Tíminn - 29.06.1972, Síða 6
6
TÍMINN
Fimmtudagur 29. júni 1972
Fæðingarheimilið stækkar
- bætir úr gífurlegri húsnæðisþörf fæðingardeilda og bætir mjög vinnuaðstöðu
»SC>5eOG4«
PUMA
Póstsendum
knattspyrnu-
SKÓR
Það er kunnara en frá þurfi að
segja, aö húsnæðisvandræöi
fæðingardeilda borgarinnar hafa
verið geigvænleg á siðustu árum
og er haft fyrir satt, að i neyðar-
tilfellum hafi konur jafnvel þurft
aö eiga börn sin á salernum og
baðherbergjum fæðingardeildar
Landsspitalans.
Þrengsli hafa einnig veriö mikil
á Fæðingarheimili Reykjavikur
við Þorfinnsgötu/Eiriksgötu, en
nú virðist eitthvað vera að rofa til
i þeim efnum. Borgin hefur keypt
húseignina Þorfinnsgötu 16, sem
er næsti stigagangur við
Fæðingarheimilið og eru fram-
kvæmdir við stækkunina nú
hafnar.
Haukur Benediktsson, fram-
kvæmdastjóri Borgarspitalans,
sem jafnframt sér um aðrar
sjúkrastofnanir borgarinnar,
sagði i viðtali við fréttamann
Timans i gær, að vonazt væri til,
að viðbótarhúsnæði yrði tilbúið i
haust, allavega að hluta.
— Ekki verður beinlinis um að
ræða fjölgun á sjúkrarúmum,
sagði Haukur, — en þó vonumst
við til að sjúkrarúmin geti orðið
30 i stað þeirra 25, sem við höfum
nú á Fæðingarheimilinu. Við
höfum fyrst og fremstáhuga á, að
auka rými fyrir ýmsa vinnuað-
stöðu, setustofu, borðstofu og
fleira þess háttar, svo sem vinnu-
plássi fyrir starfsfólkið.
Haukur sagði erfitt að koma
þessum framkvæmdum af stað,
þar eð erfitt væri að fá vinnukraft
nú, en reiknað væri með, að auð-
veldar -yrði málið að afloknum
sumarleyfum.
Erfitt hefur verið að fá þessa
húseign keypta og sagði Haukur,
að borgin hefði veriö að kaupa
Malarskór:
Pelé Mexico, stærð 6 1/2—101/2 verð kr. 2060,00
Benfica Super, stærð 7—12, verð kr. 1946,00
London City, stærð 6 1/2—9, verð kr. 1798,00
Puma Rapid, stærð 5—12, verð kr. 1590,00
Pelé Santos, stærð 3 1/2—8, verð kr. 1430,00
PeléRio, stærð 3 1/2—7, verð kr. 984,00
Grasskór:
Puma Tottenham, stærð 7—10 1/2, verð kr. 2205,00
Sportvöruverzlun
Ingólfs Oskarssonar
Klapparstig 44 — Simi 11783 — Reykjavík
eina og eina ibúð undanfarin 3—4
ár. — Sennilega losar kaupverðið
6 milljónir, sagði Haukur, — og
við reiknum með, að kostnaður
við breytingarnar og
lagfæringarnar á nýja húsnæðinu
— þetta er náttúrlega gamalt hús
og þarf töluverðu til að kosta —
komi til með að verða einhvers-
staðar á milli einnar og tveggja
milljóna.
A þessari inynd sést hvaða hluti húsasamstæðunnar það er, sem Fæðingarheimiii Reykjavfkur fær nú
til umráða. Þarna fæðast um 1000 nýir borgarar árlega og veitir þvf svo sannarlega ekki af auknu hús-
rými. (Timamynd Róbert)
RAFMAGNSVEITA REYKJAVIKUR
tilkynnir flutning
á hluta af starfsemi sinni i
nýja bækistöð að Ármúla 32
simi 86222.
EFTIRTALIN STARFSEMI VERÐUR I
ÁRMÚLA:
Framkvæmdadeild, og birgðavarzla og
verkstæði, áður að Barónsstig 4 og Lækj-
arteig.
Verkáætlanir og teiknistofa, áður i
Hafnarhúsi.
í HAFNARHÚSI
sími 18222 verður áfram:
Aðalskrifstofa, fjárvarzla og bókhald, við-
skiptadeild (greiðsla reikninga), inn-
lagnadeild (afgreiðsla heimtauga og raf-
magnseftirlit), verkfræðideild og inn-
kaup.
rá
j RAFMAGNSVEITA
^ REYKJAVÍKUR
1
KENNARAR
Nokkrar kennarastöður eru lausar við
Flensborgarskólann i Hafnarfirði. Helztu
kennslugreinar: eðlisfræði, efnafræði, lif-
fræði, landafræði, stærðfræði, islenzka,
erlend tungumál og saga.
Umsækjendur þurfa helzt að geta kennt
bæði á gagnfræða- og menntaskólastigi,
en til mála kemur að ein staðan geti orðið
full menntaskólakennarastaða.
Æskilegt er að umsækjendur geti kennt
fleiri greinar en eina. Umsóknarfrestur
um stöður þessar er til 5. júli nk.
Fræðslustjórinn i Hafnarfirði
Neskaupstaður:
Lítill
smábáta-
afli og
engin sól
BG—Neskaupstað
Hér á Neskaupstað hefur
vart sézt til sólar í marga
daga og veðrið verið heldur
leiðinlegt. Tæplega hefur gefið
á sjó fyrir smábátana og er
afli þeirra lélegur, mun
minni en á sama tima i fyrra.
Skuttogarinn Barði veiðir
hins vegar vel og landaði
siðast 70 tonnum eftir vikuna.
t sveitinni biða bændur með
sláttinn eftir þurrki, en tún
eru ágætlega sprottin.
Vegagerðarframkvæmdir i
Oddsskarði eru hafnar og eru
það Gunnar og Kjartan á
Egilsstöðum og tstak, sem
annast þær.
Næg atvinna er hér á
Neskaupstað, bæði við
byggingar og annað. Talsvert
er af húsum i byggingu, en þó
færri en i fyrra.
Þá má geta þess, að Karla-
kór Reykjavikur hefur verið á
ferðinni hér eystra og fengið
frábærar móttökur. Hér söng
kórinn 17. júni fyrir fullu 400
manna húsi og við mikil
fagnaðarlæti áheyranda. Við
höfum hér litið af söng á
sumrin, þvi samkórinn okkar
starfar ekki nema aö
vetrinum.
Raufarhöfn:
Aldrei jafn
léleg atvinna
HH—Raufarhöfn
Atvinnuástandið hér á Raufar-
höfn hefur sennilega sjaldan eða
aldrei verið cins slæmt og núna.
Ekkert er að gera i frystihúsinu
þessa stundina og tæplega horfur
á aflahrotu i bráð. Litið hefur
gefið i sjó fyrir smábáta undan-
fariðog litið veiðzt þótt gefið hafi.
Karlmanns-
reiðhjól
til sölu. Selzt ódýrt
Upplýsingar i sima
8-43-60.