Tíminn - 15.03.1972, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 15. marz 1972.
TÍMINN
11
Umsjón: Alfreð Þorsteinsson
Allf gekk að óskum,
nema hvað ferðataska
fararstjórans týndist!
Borgarstjórinn i Bilbao tók á móti islenzka landsliðinu i gær
Alf-Reykjavik. — ís-
lenzka landsliðið i hand-
knattleik er komið, heilu
á höldnu, til Bilbao á
Norður-Spáni eftir för
með næturlest frá
Madrid. Að sögn Rúnars
Bjarnasonar, áðalfarar-
stjóra liðsins, i simtali i
gærkvöldi, hefur allt
gengið að óskum, nema
hvað ferðataska hans
mun hafa týnzt einhvers
staðar á leiðinni!
í gær var islenzku
landsliðsmönnunum,
ásamt landsliðsmönnum
annarra þjóða, boðið til
veizlu hjá borgar-
stjóranum i Bilbao.
Bauð hann þátttakendur
velkomna til borgar-
innar.
Aðspurður um það,
hvort mikill hiti væri i
Bilbao um þessar
mundir, sagði Rúnar
Bjarnason, að svo væri
ekki — a.m.k. á spánska
visu — eitthvað 12 til 13
gráður, og sólarlaust.
Hitinn hefði þvi ekki
þrúgandi áhrif á is-
lenzka hópinn.
Rúnar sagði að lokum,
að bæði Finnar og Norð-
menn væru komnir til
Bilbao. í gærkvöldi
ætluðu islenzku leik-
mennirnir að skoða
iþróttahöllina á staðn-
um.
-
"r m$8Sk? •". •- -- •, .r®*.
, -.•r v
Axcl Axclsson. — Tekst honum aft skora hjá Kiiiiiunum i kvöld?
Megum vara okkur á finnska liðinu!
Fyrsti leikur íslenzka landsliðsins verður í kvöld gegn Finnum
Fyrsti leikur islenzka landslifts-
ins i forkeppninni á Spáni, verftur
háftur i kvöld, en þá mætir
isienzka liftift Finnum. Fer leikur-
inn fram i iþróttahöllinni i Biibao
og hefst kl. 19.30 aft Islenzkum
tima. Fyrirfram er búizt vift
islenzkum sigri, en menn ættu þó
aft varast of mikla bjartsýni, þvi
aft finnskum handknattleiks-
mönnum hefur farift gifurlcga
mikiö fram á undanförnum árum.
Þess vegna megum viö vara
okkur á Finnum.
Finnskum handknattleiks-
mönnum, hefur farið mjög mikið
fram i vetur, og sézt þaö bezt á
þvi,að meistararnir frá þvi i fyrra
UK-51, sem léku hér við FH i
Evrópukeppninni, lentu nú i
Úrslitaleikur í 2.
deild á morgun
Alf-Reykjavík. — Annað kvöld,
fimmtudagskvöld,fer fram fyrri
úrslitaleikurinn i 2.deild i
íslandsmótinu i handknattleik
milli Gróttu og Armanns.
Ferleikurinn fram i iþróttahús-
inu á Seltjarnarnesi og hefst kl.
20.15. Má búast við mjög jöfnum
BORDTENNIS
Haldiö verður Reykjavíkurmót i
borötennis dagana 21. og 24.marz
i Laugardalshöllinni.
Þriðjudaginn 21.marz kl. 18-23
verður keppt i einliöaleik ungl.,
einliðaleik kvenn a, tviliöaleik
kvenn a, tviliðaleik karla og
tvenndarkeppni.
Föstudaginn 24.marz kl. 18-23
verður keppt i eftirtöldum
greinum: Einliðaleik karla og
tviliðaleik unglinga. Siðast á dag-
skránni verður svo verðlaunaaf-
hending.
Þátttökutilkynningar þurfa aö
hafa borizt i siðasta lagi fimmtu
daginn 16.marz.
Þeir sem eru i borðtennis hjá i-
þróttafélögum, geta látið skrá sig
hjá sinu félagi, annars hjá hús
veröi Laugardalshallarinnar.
Þátttökugljad er 100 kr. og skal
það fylgja þátttökutil-
kynningunni.
Framkvæmdanefnd.
og skemmtilegum leik milli
þessara liða.
Nánar á morgun.
fjórða sæti i finnsku 1. deildinni.
Nýlega léku Finnar tvo lands-
leiki við Dani og töpuðu báðum
leikjunum með litlum mun,
18:20(8:11) og 13:15(4:8). Eftir
þessa leiki, sem fóru fram i
Danmörku, sögöu dönsku blöðin:
Finnska landsliðið hefur tekið
gifurlegum framförum á þessum
vetri — liðiö hefur mjög gott út-
hald og leikur harða og vel út-
færöa vörn, og i sókninni hefur
þvi tekizt aö þróa eigiö, öruggt
spil.
I liöinu leika margir frábærir
leikmenn, eins og t.d. mark-
verðirnir Björn Storskrubb og
Folke Wickström, en þeir hafa
mjög góðar staðsetningar. Kari
Lehtolainen og Kaj Aström (1.94
cm) — báðir vinstri handa
skyttur og gegnumbrotsmenn.
Mikið er um linuspil i finnskum
handknattleik og eiga þeir þar af
leiðandi marga mjög góða linu-
spilara, sá sem er talinn beztur
heitir Lauri Ravander og er hann
frægur fyrir hreyfanleika. Ekki
má gleyma vitaskyttu þeirra
~r
Harry Biehl, en hann tók t.d. 11
viti i leikjunum viö Dani og
skoraði úr þeim öllum — i Finn-
landi er hann kallaður „Byssan’!,
SOS.
Armanns-stúlkur
eru nú úr leik
Einn leikur var háður i l.deild
kvenna i Islandsmótinu i hand-
knattleik um helgina. Vikingur og
Armann léku. Lauk leiknum með
sigri Vikings, 8:5, sem með þvi
hlaut sin fyrstu stig i mótinu. En
ósigur Armanns þýðir það, aö Ar-
mannsstúlkurnar hafa ekki
lengur möguleika á að hljóta ís-
landsmeistaratitilinn, þar sem
þær hafa nú tapað 6 stigum.
NÚ GETA MENN SYNT
200 METRANA HUNDRAÐ
SINNUM, EF ÞEIR VILJA!
Norræna sundkeppnin hefst 1. apríl næstkomandi
Alf-Reykjavik. —1 ár er nor-
rænt sundár. Norræna sund-
keppnin hefst 1. april n.k., en
þetta er áttunda norræna
sundkeppnin siðan 1948, en Is-
land tók fyrst þátt i keppninni
1951 og sigraði þá.
Norræna sundkeppnin verö-
ur að þessu sinni meö nokkru
öðru sniði en undanfarið. Að
visu breytist vegalengdin
ekkert. Fólki er gert að synda
200 metra, en i stað þess að
synda þá aöeins einu sinni —
eins og verið hefur — má nú
synda þessa vegalengd eins
oft og fólk lystir. Verða nú
veitt bronz-, silfur og full-
merki eftir þvi hve oft 200
metranir eru syntir. Fyrir aö
synda vegalengdina einu sinni
er veitt bronsmerki, fyrir að
synda hana tuttugu sinnum er
veitt silfurmerki — og fyrir aö
synda 200 metrana fimmtiu
sinnum hljóta menn gull-
merki. En þaö skal tekið fram,
að ekki má synda 200 metr-
ana, nema einu sinni á dag.
Eins og fyrr segir, hefst
keppnin 1. april n.k. og stend-
ur yfir til 31. október n.k.
Hefur timabilið þvi lengzt
nokkuð frá þvi, sem áður var.
í siðustu norrænu sund-
keppninni uröu Sviar sigur-
vegarar, en ekki er óhugs-
andi,að með þessu breytta
fyrirkomulagi aukizt mögu-
leikar tslendinga talsvert.
Merki keppninnar, teiknað af Torfa Jónssyni.
Það liftu 6 minútur, þar lil Ar-
mann skoraöi fyrsta markift i
leiknum, en Vikingur jafnaði
fljótlega. Siftan skiptust liðin á
um að skora, þar til staðan var
orðin jöfn, 3:3, en þá skora gömlu
kempurnar, Guðrun H. og Halld-
óra tvö mörk fyrir Viking — og
staðan i hálfleik 5:3 Viking i hag.
I siðari hálfleik tókst Vikings-
stúlkunum fljótlega að auka biliö
enn með tveimur mörkum 7:3, og
var þá munurinn orðinn of mikilí
til þess, að Armenningar gætu
unnið forskotið upp. Lauk
leiknum 8:5.
Vikings liðið hefur tekið
miklum framförum frá þvi að
mótið hófst. Og enda þótt sóknar-
leikurinn sé fremur einfaldur —
aðeins ein manneskja virðist geta
skotið — þá bætir góö vörn liðsins
þennan galla upp, ásamt góðri
markvörzlu. Mörk Vikings: Sig-
þrúður 3, Guðrun og Guðrún H. 2
hvor og Halldora 1.
Þessi leikur var lakasti leikur
Armanns til þessa enda vart við
þvi að búast, aö liöið sýni top-
pleiki i hvert sinn, sem það leikur.
Mörk Armanns: Erla 2, Sigriður,
Auður og Katrin 1 mark hver.
J. Herm.
Fundur hjá
íþróttakennurum
Félagsfundur i Iþróttakennara-
félagi tslands verður haldinn að
Hótel Esju fimmtudaginn 16.
marz og hefst kl. 20.30. A dagskrá
fundarins verður: Námsskrá i
iþróttum (Framsögu hefur Þor-
steinn Einarsson, íþróttafulltrúi).
Námskeið fyrir iþróttakennara.
Og i þriðja lagi önnur mál. Eru
iþróttakennarar hvattir til að
fjölmenna.