Tíminn - 06.01.1972, Blaðsíða 1
3. tbl.
Fimmtudagur 6. janúar 1972 —
56. árg.
Samdráttur í
álframleiðslu í
Noregi vegna
sölutregðu
EJ-Reykjavík, mánudag.
í árslok 1971 var áætlað, að
birgðir af áli í Noregi væru um
100 þúsund tonn, að verðmæti
eða um 4—4,5 milljarðar ísl. kr.
300—350 miljónir norskra kr.
Vegna markaðsörðugleika hefur
dregið úr álframleiðlunni í Nor-
egi á síðasta ári um 16%.
í fréttabréfi frá Útflutningsráði
Noregs segir, að Noregur sé nú
stærsti álframleiðandi í Vestur-
Evrópu, og fjórði í röð álfram-
leiðenda heimsins. Um 90% af ál-
framleiðslunni eru flutt út, og er
Noregur annar stærsti álútflytj-
andi heimsins, næst á eftir Kana-
da. Á1 er stærsti útflutningsiðn-
aður Noregs, og nemur álútflutn-
ingur um 12% af útflutningstekj
um landsins.
Álútflutningurinn náði hámarki
árið 1969, en minnkaði 1970 vegna
erfiðleika á hinum alþjóðlega ál-
markaði og offramleiðslu, og út-
flutningur siðasta árs varð siðan
enn minni en ársins 1970.
Markaðsörðugleikarnir hafa
leitt til þess, að dregið hefur ver-
ið úr framleiðslunni um að meðal
tali 16% á síðasta ári jafnframt
því sem miklar birgðir hafa hlað
izt upp. Þá hefur mjög verið dreg-
ið úr aukningu á framleiðslugetu,
en framleiðslugeta álverksmiðja
í Noregi er í heild um 640 þús.
tonn. Talið er, að ýmsar umbætur
í álverksmiðjunum muni auka
framleiðslugetuna upp í um 800
bús. tonn á næstu árum, en hins
vegar er smíði nýrra verksmiðja
ekki fyrirhuguð.
mmmzm g § «|
Æ IfÍÉ Éffi m
yíý’M. ",'/%: //■ "' // ■
Varnarliðsþyrla
bjargaði fíug-
• r
manni ur s/onum
hálftíma eftir að flugvélin
nauölenti við Engey
í dag í sjóinn um eina mílu norð-
an Engeyjar. Flugmaðurinn var
einn í vélinni, og var hann í sjón-
nm í rúman hálftíma áður en hon-
um var bjargað upp í þyriu frá
Varnarliðinu. Flugmaðurinr., Erl-
inp Aðalsteinsson, var orðinn mjög
kaldur og einnig fékk hann mikið
höfuðhögg þegar vélin lenti í sjón-
um. Sítðari hluta dags var Erling
farin að hressast og líður orðið
eftir atvikum vel. Flugvélin var
fjögurra sæta Cessna 172 Sky-
hawk.
Lágskýjað var og skyggni ekki
gott þegar flugmaðurinn var að
umdirbúa lendingu á Rsykjavíkur-
flugvelli. Hafði hann siðast sam-
bard við flugturninn kl. 13,05. Til-
kynnti Erling þá að hann væri yf-
ir ytri höfininni og mótorinn bil-
aður. Flugtuminn bað um nánari
staðtirákvörðun, en eina svarið
sem fékkst var ,,í 500 fetum“. Flug
umferðarstjórinn, sem hafði sam-
band við Erling, kallaði hann upp
Framhald á bls. 14
Efri myndin var tekin rétt um lei®
og þyrlan lenti, en sú neðri þegar
flugmaSurinn var borinn i sjúkra-
bílinn á Reykjavikurflugvelli.
Félagsbúin voru 237 og þar
bjuggu um 9% ailra bænda
segir í ritgerð um félagsbú á Islandi í Árbók landbúnaðarins
EB—Reykjavík, miðvikudag.
— Veturinn 1963—’64 töldust
á landinu 237 félagsbú, þar sem
bjuggu samtals 488 bændur. Voru
það um 9% allra bænda í land-
ijiu, en um 13% allra giftra bænda.
Með einni undantckningu var um
fólk úr sömu fjölskkyldu að ræða
á búunum. Oftast voru bændurn-
ir af tveimur kynslóðum, þó að
bú bræðra væru allalgeng, segir
Björn S. Stefánsson í ritgerð um
félagsbú hérlendis og birt er í
núkominni Árbók landbúnaðarins
1971. Byggir þessi ri.tgerð á at-
hugunum, sem voru að mestu gerð
ir 1963—’66.
Björn segir, að ráðunautar bún-
aðarsambandanna hafi verið spurð
ir álits á félagsbúum og mætti
segja, að þeir hafi talið þau
æskilegt rekstrarform, þó að sum-
ir væru vantrúaðir á, að þau gætu
orðið algeng. Voru þau af ýms-
um talin eiga að geta bætt kjör
manna, þó að reynslan væri ekki
ótvírætt sú, en helzt voru menn
sammála um, að vinnuSkilyrði á
þeim væru betri en á einyrkja-
búum. Var bent á, að oftast væri
um að ræða flutning á búi milli
kynslóða.
í ritgerð Bjöirns telst félagsbú,
þar sem tveir eða fleiri giftir
bændur hafa að minnsta kosti
heyskap sameiginlega, en hvor eða
hver um sig vinnur ekki minna
en fjóra mánuði á árinu. Mark-
mið þeirrar rannsóknar, sem gerð
var á félagsbúunum var þríþætt:
í fyrsta lagi að rannsaka kringum-
stæður á búunum og í þriðja lagi
að greina þau skilyrði, sem full-
Framhald á bls. 14.
//
Fráleitt að unr lögbrot sé að ræða"Sjá bls. 3
frásögn af blaðamannpfuncP Halldórs E. Sigurðssonar, fjármálaráðherra.