Tíminn - 04.05.1972, Qupperneq 13
Fimmtudagur 4. mai 1972.
TÍMINN
13'
UAASJONARMAÐUR
Umsjónarmann vantar að Varmárlaug i
Mosfellssveit frá 1. júni til 15. september
nk.. Upplýsingar um starfið gefa
Guðmundur Jóhannesson, simi 66312 og
sveitarstjóri simi 66219. Umsóknir ásamt
kaupkröfum sendist undirrituðum eigi
siðar en 15. mai, 1972.
Sveitarstjóri Mosfellshrepps
VÉLGÆZLA
Við viljum ráða nú þegar mann til vél-
gæzlu i Kjötvinnslu okkar.
Upplýsingar gefur Guðjón Guðjónsson
deildarstjóri.
AFURÐASALA S.Í.S.
BIFREIÐASKOÐUN
Bifreiðaeigendur i Kópavogi eru hér með
minntir á að bifreiðaskoðun stendur yfir
og á nú að vera búið að skoða bifreiðir
merktar Y1 — Y1000.
Bæjarfógetinn i Kópavogi.
Veljið yður í hag - Úrsmíði er okkar fag
Nivadp.
OMEGA
Jtlpina.
PIERPOm
gnús E. Baldvinsson
Laugavegi 12 - Simi 22804
Seljum alla okkar fram-
leiðslu á
VERKSMIÐJUVERÐI
Prjónastofan Hlíöarvegi’
18 og Skjólbraut 6 — Sími
40087.
Hugsum
áður en við
hendum
TILKYNNING
um aðstöðugjald i Reykjavík
Ákveðið er að innheimta i Reykjavik aðstöðugjald á árinu 1972
samkvæmt heimild i V. kafla laga nr. 8/1972 um tekjustofna sveit-
arfélaga og reglugerð nr. 81/1962 um aðstöðugjald.
Hefir borgarstjórn ákveðið sama gjaldstiga og árið 1971, að frá-
dregnum 35%:
0,13% Rekstur fiskiskipa.
0,325% Rekstur flugvéla. Matvöruverzlun i smásölu. Kaffi, sykur
og kornvara til manneldis i heildsölu. Kjöt- og fiskiðnað-
ur. Endurtryggingar.
0,65% Rekstur farþega- og farmskipa. Sérleyfisbifreiðir. Mat-
sala. Landbúnaður. Vátryggingar ót.a. Útgáfustarfsemi.
Útgáfa dagblaða er þó undanþegin aðstöðugjaldi. Verzlun
ót.a. Iðnaður ót.a.
0,975% Sælgætis- og efnagerðir, öl- og gosdrykkjagerðir, gull- og
silfursmiði, hattasaumur, rakara- og hárgreiðslustofur,
leirkerasmiði. Ljósmyndun, myndskurður. Verzlun með
gleraugu, kvenhatta, sportvörur, hljóðfæri, snyrti- og
hreinlætisvörur. Lyfjaverzlun. Kvikmyndahús. Fjölritun.
1,30% Skartgripa- og skrautmunaverzlun, tóbaks- og sælgætis-
verzlun, söluturnar, blómaverzlun, umboðsverzlun,
minjagripaverzlun. Listmunagerð. Barar. Billjarðstofur.
Persónuleg þjónusta. Ennfremur hvers konar önnur
gjaldskyld starfsemi ót.a.
Með skirskotun til framangreindra laga og reglugerðar er enn-
fremur vakin athygli á eftirfarandi:
1. Þeir, sem ekki eru framtalsskyldir til tekju- og eignar-
skatts, en eru aðstöðuskyldir, þurfa að senda skattstjóra
sérstakt framtal til aðstöðugjalds, sbr. 14. gr. reglugerð-
arinnar.
2. Þeir, sem framtalsskyldir eru i Reykjavik, en hafa með
höndum aðstöðuskylda starfsemi i öðrum sveitarfélög-
um, þurfa að senda skattstjóranum i Reykjavik, sundur-
liðun, er sýni, hvað af útgjöldum þeirra er bundið þeirri
starfsemi, sbr. ákvæði 8. gr. reglugerðarinnar.
3. Þeir, sem framtalsskyldir eru utan Reykjavikur, en hafa
með höndum aðstöðuskylda starfsemi i Reykjavik, þurfa
að skila til skattstjórans i þvi umdæmi, þar sem þeir eru
heimilisfastir, yfirliti um útgjöld sin vegna starfseminnar
i Reykjavik.
4. Þeir, sem margþætta atvinnu reka, þannig að útgjöld
þeirra teljast til fleiri en eins gjaldflokks, samkvæmt
ofangreindri gjaldskrá, þurfa að senda fullnægjandi
greinargerð um, hvað af útgjöldunum tilheyri hverjum
einstökum gjaldflokki, sbr. 7. gr. reglugerðarinnar.
Framangreind gögn ber að senda til skattstjóra fyrir 19. mai
n.k., að öðrum kosti verður aðstöðugjaldið, svo og skipting i gjald-
flokka áætlað, eða aðilum gert að greiða aðstöðugjald af öllum út-
gjöldum skv. þeim gjaldflokki, sem hæstur er.
Reykjavik, 5. mai 1972.
Skattstjórinn i Reykjavik.
og 9 aörir TDilvrrLn.inga.r*