Tíminn - 29.01.1972, Síða 5
LAUGARDAGUR 29. janúar 1972
TÍMINN
5
Eitt fyrsta barn af hverjum
fjórum i Frakklandi kemur undir
utan hjónabands, að þvi nýleg
skoðanakönnun leiddi i ljós.
Einnig kom fram, að meðal-
giftingaraldur franskra kvenna
er 23 ár, en karlmanna 26 ár.
Verkamenn kvænast yngstir, en
bændur siðastir allra, 27 — 28 ára.
Giftingaraldur kvenna er hinn
sami i öllum starfsgreinum,
nema hvað aðeins er hægt að sjá
mun á hvað menntakonur giftast
seinna hinum, og þvi meira, sem
kona er menntuð, þvi minni likur
á, að hún eignist barn utan
hjónabands. Kvennablaðið ELLE
gerði skoðanakönnun og þar kom
i ljós, að fóstureyðingar i Frakk-
landi eru næstum milljón á ári, og
10% þeirra hjá stúlkum yngri en
15 ára. Það stórkostlegasta i
þessari skoðanakönnun var, að
blaðið lét 12 unglingsstúlkur segja
foreldrum sinum, að þær væru
ófriskar, aðeins til að kanna við-
brögð þeirra. Þau voru aðeins
tvenns konar. — Við verðum að
flytja, eða — Ég þekki ágætis
fóstureyðara. Helmingur
mæðranna tók fréttunum illa, að
þvi er blaðið sagði. Ein móðirin
sagði, að þetta væri skömm fyrir
fjölskylduna.
Dýragarðurinn i Basel i Sviss
á heimsmet i nashyrninga-
ffæðingum. Nashyrningamóðir-
in, sem á þetta nýfædda krtli á
myndinni, varð amma rétt eftir
að þessi dóttir fæddist. Barna-
barnið var tólfta nashyrnings-
barnið, sem fæddist i dýragarði
þessum, og er það algjört
heimsmet. Ef einhver skyldi
vilja óska ömmunni til ham-
ingju, þá heitir hún Joymthi og
heimilisfangið er áður nefnt.
Litli snáðinn með
kúluhattinn heitir Russell
Lewis og er sagður ákflega
hæfileikamikill leikari. Hann
leikur engan annan en Win-
ston Churchill i nýrri fram-
haldssjónvarpsmynd um þann
góða mann. Russel litli leikur
þó aðeins Churchill sem barn,
í Leningrad er hafin bygg-
ing stærsta tankskips í Sovét
ríkjunum, sem heita skal Mír
og á að verða 180.000 tonn.
Það var í hönnunarstof-
unni Baltsjúdoprojekt, sem
teikningarnar af Mír urðu til.
Það var einmitt á þeim stað,
sem fyrsta tegund sovézkra
tankskipa var hönnuð
skömmu eftir stríð, Kazbek-
gerðin svokallaða. Þessi hönn
unarstofa teiknaði einnig
Sofíu-gerðina, en þeir tankar
hafa verið stærstir í SSSR
hingað til, en Mír mun geta
tekið þrefalt meiri farm. —
Lengd skipsins verður 293 m.
að sögn yfirverkfræðingsins,
N. Rodinovs, en breiddin 45
m. Hæðin frá kili til efstu
hæðar yfirbyggingarinnar
verður 52 m., eða eins og 17
hæða íbúðarhús. Skipið á að
geta siglt stanzlaust 80 sólar-
hringa án þess að þurfa að
taka eldsneyti, matvæli eða
vatn, og getur á þeim tíma
lagt að baki rösklega 20 þús.
mílur. Hraðinn verður 17
hnútar, vélarafl 30 þúsund
hestöfl.
En til hvers er verið að
byggja svona stór tankskip?
Hönnuðir þess svara því til,
að eftir því sem tankskip sé
stærra, þeim mun ódýrara sé
en hann virðist hafa ágætis-
vald á hlutverkinu. Churchill
var á þessum aldri varla
farinn aó reykja vindla, en
ekki verður betur séð, en hann
hafi þarna þegar tamið sér
sigurmerki sitt:,,V for vic-
tory” — til sigurs.
það í rekstri. Á flutningaleið
inni Svartahaf—Ítalía getur
Sofía flutt út 1500 þús. tonn
á ári, en Mír 4500 þús. Mír
mun eyða 36 prósent minna
eldsneyti á hestafl. saman-
borið við Sofíu. Áhöfnin
verður 36 manns, eða um
helmingi færri en á Sofíu.
Til að tryggja öryggi í
stjórn þessa mikla bákns, sér-
staklega í þröngum sundum
og í höfnum, er sérstakur út-
búnaður, búinn tölvu. Sjálf-
virkni verður einnig beitt við
stjórn aðalaflvélarinnar, sem
og við lestun og uppskipun.
Mír verður ekki lengi að
skipa upp olíunni, hann er
með þrjár dælur, sem tæma
tankana, alla 13, á 10—12
tímum. Aðalgeymirinn nær
borða milli og gegnir því
hlutverki að draga úr veltu.
Undir geymunum er botninn
tvöfaldur til að koma í veg
fyrir olíuleka, jafnvel þó svo
að skipið renni á grunn. Sér-
stakt gaseyðingarkerfi kem-
ur í veg fyrir sprengihættu.
Að sjálfsögðu er reynt að
gera aðbúnað áhafnar sem
beztan. Hún mun búa í ein-
menningsklefum, sérstök
lækningadeild verður á skip-
inu ásamt opnum „íþrótta-
velli“ og flotsundlaug.
smakkað vin i hálfan mánuð.
— Hvað finnst prófessornum svo
um konur? spurði blaöamaðurinn
prófessorinn, sem var afskaplega
viðutan.
— Konur? svaraði prófessorinn
og strauk sér um ennið.
— Eru það ekki þær, sem ganga
aftur á bak, þegar maður dansar?
— Pabbi minn og mamma eru
skyld, þess vegna er ég svona
likur sjálfum mér.
— Þú ert svo gremjulegur á
svipinn Jón. Hvað er að?
— Það er hreint ekki svo litið.l
gærkvöldi varð billinn minn
bensinlaus og ég fann ekkert betra
ráð en hella á hann einni viský-
flösku, þeirri, sem ég ætlaði að
geyma til afmælisins. Fimm
minútum seinna stanzaði svo
lögreglan mig fyrir aö aka með
þokukennd framljós...
Falleg ung stúlka i finum pels
kom inn i apóteki og bað að láta
skipta seðli i smátt. *iðan steig
hún á vigtina, en greip andann á
lofti, þegar hún sá hvar visirinn
stanzaði. Þá fór hún úr pelsinum,
settiannan pening i, en var samt
ekki ánægð, sparkaði af sér
skónum og reyndi aftur. Þá fór
hún úr peysunni, en þegar hún
steig niður af vigtinni, kom apó-
tekarinn með fullan lófann af
smápeningum og sagði: — Hér
eftir er það á minn kostnað,
fröken.
— Dóttir min hefur erfti tón-
listargáfur minar og sonurinn
fjármálavit föður sins.
DENNI
DÆMALAUSI
— Mér finnst þetta ekki góður
biti. Má ég reyna aftur?