Tíminn - 29.01.1972, Side 6
6
TÍMINN
LAUGARDAGUR 29. janúar 1972
Vann í perugetraun
Um sl&astliðin áramót cfndi
Smjörliki, h.f. til getraunar.
HeitiO var að verðlauna þá, sem
gætu nefnt hve margar perur
væru á jóiatrénu á Austurvelli.
Mikill fjöldi tók þátt i þvi að leysa
þrautina, en engum tókst að finna
réttu töluna, sem var 211.
Dregið var um verðlaun þeirra,
sem næstir voru réttri lausn.
Fyrstu verðlaun (talið frá hægri)
hlaut Kristján Júliusson, Reykja-
vik, kr. 4000 og kassa af Jurta
Smjörliki. Valur Guðnason tók
við 1000 króna verðlaunum fyrir
fyrir hönd frænda sins Guð-
mundar Þorvar&arsonar I
Stykkishólmi, og Agúst Hinriks-
son hlaut einnig 1000 króna verð-
laun.
Byggjum ódýrari vegi
4
segir Sverrir Runólfsson
OÓ—Reykjavik.
Tæpast hefur farið fram hjá
neinum að Sverrir Runólfsson,
vegagerðarmaður, er mikill
áhugamaður um sitt fag, sem
hann vann við i Ameriku i mörg
ár. Þykir Sverri landar sinir sitja
heldur aftarlega á merinni hvað
viövikur vegagerð og vill bæta
þar úr. Það sem einkum vakir
fyrir Sverri er að leggja vegi á
Islandi á hagkvæmari hátt en nú
er gert, að gera vegalagningu
ódýrari og fljótvirkari en nú tiðk-
ast. Hefur hann barizt fyrir þessu
hugöarefni sinu af eldmóði hug-
sjónamannsins, og verið óspar að
lýsa kostum vélarinnar góðu
„The Mix In Place”, sem er
vegagerðartæki, er Sverrir telur
eitt hæfa til aö leggja vegi á hag-
kvæman hátt.
Aftur á móti eru þær aðferöir,
sem hér eru notaðar við vegagerö,
alltof dýrar að mati Sverris, og
felst kostnaðurinn að miklu leyti i
þvi,að efni til veganna er flutt um
langan veg, en með vélasam-
stæðum þeim, sem Sverrir hefur
ávallt i huga,er hægt að nota þann
jarðveg, sem fyrir hendi er
hverju sinni sem efni i vegina.
Nú hefur Sverrir sent frá sér
svar við greinargerð Vegagerðar
rikisins og Rannsóknarstofnunar
byggingariðnaðarins, sem þessir
aðilar birtu i fyrra, vegna um-
mæla og staðhæfinga Sverris um
vegalagningu. I svarinu segir
m.a.:
Þaö eru til hundruö bindiefna,
þvi til sönnunar vitna ég I bréf,
sem ég fékk frá formanni jarð-
vegsbindingarnefndar Vega-
„Stolnu” veskin týnd
á heimili eigandans
OÓ—Reykjavik.
— Það hefði verið nær að
gefa stelpunum upp sima-
númerin okkar þegar þær
báðu um það. Þá heföum við
ekki lent i þessu veseni, sögðu
piltarnir tveir, sem sagt var
frá i siðprentaöri frétt i
Timanum i gær. Var þar skýrl
frá þvi að þeir hefðu stolið
tveim kvenveskjum og voru 10
þús. kr. i öðru þeirra. Var
„þjófnaðurinn” kærður. En
þegar betur var að gáð stálu
strákarnir aldrei neinu, þvi
þegar þeir urðu þess varir, að
veskin voru i bilnum, eftir að
þeir voru búnir aö yfirgefa
stúlkurnar við Umferða-
miöstöðina, fóru þeir þegar
heim til einnar þeirra og
skiluðu veskjunum. Þar tóku
börn viö þeim og gleymdu að
segja til þeirra. Þegar svo
piltarnir sáu i blöðunum að
þeirra var leitað fyrir þjófnað,
höfðu þeir samband viö lög-
regluna. Fóru lögreglumenn I
viðkomandi hús og fundu
veskin uppi á hillu, þar sem
börnin létu þau, strax eftir aö
þeim var skilaö.
Piltarnir segja, að stúlk-
urnar hafi komið að bil þeirra
á bilastæðinu, þar sem Hótel
lsland stóð eitt sinn, og hafi
beðið þá að aka sér heim.
Tóku þeir vel i það en þá vildu
stúlkurnar fara ýmsa útúr-
dúra og nefndu við þá hvort
þeir vildu nú ekki vera svo
vænir og aka þeim enn lengri
túra næsta dag. Vildu þær fá
heimilisföng þeirra og sima-
númer,en eins og penum pilt-
um sæmir;gáfu þeir hvorugt
upp.
Svo var ekið að Umferða-
miöstöðinni og fóru stúlkurnar
þar inn, en strákunum kom
saman um að timi væri til
kominn að slita kunnings-
skapnum og brunuðu á brott.
Klukkustund siöar urðu þeir
varir við veskin i bilnum og
fóru með þau heim til einnar
stúlknanna, en heimilisfang
hennar var á skilrikjum i
veskinu.
Heföu þeir gefið upp sima-
númer sin, hefði verið
auövelt að hafa samband við
þá og hið sanna um verustað
veskjanna komið I íjós.
byggingamanna Ameriku, par
segir: Um 200—250 tegundir af
asfalti (penetration asphalt
cement) hafa verið notaðar með
hreyfanlegri blöndunarstöð i
Iowa og Minnisota rikjum.
I greinargerðinni segir: „Þar
sem ekki er til gott steinefni af
náttúrunnar hendi, hafa þær
(aðferðirnar: mitt innskot)
valdið byltingu i vega- og flug-
vallagerð”, ennfremur segir:
„Hér á landi er viðast hægt að fá
góða og ódýra möl”. Þá er mér
spurn. Hvers vegna er verið að
flytja oliumöl hér, mörg hundruð
km?
Þvi miður talar greinargerðin
ekki um kostnað og endingu vega
hér, i samanburði við erlendis. Ef
ég hef fengið réttar tölur frá efna-
framleiðendum, verktökum, oliu-
félögum hér og lika frá greinar-
gerðinni, þá reiknast mér til að
blöndunarkostnaður hjá Oliumöl
h.f., sé yfir 600 kr. á rúmmetrann.
Að minu áliti (samkvæmt verk-
skýrslum og reynslu.sem ég hef)
ætti blöndunarkostnaður á rúm-
metrann að vera milli 25—30 kr.
Mér er sagt að olian i rúm-
metrann kosti hér c.a. 300 kr. Ef
rúmmetranum er breytt i 20
parta (5 cm. þykk slitlög, sem
yfirleitt eru lögð hér), kostar
olian i'hvern fermetra 15 kr. Þaö
er hægt að nota tveggja cm. slit-
lag ofan á bundna undirstöðu, ef
umferðin er litil (en aldrei undir
10 tonna öxlaþungatak-
marki).
I greininni „Lime (kalk)
Stabilization” eftir R.S. Boynton
segir: A stærri vegaverkefnum
hefur kostnaður á fermetrann
komizt niður i 28 kr. 1 þessu verði
var efni, blöndun, lagning og
völtun innifalin. Við verðum að
komast I þá aöstööu, aö hver km.
af tveggja akreina varanlegum,
fullgerðum vegi kosti okkur ekki
meira en c.a. tvær millj. kr.
(undirbúningur upp aö efstu 8
tommunum c.a. 100 kr. (einn
dollar), næstu 6 tommurnar c.a.
30 kr. (30 cent) og slitlagið ca. 43
kr. (43 cent). Þannig mundu tvær
millj. á km. gefa c.a. 15% ágóða á
verkunum, sem mér finnst sann-
gjarnt, og yfirleitt er reiknað
með. Þegar þetta tekst, þá væri
ekki langt aö biða þar til vega-
kerfi landsins veröur mönnum
bjóðandi.
Það eina sem gildir i vegagerö
er, hvað kostar fermetrinn og
hvað endist hann lengi?
Margir góðir gestir
hjá sinfóníunni
SB—Reykjavik.
Siðara misseriit sinfóniuhljóm-
sveitarinnar er nú hafið og stjórn-
aði Jindrich Rohan frá Ungverja-
landi fyrstu hijómleikunum.
Aörir stjórnendur á misserinu
verða þeir Proinnsias O’Duinn,
Valclav Smetacek, Róbert A.
Ottósson og Bodan Wodiczko.
Af einleikurum má nefna þá
Endre Granat, fiðluleikara,
pia nó 1 e ika ra na Rudolf
Firkussny, Alicia de Larrocha og
Gisla Magnússon? óbóleikarann
Sidney Sutcliffe og norsku söng-
konuna Aase Nordmo Lövberg.
Fyrsti einleikarinn var fiðlu-
leikarinn Leon Spierer frá Berlin.
Þá mun hljómsveitin flytja Te
Deum eftir Dvorack og ein-
Góð loðnu-
veiði út af
Alviðru-
hömrum
ÞÓ-Reykjavik.
Nú eru loðnubátarnir byrjaðir
að veiða af fullum krafti eftir
bræluna, og hafa þeir verið að
veiðum á svæðinu frá Skarðsfjöru
að Alviðruhömrum. Vitað var um
22 skip, sem voru iögð af stað tii
lands með samtals 5750 lestir, og
voru skipin með frá 190 uppi 400
lestir hvert.
Jakob Jakobsson leiðangurs-
stjóri á Arna Friðriksyni sagði,
að i brælunni hefði loðnan gengið
hratt vestur á bóginn og væri nú
ekki vart við neina loönu á svæð
inu austan við Ingdlfshöfða að
Hrollaugseyjum. Um seinni
gönguna, sem Arni fann 60 rnilur
A-N-A af Glettinganesi, sagði
Jakob, að þar hefði verið um
mjög mikið magn að ræða, en
hluti af þeirri göngu væri ókyn-
þroska loðna og sú loðna kemur
ekki á miðin i vetur. Þeir á Arna
gátu ekki athugað gönguna nema
i 4-5 tima vegna veðurs, en fundu
samt mjög góðar torfur.
Bátarnir, sem fengu loðnu i dag;
héldu flestir til Vestmannaeyja,
en þangað er um 6 tima sigling.
Búizt var við brælu á miðunum i
kvöld.
Loðnuver&ið komið
söngvarar þar verða Svala
Nielsen og Guðmundur Jónsson.
Aukatónleikar verða einnig
haldnir, og mun tónlist þeirra
verða við sem flestra hæfi. Hinir
fyrri verða i Laugardalshöll 22.
april og mun Carmen Dragon
stjórna þar eigin útsetningum.
Hinir siðari verða i Háskólabiói
18. mai undir stjórn hins viðfræga
og vinsæla Willy Boskowskys.
Héraðslæknir
i Hveragerði
Þórhalli B. Ólafssyni hefur
verið veittembættihéraðslæknis i
Hveragerði, frá og með 1. janúar
að telja.
Laugardaginn 29.jan. verðurj^
40. sýningin á Höfuðsmanninumi)
frá Köpenick I Þjóðleikhúsinu.j
Leikurinn var frumsýndur i lob-
september s.l. og hefur verií.
uppselt á flestum sýningunx
leiksins siðan.
Um 20.500 leikhúsgestir hafa séð^
sýninguna, og má telja það^
frábæra aðsókn.
Árni Tryggvason hefur hlotið
mikið lof fyrir túlkun sina á hinu
langa og erfiða titilhlutverki. Ef
veður leyfir, mun lúðrasveit leika
nokkur lög áður en sýning hefst
nk. laugardag, úti á skyggni
Þjóðleikhússins. Myndin er af
Árna i hlutverki höfuðmannsins.
4. listmnna
uppboðið
A fundi yfirnefndar Verðlags-
ráðs sjávarútvegsins á miðviku-
daginn, var ákveðið lágmarks-
verð á loðnu til bræöslu frá byrjun
loðnuvertiðar til 15. mai n.k.
Frá byrjun loðnuvertiðar til 29.
febrúar, er verðið 1.20 kr. á hvert
kiló. Frá 1. marz til 15. mai
verður veröið 1.10 kr. kilóið.
Verðið, sem gildir i febrúar^er 5
aurum lægra pr. kiló en i fyrra, og
stafar lækkunin af hinu mikla
verðfalli, sem orðið hefur á lýsi
og mjöli að undanförnu. Verðið er
miðað við loðnuna komna i
flutningstæki viö hlið veiðiskips
eða löndunartæki verksmiðju.
Samkomulag varð i nefndinni
um gildistima verðákvöröunar-
innar og um að skipta honum i tvö
verðtimabil. Ennfremur varð
samkomulag um, aö verðmis-
munur milli timabila skuli vera
10 aurar á hvert kiló.
Knútur Bruun heldur fjórða
listmunauppboö sitt i Átthagasal
Hótel Sögu mánudaginn 31. jan.
n.k. og hefst það kl. 17.00. Á upp-
boði þessu verða seldar bækur og
verða þær sýndar aö Grettisgötu 8
laugardaginn 29. jan. milli kl. 14
og 18 og i Átthagasal Hótel Sögu
mánudaginn 31. jan. milli kl. 10
f.h. og 16 e.h.
A uppboðinu verða boðin upp
alls 100 númer, svo sem veriö
hefur á öðrum uppboðum til
þessa.en margar bækur, sem
seldar verða á uppboðinu eru
mjög eftirsóttar og koma sjaldan
fram til sölu. Sem dæmi má
nefna: Þórarinn Böðvarsson:
Lestrarbók handa alþýðu á
Islandi, gefin út i Kaupmanna-
höfn 1874. Jón Þorkelsson:
Supplement til islandske ord-
böger I — IV. Samling gefin út i
Kaupmannahöfn og Reykjavik
1876 — 99.
Þrír seldu erlendis
Þó-Reykjavik.
Þrir togarar seldu afla
erlendis á fimmtudag. 1
Þýzkalandi seldi Narfi 127.3
tonn fyrir 119 þúsund mörk og
er meðalveröið 25.40 kr. 1
Bretlandi seldu Harðbakur og
Karlsefni. Harðbakur seldi
128.3 lestir I Grimsby fyrir
17.372 pund og er meðalverðið
30.70 kr„ Karlsefni seldi 86
lestir i Hull fyrir 11.863 pund
og er meðalverðið 32.30 kr.
Þetta voru siöustu sölur is-
lenzkra togara erlendis i þess-
ari viku, en i næstu viku munu
3—4 togarar selja i Bretlandi
og Þýzkalandi.