Tíminn - 12.04.1972, Blaðsíða 16
Ringuíreiðí
herbúðum
Wilsons
- vegna ósamkomulags um markaðsmálin
NTB-London.
Við sjálft lá i gær, að aigjör
ringuireið yrði i herbúðum
verkamannaflokksins brezka,
eftir að Chalfont lávarður
sagði af sér sem talsmaður
flokksins i utanrikis- og
varnarmálum I efri málstof-
unni. Aðeins sólarhring áður
hafði Roy Jenkins sagt af sér
sem varaformaður flokksins
og fleiri háttsettir fiokksmenn
fylgdu þvi fordæmi.
Fréttaskýrendur i London
eru þeirrar skoðunar, að þessi
vandræði flokksins geti haft
alvarleg áhrif á stöðu Wilsons
sem ieiðtoga hans og verða til
þess, að verkamannaflokkur-
inn geti ekki lengur sýnt
ábyrga stjórnarandstöðu.
Asamt Jenkins gengu úr
skuggaráðuneytinu þeir Har-
old Lever, efnahagssér-
fræðingur og George Thomp-
son, fyrrverandi aðal-
samningamaður flokksins i
Brussel.
Ástæðan til að þessir þrir
fyrrverandi ráðherrar, gengu
út úr, er sú, að skuggaráðu-
neytið krefst þess, að fram
fari þjóðaratkvæðagreiðsla i
Bretlandi um aðildina að
EBE, en þremenningarnir eru
mjög hlynntir aðild.
Einn af fremstu tals-
mönnum flokksins, i efna-
hagsmálum, Dick Taverne,
sagði i gær, að hann myndi
sennilega hætta starfi sinu i
dag og munu nú margir hátt-
settir flokksmenn til viðbótar
verða að ihuga stööur sinar i
flokknum.
NTB-Tehejan
Um 1000 manns létu lifiö i
aðeins einu þorpi i tran i jarð-
skjálftanum á mánudagsnóttina.
Talið er, að minnsta kosti 5000
manns i allt hafi látizt. Um 1200
hermenn og 200 björgunarmenn
hafa verið scttir inn i skipulagt
hjálparstarf, ásamt hundruöum
almennra horgara. Ekki mun
unnt fyrr en eftir nokkra daga, að
segja, hvað margir liafa látizt i
hamförunum.
Mikið magn blóðvatns hefur
veriðsent til Shiraz, aðalbæjarins
á jarðskjálftasvæðinu, en þar
urðu engar skemmdir. Sjúkra-
húsjn þar taka við hinum
slösuðu, sem þangað eru fluttir
méð þyrlum.
Samkvæmt opinberum
tilkynningum, hafí 45 þorp á
miðju svæðinu gjörsamlega lagzt
i rústir, og allt að helmingi fleiri
eru illar farin. Meðal þeirra
þorpa, sem urðu verst úti eru
þorpin Ghir og Karzin, sem áður
voru blómleg og vistleg. Allt, sem
nú stendur uppi i Ghir er
auglýsingastólpi með plakati,
sem á stendur: Velkominn til
bæjarins okkar.
Undanfarinn sólarhring hafa
mælzt ótal litlir jarðskjálfta-
kippir og tefja þeir mjög
björgunarstarfið, þar sem þeir
koma af stað skriðum. Margar ár
hafa stiflazt vega skriðufalla og
vegir lokazt. Vatnselgurinn við
stiflurnar hefur eyðilagt mikið
akurlendi.
Um 40 manns sem tóku þátt i
guðsþjónustu senmma á mánu-
dagsmorguninn, létu lifið, er
kirkjan hrundi. I þorpinu Ghir,
þar sem þetta gerðist hafa
björgunarmenn nú fundið yfir
500 lik, og enn er eftir að leita
mikið i rústunum.
Jarðskjálftarnir sem sifellt
finnast, hafa valdið mikilli
skelfingu meðal þeirra, sem lifðu
hörmungarnar af. Þeir búa i
tjöldum úti á viðavangi og halda á
sér hita með ullarteppum.
A svæðinu nálægt Ghir sjást
gapandi gjár i jarðskorpunni og
fólkið óttast, að fleiri slikar kunni
að myndast og gleypa það.
l ■ ■_■_■ ■ l
Nýskipan heilbrigðisþjónustunnar:
Svart: Reykjavik: Torfi
Stefánsson og Kristján Guð-
mundsson.
ABCDEFGH
ABCDEFGH
Hvltt: Akureyri: Sveinbjörn
Sigurðsson og Hólmgrimur
Heiðreksson.
i). leikur Reykjavikur: Rf6-h5
Miðvikudagur 12. april 1972.
Líka
kippir í
Atlantshafi
NTB-Uppsölum
Jarðskjálfti að sama styrkleika
og sá, sem gekk yfir Iran á mánu-
dagsnóttina varð i Atlanshafinu i
fyrrinótt klukkan 2.32 að isl. tima.
Jarðeðlisfræðistofnunin i Upp-
sölum tilkynnti þetta i gær og
kvað kippinn hafa mælzt 6,7 stig á
Richter-kvarða.
MINNI FL0TTI
ÚR DREIFBÝL-
INU í N0REGI
Enn stöðugur titringur
á jarðskjálftasvæðinu
SB-Reykjavik.
Þær fréttir berast nú frá
Noregi, að eftir margra ára
stöðuga flutninga fólks frá
Norðurhéruðum landsins, suður i
þéttbýlið, sé nú loksins þessi
öfugþróun að snúast við. Einkum
eru menn i Troms og Finnmörk
bjartsýnir, enda hefur þar verið
komið á fót verksmiðjum, sem
eiga að stuðla að jafnvæginu i
byggð landsins.
t sumum norðurhéruðunum er
brottflutningur fólks þó enn
vandamál, þvi unga fólkið hefur
ekkert við að vera heima fyrir.
1 Troms virðist unga fólkið þó
skyndilega hafa fengið aftur
áhuga á búskap, en'da hefur þar
verið sett upp mikið og nýtizku-
legt landbúnaðarvélaverkstæði,
sem selur vélar og veitir alla
hugsanlega þjónustu i sambandi
við vélabúskap nútimans. Fisk-
veiðar hafa einnig gefið vel af sér
þarna undanfarin ár. Þá er ný-
risin mikil spónaverksmiðja, sem
veitir hundruðum manna at-
I Finnmörku jókst ibúatalan
um 0,98% árið 1971 eftir að hafa
minnkað um árabil. Norðmenn
fagna þessu, og vilja gera enn
betur.
IRA misþyrmdi ófrískri konu
- tengdafaðirinn sagði henni það mátulegt
NTB-Belfast
Vangurard-hreyfingin sendi í
gær frá sér yfirlýsingu þar sem
Ileath, forsætisráðherra er harð-
lcga gagnrýndur fyrir að taka
völdin á N-írlandi. Jafnframt
kröfðust mótmælendur að brezkir
hermenn kæmu og tækju við st-
jórn á þeim svæðum, sem IRA
ræður nú.
Þá voru Bretar ásakaðir harð-
lega fyrir að láta lausa kaþólikka,
sem verið hafa i haldi, grunaðir
um hryðjuverkastarfsemi.
Um helgina misþyrmdu
nokkrir IRA-menn ófriskri konu,
og i gær sagði tengdafaðir hen-
nar, að það hefði verið henni
mátulegt. Hún hefði margsinnið
verið aðvöruð, og hann hefði vel
vitað, að hún útvegaði unglingum
i hverfinu fiknilyf.
Kaupið
fjöður
26 HEILSUGÆZLUSTOÐVAR
VERÐI UTAN REYKJAVÍKUR
EB-Reykjavik.
Veigamestu nýmælin, sem
felast i frumvarpi þvi um heil-
brigðisþjónustu, sem heil-
brigðis- og félagsmálanefnd
neðri deildar Alþingis, lagði
fyrir þingið i gær eru m.a.
eftirfarandi:
Mótuð er almenn stefnuyfir-
lýsing um, að landsmenn allir
skuli eiga kost á eins fullkom-
inni heilbrigðisþjónustu og tök
eru á að veita hverju sinni.
Akvæði eru um yfirstjórn heil-
brigðismála og gert ráð fyrir
deildaskiptingu ráðuneytis
eftir verkefnum. Gert er ráð
fyrir að setja á stofn ráð-
gjafarnefnd, Heilbrigðisráð
Islands, sem sé tillögu- og
umsagnaraðili til ráðherra og
ráðuneytis um ýmis mál.
Þá er gerð tillaga um nýja
og mjög breytta skipan
læknishéraða i landinu og
fylgir i kjölfar þeirrar breyt-
ingar breyting á störfum og
stöðum héraðslækna. Ráðgert
er, að læknishéruð verði fram-
vegis 8 og að héraðslæknar
verði eingöngu eða nær ein-
göngu embættislæknar, sem
annist skipulagningu og fram-
kvæmd heilbrigðisþjónustu
hver i sinu héraði.
Akveðin er staðsetning 26
heilsugæzlustöðva utan Reyk-
javikur, og er gert ráð fyrir að
þær verði miðstöðvar
almennra lækninga og heilsu-
verndarstarfs á nánar til-
teknum svæðum. Auk stað-
setningar heilsugæzlustöðvar,
er gert ráð fyrir læknissetrum
einstakra lækna á allt að 11
öðrum stöðum.
Gert er ráð fyrir, að annars
vegar verði starfandi héraðs-
hjúkrunarkonur, sem starfi
með hérðslæknum og hins
vegar heilsugæzluhjúkrunar-
konur, sem starfi á heilsu-
gæzlustöðvum og verði
hjúkrunarkonur þessar rikis-
starfsmenn. Þá er gert ráð
fyrir, að rikisframlag verði
hið sama við byggingu heilsu-
gæzlustöðvar og sjúkrahúsa
og verði 85 af hundraði af
kostnaði við byggingu og
búnað stofnanna.
Þá er m.a. gert ráð fyrir að
ráðherra skipi þriggja lækna
nefnd, sem hefur það hlutverk
að meta hæfni umsækjenda
um stöður yfirlækna, sér-
fræðinga og héraðslækna.
Ennfremur segir i frum-
varpinu, að gera skuli áætlun
um þörf landsmanna fyrir
heilbrigðisstofnanir til 10 ára i
senn og skal áætlunin endur-
skoðuð á tveggja ára fresti.
Kveðið er á um skyldu rikisins
til að sjá um byggingu stofn-
ana samkvæmt áætlun, en
heimilt er að semja við
sveitarfélög eða einstaklinga
um framkvæmdir innan
ramma áætlunar. Gert er ráð
fyrir læknaráðum við öll
sjúkrahús þar sem 3 læknar
eða fleiri eru starfandi, og
skulu læknaráðin vera stjórn-
endum til ráðuneytis um öll
læknisfræðileg atriði i rekstri
sjúkrahússins. Þá skal við
sjúkrahúsin stofna sérstök
starfsmannaráð sjúkrahúsa
þar sem starfshópar eiga full-
trúa, og er gert ráð fyrir þvi að
starfsmannaráð kjósi menn i
stjórnir sjúkrahúsanna.
berjumst
gegn
blindu
Söludagar 15. og 16. april
V.W.W.V.W.-.V.W.V.V.W.VW.V.V.W.W.V.V.-.V.W.W.V.V.V.W.V.W.V.V.V.W.-.W.V.W.-.V.V.W.W.W
LionsumdæmiS ð Islandl