Tíminn - 04.05.1972, Blaðsíða 6

Tíminn - 04.05.1972, Blaðsíða 6
6 TÍMINN Fimmtudagur 4. mai 1972. ■ Endurskoðun stjórnarskrárinnar ■ Námsbækur framhalds skólanema Á fundi i Sameinuðu þingi s.l. þriðjudag var eftirfarandi tillaga samþykkt sem ályktun Alþingis: ,,Alþingi ályktar að skora á rikisstjórnina að hlutast til um, að nauðsynlegar kennslu- bækur, innlendar og erlendar, sem notaðar eru á hverjum tima vegna náms i framhalds- skólum, séu jafnan á boð- stólum i verzlunum, en tals- vert skortir á, að svo hafi verið, svo að fullnægjandi geti talizt. Enn fremur verði at- hugað, hvort unnt sé aö auka útgáfu islenzkra kennslubóka á þann hátt að draga úr notkun erlendra bóka, einkum i menntaskólum og Háskóla Islands. 1 þessu sambandi kemur til. álita, hvort nauðsynlegt sé að fela Rikis- útgáfu námsbóka forgöngu i þessum efnum. bá verði kannað, hvernig háttað er verðlagningu er- lendra kennslubóka i verzlun- um, með það fyrir augum að tryggja, að þær séu á boðstólum á hóflegu verði”. Flutningsmenn tillögunnar voru þeir Stefán Gunnlaugs- son (A) og Karl Steinar Gunnlaugsson (A). Framkvæmdaáætlun fyrir Noröurlandskjördæmi vestra Á sama þingfundi var eftir- farandi tillaga samþykkt,sem ályktun Alþingis: „Alþingi ályktar að skora á rikisstjórnina að fela Fram- kvæmdastofnun rikisins að gera, i samráði við Fjórðungs- samband Norðlendinga, sér- staka framkvæmdaáætlun fyrir Norðurlandskjördæmi vestra vegna hins mikla og stöðuga atvinnuleysis i kjör- dæminu”. Flutningsmaður tillögunnar var Pétur Pétursson (A), en allsh.nefnd gerði litillegar breytingar á henni og sam- þykkti að láta hana hljóða svo sem áður er frá greint. Rekstraraðstaða félagsheimila bá var á fundi i Sameinuðu þingi á þriðjudaginn sam- þykkt að visa eftirfarandi til- lögu til rikisstjórnarinnar með tilmælum um það, að hún kanni möguleika til að bæta rekstraraðstöðu félagsheimil- anna. „Alþingi ályktar að skora á rikisstjórnina að beita sér fyrir þvi, að ráðstafanir verði gerðar til þess að veita félags- heimilum úti á landsbyggðinni bætta rekstraraðstöðu. Ráðstafanirnar miði að þvi, að tryggja megi eðlilegan rekst- ur félagsheimilanna, einkum með tilliti til þess menningar- lega hlutverks, sem félagsheimilunum ber að rækja”. Flutningsmaður þessarar tillögu var Helgi F. Seljan (AB). Stjórnarfrumvarp til nýrra hafnarlaga: 12% af árlegum ríkis- framlögum til hafna fari til Hafnarbótasjóðs EB-Reykjavik. A fundi i Sameinuðu þingi s.I. föstudag, mælti Gisli Guðmunds- son (K) fyrir þingsályktunar- tillögu þeirri, er hann flytur um endurskoðun stjórnarskrár- innar. Ennfremur mælti Gunnar Thoroddsen (S) á sama fundi fyr- ir tillögu, er hann flytur um sama efni. Gisli Guðmundsson, ( F) rakti i upphafi máls sins söguleg atriði þessara mála, en vék siðan að efni tillögunnar, er hljóðar svo: „Alþingi ályktar að stofna til endurskoðunar stjórnarskrár lýð- veldisins tslands og fela rikis- stjórninni að skipa til þess 10 manna nefnd samkvæmt tilnefn- ingu eftirgreindra aðila: 1. Al- þingi tilnefni 5. 2. Lagadeild Há- skóla íslands tilnefni 2. 3. Hæsti- l'éttur tilnefni 3, og einn þeirra sé formaður nefndarinnar. Nefndin taki m.a. til athugunar eftirtalin efnisatriði: 1. Korsetaembættið. Hvort fyrirkomulag æðstu stjórnar tslands sé svo heppilegt sem það gæti verið, og hvaða skipan hennar mundi vera bezt við hæfi þjóðarinnar. 2. Skipting Alþingis i deildir. Hvort hún se' úrelt orðin og ein málstofa hagfelldari. 3. Aðgrcining löggjafarvalds, framkvæmdavalds og dóms- valds. Hvort þörf sé skýrari ákvæða um þessa greiningu. Ekki rétt að endur- skoða vatnalögin - fyrr en úrskurðir dómstóla liggja fyrir EB — Reykjavik. Miklar umræður urðu um raf- orkumálin á fundi i Sameinuðu Alþingi s.l, þriðjudag, þegar Magnús Kjartansson iðnaðarráð- herra mælti fvrir þingsályktunar- tillögu rikisstjórnarinnar um þau mál. Margir þingmenn úr Sjálf- stæðisflokknum gerðu athuga- semdir við tillöguna, m.a. for- maður flokksins, Jóhann llafstein, en komu ekki fram með heildarstefnu i þeim málum. t þessum umræðum gerði Jóhann llafstein athugasemd við það, að stjórnvöld hefðu lagt nið- ur nefnd þá, er skipuð hafði verið til að endurskoða vatnalögin. ólafur Jóhannessonforsætis- ráðherra, kvaddi sér hljóðs, vegna þessarar athugasemdar þingmannsins og sagði m.a., að ýms málaferli, er snertu vatna- lögin, væru nú i gangi hér á landi, t.d. mál i sambandi við Mývatn, Laxárvirkjun og almenninga á Suðurlandi. Rétt hefði þótt að endurskoða ekki gildandi vatna- lög fyrr en úrskurðir dómstóla i þessum málum, væru fyrir hendi. bað væri óeðlilegt að gripa þannig fram fyrir hendur dóm- stólanna. — betta er fyrst og fremst ástæðan fyrir þvi, að ég taldi rétt að leggja nefndina niður, sagði Ólafur Jóhannesson siðan. 4. Samskipti við önnur riki. Nauðsyn ákvæða, er marki rétt rikisstjórnar og Alþingis til samninga við aðrar þjóðir. 5. bjóðaratkvæði. Ákvæði um, hvenær rétt sé eða skylt að láta fram fara þjóðarat- kvæðagreiðslu — og hvað hún gildi. (i. Kjörgengi. Hvort ástæða sé til að tak- marka kjörgengi meir en nú er gert i 34. gr. stjórnarskrárinnar. 7. Kjördæmaskipan. Hvort rétt sé að breyta kjör- dæmaskipuninni á þá leið, að landinu öllu verði skipt i ein- menningskjördæmi, þar sem aðalmenn og varamenn verði kosnir saman óhlutbundnum kosningum, en uppbótarþing- menn engir. S. bingflokkar. Hvort þörf sé lagasetningar um skyldur og réttindi þingflokka. 9. Ný skipting landsins i sam- takaheildir. Hvort æskilegt sé að taka inn i stjórnarskrána ákvæði um skipt- ingu landsins i fylki eða aðrar nýjar samtakaheildir, er hafi sjálfstjórn i sérmálum, enda leiti nefndin um þetta álits sýslu- nefnda, bæjarstjórna, borgar- stjórnar Reykjavikur, Sambands isl. sveitarfélaga og sérsam- banda sveitar- eða sýslufélaga i einstökum landshlutum. III. Itráðahirgðalög. Ilvort ástæða sé til að kveða nánar á en nú er gert um útgáfu bráðabirgðalaga og gildistima. 11. Kignakaup og eignasala rikis- ins. Hvort þörf sé nýrra ákvæða um eignakaup og eignasölu rikissjóðs og rikisstofnana. 12. óeðlileg verðhækkun lands og fasteigna. llvort gerlegt sé og nauðsyn- legt, að hindra með stjórnar- skrárákvæði óeðlilega verðhækk- un lands og fasteigna. 13. Héttur og skylda til starfs. Hvort ástæða sé til að kveða á um rétt og skyldu verkfærra þjóð- félagsþegna til starfs. 14. Jöfn menntunaraðstaða. Hvort kveða skuli á um, að þjóðfélaginu sé skylt að sjá svo um, að börnum og ungmennum, hvar sem þau eiga heima á land- inu, skuli gert kleift að afla sér al- mennrar menntunar. 15. Vörn landsins. Hvort ákvæði 75. gr. stjórnar- skrárinnar eigi þar heima á kom- andi timum. l(i. bingsetningartimi. Ilvort rétt sé, að i stað ,,15. dag febrúarmánaðar” i 35. gr. stjórnarskrárinnar komi annar timi, t.d. 1. október. 17. llækkun rikisútgjalda. Hvort rétt sé að kveða nánar á en nú er gert um frumkvæði að hækkun rikisútgjalda. 18. Mannréttindayfirlýsing Sam- einuðu þjóðanna. Hvort bæta skuli ákvæðum úr mannréttindayfirlýsingu Sam- einuðu þjóðanna við VII kafla stjórnarskrárinnar og breyta 70 gr. hennar með hliðsjón af nútimalöggjöf. 19. Skyldur við landið. Hvort tilhlýðilegt sé og gagn- legt til leiðbeiningar á komandi timum, að stjórnarskráin hefjist á yfirlýsingu um skyldur þjóðar- innar við landið og um nauðsyn landsbyggðar, enda jafnframt kveðið á um þá almennu reglu, að fasteignir og náttúruauðæfi séu i eigu tslendinga. 2(1. Stjórnlagaþing. Hvort ráðlegt sé, að sérstak- lega kjörið stjórnlagaþing fjalli um stjórnarskrána. Með opinberri tilkynningu skal þeim, er þess kynnu að óska, gef- inn kostur á að koma á framfæri við nefndina skriflegum og skrif- lega rökstuddum breytingartil- lögum við núgildandi stjórnar- skrá fyrir þann tima, sem nefndin ákveður. Nefndin ljúki störfum svo fljótt sem unnt er og skili tillögum sinum til Alþingis. Skal að þvi stefnt, að lýðveldisstjórnarskrá geti tekið gildi á árinu 1974.” TILLAGA Gunnars Thoroddsens er svohljóðandi: ,,Alþingi ályktar að efna til endurskoðunar á stjórnar- skránni. Undirbúningur þess verks skal falinn ellefu manna stjórnarskrárnefnd, er þannig sé skipuð, að Alþingi kýs sjö menn. Hæstiréttur nefnir tvo og laga- deild Háskóla tslands aðra tvo. Forsætisráðherra kveður nefnd- ina saman til fyrsta fundar. Nefndin skiptir sjálf með sér störfum. Stjórnarskrárnefndin skal semja frumvarp til nýrrar stjórnarskrár. Stjórnarskrárnefnd gefur þeim hagsmuna- og áhugamannasam- tökum i landinu, er hún telur ástæðu til, kost á að láta i té til- lögur um endurbætur á stjórnar- skránni. Nefndin skal haga störfum svo, að leggja megi tillögur hennar fyrir Alþingi 1974. Kostnaður við störf stjórnar- skrárnefndar greiðist úr rikis- sjóði.” EB-Reykjavik. Á fundi i Sameinuðu þingi i fyrradag var eftirfarandi tillaga samþykkt sem ályktun Alþingis: „Alþingi ályktar að fela rikis- stjórninni að hlutast til um, að Seðlabankinn veiti viðskipta- bönkunum nú þegar sérstök lán til að koma rekstraraðstöðu iðn- fyrirtækja i viðunandi horf. Rekstrarlán til þeirra fyrirtækja, sem sett geta viðunandi trygg- ingu, verði veitt i samræmi við þær lágmarksreglur, sem nú skal greina: a) Fyrirtækin fái vixlasölu- heimildvvixilkvóta) til sölu á allt að 90 daga löngum vixlum, er EB-Reykjavik. Rikisstjórnin hefur lagt fyrir Alþingi frumvarp til hafnarlaga, sem samið er af nefnd, er skipuð var 19. mai i fyrra. Taldi nefndin, að verulcgt átak þyrfti að gera til þe ss að létta af hafnarsjóð-um þeirri fjárhagsbyrði, sem á þeim livilir nú, og væri það ekki á ann- an hátt gert en með auk inni þátttöku rikisins i hafnarfram- kvæmdum. bær breytingar, sem nefndin taldi þýðingarmest, að gerðar yrðu á lögum i þessu skyni, eru eftirfarandi sam- nemi allt að þriggja mánaða framleiðslu þeirra. b) Auk þess fái fyrirtækin^yfir- dráttarheimild á reikningslanum (hlaupareikningsyfirdrátt), er svari til þriggja mánaða kaup- greiðslu viðkomandi fyrirtækis. Að þvi er varðar báða ofan- greinda liði, skal miðað við meðaltalsframleiðslu og meðal- talskaupgreiðslu s.l. tvö ár.” Flutningsmenn tillögunnar voru sjö þingmenn Framsóknar- flokksins, þeir Þórarinn Þórar- insson, Ingvar Gislason, Jón Skaftason, Jónas Jónsson, Vil- hjálmur Hjálmarsson, Bjarni Guðbjörnsson og Ásgeir Bjarna- son. kvæmt athugasemdum frum- varpsins: 1. Framkvæmdir, sem styrktar eru með 75% framlagi af rikisfé, eru auknar frá þvi sem áður var, jafnfr. gerð' skýrari mörk milli þeirra framkvæmda, sem njóta 75 og 40% ríkisátyrks. Aðalbreyt- ingin er fólgin i þvi, að bryggjur og viðlegukantar, sem áður nutu 40% rikisstyrks, munu sam- kvæmt tillögunum njóta 75% rikisstyrks. Samkvæmt upplýs- ingum Hafnamálastofnunarinnar hefur meðalframlag rikissjóðs til hafnaframkvæmda, siðan núver- andi lög tóku gildi, numið um og yfir 60%, á árinu 1971 63%, og gæti raunveruleg kostnaðarþátt- taka rikissjóðs þvi hækkaað úr 63% i um það bil 72 — 74%, en nokkuð er enn af framkvæmdum, þar sem rikissjóður greiðir 40% af stofnkostnaði. Þar eru dráttar- brautir þýðingarmestar. 2. Nefndin telur óhjákvæmilegt, að Hafnabótasjóður verði efldur. Er gert ráð fyrir, að framlag til sjóðsins nemi 12% af árlegum framlögum rikisins á fjárlögum til hafnarmannvirkja og lend- ingarbóta, en framlagið verði þó aldrei lægra en 25.0 millj. kr. Auk þess koma til eigin tekjur Hafnabótasjóðs, en þær eru enn sem komið er óverulegar. Fram- angreindar tillögur nefndarinnar, um hækkun rikisframlags og efl- ingu Hafnabótasjóðs, myndu, miðað við framlög á fjárlögum 1972, hafa i för með sér útgjalda- aukningu rikissjóðs, sem næmi um 30-35 millj. kr. 3. I ákvæðum til bráðabirgða er gert ráð fyrir þvi, að gerðar verði sérstakar ráðstafanir til að létta greiðslubyrði þeirra hafnarsjóða af löngum lánum, sem verst eru settir. Alyktun Alþingis: Rekstraraðstöðu iðn- fyrirtækja verði komið í viðunandi horf - Seðlabankinn veiti viðskiptabönkunum sérstök lán í þessu skyni

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.