Tíminn - 04.05.1972, Side 17
TÍMINN
17
Fimmtudagur 4. niai 1972.
Fram sigraði KR í bezta
leik Reykjavíkurmótsins
Fram sigraöi KR 2:1 i fjörugum
og skemmtilegum leik s.l. þriðju-
dagskvöld. Þaö voru sannarlega
ánægðir áhorfendur, sem yfir-
gáfu gamla Metavöllinn eftir leik-
inn, sem bauð upp á hraðann,
spennuna og marktækifærin —
mörg „dauöafæri” á báða bóga.
En leikmenn liðanna voru ekki á
skotskónum i leiknum, sem hefði
eins getað endað 4:4.
KR-ingar sóttu nær látlaust
fyrsta stundarfjórðunginn og
voru óheppnir að skora ekki þá. Á
12. min. kom fyrir atvik, sem
áhorfendur kunnu að meta —
Halldór Björnsson, á skot, af 30
metrá færi, knötturinn stefnir upp
i samskeytin — en Þorbergur
Atlason, sem er kominn i sinn
gamla ham — varði frábærlega i
horn á siðustu stundu. Fyrir
þennan „þátt” fengu Halldór og
Þorbergur, óspart lof i lófa frá
áhorfendum, sem kunnu að meta
þennan „þátt” þeirra.
Eftir þetta nær Framliðið
smám saman tökum á leiknum —
liðið byggir upp margar góðar
sóknarlotur, og i einni þeirra
kemur fyrsta mark leiksins,
mark, sem var af ódýrara taginu.
Miðvörður KR, Arsæll, og Gunnar
Guðmundsson, lenda i návigi út
við vitateig — knötturinn hrekkur
frá þeim, yfir Magnús Guð-
mundsson markvörð og i mark —
ódýrt mark það. Min. siðar (25.
min.) var heppnin með KR-ingum
— Kristinn Jörundsson „Marka
Kiddi”, komst einn inn fyrir KR-
vörnina, en Magnús bjargaði i
horn á siðustu stundu.
Ekki voru liðnar nema 3. min.
af siðari hálfleik, þegar knöttur-
inn lá aftur i KR-markinu — As-
geir Elisson, tekur frispark við
vitateigshorn — knötturinn berst
til Eggerts Steingrimssonar, sem
skorar af stuttu færi.
A 11. min. skora svo KR-ingar
markið sitt , Gunnar Gunnarsson,
fær stungubolta — hann hleypur
Fram-vörnina af sér og skorar
fram hjá Þorbergi. 6. min. siöar
fær Hörður Markan, stungubolta
— hann nálgaðist markið óöfluga,
en rétt áður en hann kemst inn i
vitateiginn — þrifur Marteinn
Geirsson, i hann og fellir hann.
En upp frá þessu dofnar yfir
leiknum og skiptust liðin á að
sækja. A 32. min. sleppir góður
dómari leiksins Óli Ólsen, greini-
legri vitaspyrnu — „Marka
Kiddi” var felldur i vitateignum
— en þá var hann i „dauðafæri”.
Framliðið lék oft á tiðum mjög
góða knattspyrnu, sérstaklega á
miðjum vellinum — þegar nær
marki dró, var eins og dofnaði
yfir liðinu og enduöu margar góð-
ar sóknarlotur liðsins með óná-
kvæmum sendingum. Vörn liðs-
ins virðist þyngri en hún var i
fyrra. Beztu menn liðsins, voru:
Marteinn, Þorbergur og hinn
efnilegi Eggert.
KR-liöið er i stöðugri framför,
liðið var óheppið með skot fyrst i
leiknum. Framlinan var mjög
hreyfanleg og er hún skipuð mjög
léttleikandi leikmönnum — beztir
i henni voru Atli Héðinsson og
Gunnar Gunnarson. Vörnin er
frekar þung og opnast hún oft illa,
varnarmennirnir gerðu mikil
mistök — þegar þeir reyndu að
gefa háar spyrnur fram á fram-
linuspilarana, þeir mega vita —
að varnarmennirnir hjá Fram,
hirða yfirleitt alla skallabolta.
I)irk Wippermami
V-Þjóðverjar
byrjuðu vel
Keppnistimahil frjálsíþróttamanna i Vestur-Þýzkalandi er
hafið fyrir tæpum mánuöi. Um ntiðjan april kastaði Dirk Wipp-
ermann kringlunni 63,40 m,sem þá var bezti árangur i greininni I
Evrópu á þessu vori. Wippermann sigraði Claus-Peter Hennig,
sem kastaði 61,34 m. Báöir eru líklegir ólympíukeppendur V.-
Þjóðverja. Nokkru áður slökk Hans-Jiirgen Ziegler 5,20 m á
stöng.
Vestur-Þjóðverjar hafa búið sig undir Olympiuárið af mikilli
kostgæfni og byrjunin bendir til þess, aö árangurinn veröi i sam-
ræmi við það.
Spennandi og skemmtilegt
mót í fimleikum
Keppnin á Islandsmeistara-
mótinu i fimleikum var mjög
jöfn og skemmtileg, eins og sagt
Færeyingar
keppa á
Siglufírði
1 dag, fimmtudag, koma hingað
til lands 11 badmintonleikarar
frá Færeyjum til að endurgjalda
för islenzka badmintonleikara til
Færeyja i fyrra. Munu Færeyi-
ngarnir taka þátt i ýmsum
mótum hér. Fyrsta kepþnin
verður gegn Siglfirðingum á
morgun.
Jón Sig.
til Fylkis
Hinn gamalkunni leikmaöur úr
KR Jón Sigurðsson, hefur nú
ákveðiö að skipta um félag— mun
hann leika með 3. deildarliöi
Fylkis I sumar.
Jón hefur i mörg ár leikið með
meistaraflokki KR-inga i knatt-
spyrnu — i fyrrasumar var hann
fyrirliði 1. deildarliðs félagsins,
en hætti að leika með liðinu,
þegar hann fór að vinna sem sjó-
maður.
Ekki er að efa, að Jón mun
styrkja lið Fylkis, sem sendir i
fyrsta skipti meistaraflokk til
keppni á sumri komanda. Eins og
flestir vita, er Fylkir yngsta
Reykjavikurfélagið, en félagið
hefur aðsetur i Arbæjarhverfi.
var frá i blaðinu i gær, sérstak-
lega i karlaflokki, þar sem úrslit
réðust ekki fyrr en i siðustu
greinunum. Hér á eftir fara úrslit
i einstökum greinum:
KAELAFLOKKUR
Hringir:
Þórir Kjartansson Á 14,8 stig
Kristján Ástráðsson Á 14,6 stig
Sigurður Davíðsson KR14,5 stig
Gólfæfingar:
Birgir Guðjónsson Á. 14,9 stig
Sig. Davíðsson KR 14,7 stig
Þórlr Kjartansson og
Kristján Ástráðsson Á. 14,6 stig
Langfaestur:
Sigm. Hannesson KR 16,0 stig
Sig. Daivíðsson KR 15,9 stig
Hörður Ingólfissan KR 15,7 stig
Xvíslá:
Sig. Davíðsson KR 15,8 stig
Kristján Ástráðss. Á. 15,7 stlg
Þórir Kjartansscm Á. 14,0 stig
Svifrá:
Kristján Ástráðss. Á. 14,0 stig
Sig. Daivíðsson KR 13,4 stig
Þórir Kjartansson Á. 12,8 sti <r
Bogahestur:
Sig. Davíðsson KR 14,2 stig
Sigm. Hannesson KR 13,9 stig
Kristján Ástráðsson Á. 13,1 stig
Þannig að Isl andsmeistar i
varð Sigtirður Davíðsson KR
með 88,5 stig. Nœstur kom
Kristján Ástráðsson Á. 87,4 st.
og þriðj i varð Þórir Kjartans-
son Ármanni með 83,8 stig.
K O N V R
Gólfæfingar:
BryrihiWur Ásgeirsd. A. 15,6
Elín B. G'uðmumdsd. A. 14,9
Ðdda Guðgoirsdlóttir A 13,5
islands-
Jafnvæglsslá:
Edda Guðgeirsdólttir A. 13,1
Ellín B. Guðmundsdlóttir A. 12,6
Hestur:
Ellín B. Guðmundsdóttir A. 14,2
Brynlh. Ásgeirsdóttir A. 13,9
Petrína Úllflarsdóttir 13,8.
Islandsna. varð Elín Btma
Guðmundsdóttir, Armanni, með
41,7 stig, neest kom Edda Guð-
geirsdöttir, Ármanní með 38,5
stig og þriðja varð Brynhildur
Asigeirsd. Á. með 29,5 stig.
f ffloikkalkepprii karia sigraði
KR með 316,6 stig, sveit Ar-
manns var meö 306,8 stig.
Fimmtudags-
mót í kvöld
Fimmtudagsmót frjálsiþrótta-
manna fer fram á Melavelli i
kvöld og hefst kl. 18.30. Keppt
verður I 100 m. hlaupi kvenna,
200 m. hlaupi karla og hástökki
karla.
KR án síns bezta ræðara
í úrsiitaleiknum í kvöld
- Kolbeinn Pálsson í Bandaríkjunum, þegar KR mætir ÍR
Alf—Reykjavik.
— t kvöld, fimmtudags-
kvöld, fer fram úrslitaleikur
íslandsmótsins i körfuknatt-
leik milli IR og KR, en eins og
kunnugt er, sigraði !R i leik
þessara liða um siðustu helgi
með eins stigs mun, en það
leiddi til þess, aö nú verða lið-
in að mætast að nýju i hrein-
um úrslitaleik, sem háöur
verður i iþróttahúsinu á Sel-
tjarnarnesi i kvöld og hefst kl.
20.15.
Enda þótt margir telji, að
KR-ingar hafi á sterkara liði
en 1R að skipa, þrátt fyrir
ósigurinn um daginn, er vist
um það, að róður KR-inga
verður mjög þungur I kvöld,
þar sem þeirra bezti ræöari,
Kolbeinn Pálsson, tekur ekki
þátt I róðrinum. Hann er far-
inn til Bandarikjanna og mun
dveljast þar næstu fjóra mán-
uði. Spurning er, hvort KR-
ingar mega við þvi að missa
hann. Svar viö þvi fæst i kvöld.
IR-ingai náðu
góðum árangii
í Svíþjóð
ÖE—líeykjavík.
„Þetta var ágæt ferð og
árangusrik,” sagöi Guömundur
Þórarinsson, þjálfari III—inga,
en hann fór með fimm unglinga á
mót i Sviþjóð um siðustu helgi.
Veður var aö visu ekkcrt
sérstakt, kaisi og rigning, en viö
létum það ekki á okkur fá.
A laugardag kepptu
Islendingarnir á viðavangshlaupi
Austur-Gautlands i Norrköping.
Magnús Geir Einarsson varð
þriðji i sveinaflokki (15—16 ára).
Keppendur voru 13. 1 flokki
stúlkna 13—14 ára varð Anna
Haraldsdóttir 3ja, Björk
Eiriksddttir fjóröa og Guöbjörg
Sigurðardóttir sjötta. Lilja
Guðmundsdóttir fjórða i flokki
17—18 ára stúlkna. Keppendur
voru 14 i fyrrnefnda flokknum og
16 i þeim siðarnefnda. Keppni
islenzku unglinganna vakti tölu-
verða athygli i Norrköping og
getið var um þau vinsamlega i
blöðum.
Daginn eftir var keppt á móti i
Norrköping. Magnús Geir sigraöi
i 800 m. hlaupi á 2:13,0 min. 1
stúlknaflokki varð Lilja önnur á
2:41,0 min. Anna fjóröa á 2:49,2.
Guðbjörg hljóp á 2:57,0 og Björk á
2:57,5.
Loks var keppt i víðavangs-
hlaupi i Fogdö, sem er 150 km. frá
Norrköping. Magnús Geir varö
annar i sinum flokki og Björk
fjórða í kvennaflokki.
Þetta unga fólk fór þessa för
sem verðlaun fyrir góöa ástundun
við æfingar og marga sigra i
hlaupum.
Firmakeppnin
að hefjast
N.k. sunnudag hefst firma-
keppnin i handknattleik, en
HSl sér um "framkvæmd keppn
innar ásamt sérstakri nefnd Ira
fyrirtækjunum.
Eins og fyrr segir, hefst
keppnin á sunnudag, en allir leik-
irnir fara fram i iþróttáhúsinu á
Seltjarnarnesi. Tvö efstu liðin úr
hverjum riðli keppa i úrslita-
keppni.
Eftirfarandi lið keppa saman
tvo fyrstu dagana:
SUNNUDAGUR
B-riðill:
kl. 13.00 Breiöholt-B.P.
— 13.25 Landsbanki-Héöinn
— 13.50 Póstur og simi-Kassag.
— 14.15 B.P.-Landsbanki
— 14.40 Héðinn-Póstur og simi
— 15.05 Breiðholt-Kassag.
A-riöill:
kl. 15.30 Lögreglan-Skattstofan
— 15.55 Pr.sm. Edda-Bún.b.
— 16.20 Blikk og stál-Hekla
— 16.45 Skattst.-Prentsm. Edda
— 17.10 Búnaðarb.-Blikk og stál
— 17.35 Lögreglan-Hekla
C-riðill:
kl. 18.00 Isal A-Loftleiöir
— 18.25 Slippur-Bæjarleiöir
— 18.50 Isal A-Sláturfélag
— 19.15 Loftleiðir-Slippur
D-riðill:
kl. 19.40 Morgunbl.-Hótel Saga
— 20.05 Isafold-Slökkvilið
— 20.30 Morgunbl.-lsal B
"20.55 Hótel Saga-lsafold
MANUDAGUR
A-riðill:
kl. 18.00 Lögreglan-Blikk og stál
— 18.25 Skattst.-Búnaðarb.
— 18.50 Prentsm. Edda-Hekla
B-riðiU:
kl. 19.15 Breiðh.-Póstur og simi
—19.40 B.P.-Héðinn
— 20.05 Landsb.-Kassag.
C-riðill:
kl. 20.30 Bæjarleiöir-Sláturfél.
— 20.55 Isal A -Slippur
D-riðill:
kl. 21,20 Slökkvilið-tsal B
-21.40 Morgunbl.-Isafold