Tíminn - 06.01.1972, Qupperneq 2
2
TIMINN
FIMMTUDAGUR 6. janúar 1973
VeðurathugunarhúsiS á Hveravöllum.
(Tímamynd Kárl)
Drap mink með gólfskrúbb í
baðberberginu á Hveravöllum
Veðurathugunarhjóriin áttu sérstaklega góð jól í einverunni.
SBReykjavflí, miövikudag.
Haukur Ágústsson, veðurat-
hugunarmaður á Hveravöllum,
lagði að velli mink í baðher-
berginu þar á staðnum á sunnu
daginn. Tíminn hringdi í Hauk
í dag, innti hann eftir þessu
atviki og auk þess jólahaldinu
í óbyggðunum og gestakomum
að Hveravöllum.
— Þetta með minkinn er í
sjálfu sér ekki stórmerkileg
saga, sagði Haukur. — Það er
lítið um ferfætt dýr hér á
Hveravöllum, ekki nema hund-
urinn Eyvindur og kötturinn
Halla. Tófur hafa verið hérna,
en síðasta tófugrenið var unn-
ið í hrauninu hérna fyrir
nokkrum árum. Tveir minkar
h«fa verið drepnir hérna áður.
(Óskar Guðmundsson, bóndi á
Brú í Biskupstungum drap
þann fyrri í ágúst 1970, en
Kristján Hjálmarsson, veðurat-
huganarmaður þann síðari 31.
janúar í fyrra).
— Þannig hagar til, hélt
Haukur áfram, — að dísilskúr
svokallaður er skammt frá
íveruhúsinu. Ég var staddur í
díselskúrnum um þrjúleytið á
sunnudaginn ,þegar mér varð
litið út um gluggann og sá
eitthvert lágfætt kvikindi
skríða eftir fönninni við íveru-
húsið. Fyrst hélt ég, að þetta
væri tófa og ákvað að láta
hana eiga sig.
Þegar ég síðan geng heim að
húsinu, hafði ég meðferðis
skóflu, því ég ætlaði að grafa
upp vatnsrás fyrir það vatn,
sem safnast við íveruhúsið í
þíðu, en rásin var stífluð af
krapi. Þá sá ég dýrið koma á
móti mér, án þess að það væri
hið minnsta hrætt við mig.
Þegar ég sá, að þetta var ekki
tófa, heldur minkur, hugðis-t ég
reyna að leggja hann að velli
og stökk til með skófluna og
sigaði Eyvindi. En minkurinn
slapp niður í niðurfallsrörið
frá húsinu og ég gat ekki náð
honum upp þaðan. Um það var
þá að ræða, að hann myndi
skolast niður í safnþróna og
verða til þar, eða koma upp
inni í húsinu.
Ég fór þá bara inn og þegar
liðnar voru um tvær klukku-
stundir, heyrði Hilda konan
mín, inn í stofu, að verið var
að krafsa innan á baðherbergis
hurðina. Hún gægðist inn og
sá þar rennblauta og undar-
lega rislága skepnu á miðju
gólfi. Fyrst hélt Hilda að þetta
væri kötturinn Halla, sem
hefði verið að sulla, en mundi
svo eftir minknum, sem ég
hafði sagt henni frá og áttaði
sig á, að þarna mundi hann
kominn. Hilda náði í mig, með
an Eyvindur stóð vörð í dyr-
unum. Ég náði mér í gólf-
skrúbb, sem ég notaði svo til
að ráða niðurlögum minksins.
Þetta var svo scm enginn hetju
skapur, skepnan var miklu
minni en ég, en þessi atburð-
ur lifgar svolítið tilveruna hjá
okkur. Ekki svo að 'skilý', að
okkur leiðist, okkur líður mjög
vel hérna.
— Hvernig var að halda jól
í óbyggðum?
— Við áttum alveg sérstak-
lega góð jól hérna. Þau voru
okkur meira virði hérna upp-
frá, en mörg undanfarin jól
í byggð. Við erum bæði úr
Reykjavík og höfum yfirleitt
haft mikið að gera flest jól,
þar sem við vorum bæði kenn
arar og því starfi er mikið
stúss samfara við að undirbúa
jólaskemmtanir og litlu jólin
í skólunum, auk okkar eigin
jólaundirbúnings. Hér á Hvera
völlum höfðum við ekkert af
slíku að segja, og Þar sem hér
eru engar verzlanir, hafði mað
ur nægan tíma til að njóta
þess, að jólin voru að koma,
og njóta beirra, meðan þau
voru, öfugt við það sem verið
hefur í Reykjavík. Við settum
hér upp jólatré og jólaskraut
og hengdum jólasamstæðu ut-
an á dísilskúrinn, svo þetta
varð allt mjög jólalegt. Að
vísu var veðrið ekki jólaveður,
fyrst þíða, þá geysileg rign-
ing og slydda og hvassviðri,
svo maður varð að berjast út
og inn hverju sinni. En það
skyggði ekki á jólagleðina.
— Hvenær fenguð þið síð-
ast heimsókn?
— Þann 7. desember komu
hingað menn frá Selfossi.
Fyrirliði leiðangursins var Ól-
afur fshólm, lögregluþjónn á
Selfossi. Ólafur er orðinn fast-
ur liður í lífinu hérna, hann
hefur haft það fyrir venju síð-
an menn fóru að vera hér upp
frá, að koma hingað á hverju
ári í desember og aftur þeg-
ar fer að vora. Hann er orðinn
eins konar milliliður milli
Hveravalla og umheimsins.
Jón Skaftason kjörinn í for-
sætisnefnd Norðuriandaráðs
Fólk sem ekki þekkist
Sjónvarpið hættlr stundum á það
að taka til meðferðar mál í þeim
mæli, að áhorfendur búast við að
þátturinn springi í loft upp áður en
honum lýkur. Þess eðlis var þáttur,
sem sýndur var á þriðjudagskvöld-
ið og nefndist verkalýður og vinnu-
veitendur. Var ekki að sökum að
spyrja að eitthvað gerðist tíðinda
f hlnu merka tæki fyrst Ólafur
Ragnar Grímsson er kominn þangað
f annað sinn með þátt. Vonandi tekst
svo til í þetta sinn, að um einhverja
viðdvöl verði að ræða, þvi sannleik-
urinn er sá, að hvað sem líður deild-
um meiningum um einstaka efnis-
atriði, þá þorir þó Ólafur Ragnar
því að halda áhorfendum við tækið.
Ólafur Ragnar sér svo um að halda 1
þátttakendum við efnið.
Þessi fyrsti þáttur Ólafs Ragnars
bar nokkurn keim af Dagsbrúnar-
fundi, þegar Ebbi og Guðmundur J.
eru að bera samnlngstilboð undir
atkvæði. Menn láta svo sem til sín
heyra á slíkum fundum, þótt þeir
kalli varla fram ! fyrir forustu-
mönnum sinum, og segi að málflutn-
ingur þeirra sé frá þvf um 1750,
i eins og gerðist f sjonvarpsþættinum.
Annars er það athyglisvert. h/ert
djúp er staðfest milli launþega og
vinnuveitenda, : em m.a. virðis* stafa
af þvi,- að þessir aðilar haG aldrei i
lýðræði til að lægjn sffkar öldur.
Margt má af svona sjónvarpsfundi
læra, Hvorugur aðila, hvorki, vlnnu-
veitendur eða verkalýður, vlrðist
geta lagt á borðið einhverjar þær
lausnir á gagnkvæmu vantrausti,
sem að haldi mega koma. Samvlnnu-
form, atvinnulýðræði eða eignar-
hluti í fyrirtækjum eiga sina and-
mælendur. Jafnvel forusta verka-
lýðsins virðist liggja undir skothrið
fyrir að semja. Allt bendir þe+ta tll
þess að slagurinn sé enn í nokkrum
metum, slagsins vegna, og menn
horfi melra beint út úr sínum bæjar
dyrum en þelr hafi stóra yflrsýn
yfir sviðið. Nú, þetta ættu svo sem
ekki að vera nein tiðindi. (sland var
ekki heimsmethafl I verkföllum af
ástæðulausu. Hins vegar liggur í
augum uppi, að viðræðufundir mllli
vinnuveitenda og iaunþega á al-
mennum grundvelli væru næsta
þarfir, þótt ekki væri til annars en
eyða þeim misskilníngi að einn sé
stöðugt að reyna af svikja annan.
Tvö hundruð þúsund hræður. sem
tala sama tungumálið ættu ekki að
þurfa að þrefa um bókhaldið.
KJ—Reykjavík, miðvikudag.
Fulltrúar Alþingis í Norður-
landaráði héldu fund með sér í
gær, og var þá Jón Skaftason al-
þingismaður kjörinn í forsætis-
nefnd Norðurlandaráðs, en auk
þess var fulltrúum skipað í nefnd
ir. Forsætisnefnd Norðurlandaráðs
heldur fund í Stokkhólmi um
miðjan þennan mánuð, og situr
Jón Skaftason þann fund ásamt
Friðjóni Siguirðssyni skrifstofu-
stjóra Alþingis, en hann er fram-
kvæmdastjóri íslandsdeildar Norð
urlandaráðs. Á fundinum í Stokk
hólmi verður rætt um undirbúning
að þingi Norðurlandaráðs, sem að
Flenzan
fer hægt
FB—Reykjavík, mánudag.
Svo virðist, sem bólusetningar-
herferðim gegn inc'.úensunni hafi
borið tilætlaðan árar.gur, þar sem
svo til ekkert hefur frétzt af flenzu
hér á landi að undanfömu. Blað-
ið fékk þær upplycmgar hjá borg-
arlæknisembættinu, að uðeins
einn læknir hefði hringt þangað
og skýrt frá því, að hann he.fði
fengið tilfelli, sem nær fullvist
væri að væri flenzan, og var þar
um a@ ræða sjúkling, sem nýkom-
inn var frá Málmey í Svíþjoð Af
öðrum tilfellum hefur ekki frétzt,
og séu þau einhver ,eru þau svo
fá og dreifð, að ekki hefur verið
talið í frásogur færandi.
Færöin yfir
Möörudals-
öræfi eins og
að sumarlagi
ÞÓ—Reykjavík, miðvikudag.
1 nótt fór lest vöruflutningabíla
fná Austurlandi yfir Möðrudals-
öræfi og gekk sú ferð mjög vel.
Meðal vöruflutningabílanna voru
tveir bílar frá Neskaupstað og
höfðum við saniband við bílstjór-
ann á öðrum þeirra, er bílarnir
voru komnir í Húnavatnssýslu. Þar
sem talstöðvarsamband var ekki
gott gátum við lítið rætt við bíl-
stjórann, en hann sagði okkur þó,
að færðin yfir öræfin hefði verið
mjög góð, og væri hún ekki mik-
ið verri en að sumarlagi. Á sjálf-
um öræfunum eru smáskaflar hér
og þar, en þeir eru það harðir að
öll farartæki ættu að geta kom-
izt yfir þá.
Það hefur ekki gerzt síðan 1955,
að farið hefur verið yfir Möðru-
dalsöræfi á þessum árstíma.
Fyrirlestur
HagaHns
Fyrirlestrar Guðmundar G.
Haealín í Háskólanum hefjast aft-
ur í dag, fimmtudag, og að bessu
sinni kl. 18,15. Hagalír. mun ræða
um Sveinbjörn i/gilsson. Ölium er
hmmill aðgangur að fyrirlescriT'-
um.
þessu sinni verður haldið í Hels-
ingfors og hefst 19. febrúar.
Fulltrúar íslands í efnahags-
málanefnd eru Jóhann Hafstem
og Jón Skaftason. í félagsmála-
nefnd er Bjarni Guðnason, í laga-
nefnd Matthías Á. Matthíesen, í
menningarmálanefnd Gylfi Þ.
Gíslason, í samgöngumálanefnd
Gils Guðmundsson og í upplýsinga-
og ritnefnd Gylfi Þ. Gíslason og
Gils Guðmunofson.
Jón Skaftason
Á víðavangi
Framhald af bls. 3.
að, sem er okkar lang mikil-
vægasti og bezti markaður og
mikill meirihluti allra við-
skipta okkar fer fram í doll-
urum. Þessi ákvörðun var tví-
mælalaust rétt og hafði lang
minnsta röskun í för með sér
fyrir íslenzkt efnahags- og at-
vinnulíf miðað við þá valkosti
viðbragða gegn áhrifum, sem
íslenzk stjórnvöld áttu enga
sök á. Þessi ákvörðun rflds-
stjórnarinnar hefur heldur
ekki verið gagnrýnd opinber-
lega af neinum sem röng
ákvörðun, fyrr en þessi skæt-
ingur kemur frá foringja
stærsta stjórnarandstöðuflokks
ins í áramótahugvekju. Ef Jó-
hann Hafstein vill gagnrýna
þessa ákvörðun íslenzku ríkis-
stjómarinnar er honum það
heimilt og ef hann telur liana
ranga, er honum beinlínis
skylt að gera það. En Jóliann
Hafstein verður að skilja það
fyrr en síðar, ef hann ætlar
.' sér að halda formannsstöðu í
'stærsta stjórnmálaflokki lands-
ins, að það eru gerðar kröfur
til þess að frá manni í þeirri
stöðu, komi málefnaleg rök í
stað skætings, og þess vegna
verður ekki komizt hjá því nú
að spyrja Jóhann Hafstein:
Hvað vildi hann þá gera, fyrst
hann er ekki ánægður með þá
ákvörðun íslenzku ríkisstjórn-
arinnar um að halda óbreyttu
stofngengi íslenzkrar krónu
gagnvart dollar? Svari Jóhann
ekki, staðfestir það aðeins
hvers eðlis áramótahugvekia
hans er. — TK
Flug
Framhald a+ bls 16
en þotur lentu þar 3.051 sinnum,
sem er 46% aukning frá 1970. —
Á Reykjavíkurflugvelli lentu far-
þegaflugvélar innanlands 9.849
sinnum, sem er 31% aukning mið
að við 1970. Farþegaflugvélar
milli landa lentu 689 sinnum á
Reykjavíkurflugvelli og er það
29.4%, aukning frá árinu á undan.
35 sinnum lentu herflugvélar á
Reykjavíkurflugvelli á síðasta ári
og 7.356 sinnum ientu smáflug
vélar h»r.
að vera til, sem verður að teljast
kostur, sem ráði úrslitum, þar sem
'eikna má með að forráðamönnum
síónvarpsins byki nokkur ?Kkur í
mætzt til viðræðna fyrr en þá þarna
í sjónvarpinu. Þeir úr launþega-
stétt, sem höfðu cppi mest frammi-
köll voru í sannkól luðum stríðshug.
Það mun þurfa lanpvarandi at/innu-
Sva rthöfðl.