Tíminn - 17.02.1972, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 17. febrúar 1972
TÍMINN
ÖRUGGARKLUKKUR
Frá og með næsta ári munu
allar rafmagnsklukkur á opin-
berum stöðum i Sovétrikjunum
stjórnast af sjálfvirku útvarps-
kerfi, Sevena, sem rannsóknar-
stofnun úraiðnaðarins i Moskvu
hefur búið til. 011 sjálfvirk úr,
sem búin eru þar til gerðum
móttakara, ná merkjunum, sem
kerfið sendir út. Fara leiðrétt-
ingar fram 24 sinnum á sólar-
hring, ef þeirra er þörf. Hugsan
leg skekkja i útreikningi
sovézka meðaltimans er nú 1
sekúnda á 30 þúsund árum. Sið-
ar mun verða hægt að láta sjálf-
virka útvarpsmerkjakerfið ná
til allra klukkna i landinu, lika
armbandsúra.
☆
Frúin tekur viö barninu
Aðalástarævintýri i kvik
myndaheiminum á siðasta ári
var milli Marcello Mastroianni,
hins 47 ára gamla Itala, og
frönsku leikkonunnar Catherine
Deneuve, sem er 29 ára gömul.
Ást þeirra mun bera ávöxt með
vorinu, en þá á Catherine von á
barni með Marcello. Marcello
er kvæntur og á 19 ára gamla
dóttur. Kona hans, Flora Cara-
bella Mastroianni, sem hann
hefur verið kvæntur i 25 ár,
segir, að lita verði á þessi mál
með raunsæi, og segja má, að
Catherine og Macello megi vera
þakklát fyrir þessa afstöðu
hennar. —Við tökum barnið að
okkur og ölum það upp hér i
Róm, segir Flora, —þvi Mar-
cello gæti aldrei slitið hjúskap-
num við mig. Catherine hefur
aldrei verið gift, en hún á þó niu
ára gamlan son, sem heitir
Christian. Faðir hans er
kvennabósin Roger Vadim, sem
skapaði Birgitte Bardot, ef svo
mætti segja Catherine vill fr-
jálsar ástir og einnig frjálsar
fóstureyðingar, og hefur barizt
fyrir hvoru tveggja i heimalandi
sinu. Um barnið, sem húm á nú
von á, segir hún: Þetta var
ekkertóhapp, heldur allt af yfir-
veguðu ráði. Við hlökkum bæði
mjög til þess að eignast þetta
barn. Sá eini, sem ekkert hefur
enn um málið sagt, er Macllo
sjálfur.
☆
Drottningin þakkar
Tvær stúlkur hafa samið lag,
sem fjallar um Elisabetu Eng-
landsdrottningu. Heitir lagið
Your Majesty, eða Yðar hátign.
Stúlkurnar vildu fá að afhenda
drottningunni persónulega ein
tak af lagi og ljóði, og fóru þvi til
Buckinghamhallar, en fengu
ekki að hitta drottningu. Nú
hefur drottning hins vegar sent
stúlkunum þakkir fyrir framtak
þeirra, svo trúlega hefur hún
fengið að sjá lagið, þótt ekki
fengi hún að taka við þvi úr
höndum semjendanna.
☆
GORKI — UMBREYTT
NISJNI NOVGOROD
— Borgin Gorki við Volgu
heldur nú hátiðlegt 750 ára af-
mæli sitt. Borgin hefur nú 1.2
milljónir ibúa og hún er orðin
mjög umbreytt frá þvi i gamla
daga, að nafn hennar var Nisjni
Novgorod.
A timabili siðustu fimm ára
áætlunar voru byggðar 60
þús. ibúðir i borginni, og sam
kvæmt niundu fimm ára áætl-
uninni, sem hófst á þessu ári,
verða byggðar 100 þúsund
ibúðir i borginni fyrir lok
hennar.
Iðnaðurinn i borginni fram-
leiðir nú jafnmikið af vörum á
einum degi og tvö ár þurfti til á
árunum fyrir fyrri heims-
styrjöldina. I Gorki er framleitt
mikið af vélum, þar er mikil
umferðarhöfn og stóriðnaðurinn
á morgum sviðum. Má þar
nefna efnavörur, oliur, stál,
vefnaðarvörur og rafmagns-
vörur. Þar eru einnig framleidd
sjónvarpstæki, smiðuð loftpúða-
skip og milluvélar, sem fluttar
eru út til 70 landa.
☆
Varahlutir í Kama-
vörubíla frá Renault.
— Samkvæmt nýgerðum
samningi milli sovéska og
franskra aöila eiga Renault-
bifreiðaverksmiðjurnar i
Frakklandi að leggja vörubila-
verksmiðjunum miklu við
Kama i Sovétrikjunum til fram-
leiðslutæki i umtalsverðum
mæli. Hér er um að ræða ýmiss
konar sjálvirk tæki til fram-
leiðslu á einstökum hlutum
vélar og annars búnaðar
bifreiðanna.
Undirkjóll eöa sumarkjóll
I fljótu bragði mætti ætla, að
þessi kjóll væri undirkjóll, að
minnsta kosti er hann ekki
ólikur undirkjólunum hér áður
fyrr, sem gerðir voru úr
bómullar - eða léreftsblúndu-
efnum. Þetta mun þá alls ekki
vera undirkjóll heldur hátizku-
legur sumarkjóll frá Laroche i
Paris. Siddin er sumarleg ekki
siður en kjóllinn sjálfur, en
heldur er hatturinn barðastór,
og varla verður hægt að búast
við, að kona, sem ber hann á
höfðinu, verði sólbrún um of.
Nixon er mikið á feröinni
Bandarikjamönnum finnst
Nixon hafa verið heldur litið
heima hjá sér, frá þvi hann tók
við embætti og fluttist i Hvita
húsið. Hann er sagður hafa
verið lengur að heiman en
heima fyrstu þrjú árin, sem
hann hefur gist Hvita húsið.
Hann er búinn að ferðast 482
þúsund kilómetra til 50 rikja
Bandarikjanna, Virgin Islands,
Guam, Midway og 19 annarra
landa að auki. Oftast hefur for-
setinn farið með flugvélum i
ferðir sinar. Þrátt fyrir öll þessi
ferðalög verður Nixon að
minnsta kosti að tvöfalda kiló-
metrafjöldann, ef hann á að
komast fram úr Lyndon B.
Johnson fyrirrennara sinum i
Hvita húsinu, en hins vegar
hefur hann ferðazt meira, en
bæði John F. Kennedy og Harry
S. Truman gerðu i sinni forseta-
tið. Ekki er hægt að bera hann
saman við Eisenhower, þvi
aldrei var gerð skýrsla um
ferðalög hans. Skýrslur sýna, að
Nixon var fjarri Washington
annað hvort hluta úr degi eða
allan daginn i samtals 551 dag,
og i borginni heilan dag eða
hluta úr degi i 514 daga fyrstu
þrjú árin i forsetaembættinu.
Hann var að meðaltali 25 helgar
á forsetasetrinu Camp David i
Catoctin-fjöllunum i Maryland,
og er það lengri timi en fyrir-
rennarar hans hafa dvalizt þar.
Arið 1971 var Nixon aðeins sex
helgar i Washington. Hann
hefur farið að meðaltali tvisvar
á ári til útlanda frá þvi árið 1969,
og allt bendir til þess að hann
eigi eftir að fara oftar en það nú
i ár.
Tveir minir sátu saman á bar
og var annar þeirra hnugginn.
Hvað amar að þér elsku vinur,
hvers vegna ert þú svona þung-
búinn?
Það er út af kerlingunni.
Ég þori ekki heim.
Það hefur alltaf verið i lagi þótt
þú sért búinn að fá þér svolitið
neðan i þvi.
Það er svolitið annað núna.
Sjáðu. öll þau ár sem við höfum
verið gift hefur konan hirt launa-
umslögin min um hver mánaða-
mót og látið mig svo hafa vasa-
peninga. En nú er hún búin að
komast að þvi, að ég hef alltaf
fengiö útborgað vikulega.
Maður einn kom inn i lyfjabúð-
ina og bað um pakka með 20 möl-
kúlum. Hann keypti það sama
næsta dag og nokkra daga i röð.
Lyfsalinn getur ómögulega
staðist þá freistingu, að spyrja
manninn, hvað hann gerði við
allar þessar mölkúlur. —Segið
mér, eru margar mölflugur
heima hjá yður?
—Bara ein, svaraði maðurinn, —
en það er svo fjandi vont að hitta
með svona litlum kúlum.
Maður verður að viðurkenna að
þeim kaþólsku tekst miklu betur
að skapa trúarlega stemmingu
við messu.
DENNI
DÆMALAUSI
— Þau emjuðu svo mikið, að ég
hélt þau væru svöng.
01', nieuMBB-wx syitowg. T. n. ©