Fréttablaðið - 16.02.2004, Side 26
■ ■ FYRIRLESTRAR
12.00 Diana Wallis, þingmaður frá
Evrópuþinginu, flytur fyrirlestur í Nor-
ræna húsinu á vegum Háskóla Íslands.
Fundarstjóri verður Ólafur Stephensen.
Í erindinu, sem flutt verður á ensku,
mun Diane Wallis fjalla um það sem
nefnt hefur verið „hinn tvöfaldi lýðræð-
ishalli“, þ.e. sú staða Íslands innan EES
að hafa hvorki bein áhrif á störf ráð-
herraráðs ESB né Evrópuþingsins.
26 16. febrúar 2004 MÁNUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
13 14 15 16 17 18 19
FEBRÚAR
Mánudagur
Sú tegund rokktónlistar semLostprophets spilar er ekki
alveg minn tebolli. Þetta er ofur-
sterílt, dauðhreinsað af öllum
mannlegum brestum og oft svo-
lítið kauðalegar eróbiksrokk laga-
og textasmíðar. Minnir svolítið á
Linkin Park sem ég hef ekkert dá-
læti á.
Vanalega myndi ég ekki gefa
svona sveit mikinn séns en ég hef
það fyrir reglu að renna plötum
nokkrum sinnum í gegn áður en
ég skrifa um þær. Þá gerist oft
eitthvað undarlegt, eins og í til-
viki Start Something, að maður
byrjar að heyra margt gott í því
sem veikur hausinn á manni hafði
ákveðið fyrirfram að væri við-
bjóður.
Þessi plata er nefnilega merki-
lega vel unnin, heilsteypt og laga-
smíðar grípandi. Lostprophets
eru lausir við þunglyndis nin-
tendo rappruglið sem hrjáir
Linkin Park. Frekar bjart er yfir
lögunum og sveitin nær að hljóma
einlæg á köflum, sem ég hafði
hingað til talið ómögulegt í þess-
um geira. Sveitin er svo ekkert
feimin við að semja stór epísk
„singalong“ viðlög, sem er frábær
kostur.
Á milli laganna eru skemmti-
legir lagabútar sem tengja öll lög-
in og gefa plötunni heildarbragð
þannig að hún rennur ljúflega í
gegn. Ég hefði ekki trúað þessu,
en þessi plata er samþykkt af
rokkráði Fréttablaðsins.
Birgir Örn Steinarsson
Kemur
á óvart!
Umfjölluntónlist
LOSTPROPHETS:
START SOMETHING
BJÖRN BRÓÐIR kl. 4 og 6 M. ÍSL. TALI
BJÖRN BRÓÐIR kl. 4 og 8 M. ENSKU TALI
THE HAUNTED MANSON kl. 4, 6, 8 og 10
kl. 5.30, 8, og 10.30LOVE ACTUALLY
kl. 3.40 M/ÍSL TALILOONEY TUNES
kl. 3.45 M/ÍSL TALIFINDING NEMO
kl. 6HONEY
SÝND kl. 5.45, 8 og 10.30
SÝND Í LÚXUS VIP kl. 8 og 10.30
kl. 3.45 og 5.50UPTOWN GIRLS
kl. 8 og 10.40BIG FISH
SÝND kl. 4 & 8 SÝND Í LÚXUS kl. 5 & 9
SÝND kl. 8.15 og 10 B i 14 ára
EINGÖNGU SÝND Í VIP kl. 5
kl. 7.15 B. i. 14 áraTHE LAST SAMURAI
kl. 6 M. ÍSL. TALIBROTHER BEAR
HHH Kvikmyndir.com HHH H.J Mbl.
B.Ö.S Fínasta skemmtun Fréttablaðið
SÝND kl. 5.30, 8 og 10.30
SÝND kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 14
kl. 8 og 10.20 B.i. 12 áraTHE HUMAN STAIN
kl. 6 og 8.15KALDALJÓS
kl. 10.10 B.i. 16 áraMYSTIC RIVER
kl. 5.30HEIMUR FARFUGLANNA
FRÖNSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ
Sýnd kl. 10PROXIMÍTAS
FILM-UNDUR KYNNIR
HHH Kvikmyndir.com
HHH H.J Mbl.
B.Ö.S Fínasta skemmtun Fréttablaðið
★★★ S.V Mbl. ★★★ Ó.H.T RÁS2
Mögnuð mynd með
Óskarsverðlauna-
höfunum Ben Kingsley
og Jennifer Conelly
SÝND kl. 5.40, 8 og 10.20
SÝND kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10
B. i. 16 ára
HHH1/2 SV MBL
HHHH Kvikmyndir.com
4 TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
Rúrí segir frá Feneyjum
Á síðasta ári var myndlistar-maðurinn Rúrí fulltrúi Íslend-
inga á Feneyjatvíæringnum, sem
teljast verður einn stærsti við-
burður í myndlistarheiminum. Í
hádeginu í dag ætlar hún að flytja
erindi í Listaháskóla Íslands þar
sem hún segir frá reynslu sinni af
Feneyjatvíæringnum.
„Ég kalla þetta Feneyjarímur,
en þetta verður nú bara frásögn af
þessu. Rímur eru ákveðin tegund
af frásögn,“ segir Rúrí.
„Það tókst að mörgu leyti afar
vel til úti í Feneyjum,“ segir hún,
og bætir við að það sé að miklu
leyti sýningarstjóranum, Lauf-
eyju Helgadóttur, að þakka.
„Hún stóð svo vel að forkynn-
ingu að það var eiginlega brotið
blað með þátttöku Íslendinga í
Feneyjatvíæringnum. Við virð-
umst hafa fengið í skálann til okk-
ar alla gesti sem komu á sýning-
una. Það komu yfir 200 þúsund
manns í skálann hjá okkur, og það
er búið að fjalla mikið um þetta í
heimspressunni.“
Hún segir að þótt myndlistin sé
vitaskuld í aðalhlutverki, „þá nýt-
ist sú orka sem lögð er í sjálft
verkið ekki til fulls nema kynn-
ingin sé í lagi. Það er mjög mikil-
vægt að hafa þetta í huga fram-
vegis þegar Íslendingar taka þátt
í sýningum erlendis“.
Rúrí sýndi úti í Feneyjum
verkið Archive - endangered
waters, sem er einskonar gagna-
banki um fossa á hálendi Íslands.
Þegar mynd af fossi er dregin út
til skoðunar fylgir niðurinn með,
hver foss brestur þannig á með
eigin lagi, og vakti þetta verk
sterk viðbrögð hjá mörgum sýn-
ingargestanna.
„Fólk heillast mjög af fegurð
íslensku fossanna og svo þegar
hljóðið kemur líka verður fólk
sem bergnumið. Það talar líka
mikið um að það vilji sjá þessa
fossa og þetta land.“
Verkið er engin smásmíði og
fjölda manns þurfti til að gera það
að veruleika.
„Allt í allt tóku yfir 20 aðilar
þátt í gerð verksins. Þetta er því
ekkert eins manns verk, heldur
miklu líkara því að gera heila
kvikmynd. Og kostnaðurinn er
eftir því.“ ■
DRYNJANDI FOSSAR HÁLENDISINS Í ÍSLENSKA SKÁLANUM Í FENEYJUM
Verk Rúríar þar vakti sterk viðbrögð sýningargesta. Í hádeginu í dag segir Rúrí frá reynslu sinni af Feneyjatvíæringnum.
■ MYNDLIST