Tíminn - 04.05.1972, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 4. maí 1972.
TÍMINN
19
MEINAÐUR
AÐGANGUR
AÐ ÁRNAGARÐI
og nöglum og bensíni hellt í veg fyrir bílalestina
OÓ—Reykjavik.
Þegar utanrikisráö-
herrarnir Einar Agústsson og
William Rogers komu að
Árnagarði i gærmorgun til að
skoða Handritastofnunina,
var þar fyrir hópur fólks, sem
meinaði þeim inngöngu. Ráð-
herrarnir gengu upp á tröppur
hússins, en i anddyrinu sat og
stóð hópurinn fyrir og sneru
þeir þá frá, svo að ekkert varð
af handritaskoðun i það sinn.
Þegar ráðherrarnir voru
komnir upp i bil sinn aftur,
ruddust nokkrir úr hópnum
fram, og piltur kastaði sír upp
á bilinn. Kom til nokkurra
ryskinga milli sjálfskipaðra
varða islenzkra handrita og
varða laganna.
Dyrum að Handritastofnun-
inni var læst, og er ekki vitað
hver stóð fyrir þvi, en Jónas
Kristjánsson, sagðist telja, að
ekki hafi beinlinis verið
meiningin, að loka sig og
starfsfólk Handaritastofnun-
arinnar inni, heldur einhverja
aðra aðila úti.
Fólkið i anddyrinu útbýtti
dreifibréfi, sem á var þessi
málefnalega fyrirsögn: „Éttu
hund Rogers”.
„I bréfinu segir: „Nú,þegar
bandariskir stúdentar eru að
hefja mótmælaaðgerðir gegn
glæpakliku heimsvaldasinna i
Pentagon, viljum við sýna
samstöðu með þeim, með þvi
að koma i veg fyrir að varð-
hundar ■ heimsvaldasinna
saurgi musteri islenzkra
fræða.
Yfir aðalinngangi
„musteris islenzkra fræða”
blakti fáni Þjóðfrelsis-
hreyfingar Vietnam.
Þegar Rogers og fylgdarlið
voru að fara frá Bessastöðum
um kl. 3.30 i gær, áleiðist til
Keflavikurflugvallar, óku
tveir rútubilar, fullir af fólki,
út á Álftanes. Voru þar á ferð
flestir hinna sömu, sem stóðu
fyrir dyravörzlu i Arnagarði
um morguninn. Við Garða-
holtsafleggjara stöðvaði
lögreglan bilana. Hljóp þá
fólkið út framhjá bilum
lögreglunnar.
Lögreglan tók fjóra plast-
brúsa fulla af bensini af
mótmælendum. Voru þeir þá
byrjaðir að hella bensini á
veginn og gerðu sig liklega til
að kveikja i þvi. Einnig tók
lögreglan mikið af pappasaum
af mótmælendum og einnig
pappaspjöld, með nöglum
stungið i gegn. Að sögn
lögreglunnar átti að henda
þessu á veginn og láta bilana
aka yfir. Milli 70 og 100 manns
voru við aðgerðir á Álftanesi.
Voru nöfn 70 þeirra tekin
niður, og var hópnum siðan
sleppt.
Ekki kom til að bilar utan-
rikisráðherranna og fylgdar-
liðs þeirra þyrftu að aka yfir
elda og naglahrúgur. Var bila-
lestinni'beintaf Álftanesinu og
ekið suður með ströndinni og
gegn um Hafnarfjörð.
Snúið frá Árnagarði. i stað þess að ryðjast gegnum hóp mótmælenda var ákveðið að hætta við heim
sóknina i Handritastofnunina.
Móttökunefndin við Árnagarð. Yfir dyrum er fáni Þjóðfrelsisfyikingar Vietnam. Mótmælaboröar blasa
við og ræða flutt i hátaiara. i andyrinu var hópur fólks, sem ákveðinn var I að hleypa ráðherrunum og
fylgdarliði þeirra ekki inn. (Timamynd GE.)
Farnir út að sækja
Fokker Landhelgisgæzlunnar
Umferðarslys Fra^fsalí
yfir eitt þúsund manns i um-
ferðinni.
85% skráðra slysa og
óhappa urðu i þéttbýli, en að-
eins 15% i dreifbýli, og
fækkaði umferðarslysum
nokkuð i dreifbýli, en meið-
slum og dauðaslysum i um-
ferðinni i dreifbýii hefur aftur
á móti fjölgað. f þéttbýli
verða, eins og áður, flest um-
ferðarslys skömmu eftir há-
degið.
Áíjánára ökum.eiga, eins og
áður, oftast hlut að umferðar-
slysum, eða i 669 skipti alls.
Næstirkoma 17 ára ökumenn
með hlutdeild i 584 skipti, en
til samanburðar áttu 30 ára
ökumenn hlutdeild að um-
ferðarslysum i 245 skipti og 50
ára ökumenn i 217 skipti.
A stór — Reykjavikursvæð-
inu svokallaða urðu 69% allra
skráðra umferðarslysa i
fyrra, og er það um 2%
hækkun frá árinu áður. 55.6%
allra umferðarslysa verða i
Reykjavik.
Rogers Framhald af bls. 1.
varð bandarisku ráðherra-
frúnni fyrst fyrir að dýfa hendi
i laugarvatnið og finna yl þess.
I Heyrnleysingjaskólanum
tók Brandur Jónsson skóla-
stjóri á móti frúnum, og var
farið i kennslustund, þar sem
verið var að kenna heyrnar-
litlum börnum.
Að Bessastöðum
Forseti fslands dr. Kristján
Eldjárn bauð bandarisku
utanrikisráðherrahjónunum
til hádegisverðar á Bessastöð-
um i gær, ásamt nokkrum
gestum. Frá bessastöðum var
svo farið til Keflavikurflug-
vallar, og ekið hjá Garða-
kirkju og i gegn um Hafnar-
fjörð, þar sem mótmælendur
höfðu komið með tveim lang-
ferðabifreiðum suður á Álfta-
nesveg, og hópuðust þar sam-
an, en lögreglan kom i veg
fyrir að fólkið færi heim að
Bessastöðum og hindraði för
Rogers.
Á Keflavíkurflugvelli
Aður en Rogers
utanrikisráðherra sté um borð
i flugvél sina á Keflavikur-
flugvelli i gær, hélt hann stutt-
an fund með fréttamönnum.
Sagði hann, að viðræður sinar
við islenzka ráðamenn hefðu
farið fram af fullri einurð og
verið opinskáar, og efaðist
hann ekki um að viðræðurnar
væru gagnlegar fyrir báða
aðila.
Um mótmælaðagerðirnar
við Handritastofnunina sagði
hann að sér þætti leitt að hafa
ekki fengið tækifæri til að
skoða islenzku handritin, en
þeim Einari Agústssyni hafi
ekki þótt ástæða til að brjótast
gegn um hóp mótmælenda og
talið affarasælast að snúa frá.
Annars hefði þetta atvik ekki
spillt neinu i sambandi við
heimsókn sina til Islands.
Hann sagðist gera sér grein
fyrir þvi, að fólkið/sem þarna
var, væri minnihlutahópur,
sem ekki hefði komið fram i
nafni islenzku þjóðarinnar og
við svona löguðu mætti alltaf
búast nú á dögum.
Utanrikisráðherrann sagði,
að Bandarikjamenn hefðu
samúð með íslendingum i
landhelgismálinu og fullan
skilning á mikilvægi fiskveiða
fyrir landsmenn. En hér væri
ekki eingöngu um mikilvægi
fiskveiða fyrir Islendinga að
ræða. Þar kæmi fleira til, og
væri það undir rikisstjórnum
annarra rikja komið, hve
langt Bandarikjamennn gætu
gengið i stuðningi sinum við
málstað Islands i landhelgis-
málinu.
Þá var ráðherrann spurður,
hvort Nató mundi verja fisk-
veiðilögsögu, ef Bretar létu
verða að hótunum sinum um
að senda herskip til að verja
togara sina eftir útfærsluna.
Kvað hann eflaust verða
fundna lausn á málunum, sem
íslendingar gætu sætt sig við,
en allar Nató-þjóðirnar gerðu
sér grein fyrir mikilvægi Is-
lands i samtökunum.
Hóta
NTB—Sofia og Ankara
Fjórir tyrkneskir stúdentar,
vopnaðir skammbyssum og
handsprengjum, rændu i gær
tyrkneskri áætiunarflugvél og
neyddu flugstjórann tii að fara til
Sofia f Búlgariu. Þeir hótuðu að
sprengja vélina með 61 farþega
og áhöfn, ef tyrknesk yfirvöld létu
ekki lausa þrjá stjórnleysingja,
sem dæmdir hafa verið til dauða.
Flugvélin var á leiðinni milli
Ankara og Istambul, er henni var
rænt. Talsmaður ræningjanna
sagði, að vélin yrði sprengd, ef
þremenningarnir yrðu ekki látnir
lausi.
Skaðvaldar í
nútímaljóðlist
OÓ—Reykjavik
Af ófyrirsjáanlegum ástæðum
flytur Guðmundur Gislason
Hagalin ekki bókmenntafyrirlest-
ur sinn á venjulegum tima þessa
viku. heldur á laugardaginn kl.
2.15 e.h. i fyrstu kennslustofu Há-
skólans.
Heiti fyrirlestursins er: Skað-
valdar í fslenzkri nútimaljóðlist.
ÞÓ—Reykjavik-.
Að öllum likindum mun varð-
skipið Ægir, sem hefur verið i við-
gerð siðan um áramót, komast af
stað I næstu viku. Pétur Sigurðs-
son, forstjóri Landhelgisgæzlunn-
ar, sagði að verið væri að ganga
frá siðustu stykkjunum i Ægi, og
að þvi loknu væri ekkert þvi til
fyrirstöðu, að Ægir gæti lagt úr
höfn.
Flugmenn þeir frá Flugfélagi
Islands, sem sækja Fokker
NTB—Washington
Bandariska samninganefndin á
Salt-viðræðunum I Helsingfors
hefur lagt fram tillögu um
stöðvun á styrkaukningu
Sovétrikjanna og Bandarikjanna,
þegar um ræðir árásareldflaugar
á landi og á kafbátum. Jafnframt
skulu gagneldflaugakerfi ekki
vérða fleiri en tvö i hvoru landi.
Það var blaðið Washington
Post, sem skýrði frá þessu i gær,
en utanrikisráðuneytið I
Washinston vill ekki staðfesta ■
fréttina. Margir fjölmiðlar
segjast einnig hafa fengið upp-
lýsingar þessar frá háttsettum
mönnum innan ráðuneytisins.
Blaðið sagði, að formaður
bandarisku sendinefndarinnar,
Gerard Smith, sem brá sér heim
fyrir skömmu, hafi komið aftur til
Helsingfors með fyrirmæli um að
leggja tillöguna fram, en hún er
friendship flugvél Landhelgis-
gæzlunnar, fóru utan á þriðju-
dagsmorguninn, og eru þeir
væntanlegir heim með flugvélina
eftir 2-3 vikur. Um leið byrjuðu
flugmenn og flugvirkjar Land-
helgisgæzlunnar á Fokker-nám-
skeiði hjá Flugfélagi Islands.
Sem kunnugt er, er Landhelgis-
gæzlan búin að festa kaup á
Sikorsky-þyrlu i Bandarikjunum,
og er nú verið að kanna flutnings-
leið á henni heim.
sögð hafa orðið til við miklar
viðræður Nixons og Brésnefs,
sem farið hafa fram undanfarið.
Samkvæmt fréttinni i
Washington Post eru aðalatriði
tillögunnar þessi: 1 hvoru landi
skulu ekki vera nema tvö gagn-
eldflaugakerfi með 100 skot-
pöllum hvort. Núverandi birgðir
Sovétrikjanna af eldflaugum,
sem skjóta má miili meginlanda,
skulu verða hámark, og einnig
þær kafbátaeldflaugar, sem til
eru. Bandarikin eiga nú 41 kafbát
með eldflaugum, en Rússar munu
eiga 42, er lokið hefur verið smiði
17 nýrra, sem hafin er. Heimild
er fyrir bæði löndin til að fækka
eldflaugum sinum i landi og auka
þær i staðinn á kafbátum, eða
öfugt, innan þessa ramma. Auk
þessa er ekki bannað að
endurbæta eldflaugakerfin,
samkvæmt tæknilegum nýjunum.
BANDARIKIN LEGGJA
FRAM SALT-TILLÖGU