Tíminn - 29.06.1972, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 29. júní 1972
TÍMINN
5
II.
i
I
Anna í sparifötunun
Þess verður sennilega ekki
langt að biða, að Anna prinsessa
verði valin ein af bezt klæddu
konum heimsins, þvi hún leggur
mjög mikið upp úr þvi að vera
fallega og nýtizkulega klædd.
Þessi mynd var tekin af henni á
Ascot-veðreiðunum, en þar
kemur fólk til þess m.a. að láta
taka eftir sér og klæðnaði sín-
um. Hún er i kápu úr mikið
munstruðu efni, en kápan fer
henni vel þrátt fyrir það, að hún
sé mjög áberandi. Anna er orðin
mikil hefðarfrú, eins og sjá má
á myndinni.
Furðulegur
sumarklædnaður.
Til Ascot-veðreiðanna i Eng-
landi kemur fólk klætt furðuleg-
asta fatnaði, eins og sjá má á
þessari mynd. Veðreiðarnar
standa yfir þessa dagana, og
Frú Gertrude Shilling hefur
komið i nýjum og nýjum fötum
á hverjum degi og þeim stöðugt
frumlegri, en þó telja sumir, að
þessi skinnklæðnaðúr hafi verið
einna undarlegastur af öllu þvi,
sem frúin hefur látið sjá sig i.
Húfan, kraginn, múffan og
kanturinn neðan á kápunni, allt
er þetta úr dýrindis refaskinni,
svo frúnni hlýtur að vera all-
sæmilega heitt i sólskininu i
Englandi. Hún lætur hitann ekki
á sig fá, og hlær og fólkið i kring
um hana horfir á ..múndering-
una" með mesta undrunarsvip.
- ★ ■
Látnir kosnir
á þing
I kosningunum til italska þings-
ins nú i vor voru tveir látnir
menn kosnir, annar i fulltrúa-
deildina en hinn i öldungadeild
þingsins. Voru það þeir Oresto
Marcoz og Germano Ollietti og
báðir voru þeir kjörnir sem full-
trúar fyrir Val d’Aosta-héraðið.
Mennirnir létu lifið i bilslysi
nokkrum dögum fyrir kosning-
arnar.og kosningakerfið á ltaliu
er svo flokið, að ekki var hægt
að strika nöfn mannanna út al'
kjörseðlunum, eða breyta um
nöfn. Þar af leiðandi verður
héraðið fulltrúalaust á þinginu,
þar til þingið sjálft kemur sam-
an og ákveður, að fram skuli
fara nýjar kosningar i héraðinu.
■ ★ “
Vitarnir í voða
Það var við, að skip
strandaði, og var skipstjóri á
þvi maður sá er hét Guðm.
Kristjánsson. Geir ZoSga hafði
útgerð mikla svo sem kunnugt
er. Hann hafði litlu siðar orð á
þvi við kunningja sinn einn, að
sér gengi illa að fá skipstjóra á
eina skútu sina. Maðurinn
sagði, að liklega væri Guð-
mundur Kristjánsson á lausum
kjala. Geir svaraði:
„Landið stenzt það ekki, að ég
taki hann. Hann væri vis til þess
að sigla um einhvern vitann, og
ekki eru þeir of margir”.
isl. klausa.'
ökumenn fá gullhjarta
ökumenn i Vestfalen i Þýzka-
landi eiga von á að fá gullhjarta,
ef þeir sýna kurteisi i umferö-
inni á næstunni. Það er um-
feröarmálaráðherra rikisins,
Horst-Ludwig Riemer, sem hef-
ur ákveðiö að veita gullhjarta,
sem vegur 400 grömm og er 2000
marka virði, þeim, sem sýnir
sérstaka kurteisi á vegum úti.
Umferðarlögreglunni hefur ver-
ið falið aö gera skýrslu yfir þá
ökumenn, sem prúðmannlegast
koma fram, en siðan mun
starfslið Riemers velja úr þess-
um hópi þann, sem á að hljóta
gullhjartaö að viðurkenningu
Þá er ákveðið að veita 21 gull-
hjarta til viðbótar öðrum öku-
mönnum, og eru þessi hjörtu
ekki alveg eins merkileg og
aðalhjartað. Þau vega aðeins
200 grömm, en eru eiguleg
samt, og þess virði að keppa að
þvi að eignast þau.
Veru bara rólegur, hann kemur
alltaf niður á hjólin.
DENNI
DÆMALAUSI
„Heyrirðu, það er verið að leika
þjóðsönginn. Hann hefur verið að
horfa á sjónvarpið enn einu
sinni.”