Tíminn - 26.03.1972, Blaðsíða 20
Veðurstofan á Keflavíkur-
flugvelli 20 ára 1. apríl
Aöalflugveðurstofan á Islandi
var flutt frá Reykjavikurflugvelli
til Keflavikurflugvallar 1. april
1952. Hún á þvi 20 ára starfsaf-
mæli á Keflavikurflugvelli um
þessar mundir.
Veðurstofan var undir stjórn
Hlyns Sigtryggssonar og störfuðu
Svart: Hcykjavik: Torfi
Stefánsson og Kristján Guö-
mundsson.
ABCDEFOH
ce
-j
o»
Ol
H
H
n
M
A B C D E F 0 H
Hvitt: Akureyri: Sveinbjörn
Sigurðsson og Hólmgrimur
Heiðreksson.
5. leikur Ileykvlkinga 0-0,
þar i fyrstu 4 veöurfræðingar og
10 aðstoðarmenn. Seinna jókst
starfsliðið i 24, eða 7 veðurfræð-
inga, 7 háloftamenn og 10 að-
stoðarmenn. Hlynur Sigtryggs-
son lét af störfum deildarstjóra 1.
júli 1963, er hann tók viö starfi
Veöurstofustjóra. Deildarstjóri
frá 1. júli 1963 hefur verið Borg-
þór H. Jónsson.
Fjöldi starfsmanna hefur yfir-
leitt verið 21 til 24. Fjöldi flug-
spáa, sem geröar eru árlega fyrir
millilandaflug frá Keflavikur-
flugvelli og Reykjavikurflugvelli,
hefur aukizt á fimm árum úr tæp-
um þrem þúsundum i 4350. Meö
vaxandi tækni og aukinni notkun
allskonar tækja hefur verið hægt
að mæta þessari aukningu án
þess að bæta viö starfsfólki.
A næturnar eru gerðar veður-
spár fyrir miöin og landiö, bæöi á
islenzku og ensku. Veöurspár
fyrir aöal flugvellina, þ.e. Kefla-
vik, Reykjavik, Akureyri, Egils-
staði og Höfn i Hornafiröi eru
gerðar á 6 klst. fresti. A morgn-
ana eru einnig gerðar spár fyrir
innanlandsflugiö.
Veðurathuganir,sem gerðar eru
á klukkustundar fresti á Kefla-
vikur- og Reykjavikurflugvelli
eru sendar til dreifingar erlendis,
svo og flugvélaskeyti, er tilgreina
veður á islenzka flugstjórnar-
svæðinu.
Frá og meö 1. marz 1971 hafa
islenzkir starfsmenn Veðurstofu
Islands eingöngu framkvæmt
háloftaathuganir á Keflavikur-
flugvelli. Þessar athuganir eru
geröar tvisvar á sólarhring og ná
oftast upp i 30 til 35 km hæð. Loft-
þrýstingur, hitastig, rakastig,
vindátt og vindhraði eru þau
veðurfræðileg atriði, sem mæld
eru. Auk þessa búa háloftamenn
athuganirnar á gataspjöld til
undirbúnings tölvuvinnslu á
mánaðarmeðaltölum.
Kostnaðurinn af þessari starf-
semi hefur verið greiddur fram til
þessa af Alþjóðaflugmálastofn-
unninni. ICAO.
Koma heim
ósigraðir
SJ-Reykjavik.
Islenzka handknattleiksliöið
sigraði Pólverja i undankeppni
Ólympiuleikanna i handknattleik
á Spáni i gær með 21 marki gegn
19. Þarmeðhlutu þeir þriöja sæti.
Islendingar koma heim sem
sigurvegarar, en þeir léku sex
leiki og töpuðu engum þeirra.
Liðið gerði jafntefli við Finna og
Norðmenn, en sigraði Búlgara,
Belga, Austurrikismenn og nu
siöast Pólverja. Þetta er glæsi-
legasti sigur, sem islenzkir
flokkaiþróttamenn hafa unnið.
4
Þaö er ekki oft, sem málari
sýnir samtimis á tveim stöö-
um i Reykjavik, en hér er
llörður á annarri sýningu
sinni. (Tiinamynd G.E.)
Sunnudagur 26. marz 1972.
J
Hörður sýnir á
tveimur stöðum
SB-Reykjavík
Hörður Agústsson opnar I dag
tvær sýningar á verkum sinum. 1
Listasafni ASÍ, Laugavegi 18,
sýnir hann 27 ,,Gouash”-myndir
og nefnir hann þá sýningu
..Landsminni?
Syningin I Galerí Súm heitir
hins vegar ,,Úr formsmiðju” og
eru þaö Ijósmyndir af teikning-
um, en frjálslega farið með efniö.
„Landsminni” eru 27 myndir,
málaðar á árunum 1957 til 1963.
Þær eru eins konar endurminning
um landið og veðurhjúp þess. Sú
sýning verður opin til 3. april, alla
daga frá kl. 14-22, nema á mánu-
daginn aðeins til kl. 20.
Sýningin i Gallerí SOM stendur
hins vegar til 9. april og er opin
daglega frá kl. 16 -22. Verkin á
þeirri sýningu eru að nokkru leyti
árangur tilrauna, er gerðar voru
samfara kennslu i svokallaðri
formfræöi við Myndlista- og
handiðaskólann undanfarin 10 ár.
Sveinn sýnir vatnslitamyndir
í kjallara Norræna hússins
Sveinn Björnsson, listmálari opnar I dag, laugardag, sýningu I
kjallara Norræna hússins. Þar sýnir málarinn 69 myndir, allt vatns-
litamyndir, sem hann hefur gert á s.L tveim árum. A þessu timabili
segist Sveinn ekki hafa snert á öðru en vatnsiitum og eru margar
myndanna stórar, og vafaiitið stærstu vatnslitamyndir, sem geröar
hafa verið hérlendis. Verður sýning Sveins opin fram yfir páska.
(Timamynd Róbert)
AUGLVSINGASTOFA KRISTINAR 10 4
Veggfóöur
ereinnig
meöalalls þess,
sem viö bjóðum!
BYKO
(og að sjálfsögdu í fjölbreyttu úrvalij
BYGGINGAVÖRUVERZLUN KÓPAV0GS
SIMI 41000
KARSNESBRAUT 2