Tíminn - 12.03.1972, Qupperneq 16
FIMM ÞJÓÐKUNNIR MENN RÆÐA
UM ÞÝÐINGU HRINGVEGSINS
V_____________ ______________J
Sunnudagur 12. marz 1972.
>-
Kystcinn Jónsson
Sigurður Jóhannsson
Sigurður Þórarinsson
Svanbjörn Frimannsson
Hannibal Valdimarsson
HRINGVEGUR UM LANDIÐ
VARÐAR ALLA LANDSMENN
OÓ—Heykjavik.
Hringvegur um landið verður
opnaður þjóðhátiðarárið 1974. Á
miðvikudag verður hafin sala á
h a ppd ræt tissku Ida bréfu m að
andvirði 10 millj. krm, og vertur
það fé, sem þannig safnast, notað
til vegalagningar og brúasmiða
yfir sanda og vötn á Skeiðarár-
sandi, sem er sá farartálmi, er
kcmur I veg fyrir að hægt sé að
aka umhverfis landið. Þessi 34
km leið er hvað erfiðust af nátt
úrunnar hendi til vegalagningar.
Það eru jökulhlaupin ein, sem
hafa aftrað þvl, að ekki er búið að
leggja veg yfir sandinn. En þá
erfiðleika er hægt að yfirstiga.
I.okið er viö aö gera fram-,
kvæmdaáætlun, og verður hafizt
handa um lagningu vegarins I
vor. Til að gera gamlan óska-
draum þjóðarinnar að veruleika,
þarf talsvert fé, en þess veröur
aflaö með útgáfu happdrættis-
skuldabréfa, og er þess vænzt, að
sem flestir leggi þessu þjóðþrifa-
máli liö og kaupi bréfi, enda er
allt að vinna, en engu að tapa.
Bréfin verða innleyst eftir ára-
tug, og fá eigendur þeirra fé sitt
þá endurgreitt, og hafa þar að
auki lagt sitt af mörkum til fram-
kvæmda, sem koma þjóðinni allri
til góða. Vcrða bréfin seld I öllum
bönkum, útibúum og sparisjóð
um frá 15. þ.in.
Timinn haföi samband við
nokkra þeirra manna, sem unnið
hafa að undirbúningi fram-
kvæmda við hringveg og vita
manna bezt, hvað i er ráðizt og
hvað þýðingu vegurinn yfir
Skeiðarársand hefur fyrir þjóð-
ina. Fara svör þeirra hér á eftir:
Verðum öll að
leggjast á eitt
Eystcinn Jónsson, alþingis-
maöur, var fyrstur manna til að
stinga upp á, aö hringvegur um
landið skyldi komast I gagniö
þjóðhátiðarárið 1974. Það var árið
19G7, þegar brúin yfir Jökulsá á
Brciðamcrkursandi var vigð.
Um vegalagninguna yfir Skeið-
arársand sagði Eysteinn:
Nú veröum við öll að leggjast á
eitt og hrinda þeirri ákvörðun i
framkvæmd, að hringvegurinn
komi 1974. Það yrði með öðru
góðu, sem gera á i sambandi við
timamótin 1974, veglegur minnis-
varði um 1100 ára byggð þjóð-
arinnar á landinu. Engin einstök
framkvæmd, sem nú hillir undir,
að frá skildri sjálfri útfærslu
landhelginnar, getur orkað jafn-
miklu til bóta i lifi þjóöarinnar en
einmitt þessi, að ljúka hringveg-
inum. Þetta kostar nokkuð, að
visuekki nema smámuni, saman-
borið við þann ávinning, sem er
annars vegar. Samt þarf góð
samtök til þess að afla f jár i þessu
skyni, og riður nú á, aö menn taki
þátt i þessu meö þvi að kaupa
happdrættisskuldabréfin.
Þetta er málallrarþjóðarinnar.
Við finnum öll, að þessi fram-
kvæmd eykur gildi landsins,hún
hefur stórfellt hagnýtt gildi, og
þaö veröur enn skemmtilegra en
áður aö eiga heima á íslandi.
Eitt stærsta verk-
efni Vegagerð-
arinnar
Sigurður Jóhannsson, vega-
málastjóri, sagði, að lagning
vegarins yfir Skeiðarársand væri
eitt af stærstu verkefnum, sem
Vegagerð rfkisins hefði tekiö að
sér. — Við lagningu þessa vegar
er mikið af óvissum þáttum,
miðað við það,sem við erum vanir
aö eiga við. Sjálf byggingin á veg-
inum og brúnum er ekkert tækni-
legt vandamál, en höfuðvanda-
málin eru flóðin og þaö sem af
þeim leiðir.
Eru það bæöi þau flóð, sem ef til
vill koma meðan verið er að vinna
verkið, og þau flóð, sem koma i
framtiðinni. Við vitum ekki ná-
kvæmlega hvernig þau verða. Ef
hættan af jökulhlaupum vofði
ekki yfir, væri búið að leggja
þennan veg fyrir löngu.
Fjárhæöin, sem lögð verður i
þennan veg, er ekki svo mikil
miðað við það sem vegalagning
kostar yfirleitt. Hraðbrautirnar,
sem viö erum að leggja, munu
kosta um 800 millj. kr. Eru það
vegirnir upp i Kollafjörð og
austur á Selfoss. Keflavikurveg
urinn, sem lagður var fyrir
nokkrum árum, mundi kosta 600
millj. kr. nú.
Það er ekki upphæðin, sem er
ógnvekjandi við lagningu
Skeiöarársandsvegarins. Van-
damálið liggur i þessum sérstöku
vandræðum vegna flóðanna og
þar af leiðandi hvernig á að
hanna mannvirkin.
Við reiknum við þvi, þegar flóð
verða, að umferðin þurfi ekki að
truflast af flóðum af þeirri stærð,
sem komiö hafa undanfarna ára
tugi. En komi jökulhlaup eins og
þau voru fyrir 1938, mun eitthvað
af mannvirkjum verða að láta
sig. Þá verður bara að taka þvi og
byggja upp aftur. Er þá reiknað
með þvi, að dýrustu hlutar mann-
virkjanna, sem eru brýrnar og
garðarnir næst þeim, standi eftir.
Góð fjárfesting fyrir
alla íslendinga
— Það er lagahcimild til aö
gefa út skuldabréf fyrir 250 þús.
kr. til lagningar vcgarins yfir
Skeiðarársand sagði Svanbjörn
Frimannsson, bankastjóri Seðla-
bankans, —en i ár er ákveðið að
bjóða út 100 millj. kr. Ef vel
gengur að selja þessar hundrað
milljónir, verður að sjálfsögðu
haldið áfram að selja happ-
drættisskuldabréfin, hvort sem
það verður I ár eða næsta ár.
— Við gerum okkur ljóst, sagði
Svanbjörn, — að þetta er tilraun
til að afla fjár til þarfa fyrirtækja
fyrir rikiö hjá almenningi, og um
áframhaldið er ekki hægt að spá,
fyrr en við vitum um árangurinn
af þessari fyrstu tilraun. Þess
vegna reynum við að brýna fyrir
fólki, að þvi fé sem safnast sem
lán, er ekki kastað á glæ, en fer til
að opna hringveginn, sem gerir
öllum landslýö fært aö ferðast
hringum landið.
Við teljum alveg skilyrðislaust
að þetta sé góö fjárfesting fyrir
alla Islendinga. Eftir að vegurinn
verður lagður yfir Skeiöarársand,
er hægt að ferðast óhindrað
kringum landiö, og það er svo
ótalmargt sem mælir með þvi, að
þessi vegur verði lagður.
Spariskirteini, sem gefin hafa
verið út, hafa gengið mjög vel út.
En þar hefur verið um að
ræöa vaxtabréf, og til skemmri
tima en nú er um að ræða. Þessi
bréf, sem við gefum út núna, eru
happdrættismiðar, um leið og.
þau eru skoildabréf. Höfuð
stóUinn er greiddur. til baka,
vaxtalaus, eftir 10 ár. Þeir sem
kaupa skuldabréf, hafa mögu-
leika á að fá vinning á sin bréf, en
annars eru þau greidd til baka
undir öllum kringumstæðum með
sömu fjárhæö. Bréfin eru vísitölu
tryggð, og vinningar koma i stað
vaxta, og eru vinningarnir skatt-
frjálsir. Dregiö verður tiu sinn-
um, og vinningarnir eru sjö millj.
kr. hverju sinni. Eru tveir milljón
kr. vinningar og aðrir lægri. En
aðalatriðið i þessu er að leggja fé
i þetta góða verkefni, og það er
tryggt að fólk fær sitt fé til baka.
Ég ætla, að þessi bréf verði góðar
afmælisgjafir handa börnum. Ef
eftirspurnin eftir þessum bréfum
verður eitthvaö ámóta og eftir
spariskirteinum, verða menn að
flýta sér að tryggja sér bréfin.
Treysti þvi að
mannvirkin
standist hlaupin
Sigurður Þórariiisson, jarðfræð-
ingur hefur um árabil fylgzt með
hlaupum úr vötnum úr Vatnajökli
og er verkfræöingum Vegagerð-
arinnar til ráöuneytis um lagn-
ingu vegarins yfir Skeiðarársand.
Timinn spurði hann, hvað væri
það hættulegasta, sem fyrir
Skeiðarárveginn gæti komið.
Hann sagði, að það væru náttúr-
lega stórhlaup, eins og þau hefðu
veriö i eina tið. En mannvirkj-
unum væri ætlað að standast
hlaup af þeirri stærðargráöu, sem
komið hafa undanfarin ár. Að
öðru leyti er ekki erfiðara að
leggja þennan veg en yfir aðra
sanda þarna austur frá.
Ég treysti þvi, að verkfræð-
ingarnir hanni veginn, varnar-
Framhald á bls. 13
IStftlicfaœll
Úrvalsvörurnar frá Marks & Spencer
fást í Gefjun Austurstræti og hjá
kaupfélögum um land allt.
Fatnaöur á alla fjölskylduna.
Vörurnar, sem eru þekktar og rómaðar
um víöa veröld.
Framleiddar undir strangasta gæöaeftirliti.
r Samband ísl. samvinnufélaga 'l
INNFLUTNINGSDEILD .. A