Tíminn - 29.01.1972, Síða 11
LAUGARDAGUR 29. janúar 1972
TÍMINN
11
Lífleg íþróttahelgi
Allar íþróttagreinar, sem iðkaðar eru á Islandi, á dagskrá á fþrótta-
hátfðinni \ dag, A morgun verður keppt i 8 greinum, þ.á.m. leika
Fram og Víkingur i 1. deild i handknattleik.
Klp-Reykjavik. Eins og oftast
um helgar verður mikið um aö
vera i iþróttum, en þessi helgi,
sem nú fer i liönd, er ein sú fjöl-
breyttasta hvað varðar keppni i
hinum ýmsu greinum, sem verið
hefur i langan tíma — en það sem
gerir hana svona fjölbreytta er
keppni i hinum ýmsu greinum,
sem ekki eru á dagskrá um
hverja helgi.
Stærsti viðburðurinn um helg-
ina verður án efa Afmælishátið
ÍSI i Laugardalshöllinni i dag, en
þar gefst fólki tækifæri á að sjá
sýnishorn af öllum þeim iþrótta-
greinum, sem iðkaðar eru i land-
inu.
Laugardagurinn verður rólegur,
þvi fyrir utan sýninguna eru
aðeins 2 leikir i Körfuknattleik á
! ÍÞRÖTTIR j
jum helginaj
■■■■■■■ ■■■■■■■
LAUGARDAGUR
Laugardalshöll kl. 14,30. AF-
MÆLISHATÍÐ ISl.
Körfuknattleikur: Iþróttahúsið
Seltjarnarnesi kl. 19,00.1. deild,
IS-Valur. iþróttaskemman
Akureyri kl. 16.00.1. deild, Þór-
Armann.
SUNNUDAGUR
Körfuknattleikur: íþróttahúsið
Seltjarnarnesi kl. 19,30.1. deild,
KR-HSK, IS-IR.
Handknattleikur: Laugardalshöll
kl. 19,00. 2. deild karla,
Armann-Breiðablik. 1. deild
karla, Vikingur-Fram, KR-IR.
Iþróttahúsið Hafnarfirði kl.
15,00. 1. deild kvenna, Breiða-
blik-Vikingur, 2. deild kvenna,
IBK—KR, 4 leikir i yngri fl.
Lyftingar: Iþróttahús Melaskól-
ans kl. 15,00. Kraftlyftingamót
KR.
Frjálsar iþróttir: Iþróttahúsið
Akranesi kl. 13,00. Sveina- og
meyjameistaramót Islands
innanhúss.
Knattspyrna:Ármannsvöllur kl.
14,00. Æfingaleikur, Armann-
Vikingur.
Badminton: Laugardalshöll kl.
14,00. Opið mót i einliðaleik.
Skiði: Skiðaskálinn Hveradölum
kl. 14,00. Möllersmótið.
Sundknattleikur: Sundhöllin kl.
15,00. Reykjavikurmótið, KR-
Ármann.
dagskrá, þar af annar á Akureyri
milli Þórs og Armanns, og ætti
hann að geta orðið nokkuð góður.
A sunnudaginn byrjar svo ball-
ið. Þá verður keppt i einum 8
greinum iþrótta. Athyglin beinist
þar sérstaklega að einum leik i 1.
deild karla i handknattleik, milli
Vikings og Fram. Þaö ætti aö
geta orðið stórleikur i orðsins
fyllstu merkingu. Annar leikur i
1. deildinni verður á milli KR og
IR, sem bæði eru enn i örlitilli
fallhættu, en eftir þennan leik er
öruggt að annað er sloppið.
Þá fer fram einn leikur i 2.
deild karla, en þar fer fram litil
keppni, þvi úrslitin eru svo til
örugg. Þá fer fram leikur i 1.
deild kvenna og 2. deild kvenna,
þar sem KR og IBK mætast, og
hefur sá leikur mikla þýðingu
fyrir bæði liðin.
1 körfuknattleiknum fara fram
2 leikir. KR leikur við HSK og IS
við IR. Ættu það er vera öruggir
leikir fyrir KR og 1R — þó er
aldrei að vita.
Stórmót fer fram i badminton 1
Laugardalshöllinni, þar sem allir
fremstu badmintonmenn landsins
mætast i einliðaleik. 1 iþróttahúsi
Melaskólans mætast aftur á móti
flestir af sterkustu mönnum
landsins, en þar fer fram opið
kraftlyftingamót á vegum KR, og
má búast við að eitthvað „fjúki”
af metum þar.
I sundhöllinni fer fram fyrsti
leikurinn i Reykjavikurmótinu i
sundknattleik, þar mætast KR og
Armann og má þar búast við
buslugangi og látum, eins og
oftast þegar þessi lið mætast 1
lauginni.
Fyrsta skiðamót ársins hér
Yngsti 1.
Bretlands
Klp-Reykjavik.
FH-ingar hafa ráðið þjálfara til
2. deildarliðs sins i knattspyrnu.
Er það Skoti, Duncan McDovell,
en hann er þjálfari atvinnu-
mannaliðsins Morton, einn af
þremur þjálfurum þess, og jafn-
framt yngsti 1. deildarþjálfari á
Bretlandseyjum.
McDovell kom hingað til lands
um siðustu helgi og ræddi þá við
forráðamenn FH, sem hann haföi
kynnzt er FH-ingar voru á keppn-
isferð um Skotland.
Hefur hann haft mikinn áhuga á
sunnanlands, fer fram við Skiða-
skálann i Hveradölum, Möllers-
mótið svonefnda.
Margir fara eflaust á skiði um
helgina, þvi viða er gott skiðafæri
— þó rignt hafi vel s.l. sólarhring.
Rólegt verður i knattspyrnunni
um helgina. Landsliðið leikur
ekki, en einn æfingaleikur fer
fram á Armannsvellinum milli
Armanns og Vikings. . . . Sjá
nánar um timasetningu og annað
i ÍÞRÓTTIR UM HELGINA.
Kópavogs-
búar ræða
um vallar-
mál á
morgum
Breiðablik i Kópavogi heldur
fund um iþróttavallarmáliö i
félagsheimilinu á morgun, sunnu-
dag, og hefst fundurinn kl.
14,00.
Allir félagar eldri en 15 ára'eru
velkomnir á fundinn.
Stjórnin
þjálfari
hjá FH
þvi að koma hingað til að þjálfa,
og rættist sá draumur hans um
helgina. Hann fór aftur heim á
mánudag,en mun koma alkominn
hingað i vor, þegar keppnistima-
bilinu í Skotlandi lýkur.
Ekki er afráðið, hvað hann
dvelur þá lengi hér á landi, en
verið getur að það veröi I 2 ár
eða lengur. Forráðamenn FH
sögðu að hann yrði hér þangað til
að liðið kæmist i 1. deild — en á
þvi sögðu þeir, að yrði ekki lengur
en 2ja ára bið.
deildar
þjálfar
Björn Kristjánsson og Karl Jóhannsson — þeir dæma handknatt-
leik i Bandarikjunum næstu dagana.
Dæma í
Bandaríkjunum
Þeir Karl Jóhannsson og
Björn Kristjánsson, hand-
knattleiksdómarar, halda um
þessa helgi utan til Banda-
rikjanna, þar sem þeir verða
dómarar i Amerikuriölinum
fyrir undankeppnina á OL,
sem fram fer á Spáni I marz
n.k.
Þeir félagar veröa dómarar
á þessu móti ásamt Norö
mönnunum Knut Nilson og
Kai Huseby. Mótiö fer fram i
Chicagoog hefst þaö á miö-
vikudaginn. Þaö mun standa
fram aö helgi og veröa leiknir
6 leikir, þar af dæma
þeir Björn og Karl 3 þeirra.
Þaö eru fjórar þjóöir, sem
taka þátt i þessum riöli;
Bandarikin, Kanada, Mexikó
og Argentina.
Þeir félagar eru fyrstu is-
lenzku dómararnir, sem
dæma fyrir utan sina eigin
heimsálfu, þ.e.a.s. Evrópu, en
þeir, svo og nokkrir aðrir is-
lenzkir dómarar, hafa dæmt
leiki bæöi i handknattleik og
knatlspyrnu, en enginn hefur
fengið annað eins ferðalag og
þessir tveir.
Skotinn Duncan McDovell, sem
tekur við þjálfun knattspyrnu-
manna FH I vor.
Gjöf til elli-
heiinilisbyggingar
Frú Heiðbjört Guðlaug Péturs-
dóttir að Alfhólsvegi 58 i
Kópavogi, hefir með gjafabréfi,
dagsettu 5. nóv., afhent Pétri
Maack Þorsteinssym til vörzlu
f.h. aldraðra i Kópavogi, eitt-
hundrað þúsund krónur, sem nýt-
ast eiga til byggingar elliheimilis,
sem væntanlega verður reist 1
Kópavogi á komandi árum.
Gjöf þessi er til minningar um
mann hennar, Ara Jónsson for-
stjóra i „Faco”, og er bundin þvi
skilyrði að herbergi i væntanlegu
elliheimili beri nafn hans.Eru frú
Heiðbjörtu færðar þakkir fyrir
þann vinahug i garð aldraðra
Kópavogsbúa, sem hún sýnir með
þessari myndarlegu gjöf sinni.
Á skíðum í
fljóðljósum
Skiðadeild KR mun nú eins og
undanfarna vetur starfrækja
skiðasvæði sitt 1 Skálafelli.
Miklar breytingar hafa verið
gerðar á starfsrækslu skiða-
svæðisins, þannig að það fólk,
sem hyggur á skiðaferð 1 miöri
viku, mun óhikað geta farið i
Skálafell, þar sem lyftur verða
starfræktar alla daga.
Lyfturnar eru nú orönar fjórar
talsinsjog geta þær flutt á annað
þúsund manns á klukkustund.
Ein af lyftunum er svokölluð T-
lyfta, tvær eru af Stargerð, og er
önnur þeirra i framhaldi af T-
lyftunni og fæst með þvi ca. 1200
m. löng skiðabrekka. Frá enda-
stöð hennar er stutt I hæsta tind
Skálafells, en þaðan er vand-
fundið fegurra útsýni yfir Reyk
javik og nágrenni. Þá er 100 m.
löng toglyfta i gangi,og er hún
eingöngu ætluð börnum, og starf-
rækt án endurgjalds.
S.l. vetur voru tekin i notkun
flóðljós i Skálafelli, og reyndust
þau mjög vel og var almenn
ánægja með tilkomu þeirra, enda
gafst þar meö tækifæri fyrir þá,
sem ekki komast oft á skiöi,að
vera lengur aö ef veður leyfir.
Nú hefur verið ákveðið aö hafa
fastar ferðir á fimmtudags-
kvöldum upp eftir, og veröur
farið frá KR-heimilinu við
Frostaskjól kl. 19,00. Þá verður
einnig farið frá sama stað á
laugardögum kl. 14,00 og sunnu-
dögum kl. 10,00.
Mikil aðsókn hefur verið að
gistirými skálans,
Margt hefur veriö um manninn I Skálafelli undanfarnar helgar, þar komast llka allir aö, þvi lyfturnar þar
eru orönar fjórar og brekkur flóölýstar, svo renna má sér langt fram á kvöld. Skiöafæri er gott þar upp frá
og nægur snjór.