Tíminn - 22.02.1972, Blaðsíða 13
Þriöjudagur 22. febrúar 1972
TÍMINN
13
Sýna erlendum gestum
íslenzkan fatnað, skart-
gripi og skinnavörur
Eins og undanfarin ár, mun
Islenzkur heimilisiönaöur og
Kammageröin standa fyrir
sýningum á Islenzkum fatnaöi,
skartgripum og ýmissi skinna
vöru á þeim ráöstefnum, sem
fyrirhugaöar eru hér á landi I
sumar fyrir erlenda feröamenn.
Sýningar þessar hafa vakiö
mikla athygli og hrifningu hinna
erlendu gesta undanfarin sumur.
Þær eru á dagskrá ferða-
áætlunarinnar, annaö hvort við
hádegisverö eöa kvöldverð, og
eru tii mikilla þæginda fyrir
gestina, þar sem þeir geta séö
hina islenzku fataframleiðslu og
ákveðiö sig hvaö kaupa skuli.
Kynnir á sýningunum verður,
eins og áöur, Sigriður Ragna
Siguröardöttir, og kemur hún
fram á islenzkum búningi sem
vekur jafnan mikla hrifningu.
Sýningarstúlkur eru úr Model
samtökunum.
Rammageröin.
Islenzkur heimilisiðnaður.
Sinfóníuhljómsveitin
heldur eigin dansleik
- býður höfundi Fiðlarans hingað
Þó-Reykjavik.
Þann 19. marz nk. mun starfs-
mannaféilagSinfóniuhljómsveitar
tslands efna til ,, Sinfóniuballs
72’’, i Súlnasal Hótel Sögu.
Allt verður gert til að gera
kvöldið eftirminnilegt fyrir
gesti, — hljómsveitin öll mun
leika fyrir dansi, Vinarvalsa og
fleiri dansa, en auk þess mun
minni hljómsveit, skipuð hljóm-
sveitarmönnum, leika fyrir dans-
inum gömul og ný dægurlög að
ógleymdri hljómsveit Ragnars
Bjarnasonar, sem einnig mun
leika fyrir dansinum
Heiðursgestur kvöldsins veröur
bandariska tónskáldið Jerry
Bock, sem samið hefur tónlistina
viö „Fiðlarann á þakinu” og
fleiri söngleiki^sem slegið hafa i
gegn. Sinfóniuhljómsveitin mun
leika þekkt lög eftir Bock, undir
hans stjórn,og einnig mun hann
flytja ræöu kvöldsins.
Jerry Bock er nú 44 ára gamall
og hefur náð að verða eitt vinsæl-
asta tónskáld, sem samið hefur
söngleiki i Bandarikjunum. Fyrir
Fiölarann fékk Bock Tony verð-
launin 1965. Fiölarinn gengur enn
á Broadway og nálgast i sýninga-
fjölda óðum leikritiö Pabba (Life
with father), sem lengst hefur
gengið til þessa.
Veizlustjóri verður Gylfi Þ.
Gislason. Fastir áskrifendur að
tónleikum St hafa forkaupsrétt að
miðum á dansleikinn.
Jerry Bock
Ný bók frá Erni og Örlygi: ^
TRYGGINGAHANDBOKIN
Það er alkunn staðreynd, að
löggjöfin um almannatryggingar
er mjög margbrotin, enda ná bæt-
ur almannatrygginga yfir vitt
svið. Þess finnst fjöldi dæma að
þeir, sem hvað mesta þörf hafa
fyrir þá vlðtæku þjóðfélagsað-
stoð, sem felst í almannatrygg-
ingum, gera sér minnsta grein
fyrir réttindum sinum. Nú er
komin út bók, sem ætlað er að
leysa þennan vanda borgara.
Nefnist hún TRYGGINGAHAND-
BÓKIN og er tekin saman af
Gunnari G. Schram, en hann
hafði áöur tekið saman LÖG-
FRÆÐIHANDBÓKINA, sem
hlotiö hefur miklar vinsældir hjá
almenningi.
Fólk gerir sér ekki ætlð grein
fyrir hvaða réttindi það á sam-
kvæmt almannatryggingum.
Hvenær ber að greiða þvi bætur ef
það slasast eða veikist — og
hvenær ekki. Hver er t.d. aöstaða
einhleyprar móður eða ekkju með
börn á framfæri sinu innan trygg-
ingakerfisins.
TRYGGINGAHANDBÓKIN
er handhægur leiðarvisir, sem
fljótlegt er að fletta upp i, ef á
þarf að halda. Þar eru t.d. raktar
reglur um ellilifeyri, örorku-
lifeyri, makalifeyri, fjölskyldu-
bætur og barnalifeyri. Greint er
frá stöðu kjörbarna, stjúpbarna
og munaðarlausra barna. Skýrt
er frá hiutverki sjúkrasam-
laganna og lifeyrissjóðanna. Þá
er og i bókinni fjallað um frjálsu
tryggingarnar, sem koma til
þegar a lmannatryggingum
sleppir og veita einstaklingum
mikilvæga tryggingavernd.
Þetta er i fyrsta sinn sem slik bók
er gefin út hér á landi. Hún er
gagnleg hverju heimili og mætti
nota sem kennslubók i skólum
landsins.
Höfundur bókarinnar er Gunnar
G. Schram, en hann lauk doktors-
prófi i þjóðarétti frá háskólanum
i Cambridge árið 1961 og starfar
nú sem þjóðréttarfræðingur utan-
rikisráðuneytisins. Undanfarin
misseri var höfundurinn lektor
við lagadeild Háskóla Islands.
Gunnar var um nokkura ára bil
blaðamaður og ritstjóri, og nýtur
þeirrar reynslu sinnar við gerð
þessarar bókar, þar sem hin
margbrotnu ákvæði islenzka
tryggingakerfisins eru skýrð og
túlkuð, svo auðskilin verða
hverjum manni.
Höfundur getur þess, að við
samantekt bókarinnar hafi hann
notið liðsinnis Sigurðar Ingi-
mundarsonar, forstjóra Trygg-
ingastofnunar rikisins, og Bjarna
Þórðarsonar framkvæmda
stjóra Sambands islenzkra trygg-
ingafélaga.
TRYGGINGAHANDBÓKIN er
prentuö i Prentsmiðjunni Eddu
h.f. Káputeikningu gerði Hilmar
Helgason hjá auglýsingastofu
Gisla B. Björnssonar.
Formaður Bandalags háskólamanna segir:
„Hörmum aðgerðir BSRB”
SJ-Rcykjavík
Bandalag háskólamanna efndi
til blaðamannafundar á fimmtu-
dag, þar sem forystumenn þess
mótmæltu harölega þeim launa-
kröfum, sem BSRB hefur nú lagt
fyrir Kjaradóm. Formaöur
Bandalags háskóla m anna,
Kagnar Ingimarsson, kvaöst
harrna aögeröir BSRB I þessu
máli, sem hann taldi litiö dreng-
skaparbragð. t kröfum BSRB
telja háskólamenn beinllnis ráö-
izt aö þeim launaflokkum, sem
þeir skipa, og starfsmatiö frá þvl
viö siðustu samninga virt aö vett-
ugi. Bandalag háskólamanna
hefur ekki samningsrétt. Há-
skólamenn I þjónustu rtkisins
hafa undantekningalítiö sagt sig
úr BSRB, sem þó semur um laun
þeirra eins og annarra rikis-
starfsmanna. Háskólamenn hafa
þvi engan lagalegan möguleika á
aö reka réttar slns.
Þaö er álit BHM, aö mjög hafi
veriðgengiöá hlut háskólamanna
i siöustu heildarsamningum
miðaö viö kjör á frjálsum mark-
aði, en laun þeirra voru ákveðin
um 15 - 20% lægri en vera átti
samkvæmt viðmiöun þeirri viö
frjálsan markaö, er stuðztvar við,
var sá munur meiri en hjá öðrum
starfshópum, er samningarnir
náðu til. Enn hefur þetta misræmi
aukizt, þar eð viðmiðunarstéttir
háskólamanna hafa eftir samn-
ingana fengið 17 - 20% launa-
hækkun.
t kröfum BSRB nú er krafizt
minnstrar hækkunar fyrir þá,
sem mest vantar upp á að nái
sambærilegum kjörum við frjáls-
an vinnumarkað, og þar með að
þvi stefnt að munurinn aukist
enn.
Bandalag háskólamanna telur,
að með kröfugerð, sem stórlega
mismunar þeim launþegum, sem
taka laun samkvæmt kjarasamn-
ingi rikisstarfsmanna, sé i raun-
inni vegið að samningnum sjálf-
um, en i honum eru hlutföll fast-
mælum bundin út samningstima-
bilið.
Stjórn BHM tekur fram, að
meðan samningsréttarmálum
SKIPTAFUNDUR
Skiptafundur veröur haldinn
i þb. Oks h.f„ Bolholti 4,
Reykjavik, föstudaginn 25.
þ.m. I dómsal borgarfógeta-
embættisins I Skólavöröustig
11 og hefst kl. 2 e.h.
Rætt veröur um ráöstöfun á
ýmsum eignum brotabúsins
o.fl.
Skiptaráöandinn I Reykja-
vík, 18.2. 1972.
I----------------------
rikisstarfsmanna er svo háttaö,
sem raun er á, hljóti verulegar og
almennar kauphækkanir á hinum
frjáls vinnumarkaði aö leiöa til
samsvarandi hækkana hjá öllum
risisstarfsmönnum.
BHM og aðildarfélög þess
itreka þá afstöðu sina að hafna
þvi að BSRB fari meö samnings-
rétt fyrir stóran hóp háskóla-
menntaðra manna, sem alls ekki
eru aðilar að þeim samtökum.
^ívöruvet^
Ingólfs Óskarssonar
Klapparstíg 44 — sími 11783
POSTSENDUM
Vélavinna
— gæzla
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum
vélavinnu og gæzlu á sorphaugum, við
Hamranes austan Krisuvikurvegar.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæj-
arverkfræðings, Strandgötu 6. Tilboðin
verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn
29.febrúar, kl. 11 að viðstöddum bjóðend-
um.
Bæjarverkfræðingur.