Tíminn - 30.07.1972, Page 7
Sunnudagur HO. júli 1972
TÍMINN
7
Kvenáhöfn neðan-
sjávarrannsóknarstofu
Fjórar ungar konur, Tamara
Babajeva verkfræðingur,
Jelisaveta Kusnetsova tækni-
fræðingur, Galina Sjisjkina
lyfjafræðingur og Svetlana
Tjaplygina liffræðingur, eru i
þann veginn að hefja störf i
rannsóknarstofu á hafsbotni en
til þessa hafa þar einungis
starfað karlar. Haffræði-
rannsóknarstofnunin sovézka
hefur samþykkt þetta eftir að
stúlkurnar höfðu reynzt við
æfingar í réttþrýstiklefa a.m.k.
eins vel hæfar líkamlega til
þessara starfa eins og karl-
menn.
Neðansjávarrannsóknar-
stofur eru meir og meir notaðar
við hafrannsóknir og eru Sovét-
rikin mjög framarlega á þessu
sviði. Tveir sovézkir könnuðir
hafa nýverið dvalizt 11 daga í
réttþrýstiklefa við skilyrði, sem
samsvara dvöl á 45 metra dýpi
undir haffleti. Notuð var and-
rúmsloftblanda af köfnunarefni
og súrefni og mönnunum leið
betur en af helium og súrefnis-
blöndunni, sem venjulega er
notuð, en er dýr i framleiðslu og
þarf stór og flókin tæki til að
framleiða. Köfnunarefnis-
blandan gerir áhöfn neðan-
sjávarklefanna mögulegt að
vinna heila vakt i einu undir
fullum þrýstingi.
★
Hátiðnihljóðbylgjur við
skurðaðgerðir
Hátiðnihljóðbylgjur geta i
mörgum tilfellum komið i stað
venjulegra „verkfæra” skurð-
lækna, hnifs og sagar. Sovézkir
sérfræðingar hafa þróað tækni,
þar sem hátiðnihljóðbylgjutæki
eru notuð við beina- og liða-
mótaaðgerðir, nokkurs konar
logsuða. Er þessi aðferð m.a.
notuð við aðgerðir á beinvef og
til að skera i mjúkan vef. Það er
mjög þýðingarmikið við þessa
nýju aðferð, að hátfðnihljóð-
bylgjurnar verka staðdeyfandi.
Þessi nýja tækni hefur fyrst i
stað verið notuð við skurðað-
gerðir á börnum, og hún hefur
einnig reynzt mjög nytsamleg
við brjótsaðgerðir.
Kom aftur og játaði
Þrjátiu og sjö árum eftir að
vera formlega kærður fyrir að
hafa framið morð, kom Lonnie
Cross aftur til lögreglunnar i
Jacksonville i Florida i Banda-
rikjunum og sagðist vera
kominn til þess að taka út hegn-
ingu fyrir glæpinn. Hann
sagðist koma vegna þess, að
hann vildi ekki eiga óuppgerðar
skuldir við drottinn sinn, þegar
hann færi sjálfur i gröfina.
Þetta verður i fyrsta sinn, sem
ég fer i fangelsi allt mitt lif, en
nú er ég 66 ára gamall, sagði
hann ennfremur. Rikis-
saksóknarinn i Florida fletti upp
igömlum skýrslum, og þar kom
i ljós, að Lonnie Smith, öðru
nafni Lonnie Cross, hafði verið
ákærður fyrir morð 13.
desember, 1935. Hann hafði
stungið Edward Bozier til dauða
með stórum hnif, 3. nóvember,
1935. Cross sagðist hafa komizt
undan til Savannah i Georgiu,
eftir að mroðákæran var gefin
út, og þaðan hélt hann svo til
New Orleans, en þar hefur hann
starfað allt fram til þessa dags,
undir fölsku nafni. Fyrir þrettán
árum lenti Cross svo i
umferðarslysi, og nú segist
hann halda, að það hafi verið
fyrir forsjá drottins, að hann lét
ekki lifið i það sinn, enda hafi
drottinn ætlað honum að fara
aftur til Florida til þess að
viðurkenna giæp sinn. Nú er
hann lika kominn þangað aftur,
en saksóknarinn, Don Nichols
segir, að ekki verði hægt að
dæma hann sekan á hans eigin
framburði, svo ruglingslegur,
sem hann nú hljómar, og er þvi
hafin leit að einhverjum
vitnum, sem hægt yrði að fá til
þess að bera vitni, ef af mála-
ferlum verður.
4 Gengurtil sálfræðings
Joan Kennedy eiginkona Ted
Kennedys hefur undanfarið eitt
ár gengið stöðugt til sál-
fræðings. Það er erfitt að vera
Kennedy, að minnsta kosti ef
fólk ætlar að koma fram og
hegða sér á allan hátt eins og
slikum sæmir. Af þeim sökum
hefur Joan orðið að leita sér
lækninga. — Maður tapar trúnni
á sjálfan sig vegna allra þeirra
erfiðleika, sem á veginum
verða, segir Joan.
Verður rík á ævi-
sögunni
Nina er alveg hætt að vilja tala
um Friðrik sinn fyrrverandi
eiginmann, þegar hún kemur til
Kaupmannahafnar, en siðast
þegar hún kom þangað vildi hún
svo mjög gjarna segja blaða-
mönnum og öðrum, sem heyra
vildu að hún hefði tapað einni
ferðatöskunni sinni, og i þessari
tösku hefðu verið öll sendibref
hennar frá Friðriki frá fyrri
árum, þegar hún var barónessa
og þau hjón ferðuðust um og
sungu fyrir fólk, og sömuleiðis
allar myndir, sem minntu hana
á fortiðina. En Nina sagði, að
sér væri alveg sama þótt hún
hefði tapað töskunni. Eiginlega
væri það bara gott, og hefði eins
og losað hana við fortiðina. Nina
hefur aukið mikið á frægð sina
við það að lenda i slagtogi við
Clifford Irving, sem sekur
reyndist um að hafa skrifað
ævisögu Howard Hughes án
þess að hafa nokkru sinni rætt
við hann. Þau Nina og Irving
bjuggu saman um tima á hótel
Victoria i Oaxaco i Mexikó, og á
þeim tima þóttist Irving hafa átt
samræður við Hughes og safnað
efni um hann, en Nina segir, að
þau hafi verið allan timann i
návist hvors annars, og þvi geti
slikt ekki hafa átt sér stað. Nú
er Nina sjálf búin að selja út-
gáfuréttinn að ævisögu sinni og
hefur fengið 100 þúsund dollari
innborgun vegna bókarinnar.
Þá er hún á leiðinni til Holly-
wood þar sem hún ætlar að fara
að leika isinni fyrstu mynd. Hér
sjáum við hana svo dansa i
kring um umboðsmann
sinn, John Marshall,á meðan
annar herra lagar hár
Marshalls með greiðu og
hárþurrku.
*
Stúdentar byggja
,,hvirfilvindavél”
Stúdentar við háskólann i Riga,
höfuðborg lettneska sovét-
lýðveldisins hafa smiðað vél,
sem sendir straum upphitaðs
lofts i um það bil 3000 metra
hæð, en þar með eru menn þess
umkomnir að búa til hvirfil-
býlji og önnur loftfyrirbæri,
sem þeim eru tengd. Tæki þetta
er byggt á flugvélahreyflum og
það er einnig hægt að nota það
við tilraunir i þvi skyni að fram-
kalla regn.
— Þetta er sennilega af þvi að
mömmu langaði svo i pels, þegar
hún gekk með mig.
— Mér kemur ekkert við þó
mjólkurpósturinn sé stunginn af
með kon una mina. Ég vil fá
mjólkina.
— Ég skildi ekkert, hvað þú varst
að gera út um miðja nótt.
DENNI
DÆAAALAUSI
ilrottinn minn, nú er heitt. Hvaða
mamma skyldi verða fyrst til
þcss að setja loftkælinguna á.