns
eftir slíkum tækjum. Almennur
biðtími hefur því styst úr 15–18
mánuðum í 8–9 mánuði. ■
Íraskur ráðamaður
handtekinn:
Tíu ganga
enn lausir
BAGDAD, AP Íraska lögreglan hand-
tók í gær fyrrum leiðtoga Baath-
flokksins í héruðunum Nineveh
og Tamim í norðurhluta Íraks.
Mohammed Zimam Abdul Razaq
var númer 41 á lista Bandaríkja-
stjórnar yfir eftirlýsta ráðamenn
í Írak.
Að sögn íraskra yfirvalda
veitti Abdul Razaq enga mót-
spyrnu þegar hann var handtek-
inn á heimili sínu í úthverfi
Bagdad.
„Hann verður dreginn fyrir
dómstóla og þar verða örlög hans
ákveðin“ sagði Ahmed Kadhum
Ibrahim, aðstoðarinnanríkisráð-
herra Íraks.
Af 55 íröskum ráðamönnum
sem Bandaríkjamenn hafa lýst
eftir ganga 10 enn lausir. Ein
milljón Bandaríkjadala er sett til
höfuðs hverjum þeirra. ■
Landsbankinn:
Spilar áfram
„sóknarbolta“
JÓHANNA SIG-
URÐARDÓTTIR
Spurði um
heyrnartæki.
KEÐJUHRÚGUR
Keðjum var vafið utan um líkið sem fannst
við netagerðarbryggjuna í Neskaupstað,
þar sem þessi mynd var tekin.
GRJÓTHOPPARAR
Líkið var þyngt niður með svokölluðum grjóthoppurum, en þeir liggja í haugum á netagerðarbryggjunni.
NETABRYGGJAN Í NESKAUPSTAÐ
Netabryggjan í Neskaupstað er vettvangurinn þar sem hið umfangsmikla mál hófst
sem nú hefur verið til rannsóknar hjá lögreglu í tæpa viku.