Fréttablaðið - 16.02.2004, Page 12
12 16. febrúar 2004 MÁNUDAGUR
KÁT MEÐ HVOLPANA FRÁ PÚTÍN
Margot Klestil Loeffler, forsetafrú í Austur-
ríki, virðist ánægð með labradorhvolpinn
Orchi, annan tveggja hvolpa sem Pútín
Rússlandsforseti gaf austurrísku forseta-
hjónunum þegar þau heimsóttu Pútín á
dögunum.
HEILBRIGÐISMÁL Undirritaður hefur
verið þjónustusamningur heil-
brigðisráðuneytis og Krabba-
meinsfélags Íslands um skipulega
leit að leghálskrabbameini og
brjóstakrabbameini. Fer hún
fram á vegum leitarsviðs Krabba-
meinsfélags Íslands.
Ríkissjóður greiðir vegna þess
kostnaðar sem ætlaður er að
standa undir þjónustu og kröfum
við samninginn 240,9 milljónir
króna og takmarkast fjárhagsleg
ábyrgð ríkisins við þá fjárhæð.
Greiðsla ríkissjóðs miðast við
að heildarfjöldi skoðana á ári í
leghálskrabbameinsleit verði að
lágmarki 24.300 og að hámarki
34.100, þar af annist verksali að
lágmarki 15.800 skoðanir eða 65%
af heildarfjölda. Fjöldi skoðana
hjá leitarstöð Krabbameinsfélags-
ins með brjóstamyndatöku verði
að lágmarki 13.100 á ári og að há-
marki 18.400 á ári. Starfsemi leit-
arsviðsins fer fram í Skógarhlíð 8
í Reykjavík en auk þess er leitað
skipulega á heilsugæslustöðvum
um allt land.
Landlæknir og heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið hafa
með höndum faglegt eftirlit með
störfum leitarsviðs Krabbameins-
félagsins í samræmi við þjónustu-
samninginn og samkvæmt þeim
reglum sem gilda á hverjum tíma.
Samningurinn er til fimm ára
og miðast gildistakan við 1. janúar
2004. ■
Ríkisstjórnin vakti
upp öflugan draug
Formaður VG, er sammála forsætisráðherra um að aðgerða sé þörf til að sporna gegn hringa-
myndun. Segir stjórnarflokkana eiga sök á ástandinu með glannalegri einkavæðingu og telur að
„þetta lið“ ætli ekki að aðhafast.
STJÓRNMÁL „Stjórnarflokkarnir eru
farnir að hafa áhyggjur af því
hvert þjóðfélagið stefnir. Þeir
hafa vakið upp svo kröftugan
draug að nú ráða þeir illa við
hann,“ segir Steingrímur J. Sig-
fússon, formaður vinstri grænna,
um yfirlýsingar Davíðs Oddsson-
ar forsætisráðherra á viðskipta-
þingi um auðhringamyndanir á Ís-
landi og aðgerðir til að sporna
gegn þeirri þróun.
Athygli hefur vakið að Stein-
grímur J. og Davíð virðast vera á
sama máli um að í óefni stefni og
báðir hafa ljáð máls á lagasetn-
ingu til að hemja hringamyndun.
S t e i n g r í m u r
segir að þótt
hann sé sam-
mála forsætis-
ráðherra um að
grípa þurfi til
aðgerða þá megi
ekki gleymast
að stjórnar-
flokkarnir beri
ábyrgð á því
hvernig nú sé
komið. Þar vísar
hann til einkavæðingar bankanna.
„Þetta ástand var fyrirséð því
menn fóru alltof geyst í að mark-
aðs- og einkavæða samfélagið á
þreföldum hraða. Allt er þetta einn
allsherjaráfellis-
dómur yfir því
hvernig ríkis-
stjórnin hefur
staðið að þessari
t r ú a r b r a g ð a -
kenndu og glanna-
legu einkavæð-
ingu,“ segir hann.
Steingrímur J.
segir að það hafi
verið út í hött að
einkavæða báða
ríkisbankana á sömu mánuðunum.
„Nær hefði verið að halda að
minnsta kosti öðrum bankanum. Nú
spyr ég hvort þetta leiði til þess að
horfið verði frá því að einkavæða
Landssímann? Þetta er spurning
sem gott er að láta brenna á þeim í
ljósi þess að sömu aðilar og hafa
fjárfest í búlgarska landssímanum
hafa áhuga á Landssímanum,“ seg-
ir Steingrímur J.
Hann segir að stjórnarliðar
hafi sagt eitt í upphafi einkavæð-
ingarferlisins en síðan gert annað.
„Þeir hafa síðan látið þessa
þróun ganga átölulaust. Það er al-
gjörlega gagnslaust að þetta lið,
Davíð og Valgerður Sverrisdóttir,
komi og lýsi áhyggjum þegar
þjóðinni ofbýður en geri ekki ann-
að en að skipa nefnd. Þetta verður
enn ein ræðan sem Davíð flytur
og enn einar áhyggjurnar sem
Valgerður flytur án þess að neitt
verði aðhafst. Þetta hefur því eng-
an tilgang hjá þeim því ég sé ekki
að til standi að setja þessu skorð-
ur. Ég fullyrði að þessir hlutir eru
að verða hættulegri í dag en
nokkru sinni fyrr. Ástæðan er að
þessi mikla samþjöppun fjármuna
og eigna hér á landi er í beinum
tengslum við umsvif þeirra er-
lendis og áhuga á því að taka þátt
í leiknum með stóru körlunum er-
lendis. Fé getur tekið á rás og
horfið til útlanda fyrirvaralaust,“
segir Steingrímur J.
Hann segir að hugtakið útrás
sé í tísku þessa dagana en að baki
því séu áhættufjárfestingar er-
lendis.
„Eins gott er að þær fjárfest-
ingar mistakist ekki því þar er um
að ræða fé sem þjóðin nurlaði
saman í bönkunum sínum og at-
vinnulífið byggði upp í fjarfest-
ingalánasjóðum sínum. Eiga þetta
að vera spilapeningar í áhættu-
fjárfestingum úti í heimi?“ segir
Steingrímur J.
rt@frettabladid.is
ÞRÍR FULLIR UNDIR STÝRI Þrír
ökumenn voru stöðvaðir í
Reykjavík í gærdag vegna gruns
um ölvun við akstur. Að sögn lög-
reglu voru mennirnir ekki mikið
ölvaðir en nóg til þess að vera
yfir leyfilegum mörkum.
ÁTTA ÓHÖPP Í UMFERÐINNI Á
AKUREYRI Átta umferðaróhöpp
urðu á Akureyri í síðustu viku og
hlutu ökumaður og farþegi
minniháttar meiðsli í tveimur
þeirra. Tuttugu ökumenn voru
kærðir fyrir að vera ekki með
öryggisbelti, einn fyrir ölvun við
akstur og nokkrir eiga von á sek-
tarboði fyrir að tala í farsíma auk
annarra umferðarlagabrota.
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
Segir ríkisstjórnina
bera fulla ábyrgð á
ástandinu.
RÆTT UM HRINGAMYNDUN
Davíð Oddsson forsætisráðherra og Björgólfur Guðmundsson, aðaleigandi Landsbankans,
á viðskiptaþingi þar sem forsætisráðherra lýsti áhyggjum sínum af hringamyndunum.
„Nú spyr ég
hvort þetta
leiði til þess
að horfið
verði frá því
að einka-
væða Lands-
símann.
! "
# ! $%&
'$()
* (
$$ (
JÓN KRISTJÁNS-
SON
Undirritaði fyrir
hönd ráðuneytisins.
SIGURÐUR
BJÖRNSSON
Undirritaði fyrir
hönd Krabbameins-
félagsins.
Nýr þjónustusamningur undirritaður:
Víðtæk krabbameinsleit
KÁRAHNJÚKAR Impregilo segir að
öllum endanlegum lagfæringum á
vistarverum starfsmanna við
Kárahnjúka verði lokið fyrir 25.
febrúar. Í kjölfar óveðursins
fyrstu helgina í febrúar, fóru vist-
arverur hjá sumum starfsmanna
Impregilo og undirverktaka að
leka. Um leið og þetta var ljóst
var strax ráðist í að lagfæra
helstu skemmdir. Um helgina lauk
bráðarbirgðalagfæringu á öllum
svefnskálum.
Alþýðusamband Íslands krafð-
ist þess í síðustu viku að starfs-
mannaaðstaða yrði lagfærð svo
tryggt yrði að heilsu manna og
öryggi væri ekki stefnt í hættu.
ASÍ segist hafa vakið athygli
Impregilo á því í ágúst í fyrra að
svefnskálarnir sem settir voru
upp við Kárahnjúka hentuðu ekki
íslenskum aðstæðum. ASÍ vill að
Landsvirkjun og stjórnvöld grípi
nú þegar inn í þessar aðstæður og
leggi allan þunga sinn á að þess-
um málum verði komið í lag. Þá
fer ASÍ fram á að lögum verði
breytt á þann hátt að starfs-
mannabúðir við virkjunarfram-
kvæmdir verði úttektarskyldar af
byggingaryfirvöldum.
Í tilkynningu talsmanns
Impregilo segir að verktakinn
hafi vanmetið áhrif vinds og snjó-
komu á Kárahnjúkasvæðinu þeg-
ar ráðist var í kaup á núverandi
svefnskálum. Impregilo segir það
miður og vonast til þess að lag-
færingar og umbætur nú verði til
þess að slíkt endurtaki sig ekki á
Kárahnjúkavirkjunarsvæðinu. ■
Óveðursskemmdir á starfsmannaskálum við Kárahnjúka:
Lagfæringum lýkur í næstu viku
■ Lögreglufréttir
Belgískur tölvuþrjótur:
Bjó til tölvu-
veirur
BRUSSEL, AP Belgíska lögreglan
hefur handtekið nítján ára konu
sem bjó til tölvuveirur og setti
þær á heimasíðu sína. Þegar
lögreglan handtók konuna var hún
um það bil að setja nýjar veirur út
á heimasíðu sína. Hald var lagt á
fimm tölvur í eigu konunnar og
heimasíðu hennar lokað.
Konan óprúttna, sem kallar sig
„Gigabyte“ í heimi tölvuþrjóta,
hefur verið ákærð fyrir að
skemma tölvugögn. Verði hún
fundin sek á hún yfir höfði sér allt
að þriggja ára fangelsi og sekt
sem svarar til um 8,7 milljóna ís-
lenskra króna.
Gigabyte byrjaði að hanna
tölvuforrit þegar hún var aðeins
sex ára gömul. Fjórtán ára bjó
Gigabyte til sína fyrstu tölvu-
veiru. Gigabyte hefur meðal
annars varið gjörðir sínar með því
að benda á að hún hafi aðeins búið
„vopnin“ til en ekki beitt þeim. ■
FRÁ KÁRAHNJÚKUM
Impregilo segist hafa vanmetið veðurfars-
áhrif þegar starsfmannaskálar voru reistir.
Töluverðar skemmdir urðu á dögunum
þegar óveður gekk yfir landið. Impregilo
segir að lagfæringum ljúki í næstu viku.