Fréttablaðið - 24.02.2004, Qupperneq 29
ÞRIÐJUDAGUR 24. febrúar 2004
Vinsælustu myndböndin
Fyrir þá sem hafa velt þessumundarlega titli á fimmtu plötu
Incubus fyrir sér þá er þetta vís-
un í undarlega hegðun kráka. Þær
safnast stundum saman á akri í
kringum veikasta fuglinn og ann-
að hvort endar „þingið“ með því
að fuglinn er drepinn af öllum
hópnum eða látinn vera. Hvað
ræður er ekki alveg vitað.
Þessi plata Incubus er mjög
áhugaverð að mörgu leyti. Hún er
einsleit og á hana sárvantar skot-
helda poppslagara en á sama tíma
er hún afar heillandi. Þetta er
metnaðarfull hjómsveitarplata út
í gegn og gæti því virkað erfið við
fyrstu hlustun en hún verðlaunar
við hverja umferð. Þetta er greini-
lega verk þar sem allir leggja
jafnt í púkk og útkoman verður
heilsteyptari en allt það sem sveit-
in hefur látið frá sér áður.
Gítarleikarinn Mike Einziger á
ótrúlega spretti á plötunni, sér-
staklega í lögunum Megalomani-
ac, Sick Sad Little World og Pi-
stola.
Enn og aftur ná Incubus að
enduruppgötva sig sem hljóm-
sveit. Segja skilið, að mestu, við
poppklisjudaðrið frá síðustu plötu
og eru komnir í margra mílna
fjarlægð frá númetalinu sem þeir
hófu ferilinn á. Hér er verið að
gefa bensínið í botn á hreinu
rokki og róli. Nett skvetta af artí
hljóðskúlptúrspælingum hér og
þar. Meira Red Hot Chili Peppers
en Limp Bizkit. Útkoman er besta
plata sveitarinnar frá upphafi.
Birgir Örn Steinarsson
UmfjöllunTónlist
INCUBUS
A Crow Left of the Murder...
Metnaðarfullt
krákuþing
THE ITALIAN JOB
Endurgerð The Italian
Job er í efsta sæti
myndbandalistans. Í
nýju útgáfunni fara
þau Mark Wahlberg
og Charlize Theron
með aðalhlutverkin.
1.498
Áttu eitthvað til að
gera árshátíðar-
kjólinn þægilegri?
QUICK SLIM
Góð leið til megrunar
án þess að nokkur viti.
Áður: 1.998 kr.
T
ilb
o
ð
in
g
ild
a
ti
l 9
.3
. 2
00
4
BIODRAIN
G
O
T
T
F
Ó
LK
M
cC
A
N
N
·
S
ÍA
·
2
5
6
2
1
Náttúruleg úthreinsun.
Dregur úr appelsínuhúð,
bólgum og yfirvigt.
Áður: 3.480 kr. – 180 stk.
Áður: 2.088 kr. – 90 stk.
1.468
BIO-FEM ACTIGEL
Hraðvirkt og árangursríkt við óþægindum
í kynfærum kvenna! Eitthvað sem allar
konur hafa beðið eftir.
Áður: 1.835 kr.
2.590
180 stk.
1.566
90 stk.
FÓLK Það er aldrei gaman að rífast
við maka sinn en John Lydon, fyrr-
verandi söngvari The Sex Pistols,
hefur líklega þakkað skapara sín-
um margfalt fyrir rifrildi sem
hann átti við eiginkonu sína í des-
ember árið 1988. Þá áttu hann og
eiginkonan bókað flug með Pan
Am-flugfélaginu en þau rétt
misstu af fluginu. Ástæðan var sú
að Lydon lenti í hörkurifrildi við
konuna þar sem hún var svo lengi
að pakka fötum sínum.
Flugvélin sprakk í loft upp yfir
Lockerbie í Bretlandi og létust all-
ir farþegarnir 259 auk 11 manna á
jörðu niðri. Vélin var sprengd af
hryðjuverkamanni.
Lydon segir þetta hafa haft
mikil áhrif á líf sitt og að slysið
hafi meðal annars verið ástæða
þess að hann ákvað að yfirgefa
raunveruleikaþáttinn I’m a
Celebrity Get, Me Out of Here
áður en keppninni lauk.
„Við rétt misstum af vélinni út
af því að Nora hafði ekki verið til-
búin tímanlega,“ sagði Lydon í
viðtali við The Sunday Mirror.
„Við rifumst heiftarlega og tókum
næsta flug. Mínútuna sem við átt-
uðum okkur á hvað hafði gerst
horfðum við hvort á annað og féll-
um nánast saman.“
Lydon sagði svo að þáttarstjórn-
endur I’m a Celebrity hefðu ekki
viljað segja honum hvort eigin-
kona hans, sem var í flugvél á leið-
inni til Ástralíu þar sem þátturinn
var tekinn, hefði komist heil á húfi
á staðinn. Þá og þegar hafi Lydon
ákveðið að yfirgefa tökustaðinn og
vera með konu sinni. ■
Íslenska hljómsveitin Ske ernefnd í dagblaðinu New York
Times sem ein af sjö sveitum er
sveima í kringum eyru útvarps-
mannsins Nic Harcourt hjá
KCRW þessa daganna.
Kappinn hefur stjórnað þætt-
inum Morning Becomes Eclectic
á KCRW frá árinu 1998. Þátturinn
er í loftinu á hverjum virkum degi
frá klukkan 9-12 og er stöðin með
þeim stærri í Kaliforníu.
Í grein sinni í New York Times
nefnir hann plötur Franz Ferdi-
nand, Jem, Van Hunt, Gary Jules,
Zero 7, Julieta Venegas og Ske
sem þær athyglisverðustu af
þeim sem eru nýútkomnar.
Um Ske segir hann svo: „Það
virðist vera að Íslendingar eigi
fleiri hljómsveitir á hvern byggi-
legan ferkílómetra en aðrar þjóð-
ir í heiminum. Það kemur sér vel
til þess að þeir hafi af langa og
kalda veturna. Í kjölfar Bjarkar,
Gus Gus og Sigur Rósar, hafa
liðsmenn Ske fyllt frumraun sína,
Life, Death, Happiness and Stuff,
af einstöku, tilraunablönduðu,
melódísku jaðarpoppi. Til þess að
toppa svalleikan eru bæði fransk-
ar og japanskar gestasöngkonur.
Veturinn er strax orðinn hlýrri.“
■
JOHNNY ROTTEN
John Lydon hætti að nota listamanns-
nafnið Johnny Rotten þegar The Sex
Pistols lögðu upp laupana.
Missti af dauðaflugi
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
TOPP 20 - VINSÆLUSTU LEIGUMYND-
BÖNDIN - VIKA 8
THE ITALIAN JOB
Spenna
AMERICAN WEDDING
Gaman
PIRATES OF THE CARIBBEAN
Ævintýri
MY BOSS’S DAUGHTER
Gaman
BRUCE ALMIGHTY
Gaman
BAD BOYS 2
Spenna
FREDDY VS. JASON
Hrollvekja
DUMB AND DUMBERER
Gaman
DOWN WITH LOVE
Söngleikur
LEAGUE OF EXTRAORD. GENT.
Ævintýri
TOMB RAIDER 2
Ævintýri
HOLLYWOOD HOMICIDE
Gaman
CITY OF GOD
Drama
THE LIFE OF DAVID GALE
Drama
HOW TO LOOSE A GUY...
Gaman
HOW TO DEAL
Gaman
THE IN-LAWS
Gaman
TEARS OF THE SUN
Spenna
OUT FOR A KILL
Spenna
WHAT A GIRL WANTS
Gaman
SKE
Liðsmenn Ske baksviðs á Hróarskelduhátíðinni í fyrra en þar kom sveitin fram.
Ske í New York Times