Tíminn - 12.03.1972, Blaðsíða 1
* .
BÍLSTJÓRARNIR
AÐSTOÐA
wmm
SeWIBILASTOÐIN Hf
EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR
N
Sá dökkblái
stakk af
geimfari um borð í Biarna
heiði fær
EB-Reykjavik.
Ingimundur Hjálmarsson á
Seyðisfirði sagði i viðtali við
blaðið, að aldrei áður, frá þvi
vegurinn um Fjarðarheiði hefði
verið gerður, hefði sá vegur verið
eins vel fær að vetrarlagi og nú i
vetur.
Þetta er algjört einsdæmi,
sagði Ingimundur. Hann sagði,að
sárasjaldan i vetur hefði þurft að
nota snjóbil til að fara yfir
heiðina.
Að visu tepptist heiðin um
siðast liðna helgi. Var þá farið
með snjóblásara á heiðina og á
mánudaginn var hún aftur orðin
vel fær venjulegum bifreiðum.
Japan og Kína rífast um
eyjar f hafbotnsnefndinni
NTB-New York
Talsverðar orðahnippingar áttu
sér stað i hafsbotnsnefnd SÞ á
föstudaginn, eftir að An Chih-
Yuan, fulltrúi Kina i nefndinni,
lagði þar fram kröfur Kina til
Nauðsynlegt að koma
á gæðamati söluheys
AK-Keykjavik.
Búnaðarþing samþykkti rétt
fyrir slitin eftirfarandi
ályktun um crindi Búnaðar-
sambands Strandamanna um
mat á heyi. Framsögumaður
búf járræktarnefndar var
Hjalti Gestsson:
„Búnaðarþing felur stjórn
B.l. að kanna hugsanlegar
leiðir til þess að gefa þeim,
sem verzla með hey, tækifæri
til þess að fá hey metið i gæða-
flokka samkvæmt reglum, er
settar yrðu”.
Eins og kunnugt er hefur
verzlun með hey og flutningar,
jafnvel milli landsfjórðunga,
færzt i vöxt og um leið fjölgað
þeim bændum, sem framleiða
hey beinlinis til sölu. Kaup-
endur eiga óhægt um vik að
gera sér grein fyrir gæðum
vörunnar og seljendur að
verðleggja hana rétt i sam-
ræmi við þau. Hafa stundum
orðið eftirmál af þessum
sökum. Væri þvi mjög æski-
legt að finna ráð til þess að
gæðameta hey, og mundi það
greiða fyrir réttsýni i þessum
viðskiptum.
ýmissa sniáeyja umhverfis For-
mósu og margra smáeyjaklasa,
sem Japanir ráða. Meðal þeirra
eru Senkanku-eyjar, en þar er
mikil olia.
Það var eftir að fastafulltrúi
Kina, Huang Hua, hafði i bréfi til
nýlenduniðurlagningarnefndar
SÞ, gert kröfur til brezku ný-
lendunnar Hong Kong og Port-
úgölsku nýlendunnar Macao, að
An Chih-Yuan setti fram kröfur-
nar um eyjarnar i hafsbotns-
nefndinni.
Þegar An var að mæla fyrir
kröfunum, greip japanski am-
bassadorinn fram i og sagði, að
þessar kröfur Kinverja heyrðu
ekki undir hafsbotnsnefndina, en
An hélt ótrauöur áfram
lestrinum, sem breyttist nú i
ásakanir i garð Japana.
An sagði, að Japanir vildu ekki
aðeins eiga fjölmargar kin-
verskar eyjar, heldur blönduðu
þeir sér i Formósu-máliö lika,
þótt það væri algjört innanrikis-
mál Kina. Ef Japan væri ekki enn
búið að læra af ósigri sinum og
héldi áfram útþenslustefnu sinni,
leiddi það til ills eins. Hann hélt
þvi fram, að Japanskur hernaður
fengi nú „upplifgun” frá banda-
risku stjórninni og frekja Japana
væri orðin full mikil á Kyrrahafs-
svæðinu. Hann talaði um hinar
óteljandi hörmungar, sem
Japanir hefðu áður fyrr leitt yfir
Kinverja og kvaðst þess fullviss,
að Kinverjum væru þær enn i
fersku minni. Að lokum sagði An,
að það „Drottinvald” sem
Japanir væru að reyna að öðlast,
mætti nú æ meiri andstöðu rikja i
Asiu, Afriku og S-Ameriku, ámt
smárikjum viðar um heim.
86 flugvélar á Islandi
OÓ-Reykjavik.
86 flugvélar voru skráðar hér á
landi um siðustu áramót. Flestar
flugvélanna eru eins hreyfils, eða
52 talsins. Tveggja hreyfla véiar
er 23, 2 eru þriggja hreyfla og 9
fjögurra hreyfla.
Samanlagður sætafjöldi fyrir far
þega I öllum þessum flugvélum
er 1251 sæti. Hefur farþegasætum
i islenzkum flugvélum heldur
fækkað siðustu árin. Flest voru
þau 1968, 2071 alls.
Helztu breytingar á flugflot-
anum eru, að Flugfélagi íslands
fékk nýja farþegaþotu. Loftleiðir
fengu tvær nýjar flugvélar af
gerðinni DC-8. Ein fjögurra
hreyfla flugvél var seld úr landi.
Var það landhelgisgæzluflugvélin
Sif.
Þótt þrjár stórar þotur bættust i
flugflotann á árinu fækkaði far-
þegasætum um fimm. Er það
vegna þess,að farþegaflugvélum
var breytt i vöruflutningavélar.
McCloskey
blankur
NTB-Washington.
Paul McCloskey hefur hætt við
að reyna að ná útnefningu sem
forsetaefni repúblikana i kosn-
ingunum i haust, en hann er
talinn sá eini, sem gæti komið til
greina sem keppinautur Nixons.
McCloskey segist hafa hætt
vegna peningaleysis og vegna
þess, að hann þarf að berjast til
að halda þingsæti sinu. Fyrir for-
kosningarnar i New Hampshire
sagði hann, að ef hann næði ekki
20% atkvæða, myndi hann hætta.
Hann fékk raunar 20,3% en þótti
þó ekki vænlegt að halda áfram i
baráttunni.
Líkast
EB-Reykjavik.
Dökkblár Mercedes Benz ók á
stúlku við Silfurtunglið i fyrrinótt
og stakk af. Ekki er talið að
stúlkan hafi slasazt mikið.
Rannsóknarlögreglan leitaði i
gær að eiganda bifreiðarinnar og
var hann ekki fundinn, þegar
blaðið hafði samband við lög-
regluna. Sjónarvottar að slysinu
eru beðnir að gefa lögreglunni
upplýsingar.
Fjarðar-
t fyrri viku, fór einn af blaðamönnum Timans,
Þorleifur ólafsson, i stuttan leiðangur með rann-
sóknaskipinu Bjarna Sæmundssyni, og var aðaltil-
gangur ferðarinnar að reyna endurbætt veiðarfæri.t
þessum leiðangri voru lika um borð nemendur úr
Sjómannaskólanum. t opnu blaðsins i dag, segir frá
þessum leiðangri Bjarna Sæmundssonar, en hér að
ofan er mynd úr herbergi, sem þakið er rannsókna-
tækjum frá gólfi og upp i loft. Við fyrstu sýn, virðist
sem hér sé um að ræða mælaborð i geimfari, en svo
er nú ekki.
(Tímamynd Þó)